Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 22.08.1900, Blaðsíða 4
112
Þjóbvjlj.inn.
XIV, 28.
arbörn bans að mœta, og œtli hann svo á
kjörfundinnm að ganga með fylktu liði yfir í
sveit þeirra landshöfðingja- og apturhaldslið-
anna, sýslumanns Hafstein’s og síra Þorvaldar.
En þá er eptir að vita, hvort liðið reynist
svo tryggt, að það fylgi prófastinum sínum
upp á líf og dauða.
Víst er um það, að apturhaldsliðar vœnta
sér mikiis fylgis úr sóknum síra Janusar, og
úr Vestur-ísafjarðarsýslu yfir höfuð; en — von-
ir geta brugðist.
Til Spánar og Ítalíu. Stjórn „sameinaða
gufuskipafélagsins“ œtlar í septembermánuði að
senda gufuskip til Suðurlandsins og Vestfjarða,
sem tekur fisk tií Spánar og Italíu.
Skip þetta heitir „Vendsyssel11, capt. Kjœr,
og fer frá Kaupmannahöfn 6. sept., losar fyrst
salt og kol i Reykjavík, og byrjar síðan að taka
fisk hér vestra.
Skip þetta kvað rúma um 728 smálestir, og
tiutningsgjaldið er ákveðið 40 shillings (= 36
kr.j fyrir 1000 kílo (= 1 ton), hvort sem fisk-
urinn er sendur til Bilbao, Barcelona eða Genua.
Kosninga-undirróður. Talsverð brögð hafa
verið að kosninga-undii'róðri hér i kjördœminu
nú um hríð, svo að eigi mun fyr hafa meira á
gengið.
Skrifstofuvalds- og apturhalds-liðar ganga
ósleitilega að verki.
Sérstaklega er það verzlunarstjóri Laxdal,
sem tekizt hefur á hendur að ieiða lýðinn í
allan sannleika.
Hann er maður frábœr að djúpsœrri stjórn-
málaspeki, eins og líka þekking hans er grunduð
Og rótfest í fiskiveiðamálum, leikaramennt, vega-
frœði, verzlunarfrœði, hljóðfœraslœtti o. fl. o. fi.
Og það, sem mest er um vert, hann lœtur
aldrei Ijós sitt undir moeliker!
En þjóðin er spotzk og vanþakklát, það
vantar eigi.
„Ekki í þverbakspokum segja þeir það reitt,
stjórnmálavitið hjá Laxdal, og hans útsendur-
um“, og svo er þá brosað og hlegið, klappað og
skellt á lœrin.
Maðurinn er enn ekki viðurkenndur spá-
maður, og það er listamannsins þyngsta þraut.
----«=*=*.-----
Nilsson botnverpingur.
Að gefhu tilefni vil jeg biðja yður,
herra ritstjóri, að leiðrétta þá villu, sem
sunnanblöðin „ísafold“, „Þjóðólfuru og
„Fjallkonanu hafa tekið hvert eptir öðru,
að mér einum hafi, auk ekknanna, verið
tildæmdar skaðabætur frá Nilsson skip-
stjóra, 750 krónur. Hið sanna er, að
með hæztaréttardómnum í málinu, sem
birtur er í Berlingatíðindum 2. júní þ.
á,, er Nilsson dæmdur til að greiða Sol-
veigu Þórðardóttur 3600 kr., Guðnýju
Jónsdóttur 1100 krónur, Guðjóni Sólberg
Friðrikssyni 523 kr. 25 aura, Jóni Gunn-
arssyni 125 krónur, Kristjáni J. Ólafs-
syni 42 krónur, og undirskrifuðum 249
(ekki 750) krónur. En með því að hinn
dæmdi kvað vera öreigi, eru víst mjög
litlar líkur til, að nokkuð fáist af ofan
greindum skaðabótaupphæðum.
ísafirði 18. ágúst 1900.
H. Hafstein.
THB EDXNBUH&EC
Roperie & Sailcloth Company Limited
stofnað 1750.
Verksmiðjur í og Ojrlassg’O'w.
Búa til
færi, strengi, kaðla og aegldúka.
Vörur verksmiðjanna fást hjá kaup-
mönnum um allt land.
Umboðsmenn fyrir ísland og Færeyjar:
F. I l jouf h & Co.
Kaupmannahöfn K.
UMBOÐ.
Hér með gef eg cand. jur., ritstjóra
Skúla Thoroddsen á Isafirði fullkomið og
ótakmarkað umboð mitt, cum jure sub-
stítuendi, til þess að taka á móti og
kvittera fyrir öllum útistandandi verzl-
unarskuldum mínum, er stafa af verzlun
þeirri og viðskiptum, sem eg hefi rekið,
meðan eg hefi dvalið á Isafirði.
Skal velnefndum umboðsmanni mín-
um því heimilt, að innheimta skuldirnar
með lögsókn, ef þurfa þykir, sættast upp
á skuldamálin, láta fullnægja dómum og
sáttagjörðum, og gæta réttar míns yfir
höfuð, og skal allt, sem hann i þessu
efni gjörir, vera jafh gilt og skuldbind-
andi fyrir mig, sem eg sjálfur gjört hefði.
Gjört á ísafirði 14. ág. 1900.
Sumson Eyjólfsson.
Vottar:
Horlákur Magnússon
Bent Bjarnason.
*
Samkvæmt ofan rituðu umboði skora
eg hér með á alla, er kaupmanni S.
Eyjólfssyni eiga skuldir að lúka, að greiða
þær til min sem allra bráðast.
ísafirði 14. ágúst 1900.
Skíili Thoroddsen.
THE3
North British Ropework C°y,
Kirkcaldy
Contractors to H, M, Government
b ú a t i 1
rússneskar og ítalskar
fískilóðir og fccri.
Manilla og rússneska kaðla, allt sérlega
vandað og ódýrt eptir gæðum.
Einkaumboðsmaður fyrir Danmörk,
Island og Færeyjar.
Jakob Grunnlögsson,
Kjobenhavn K.
ÆGTE FRUGTSAFTER
fra Martin Jensen i Kj0benhavn
anbefales.
Garanteret tilberedt af udsogt Frugt.
MomiS og skoöiS.
Jeg undir ritaður hef nú til sölu:
Húsklukkur, mjög laglegar.
Kvennúr, fyrirtaks faileg.
Karlúr í silfur- og nikkel-kössum.
Celluloid úrkassa.
Capsel úr Talmi.
Úrfestar af mörgum gerðum, 3—5
brotnar, með hlaupurum.
Miklu úr að velja.
Aðgerðir, sem að undan fórnu, fljótt
og vel af hendi leystar.
Afsláttur mót peningum, miðað við
vanalegt verð.
ísafirði 24/, 1900.
S. A.. Ivi-iKtjjinKKon.
V ottorð.
Eg get ekki látið hjá líða að senda
yður eptirfylgjandi meðmæli.
Eg undirrituð hef í mörg ár þjáðst
mjög af taugaveiklun, krampa og ýms-
um öðrum þar af leiðandi sjúkdómum,
og eptir að hafa árangurslaust leitað
margra lækna, fór eg að brúka Kína-
lífs-elexír frá Valdemar Petersen í Frede-
rikshavn, og get eg með góðri samvizku
vottað, að hann hefur veitt mér óum-
ræðilega linun; finn eg að eg má aldrei
án hans vera.
Hafnarfirði í marz 1899.
Agnes B j a r n a d ó 11 i r,
(húsfreyja).
Ivína,-liísi-elexii*iiin fæst hjá
flestum kaupmönnum á Islandi.
Til þess að vera vissirum, að fá hinn
ekta Kina-lífs-elexír, eru kaupendur beðn-
ir að litaveleptir því, að standi
á flöskunni i grænu lakki, og eins eptir
hinu skrásetta vörumerki á flöskumiðan-
urn: Kinverji ineð glas í hendi, og firma
nafnið Valdemar Petersen, Nyvej 16,
Kjöbenhavn.
UppboðsauQÍýsing.
Eptir beiðni G. Larsens á Langeyri
verður opinbert, uppboð haldið að Lang-
eyri miðvikudaginn 5. september næst-
komandi, og þar seldiy ýmsir búshlutir,
tilheyrandi nefndum G. Larsen, þar á
meðal sófa, stólar margvíslegir, borð,
buffet, rúmstæði, plydsborðteppi, lampar,
gull- og silfur-úr, skekta, og margt fleira.
Uppboðið hefst kl. 11. f. h., og verða
söluskilmálar birtir á uppboðsstaðnum.
Skrifstofu ísafjarðarsýslu 8. ágúst 1900.
H. Hafstein.
___________________ (L. 8.)____________
mr TOMBóla
sú, er auglýst hefur verið hér í blaðinu
að halda eigi til ágóða fyrir hússjóð
Goodtemplarstúknanna á ísafirði, hefst
laugardagskvöldið 1. sept. næstk. kl. 81/.,
e. h. í húsi stúknanna hér á staðnum.
ísafirði 2% 1900.
Tombólunefndin.
Tvö síðastliðin ár hefi eg undirritaður
neytt Kína-lífs-elexír Valdemars Petersens,
sem kaupmennirnir hr. H. Johnsen og hr.
M. C. Blöndal hafa til sölu, ogþekkijeg
engan magabitter, er jafnast geti við
hinn ofan nefnda Kína-bitter hr. Peter-
sens.
Af eigin reynzlu og sannfæringu ræð
eg þess vegna lönduin mínum að kaupe
bitter þenna, og neyta hans gegn öllum
magasjúkdómum og meltingarkvillum
(Dispcosi), hverrar tegundar sem eru, því
að það er sannleikur, að lukka ungra og
gamalla er komin undir góðri meltingu.
Jeg hefi reynt marga aðra svo nefnda
magabittera, og tek bitter þenna langt
fram yfir þá alla.
Sjónarhóli.
L. Pálsson,
(prakt. læknir).
I v í riít-lí 1 n-<*1<‘XÍ i'iriri fæst hjá
flestura kaupmönnum á Islandi.
Til þess að vera vissir um, að fá hinn
ekta Kína-lifs-elexir, eru kaupendur beðn-
ir að lita vel eptir því, að standi
á flöskunni í grænu lakki, og eins eptir
hinu skrásetta vörumerki á flöskumiðan-
um: Kínverji með glas í hendi, og firma
nafnið Valdemar Petersen, Nyvej 16,
Kjöbenhavn.
PKKNTSMIÐJA PJÓÐVILJANS