Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.11.1896, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 30.11.1896, Blaðsíða 4
24 ÞjÓÐVrLJINN UNGI VI, G. 1 kr mismunur af því, að í téðu nr. blaðsins hefir fallið úr við prentunina nafnið: „Hólmfriður Jónasdóttir Isaf. 1 kr.“, er stóð i handritinu, næst á eptir nafnið Hólmfriður Jónsdóttir ísaf. Jarðskj álfta -samskot, af- hent á skrifstofu „Þjóðv. unga“: Jón Jónsson Nausturn 2 kr. — Magdalena Magnúsdóttir s. st. 1 kr. — • Sigurgeir Jónsson s. st. 50 aur. — Guðný Jóns- dóttir s. st. 50 aur. — Jóhanna Jónsdóttir s. st. 50 aur. — Jón Jónsson s .st. 50 aur. — Magnús Jónsson Engidal 50 au. — Guðxn. A. Halldórsson Hóli 1 kr. — Guðrún Jónsdóttir s. st. 1 kr. — Guðjón Halldórsson s. st. 25 aur. — Jón Sveins- son ísaf. 10 kr. — Jxíliana Halldórsdóttir Hóli Hvylftarstr. 1 kr. — Abígael Hall- dórsdóttir s. st. 50 aur. kr. a. Alls ... 19 25 Áður auglýst 1872 13 Sarntals 1891 38 ísafirði 26. nóv. 1896. Sknli Tlioroddsen. Sainskot úr (iírurþiu<raprestaka 11i til þeirra, er tjón hiðu af jarðskjálftunum. (Framh.) Hjalti P. Hjaltason í Tröð, kona hans, börn og heimilismenn 15 kr. — Kristín Gunnlögsdóttir í Tröð, og börn hennar, 5 kr. — Jón Jónsson í Tröð, kona hans og börn 5 kr. — Dagbjartur Jónsson í Tröð, og kona hans, 2 kr. — Jónas Jónsson og Nikólína Eósenkranz- dóttir í Tröð, og sonur þeirra, 2 kr. 50 au. — Guðmundur Hjaltason í Tröð, kona hans, börn og heimilismenn 4 kr. — Ólöf Óiafsdóttir TröðöOa. — Konkor- día Gísladóttir í Tröð, og börn hennar, 3 kr. 25 a. —Sigurbjörg Jónsdóttir Tröð 1 kr. — - Sigurður Bjarnason í Árnesi, kona lians og sonur, 3 kr. 50 a. — Albert Kósenkranzson í Tröð, kona hans og börn, 3 kr. 50 a. — Björn Jónsson, kona hans og börn í Tröð, 5 kr. — Margrét Narfa- dóttir og heimilismenn hennar í Tröð 2 kr. — Daðina Hjaltadóttir Tröð 6 kr. — Magnús Guðmundsson Saurum 1 kr. — Gísli Gíslasou á Saurum, og heimilismenn hans, 4 kr. 25 a. — Guðmundur Guð- mundsson á Hlíð 5 kr. — Þorleifur Þorsteinsson á Tröðum 1 kr. — Guð- mundur Bárðarson Eyri 5 kr. — Jón Magnússon s. st. 10 kr. — Guðmundur Jónsson s. st. 1 kr. — Rögnvaldur Guð- mundsson á Uppsölum, börn hans og hjú, 4 kr. — Bogi Benediktsson, kona hans og barn, s. st. 2 kr. 20 a. — Frá ónefnd- um á sama bæ 1 kr 30 a. — Ólafur Sigurðsson Folafæti 5 kr. — Þórarinn Jónsson á Fæti og kona haus 2 kr. — Þorsteinn Jónsson Fæti, kona hans og barn, 1 kr. 75 a. - Þorsteinn Sigurðsson Fæti 2 kr. — Jón Árnason Fótartröðum, Ástríður Helgadóttir og barn þeirra, 5 kr. — Kristján Þórðarson og heimilismenn hans á Fótartröðum 3 kr. 50 a. — Magn- ús Einarsson í Grjóthlaði, kona hans og tengdamóðir, 1 kr. 75 aur. — Kristján Þorkelsson Folafæti lkr. 50 a. — Einar Jónsson á Kleifum 5 kr. — Guðjón Ein- arsson s. st. 3 kr. — Sigurður Jóhannes- son s. st. 1 kr. — Salómon Rósenkranz- son Fæti, kona hans og börn, 2 kr. 65 a. — Sigurður Sigurðsson Fornubrið 1 kr. —• Frá hvalveiðamönnum á Langeyri 80 kr. — Frá hvalveiðamönnum á Dverga- steini 84 kr. kr. a. Alls . . . . 481 50 Úr Ögursókn 311 90 Samtals 793 40 Yigur 7. nóv. 1896. Sic/urðnr Stefánsson. PRENTSMIÐJA ÞJÓÐVILJANS UNGA. 18 Hvað hnakkann og herðarnar snerti, þá var þetta einnig lýtalaust. — Og á meðan jeg var að virða fyrir mér myndina, var jeg að grufla út í það, hvort verið gæti, að þessi yndæla vera hefði má ske lifað til þes3 eins, að falla^ sem fórn, i byltingunni miklu, og hvort þessi fagri háls hefði ef til vill verið sundur skorinn af hinum óvægna hnífi höggvélarinnar. „Jeg skal spyrja Guyon á morgun, hvort hann þekkir nokkuð til sögu hennar“ sagði eg við sjálfan mig, um leið og jeg háttaði. — — Nóttin var yndis fögur; tunglið var fullt, og livergi ský á lopti. Jeg opnaði gluggann, áður en jeg lagðist til hvilu, enda þótt það sé alinenn hjátrú í París, að sá, sem sefur fyrir opnum glugga, þótt um há-sumar sé, verði blindur. En um nóttina vaknaði eg ailt í einu við það, að jeg heyrði kirkjuklukku í nágrenninu slá. — Jeg tók úrið mitt fram undan koddarium, og leit á það. Hálf tvö — jeg hafði þá að eins sofið í tvo tíma; og hvað gat hafa vakið mig úr fasta svefni? Jeg sneri mér við, og reyndi að sofna aptur, en fann þó vonum bráðar, að jeg var orðinn glaðvakandi, og mátti því búast við svefnlausri nótt. Jeg á stundum vanda til svefnleysis, og kom þvi 19 þetta eigi svo óvænt; en verstur skollinn er, að jeg verð þá opt svo órór, að jeg get ekki legið i rúminu. En allt i einu datt mér í hug bókasafnið í stofunni, þ&r sem við Guyon sátum um kvöldið, og mér hug- kvæmdist að skreppa þangað ofan, ná mér þar í einhverja hálf-mygglaða skræðu, — að eins eitthvað, sem jeg gæti blaðað í, og lesið mig í svefn. Jeg stóð því upp, hálf-klæddi mig, oglagðiaf stað í leiðangurinn, til þess að ná mér í „literært“ svefnmeðah Mér veitti auðvelt að finna bókasafnið, og þegar jeg hafði valið mér þar eitt bindi af ritum Díderot’s,. lagði jeg af stað til svefnherbergis míns aptur. En jeg villtist á stigunum, gekk upp annan stiga,. en eg hafði ofan farið, og áður en mig varði, var jeg kominn að ganginum litla, með blóma- og fugla-mynd- unum, sem mér varð svo starsýnt á kvöldinu áður. „Það er réttast, að jeg líti þá á blóinin og fuglana þá arna núna“, sagði jeg við sjálfan mig hálf-hátt, „það er ekki víst, að jeg fái tíma til þess á morgun“. Jeg hélt því áfram, skoðaði hverja mynd fyrir sig,. og hafði ljósið í hendinni, enda þótt tungsljósið, sem gægðist inn um gluggana, gerði að vísu ljósbirtuna ná- lega óþarfa. Myndirnar voru einkar fagurlega og smekklega málaðar.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.