Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.01.1895, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.01.1895, Blaðsíða 4
48 Þjóðviljinn itngi. IV. 12. Hugprúða hetja, hnigin, fallin, fárr var líki þinn fjörs um aldur; stór var þinn styrkur, stór þinn hugur, manndáð þín mest til manna heilla. Aumt gaztu ekkert augum litið; líkn var vís þin til liðs þeim aumu; mundin kraptmikla mönnum öllum boðin og búin björg að veita. Nií ertu heim korninn hafs úr volki, fagnar Rös* sú, er fremst þér unni. Drekk þú nú glaður, i Gimlis sölum, ódáins veigar, með vinum þínum. Opt var þér, Snillingur, ólgufull leið, en ágæt var stjórn þín á bárum; með hugrekki stýrðir þú heimferðar skeið á hættlegum vegferðar-árum. Og höfnina fannstu með hugprýði bezt, sem hýsir svo ágæta drengi. Farðu vel, vinur, en manndáð þin mest í minnum skal höfð verða lengi. Hún** grœtur, sem unni þér, góðvinur kær, því gleðinnar slitið er ræðum. Hún fellir í einrúmi tárin sín tær; þau telur einn Drottinn á hæðum. Mannfélag saknar þín, mann-baldur kær, því missir sá fæst ekki bættur. Yér gleðjumst, að nú ertu Guði þó nær, þótt gleðja oss sértu nú hættur. Sighv. Or. Borgfirðingur. ísafirði 31. jan. ’95. Tíðari'ar. Síðan síðasta blað vort kom út, hefir all-optast verið stillt veðrátta, og frost nokkur, unz 28. þ. rn. sneri til suðvestan áttar, og gerði hér talsverðan blota i íyrra dag, gær og í dag. ___________ Aflabrögð haldast enn rnikið góð hór við Djúpið. og er það mál gamalla manna, að þessi vetur muni einhver mesti afla-vetur, sem hér hefir komið á þessari öld. Af Snæf jallaströndinni er oss ritað 18. þ. m.: „Fiski-afli góður, og skepnuhöld góð, en alveg *) Rósamunda Sigríður, kona Guðm. Hagalíns, sem hann missti 20. sept. 1898 (sbr. „Þjóðv. unga“ 2. árg. bls. 12); milli þeirra hjóna varð 1 ár og 40 dagar. **) Ungfrú María Sigmundsdóttir, sem Guðm. Hagalin ætlaði að giptast, sbr. IV. árg. „Þjóðv. unga“ nr. 10. haglaust af áfreða, og má heita innistaða, síðan fyrir jólaföstu, svo að eyðzt hefir mikið af heyjum". Sjónleikum er enn haldið áfram hér í kaup- staðnum öðru hvoru, og stendur nú til, að farið verði innan skamms að leika „Þrumuveðrið" eptir Hostrup, líklega í fyrsta skipti á laugar- daginn kemur (2. febr.). -----8500^00«------ Einn alræmdur ísflrzkur óþokkapiltur, sem sjálfur hefir ný skeð orðið sér til opinberrar vanvirðu fyrir íllmnlgi og róg um náungann, svo að hann þorir nú ekki íramar að róa þeirri fleytunni á eigin ábyrgð, hefir í þess stað, til þess þó á einhvern hátt að þjóna sinni stráks- legu æruleysis-lundu, narrað trúvinglara-aum- ingjann Einar Jochumsson til aðhnoðasam- an skömmum um biskupinn, og síðan um ritstjóra blaðs þessa, teljandi Einari trú um, að þetta væri eini óbrigðuli vegurinn til þess, að heilags anda meðtekningu hans úr kertaljósahjálminum i Reykhólakirkju yrði almennt trúað, og hann þar með viðui’kenndur „postuli11, sti-fðandi á þann vanheiiaga Móeses! En þegar svo ritstjóri „Þjóðv. unga“, — rétt til þess að venja menn af því, að iáta narra sig til slikrar flugumennsku —, stefnir þessum flugumanni, þá varð þessi aumingi, — sem segir þó i öðru orðinu, að það sé sín hjartfólgnasta löngun, að mega verða krossfestur! — svo laf- hræddur, að hann beið ekki boðanna, kvaddi hvorki kóng nó jarl, en hljóp þegar i burtu úr bænum, frá matskrínu sinni opinni, fata-rýjum og öðrum pjönkum, og sást á eptir honum hér inn með öllum Firði, eins og fætur toguðu! En fyrir réttinum mætti 17. þ. m., fyrir hönd Einars, Magnús kaupmaður Jochums- son, bróðir hans, og lét þar bóka þau bónarorð til ritstjóra „Þjóðv. unga“, að hann vildi gera það fyrir sin orð, að hlífa Einari við lögsókn, fyrst um sinn til febrúarloka þ. á., „því að þá væri dag farið að lengja“, en Einar væri „veikl- aður á geðsmununum, og væru venjulega mest brögð að því i skammdeginu, eða um þetta loyti árs, enda væri Magnús liræddur um, að ef mál þetta hefði nú framgang, þá kynni það að hafa mjög slæmar afleiðingar á sálar-ástand Einars, og óvist, að heilsa hans biði þess bæt- ur“, enda „sjái allir“, að ritið „Nýjársgjöfin11 „ekki sé annað, en markleysa og veikinda-út- brot Einars". Og með því nú að ritstjóra blaðs þessa er það full-kunnugt, að bræður og ættingjar Einars hafa sannarlega nóga raun af vitleysunni hans, þó að ekki bættist þar ofan á, að hann fengi ef til vill æðiskast í skammdeginu, og yrði að takast til banda, þá gerðum vér það fyrir orð hr. Magnúsar Jochumssonar, — sem greiddi þegar, fyrir hönd Einars, allan áfallinn kostnað —, að lofa að hlffa Einari við lögsókn til febrúar- loka þ. á., því að þá er „daginn farið að lengja“; og mjög óvíst auðvitað, að vér viljum virða þenna aumingja lögsóknar úr þessu. En hvaða dóm verðskulda þeir æruleysis- óþokkar, sem narra eða kaupa slíka and- ans apturkreistings aumingja til flugumennsku ferða? „Þjóðviljinn ungi“ er margbrcyttari að efni, en önnur bérlend blöð, og auk þess LAXG-ÓPÝIíASTA blað- ið, sem út er geíið liér á landi, utan Reykja- víkur. Nýir kaupendur fá 0 K K Y i’ í S ,sögusafn Þjóðv. unga“, eða alls 80 blaðsíður af fróðleg- um og skemintilegum sögum. Útsölumenn, scm útvega 0 nýja kaupendur að IV. árg. blaðsins, og standa skil á borgun- inni, geta fengið í kaupbæti, auk vcnjulegra sölulauna, eitt cintak af I.—III. árg. blaðsins, og sömuleiðis eitt eínfak af skáidsögunni „Piltur og Stúlka“, sem verður l'ull-prentnð á komandi vori. Fróðlegt væri að vita, hvaða hérlent blað hcfir nokkru sinni, fyr eða síðar, boðið jafn góða kosti. Nýir kaupendur ættu því eigi að láta það bíða, að gerast áskrifendur „Þjóðv. nnga“ sem allra bráðast. Til söln: Stórt fjögramannafar, lítið brúkað og listilega gott áferðum, með 17 lóðum, seglum og árum; lysthafendur semji við undirritaðan hið fyrsta. IsaQ'örður, 24. jan. ’95. J. Brynjölfsson. -Adlrvg-li Yestur-ís- leriflin»a' leiðum vér hér með að því, að vér höfum hætt að senda blaðið ýmsum kaupendum i Ameríku, sem hafa sýnt oss fleiri ára vanskil. «Feg undirskrifaður geri við úr og klukk- ur, og tek vægari borgun, en venja hefir verið hér á Isafirði að undan förnu. Verkstofa mín er á „Hotel Isafjord11 hér i kaupstaðnum. ísafirði 21. jan. 1895. Sigurðnr A. Kristjánsson. Peir, sem enn eiga ógreitt andvirði „Þjöðv. unga‘‘, eru vinsamlega heðnir að greiða það sem fyrst, með þvi að gjalddagi blaðsins var í síðast liðnum júnímánuði. VISI T-K O XI T, falleg, fást í prentsmiðju „Þjóðv. unga“. PRENTSMIÐJA ÞJÓÐVILJANS UNGA.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.