Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 23.11.1894, Side 2
14
Þjódviljinn ungt.
IY, 4.
lendingum eigi sem réttastar hugmyndir
um ástandið, eins og það er, þar sem
hann gerir það að almennri og undan-
tekningarlausri reglu, sem að vísu kann
að hafa borið fyrir augu hans hjá stöku
kotungum austur í Grafningi, Ölfusi eða
Flóa, en sem hvergi nærri á sór stað
hjá öllum almenningi hér á landi.
Að slá því út rneðal útlendinga, að
alþýða manna hér á landi viðri aldrei
rúmfatnað, að baðstofu-gólfin séuaðjafn-
aði rykug og skítug, að ísu-spyrðurnar
hangi uppi i baðstofunni, innan um þvott-
inn, o. fl., það eru þær öfgar og fjarstæð-
ur, sem vér íslendingar þurfum síður
en ekki að vera dr. Elders þakklátir
fyrir, að hann breiði út.
Hér á landi mátti svo heita, að uppi
væri fótur og fit, til að greiða götu dr.
Elders sem bezt, og liefðum vér þvi mátt
annars af honum vænta, en að hann
breiddi út um oss ósannar sögur.
En hvað sern þessu líðnr, þá verður
því eigi neitað, að hreinlæti og þrifnaði
er viða enn mjög ábótavant hér á landi,
og ættu menn að gera sér far um að
kippa þvi i betra horf, svo að vanvirðu-
laust sé, bæði gagnvart sjálfum oss og
útlendingum. Eitstj.
----000^00«------
Byssu-kúlur em menn nú farnir að steypa
úr „aluminium11, — hieum ný fundna létta
mklmi —, og hafa þær gefizt engu síður, en
vanalegar byssu-kúlur, — á stuttu færi; en á
100 faðma færi, eða þaðan af lengra, eru þær
alveg aflvana, svo að liklegt þykir, að þær verði
aldrei almennt notaðar.
Buddlia-trú í Ameríku. í amerískum blöð-
um er þess getið, að Buddha-pregturinn Deki-
Horru-Shí, frá Japan, — einn af þeim, som
sóttu trúar-þingið í Chicago í fyrra —, hafi ný
skeð kveðið svo að orði í ræðu, sem bann flutti
í Tokio, að enda þótt tilgangur trúar-þingsins
í Chicago hefði aðailega verið sá, að stuðla að
útbreiðslu kristindómsins, þá hefði þó árangur-
inn orðið, að sýna hina margvislegu yfirburði
Buddha-trúar; og sýnilegur ávöxtur væri það
þegar, að Buddha-trú væri nú sem óðast að út
breiðast i Ameríltu, einkum á Kyrrahafsströnd-
um. — 1 og umbverfis Boston væru og um 20
þúsundir Buddba-trúar manna.
Aldur Xínga ra. Sumir jarðfræðingar í Ame-
riku telja aldur Níagara-fossins 31 þúsund ár;
en auðvitað er það að eins lausleg ágizkun,
sein lítt er mark á takandi.
í kirkjugarði einum i borginni Nantes á
Frakklandi hafa menn fundið líkkistur úr steini,
og eru sumar þeirra skreyttar ýmis konar mynd-
um; hefir þar verið heiðið hof til forna, löngu
áður en kristin trú þekktist.
Nýja Pnniima-fcliigið, sem ætlar að fullgjöra
skurðinn gegnum Panama-tangann í Mið-Ame-
ríku, byrjar með 65 milj. franka höfuðstól, og
mun vanséð, hvort það hrekkur, þó að líklega
verði nú sparara á haldið, en hjá gamla félag-
inu. — 5 miij- franka hefir stjórnin í Colombia
áskilið fyrir framlengingu einkaleyfisins til
skurð-lagningarinnar.
---------------
T>:A-laoleííiii- er
það, — um 100 þúsund krónur —, sem
þeir Vídalín og Zöllner senda kaupfélög-
unum nú með síðustu ferð „Lauru“ í
ár, að því er hr. L. Zöllner ritar oss frá
Newcastle með gufuskipinu „Linden“
10. þ. m.
Hafa flest kaupfélögin átt stór-fé inni,
er reikningar voru full-gjörir, og að eins
þrjú þeirra standa nú í nokkurri skuld,
sem sjálfsagt má gera ráð fyrir, að borg-
uð verði að fullu á komanda ári.
Að kaupféjögin þannig yfir höfuð
standa mun betur að vígi í ár, ennokkru
sinni fyr, er gleðilegur vottur þess, að
þau, — þrátt fyrir alla mótspyrnu ein-
stakra manna —, blómgast æ meir og
meir, og keppa en öflugar, en áður, að
því takmarkinu, sem þau hafa sett sér,
að gera þjóðina sjálfstæða og frjálsa í
verzlunar-efnum.
-----------------
Arás á lc:i 11 j11.
Almenningi hér á landi er það ef
til vill ókunnugt, að í Kaupmannahöfn
er til félag eitt, sem nefnist: „Félag
ísl. kaupmanna í Höfn“, og er hr. A. O.
Asgeirsson kaupmaður formaður þess.
Að jafnaði fara störf félags þessa
ekki mikið í hámælum, en nýlega hefir
þó kvisazt þaðan dá-lagleg saga, sem
rétt er, að almenningur hór á landi fái
að heyra, með því að hún sýnir svo á-
þreifanlega, hvernig sumum isl. kaup-
mönnunum i Höfn muni vera innan brjósts
til kaupfélaganna, og þeirra marina, sem
rutt hafa brautina, og brotið hafa ísinn
fyrir hinni nýju og frjálslegu verzlunar-
stefnu, sem kaupfélögin hafa sett á sitt
merki.
I ofan nefndu „félagi ísl. kaupmanna
í Höfn‘£ kvað vera alls um 30 fólagar,
og skrifuðu 12 þeirra nýlega formann-
inum bréf, og kröfðust þess, að hr. J'on
Vídálín, sem verið hefir i fólaginu, væri
gjör félngsrœkur; er svo sagt, að þeir
beri fyrir sig eina grein félagslaganna;
en eptir þeirri grein að dærna, eru það
að eins afskipti Vtdaléns af ísl. kaupfé-
lögunum, sem þeir finna honum til saka.
Hvernig reitt hafi af þessari barna-
legu árás á lir. Jón Vídalín, — fyrsta
frumkvöðul, og annan aðal-umboðsmann
félaganna —, höfum vér enn eigi heyrt,
enda skiptir það og í sjálfu sér minnstu,
þvi að líklega er uppbyggingin eigi svo
mikil, að hr. Vídalín þurfi að vera eptir-
sjónin í.
En hitt skiptir meiru, að öll íslenzku
kaupfélögin hljóta að skoða það sem árás
sér sýnda, þegar þannig er ráðist á ein-
staka menn fyrir sakir þess málefnis,
sem þau eru að berjast fyrir.
Og fyrir ísl. kaupmennina í Höfn er
það síður en ekki hyggilegt, að vera að
nota þessa og því um líka „tituprjóns-
stingi“.
Það ætti að verða, — og verður óef-
að — að eins til þess, að auka kaup-
félags-áhugann enn meira, en áður.
„Stóra málið“ - nýjustu horfur.
Hr. Sigtryggur Jónasson frá Winni-
peg skrifar ritstjóra „Þjóðv. unga“ 25.
sept. síðastl. frá Liverpool, meðal annars,
um „stóra málið“ a þessa leið:
„Tilgátan er alveg rótt, að það er
síður en svo, að mór líki meðferð efri
deildar á málinu. Eins og mig grunaði,
og svo sem jeg drap á í bréfi mínu 16.
þ. m., þykir kunningjum mínum liér
frumvarpið alveg óaðgengilegt, eins ogþað
var afgreitt frá neðri-deild, nema breyt-
ingar fáist á ýmsum atriðum . . . . ; en
þó að ekkert hefði nú verið út á frv.
neðri-deildar að setja, þá er málinu greitt
algjört rothögg*, ef tillögur efri-deildar
nefndarinnar fá fraingang; það er ekki
aðgengilegt, að stytta tímabilið, sem skip-
in fá styrk, rneira en búið var; en hitt
er því óaðgengilegra, að landshöfðingi
hafi hönd í bagga með stefnu brautar-
innar, hafi verkfræðing upp á kostnað
félagsins, til að ráða því, hvernig braut-
ir og brýr sóu byggðar, skipin o. s. frv.
*) Auðkennt að oss. Ritstj.