Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.12.1900, Page 6

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.12.1900, Page 6
198 Þjóðviljin;n. XIV, 49 —50. „Jöliannes Júlíus Havsteen, útskrifaður úr Reykjavíkurskóla 1859. Cand. jur. 8. júní 1866, með 2. einkunn i háðum prófum. Hann var fyrst á skrifstofu amtmannsins í Holbæk, varð 1870 assistent í hinni ísl. stjórnardeild, og var settur amtmaður í Norður- og Austuramtinu 9. júní 1881“. Verður nú af þessari skýrslu um lífsferil mannsins dregin sú ályktun, að hann muni öðrum bærari til þess, að gerast dómari, að því er lögfræðisþekkingu annara snertir? Mjög fer því fjarri. í stað þess er ritstjóri blaðs þessa tók lögfræðispróf við háskólann að eins 41 /2 ári eptir það, er hann varð stúdent, og hlaut 1. einkunn (lofseinkunn) fyrir kunn- áttu sína, þá ber lífsferill amtmannsins með sér, að liann hefur verið að nudda við lögfræðisnámið í 7 árin fuU(!), og ept- ir allan þenna óvanalega langa námstíma, þá er þó lögfræðisþekkingin eigi burð- ugri, en svo, að hann hlýtur 2. einkunn(J) í báðum prófum(!)\ Þetta var nú dómur sjálfra háskóla- kennaranna um lögfræðisþekkingu vors núverandi virðulega amtmanns. Skrifarastaða hans hjá amtmanninum í Holbæk, og í ísl. stjórnardeildinni — þar sem hann að líkindum að eins hefur verið notaður til þess, að afskrifa bréf, eða annast önnur kontórstörf, sem enga lögfræðisþekkingu þarf til — getur held- ur eigi álitizt, að hafa gert amtmann bærari til dómarastarfa i ofan greindu efni. „En raaðurinn var skipaður amtmaður, kann svo einhver að segja. Hlýtur ekki þar i að felast, að mað- urinn hafi öðrum fremur verið álitinn löglærður?“ Fjarri fer því. Konunglega útnefningin sjálf gerir vitanlega engan, hvorki fróðari, né fá- fróðari i einu né neinu. Maðurinn verður alveg samur, hvað þekkinguna snertir, eptir sem áður. Og útnefningin felur ekki einu sinni í sér neitt álit um lögfræðisþekkingu mannsins fram yfir aðra, það vitum vér Islendingar ofur- vel. Reglan hefur all-optast verið sú, að æðstu embættin hér á landi hafa verið skipuð þeim mönnum, er verið hafa í isl. stjórnardeildinni í Kaupmannahöfn lengur eða skemur. Sumir embættaspekulantar hafa því reynt að þroka þar sem lengst, unz hér á landi losnaði eitthvert það embætti, sem þeim þótti sér boðlegt að launum. Og þetta var leiðin, sem Júlíus Hav- steen gekk til amtmannssætis síns. í full 11 árin þrokaði hann, og þrokaði, í stjórnardeildinni ísl. í Kaup- mannahöfn, alltaf vonandi og mænandi til kjötkatlanna. í Kaupmannahöfn gekk um þær mund- ir, er Júlíus varð amtmaður, auk þess sú sagan, að Oddgeiri sáluga Stephcnsen, sem þá var deildarstjóri í stjórnardeild- inni, hefði eigi líkað við Havsteen — með eða án ástæða, látum vér |ósagt —, og gripið því tækifærið fegins hendi, að gera hann að amtmanni(!) — — Þá kemur loks til rannsóknar, hvort amtmannsframkvæmdir hr. Júlíusar Hav- steen, er lögfræðisþekkingu þarf til, hafi verið slíkar, að álíta verði, að hann á seinni árum hafi tekið sér svo fram í lögfræðinni, að hann sé nú einmitt orð- inn sá maðurinn, er bærastur sé um það, að kveða upp dóminn, að því er lögfræð- isþekkingu annara snertir. I þessu efhi getur framkoma amt- manns í botnvörpumálinu, í máli síra Halldórs, í máli síra Bjarna Þórarinsson- ar, i sakamálsrannsókninni gegn Eiríki meistara Magnússyni, í málaþrefi amt- manns við ritstjóra „Austra“, o. fl. o. fi., verið til dágóðrar leiðbeiningar. Og einmitt af því, að enginn efar góðan vilja, og þann einlæga ásetning Júlíusar amtmanns, að þræða götu rétt- arins, þá verður almenningsdómurinn óefað, fyr og síðar, sá, að fáir séu óbærari, að dœma um lögfrœðiskunnáttu annara, en einmitt Jú 1 íus amtmaður Havsteen. Að minnsta kosti þorir ritstjóri „Þjóðv.“ óhræddur að eiga það undir, að' dómur þessa „lögspekings“ verður ekki talinn óyggjandi, að því er lögfræðis- þekkingu hans snertir. Hvað skal blindur dæma um lit? Að svo mæltu kveðjum vér þá amt- mann Júlíus Havsteen, árnandi honurn allra heilla á öldinni, sem í hönd fer. Ritað í aldarlokin 1900. Skúli Thoroddsen. 184 og beri því að skila erfingjum bróður míns ijárhluta þessum óskertum. Svo er það og von mín, að Hann, sem allan frið gefur, muni miskunna sig yfir mig, veita mér hvíld og rósemi í gröf minni, og frið og ánægju í sinu himn- eska ríki“. Með eigi alveg eins fallegri rithönd, hafði svo mánuði síðar, að því er dagsetningin sýndi, verið bætt aptan við þessum orðum: „Æ, andinn er að sönnu reiðubúinn, en holdið er veikt! Sú hugsun er mér óbærileg, að helmingur gulls míns og eigna skiptist að mér látnum til þeirra manna, sem mér er svo fjarska lítið um. Látum Hann dæma, sem dómurinn til heyrir. Jeg fel erfðaskrána í gömlu skræðunni þeirri arna, dyl hana fyrir heimsins augum. Sé það guðs vilji, að henni verði fullnægt, þá finnur hana hér vissulega einhver, og réttlætið fær framgang. Annað get jeg ekki. Guð fyrirgefi mér synd mína“. Þegar upplestrinum var lokið, sátum við báðir,jeg og etazráðið, nokkra stund þegjandi, hvor við annars hlið, og hvor með sínar hugsanir. Ekkert heyrðist, í ma gangurinn í Borgundarhólms- klukkunni við gluggann. Mér var, sem eg sæi gamla Franz Hansen glögg- lega fyrir framan mig, eins og hann hafði birzt mér í drauminum nóttina góðu, er hann gekk við hlið mér, og studdist fram á staf sinn, og sagði mér æfisögu sína, er 189 Jeg hugsa helzt, að kvenn-tígrisdýr, sem er að verja unga sina, muni hafa notkkuð svipað augnaráð, eins og augnaráð Amalíu varð nú. Þrátt fyrir fituna, mátti heita, að hún sprytti upp af stólnum, og sagðist ekki vilja heyra eitt orð til mín framar. Maðurinn sinn vissi víst vel, hvað hann gerði. Væri það hans vilji, að fá Andrés Skaarup, sem tengdason, hlyti hann að hafa sínar ástæður til þess, og vildi hún þá einnig, að hann yrði tengdasonur þeirra. Jeg skyldi láta það ógert, að vera að reyna, að æsa hana gegn manni sínum. Og hvað orðin fífl og vitfirringur snerti, þá hefði jeg sjálfur, á góðu árunum, sýnt, að jeg væri hvorttveggja þetta sjálfur. Frúin vék með orðum þessum að því, er eg var að draga mig eptir henni í gamla daga, og hamingjan veit, að hér hafði hún rétt að mæla. Að endingu kvaðst hún svo ætla að láta mig vita það, að kæmi Andrós Skaarup hingað i kvöld, skyldi hún taka honurn með opnum örmum. Meira að segja, hún skyldi kyssa hann. Já, það skyldi hún vissulega gjöra. Eptir alla þessa dembu, sem hafði á mig mjög hressandi áhrif, stfunzaði etazráðsfrúin mjög hátignarlega út úr stofunni. Hún opnaði borðstofudyrnar, þar sem Inger var inni fyrir, að leggja á kvöldborðið, og kallaði til hennrtl „Inger! Láttu einum diskinum fieira á borðið, góða mín — við eigum von á gesti í kvöld".

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.