Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 21.03.1896, Side 4
80
ÞjÓbviujinn ungi.
V, 20.
Dýraíirði 17. marz ’96: „Gufu-
skipið „Heimdalu kom hér í gær með
vistir og verkafólk Berg’s, eptir 14 daga
ferð frá Tunsbergi; þar af lá skipið 1
dag við Noreg (Arendal), 2 daga við
Sbetlands-eyjarnar, og 2 daga við Fær-
eyjar, en fékk að öðru leyti góða ferð.
— Sagt er, að kútterinn „Isafjord", eign
Grarn’s kaupmanns, haíi átt að leggja af
stað frá Khöfn 8. marz, á leið til Þing-
eyrar, og fer bans því að verða bráðum
von, enda er nú margt alveg þrotið í
Þingeyrar-verzlun, t. d. kaffi, kandis,
grænsápa o. fl., en piatvara er þar enn
til. — Ekki heyrist neitt um það, hvort
fiskiskip verða sett fram á Þingeyri, eða
ekki, sem optast er þó komið i fullt fjör
um þetta leyti vetrar, enda munu mjög
fáir enn vera ráðnir til þeirrar atvinnu;
þykja kostir þeir, er kaupmenn bjóða,
ekki mjög ábatavænlegir, og hafa því
margir þeir, er áður liafa verið á þil-
skipum, af ráðið að stunda heldur fiski-
veiðar á opnum bátum yfir vorið, eða
jafn vel sumarið allt, ef vel lætur. —
Það er líklegt, að kaupmenn og sjómenn
hafi hér, hvorir fyrir sig, mikið til sins
máls, þó að hvorugur slaki til við ann-
an, eins og það mál stendur nú; en hafi
kaupmenn haft skaða á sjómönnum sín-
um að undan förnu, — sem vel getur
verið —, þá ættu landsmenn að sjá svo
sóma sinn, að vera þeim ekki til þyngsla,
því sá, sem hefir lieilsu, og nennir atí
vinna, þarf aldrei að óttast atvinnuskort*.
Skepnuhöld eru hér góð, að því er
heyrzt hefir, en optast mjög jarðlítið; í
gær og í fyrra dag voru komin ofur-
lítil snöp, en nú hefir sett ofan í fröst-
leysu snjó-föl, og hefir þvi spillzt úr
því, sem varu.
—— > *•---
ísafirði 21. marz. ’9G.
Tíðarfar enn mjög óstöðugt, dimmviðri,
þokur og jelja-hríðir, en þó optast trostlaus
veðuratta.
Hafís. Eptir því seni fréttist nú í vikunni
norðan af Hornströndum, og úr Steingrímsfirð-
inum, þ/i var Húnaflói allur orðinn fullur af
hafís, svo að naumast sá í auða vök.
Skipakomur. lfi. þ. m. komu hingað frá
Noregi 2 af hvalveiðagutubátum Th. Amlie’s á
Langeyri, „ísafoldin“ og „Jarlinn11; höfðu bátar
þessir lagt af stað frá Haugasundi 5. þ. m., en
tafizt nokkra daga í Færeyjum, vegna storma.
— Með „ísafoldinni“ kom hr. Th. Amlie sjált'ur,
en sonur hans, síra Ólafur Amlie, aðstoðarprest-
ur í Kristianíu, var með „Jarlinum“.
17. þ. m. kom „Friðþjófur", gufuskip hr. H.
Ellefsens, til Flateyrar, og hafði það á hingað-
leiðinni komið við í Iteykjavík, og tekið þar
nokkuð af verkafólki, sem verður í sumar í
*) £>essa skoðun brófritarans er ekki hægt
að fallast á. Ritstj
vinnu á hvalveiðistöðinni i Önundarfirði; hafði
„Friðþjófur“ lagt af stað frá Noregi í öndverð-
um þ. m., en tatizt mjög af stormum ogóveðr-
um.
(lufuskip Ellefsens „Einar Simmers“ lagði
at stað frá Flateyri til Skotlands 14. þ. m., og
mun væntanlegt aptur til Flateyrar nú um
mánaðamótin.
Spítala-stórliýsið hér á Isafirði befir Árni
kaupmaður Sveinsson tekið að sér að reisa
fyrir 10,900 kr„ og kvað spítalinn eiga að vera
að öllu leyti full-gjör 31. des. næstk.
Aflalítið, eða því séin næst aflalaust, hér við
Djupið nú um tíma.
Hitt «»• þottíi.
A 722 dansleiki segist stúlka ein á Frakk-
landi hafa farið, til þess að reyna að krækja
sér í eigin-mann; en í stað þess að ná sér í
manninn, segist hún hafa liaft það upp úr kraps-
inu, að liún hafi fengið „bronchitis“ 14 sinnum,,
lungnabólgu 3 sinnum, „influenza“ 120 sinnum,
og magaveiki 500 sinnurn.
Auðmaður einn í Ameríku, Cuttler að nafni,
sem sagt er, að hal'a muni um 300 þús. krón-
ur í árlegar tekjur, hefir það sér til dægrastytt-
ingar, að hann keyrir á jarnbrautar-vagni fram
og aptur, nótt og nýtan dag, á milli borganna
New York og Chieago, og hefir hann leigt vagn-
inn upp á lífstíð, til þess að geta lialdið áfram
þessari þarflegu iðju, á meðan hann lifir.
I=»ilskipm „ísfirðingur“ 21,50 tons, og
„Johannea c. 10 tons, sem eru eign
verzlunar Leonh. Tang’s á Isafirði, erU
til sölu fyrir lítið verð.
Lysthafendur snúi sér til verzlunar-
stjóra nefndrar verzlunar, sem semur um
kaupin, og gefur frekari upplýsingar.
XTnga og snemmbæra kú kaupir í vor
Jón I-.axrtal, ísafirði.
C^dýrastar og beztar vörur gegn pen-
ingum, selur verzlun Leonh. Tang’s á
Isafirði.
Til heimalitunar
viljum vér sérstaklega ráða mönnum til
að nota vora pakkaliti, er hlotið hafa
verðlaun, enda taka þeir öllum öðrum
litum fram bæði ,að gæðum og litarfegurð.
Sérhver, sem notar vora liti, má ör-
uggur treysta því, að vel muni gefast.
I stað hellulits viljum vér ráða mönn-
um til, að nota heldur vort svo nefnda
„Castorsvartu, því þessi litur er miklu
fegurri og haldbetri, en nokkur annar
svartur litur. Leiðarvísir á íslenzku fylg-
ir hverjum pakka. Litirnir fást hjá kaup-
mönnum alstaðar á Islandi.
Buchs Farvefabrik, Studiestræde 32
Kjobenhavn, K.
Kina-lifs-elixir.
Eg undirritaður hefi þjáðst af þrýst-
ingi fyrir brjóstinu, og haft sting undir
síðunni, og byrjaði eg þvi að brúka
„Rína-lífs-elixir“ þann, sem hr. Yaldemar
Petersen i Frederikshavn sendir, og ept-
ir að jeg liafði brúkað úr einni flösku,
varð jeg strax var við bata, og er það
von mín, að jeg verði fullkornlega heill
heilsu, ef jeg brúka bitterinn að staðaldri.
Skarði 23. des. 1894.
Mutth. Jbnsson.
Iviiisi-líf»-t‘lixíi‘inii fæst, hjá
flestum káupmönnum á íslandi.
Til þess að vera vissir um, að fá
hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur
beðnir að líta vel eptir því, að
standi á flöskunum í grænu lakki, og
eins eptir hinu skrásetta vörumerki á
flöskumiðanum: Rínverji með glas í
hendi, og firma nafnið Valdernar Peter-
sen Frederikshavn, Danmark.
500 K.roner
tilsikres enhver Lungelidende, som efter Be-
nyttelsen af det verdensberömte Maltose-Præ-
parat ikke finder sikkerHjælp. Hoste, Hæshed,
Asthma, Lunge- og Luftrör-Katarrh, Spytning
o. s. v. ophörer allerede efter nogle Dages For-
löb. Hundrede og atter Hundrede have' be-
nyttet Præparatet med gunstigt Resultat.
Maltose er ikke et Middel, hvis Bestanddele
holdes hemmeligt, det erholdes formedelst Ind-
virkning af Malt paa Mais. Attester fra de
höieste Autoriteter staa til Tjeneste. Pris 3
Flasker med Kasse 5 Kr., 6 Flasker 9 Kr., 12
Flasker 15 Kr., 24 Flasker 28 Kr. Albert.
Zenkner, Opfinderen af Maltose-Præparatet,
Berlin S. O. 2fi.
I*eir*9 sern þjást af
útL>rotu m,
þurrum, vessamiklum, eða húðlausum útbrota-
eitlum, og hinum óþolandi sára kláða i hörund-
inu, sem kvilla þessum er samfara, læknast á-
reiðanlega, jafnvel þótt þeir áður háfi ekki getað
fengið neina bót meina sinna, ef þeir nota „Dr.
Hcbra’s Fleclitentod“ (dr. Hebra’s úthrotameðal).
ðsaknæmt útvortis. Kostar 10 kr., ef borgun-
in er send fyrirfram í póstávfsun, eða i frímerkj-
um, og er þá meðalið sent toll- og farmgjalds-
laust. — Birgðir: St.. Marlen-Drogcrie, Dan/Jg,
Þýzkaland.
PRENTSMIÐJA ÞJÓÐVILJANS UNOA.