Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 14.02.1901, Page 6

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 14.02.1901, Page 6
22 Þjóðviljinn. XY 5.-6. alls 14546 kr. 85 a., sem að mestu leyti jöfn- uðust við skuldir deildanna, en »ð öðru leyti tókst félagsstjóri k hendur, að sjá um innheimtu þess, sem enn var úti standandi, og sjá um greiðslu þess til þeirra deilda, sem eigi höfðu þegar fengið stofnsjóðseign sina borgaða; en deildarfulltrúar sjá um greiðslu til deildar- manna sinna á stofnsjóðshluta hvers þeirra, samkvæmt stofnsjóðslistunum*, og hera einir áhyrgð á þeirri greiðslu. En er skuldir og stofnsjóðsi’nnieignir verða að fullu greiddar, verða væntanlega afgangs 1086 kr. 86 a., leifar af hinum gamla varasjóði félagsins, og samþykkti fulltrúaráðið, eptir til- lögu félagsstjóra, að stofna af fé þessu sjóð til styrktar gömlum formönnum í Norður-ísafjarð- arsýslu, þar sem eigi þótti taka, að fara að skipta fé þessu meðal viðskiptamanna félagsins. Deildarfulltrúi Kolbeinn Jakobsson vakti máls á um 1500 kr. lán það, er fulltrúaráðið hafði fyrir nokkurum árum veitt einstökum mönnum á ísaflrði, og í Eyrarhreppi, út af hinum „ís- firzku kærumálum“, og samþykkti fulltrúaráðið með 9 atkv. gegn 4, að ekki skyldi neitt átt við innheimtu láns þess úr þessu, eptir þvi sem komið er. ý 10. þ. m. andaðist hér í kaupstaðnum Einar Sigurðsson húsmaður, 48 ára að aldri. — Hann var fæddur að Bæjum i Snæfjallahreppi hér í sýslu, og voru foreldrar hans: Sigwður hreppstjóri Þorsteinsson, Sigurðssonar, Ólafsson- ar lögsagnara á Eyri i Seyðisfirði, og kona hans KrÍ8tín Ólafsdóttir, hattamakara á Eyri í Skötu- firði. Einar heitinn var tvíkvæntur. Pyrri kona *) Á fundinum var deildarfulltrúa hverj- um afhent skrá yfir stofnsjóðsinnieignir deild- armanna hans, og samþykkti fulltrúaráðið, að stofnsjóðsskrár þessar, sem samdar hafa verið eptir hókum þeim, er síra Sig. Stefánsson í Vig- ur hefur fært, eptir skýrslum deildarfulltrúa, skyldu skoðast sem endanlegar, að því er stofn- sjóðsinnieignir manna suertir, svo að frekari kröfum til stofnsjóðs verður ekki sinnt, hvorki að því er deildarfulltrúa eða kaupfélagsstjóra snertir. hans, er hann gekk að eiga 1884, var Anna María Bjarnadóttir, hónda Jónssonar í Laugar- dal 1 Ögursveit, og varð þeim þriggja harna auðið, og er nú að eins eitt þeirra á lifi: piltur á 14. ári, Anaís Bafliði að nafni. — Voru þau hjón fyrst eitt ár í Vigur, en hjuggu síðan 2 ár að Folafæti, og þar missti Einar konu sína (f 1887). — Bjó hann eptir það skamma hrfð á Folafæti, og fluttist síðan hingað í kaupstað- inn, og kvæntist hér 1890 nú eptirlifandi ekkju sinni Jónínu Gróu Jónsdóttur, læknis Björnsson- ar i Álptafirði (ý 1894), og eignuðust þau hjón 7 hörn, og eru 6 þeirra á lífi, hið elzta á tí- unda ári: Jón, Kristján, Margrét Jónína, Jákób Einar, Björtur og Sigurður. Einar heitinn var starfsmaður mikill, og laginn og ötull formaður rsem snilldarlega hafði ofan af fyrir sér, og fjölskyldu sinni, og mátti að ýmsu leyti teljast til fyrirmyndar í sinni stétt. Konu sinni og hörnum var hann hinn ástríkasti, og umhyggjusamasti, áreiðanlegur og vandaður maður, stilltur og dagfarsgóður. Það var lungnabólga, er dró hann til dauða, eptir 5 daga legu. Hann hafði farið í sjóróður hálf-lasinn, haldið of lengi til, og kom svo fár- veikur heim. Tíl íÍP DíÍVP — som er hlevet 111 UC HUKC. helbredet for Dövhed °g Öre- susen ved hjælp af Dr. Nicholsons kunstige Trommeliinder, har skænket hans Institut 20,000 Kr., for at fattige Döve, som ikke kunde kjöhe disse Trommehinder, kunde faa dem uden Betaling. Skriv til: Instítut „Longcott", Gunnersbury, London, W., England, Á GRUND UM í Bolungarvík er til sölu hálf húseign sú, er Guðm Jóhannesson á Hóli fyrrum átti (íveruhús, geymsluhús m. m.). — HeDtugir borg- unarskilmálar. Semja verður við ritstjóra blaðs þessa fyrir lok næstk. marzmánaðar. Hús til sölu. Húsin á Grænagarði (íbúðarhús og fjárhús) eru til sölu. Hús- unum fylgír til afnota umgirtur ræktað- ur lóðarblettur, og eru árlega goldnar 12 kr. i bæjarsjóð Isafjarðarkaupstaðar eptir stykkið. — Semja má við ritstjóra blaðs þessa. NÝ VERZLUN! með margbreyttum vörutegundum, verð- ur rekin fyrst um sinn i Norðurtangan- um. Komið því, skoðið og kaupið, það borgar sig. ísafirði 9. febr. 1901. Marís M. Gilsfjörð. Brúkið ætíð: S lt íi n ci ± ll Íi v 1» ll Sxportb.afíe Surrogat Kjabenhavn. — P. Hjorth & Co. 'I'TTTl EDINBDTIGHI Roperie & Sailcloth Company Limited stofnað 1750. Verksiniðjur i Leitll og Glasgow. Búa til færi, strengi, k a ð 1 a og s e gl d úka. Vörur verksmiðjanna fást hjá kaup- mönnum um allt land. Umboðsmenn fyrir Island og Færeyjar: F. Iljor-tli Co. Kaupmannahöfn K. 28 Jeg þekkti hana ekki, og hlaut það því að vera einhver aðkomustúlka, sem ekki átti heima hér í bænum. Hún hafði vafið utan um sig dökkleitu sjali, af gamalli gerð, og hafði hatt, all-einkennilegan á höfði. Hún var mjög ljóshærð, og hafði smáa krystals- krossa í eyrunum. Stúlkan starði á mig þegjandi, og mælti eg því, eptir nokkura þögn: „Hvað þóknast yður, ungfrú?" Hún svaraði stillilega, og mátti heyra það á áherzl- unni, að hún var erlend: „Nei, það getur ekki verið, að það séuð þér. Þér eruð yngri, hærri maður, og allt öðru vísi í sjón. Lýs- ingin á alls ekki við yður; þér .... “ „Hvern viljið þér finna?“ spurði eg. „Hr. Samúel Nangle, eiganda „Flugfisksinsu“, svar- aði hún. „Hús þetta heitir: „Hinn fljúgandi fiskur“, og hr. Nangle er móðurbróðir minn“, anzaði eg „Er hann þá enn á lífi?“ „Já“. „Og er haDn við þolanlega heilsu?“ spurði hún enn fremur. „Naumast má það nú heita“, anzaði eg. „Honum hefur farið töluvert aptur á seinni árum, enda er hann nú tekinn mjög að eldast“. „Það er mér vel kunnugt“, svaraði hún. Jeg furðaði mig á þvi, hve kunnug hún var, og beið nú þess, að hún léti uppi, hvert erindið væri. „Er haDn heima?“ spurði hún. Jeg játti þvi. 33 Jeg varð þess brátt full-vís, að hann myndi ekki framar þurfa á hækjunum sínum að halda, en „létta at- kerum“ fyr, en varði. Jeg held líka, að gamli maðurinn hafi jafn vel fund- ið þetta sjálfur á sér, þó að læknirinn ekki léti hann skilja það með einu orði. Aptur á móti fóru orð læknisins við mig í þessa átt, og varaðist jeg auðvitað að láta gamla manninn skilja nokkuð þess konar á mér. Gamli maðurinn sat nú opt og einatt hugsandi, og utan við sig, rétt eins og kvöldið góða, þegar þenna kynlega gest hafði borið að dyrum. Það voru nú liðnir Qórtán dagar, síðan unga stúlk- an, sem við hann vildi tala, hafði komið. Jeg hafði aldrei séð hana, siðan þetta íllviðriskvöld, og frændi hafði heldur ekki einu orðinu á hana minnzt. Engu að síður hygg og þó, að hann hafi opt til hennar hugsað, og til orðsendingar þeirrar, er hún lét mig færa honum. Einn daginn, er hann hafði venju fremur verið, sem í þönkum, kallaði hann mig að rúmi sínu. Hann var þá orðinn býsna þvöglmæltur, svo að örð- ugt var að skilja hanD. „Marteinn!“ gat hann þó loks stamað fram. „Mér finnst mér líða lakar, en endrarnær, í kvöld“. „Jeg held, að það sé hugarburður, frændi minn“, anzaði eg. „Segðu mér nú satt, og skrökvaðu ekki að mér. Lít eg eins út, eins og jeg á að mér?“ „Ekki get eg séð neina verulegabreytingu“, anzaði eg.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.