Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 14.02.1901, Side 5

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 14.02.1901, Side 5
XV 5.-6. Þjóbviljinn. 21 var völ á, og hafði hann þá kennslu á hendi til dauðadags, jafn framt þvi er hann kenndi prestaefnum tónlist á presta- skólanum, og stýrði söngfélögum í Reykjavík öðru hvoru. — Einn vetrar- tíma, 1879—’80, var hann og settur kennari við prestaskólann, eptir lát síra Hannesar Árnasonar. Eptir lát bróður síns, Símonar Johnsen (t 1884), er tekið hafði við verzlun föður þeirra í Reykjavik, rak Steingrímur sál- ugi þá verzlun i nokkur ár, en hætti henni síðan, og hafði mörg siðustu árin að eins dálitla umboðssölu á hendi fyrir verzlunarhús eitt í Kaupmannahöfn. Hann var og skrifstofustjóri alþingis nokkur þing. Steingrímur heitinn var friður maður sýnum, höfðinglegur og gjörvilegur, mjög skemmtinn og glaðvær, ljúfmenni mikið, Og vinsæll, en nokkuð hneigður til víns, og gætti þó lengstum hófs í því á síð- ari árum. Munu kunningjar hans, og aðrir, er kynni höfðu af honum, sakna góðs drengs, þar sem hann er fallinn frá. — 31. des. síðastl. andaðist i Engey, við Reykjavík, Helga Ólafsdóttir, ekkja Bjarna heitins Brynjólfssonar dbrm. — Meðal barna þeirra hjóna, sem á lífi eru, er Brynjólfur bóndi Bjarnason í Engey, og frú Þorunn Bjarnadóttir, kona síra Sig. Stefánssonar i Vigur. — Ný frétt er og, að lálizt hafi í Reykja- vík 25. janúar síðastl. Rafn skósmiður Sigurðsson. ísafirði 14. febr. 1901. Tíðarfar. Alla tíð, sem af er þessum mán- uði, hefur haldizt einmuna góð veðrátta, ýmist stillviðri, eða hægir suðvestan vindar og leys- ingar. Strandferðaskipið „Laura“ kom hingað 5. þ. m. að sunnan. Hr. Aasberg, sem verið hefur skipstjóri á „Skálholti'1, er nú orðinn skipstjóri á „Lauruf, og var naumast auðið að fá ötulli sjómann, og viðkunnanlegri mann, úr því hr. Christjansen sleppti skipstjórninni. „Laura" lagði aptur af stað héðan, beina leið til Reykjavíkur, aðfaranóttina 7. þ. m., og tóku sér far með henni til útlanda Arni kaupmaður Sveinsson, til Skotlands, og Finnur hakari Thord- arsen, til Kaupmannahafnar, en til Reykjavíkur Ghiðjón alþingismaður Guðlaugsson á Ljúfustöð- um, er var ný kominn hingað landveg að norðan. Ensrir mættir! — Ekkert politiskt fundar- liald! Það fór ílla með Flateyrarfundinn, er haldast átti 2. þ. m., samkvæmt fundarhoði nokkurra manna í Önundarfirði, þar sem undir- tektir manna i öðrum hreppum Vestur-ísafjarð- arsýslu urðu svo daufar, að ekkert varð af fundinum. — Jafn vel hinir kjörnu fulltrúai Önfirðinga sjált'ra mættu þar ekki, vissu fyrir fram, að slik ferð yrði árangurslaus. Hákarlaskipið „Arthur“, eign Leonh. Tang’s verzlunar, skipstjóri Jón Pálsson i Hnífsdal, lagði 3. þ. m. út héðan í hákarlalegu, en missti hæði pertlínu, forhlaupara og dreka. og varð því að hverfa inn hingað aptur 7. þ. m., og höfðu þvi stutt getað legið, en orðið þó vel há- karls varir, og lögðu svo aptur út héðan á nýj- an leik 8. þ. m. Skipstjóri Helgi Andrésson á Flateyri hefur og farið í hákarlalegur i þ. m., og fengið all- góðan hákarlsafla, að sagt er. Hr. ðVurd, sem nokkur undan farin ár hefur keypt hálf-þurrkaðan smáfisk hér vestra, ætlar að sögn einnig að kaupa 800—1000 sk$. af sams konar fiski á komanda vori, en ætlar nú ekki að hrenna sig á sama soðinu, sem í fyrra, að miða verðið við kaupstaðarverð, og hýður því sínar gömlu 30 kr. fyrir sk&. Á hinn hóginn heyrist enn ekkert um upp- hót þá, sem héraðshúar telja sig eiga hjá hon- um frá f. á., og mun nú mörgum þykja, að farin sé að verða langa hiðin eptir þeirri upp- hótinni. „Kaupfélag lsíirðinga“ hélt aðal-fund sinn hér á ísafirði á kyndilmessu, 2. þ. m., og mættu þar, auk félagsstjórans, deildarfulltróar allra (14) félagsdeildanna, nema deildarfulltrúi Seyð- isfjarðardeildar. Kaupfélagsstjóri lagði fram reikninga félags- ins, þar með talinn reikning stofnsjóðs og vara- sjóðs, ásamt fylgiskjölum, fyrir árið 1899, sem er það ár, er félagið síðast hefur starfað. — Enn fremur lagði félagsstjóri fram vottorð frá end- urskoðunarmönnum félagsreikninganna, Jóni kaupmanni Gruðmundssyni í Eyrardal og Sigurði presti Stefánssyni í Vigur, er har með sér. að þeir ekkert höfðu við reikningana að athuga, og voru reikningarnir samþykktir af fulltrúa- ráðinu. Kaupfélagsstjóri gat þess, að þar sem hann hefði áformað að flytjast búferlum héðan úr héraðinu, og sérstaklega vegna vanskila þeirra, sem hrytt hefði á í félaginu á síðari árum*, þrátt fyrir góðan vilja og öfluga viðleitni ein- stakra héraðshúa, þá hefði hann afráðið, að hafa eigi stjórn félagsins lengur á hendi, og varð þá sú niðurstaðan, að slíta félaginu. Voru því næst gerðar upp ýmsar fjársakir félagsins. húseign þess í Bolungarvík seld o. fl. — Félagið var skuldlaust utan lands og innan. og að eins ein deild, sem fé átti inni. Innieignir deilda í stofnsjóði félagsins voru *) Mest urðu hrögðin að vanskilum þessum 1899, er féiagsmenn létu fleiri hundruðum skip- punda minni fisk, en lofað hafði verið, svo að skip félagsins fékk mjög Íítinn farm. Bæði sakir þessa, lítilla vörupantana það ár, og mið- ur heppiiegrar fisksölu erlendis, hefði félags- mönnum því orðið útlend vara dýr, og fiskur talsvert undir kaupstaðarverði, ef félagsstjóra hefði eigi á utanför sinni síðastl. vetur tekizt að fá 7490 kr. 25 a. upphót handa félaginu hjá viðskiptamönnum þess erlendis, svo sem reikn- ingar félagsins háru með sér. — 34 „Það er þá líklega eins Og þú segir, því að ekki ertu vanur a^> skrökva, Marteinn! En mór finnst jeg nú finna það á mór, að jeg nái mér ekki aptur. Ojæja, örlögunum verða allir að lúta! En forvitni væri mór á því, Marteinn, að vita, hvert eg fer, þegar jeg er dauður“. „Yertu rólegur frændiu, anzaði eg. „En jeg vil ekki, að hún komi að sækja mig, — að hún biði eptir móru, tautaði hann í hálfum hljóðum. „Að hugsa til þess, að verða má ske að fylgjast með henniu, bætti hann svo við. „Það væri hræðilegtu. „Þú átt þó, vænti jeg, ekki við... “ Jeg þagnaði allt í einu á setningunni; en gamli maðurinn skildi mig, Og mælti: „Jú, jeg á við ungu stúlkunau. Við hana Berthu Keefeland?“ „Já, einmitt við hanau. „En þvi ætti hún svo sem að bíða þín, frændi?u „Kom hún kann ske ekki hingað fyrir hálfum mánuði?u „ Jú, en enda þótt... “ „Hún er risin upp úr gröf sinni“, hvíslaði hann lágt, og hún hlýtur að hafa verið að vænta min nótt- ina sæluu. Já, jeg hafði ekki getað varizt þess, að vera að hugsa uin liana allan daginn. — Jeg gat ekki rekið hana úr huga mór“, mælti hann enn frernur. „En þetta er fásinnau, greip eg nú fram i, „þvi að hún er lifandi vera, úr lioldi og blóði, sem við, það þori jeg að sverja“. 27 „Hver?u, svaraði hann. „Hvað kemur það þér við?u „En með þessu mótiu, mælti hann enn fremur, „hef- ur mér lika tekizt, að koma mór áfram, og get nú setið hórna ofúr-notalega í hlýjunni, og ... u „Og ánægður?u var eg svo djarfur að spyrja. „Nei. auðvirðilegi, kjánalegi strákur, ekkiánægður! Og hvernig ætti jeg lika að vera ánægður, að verða einatt að drattast þetta með þig? Hvernig ætti jeg að vera ánægður með fæturna þá arna? Og með —“ Hann þagnaði allt i einu, og gerði mór dálitla bendingu, sem eg skildi svo, að jeg lagaði honum þegar í nýtt glas af „groggiu. Hann mælti ekki fleira, og yfir hann kom eins kon- ar undarleg kyrrð. Annars var það vani hans, þegar hann ekki talaði við mig, að tala þá við sjálfan sig. Jafn vel upp úr svefni var hann all-optast eitthvað að þvögla, sem eg ekki skildi. En kvöldið þetta sat hann grafkyrr, og einblíndi jafnan fram undan sór. Eptir nokkurn tíma varð eg að yfirgefa hann, til að fara fram í ölstofuna, þar sem einatt var verið að hamra með peningi i borðið. Mér þótti þetta nokkuð freklega að farið, og ásetti mór því, að setja duglega ofan í við viðskiptamann þenna, fyrir óþolinmæðina. En er eg kom fram í ölstofuna — það var langur gangur milli hennar og bakherbergisins —, sé eg þar unga stúlka, dálaglega, bjartleita, með stór og blá augu.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.