Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 01.06.1901, Page 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 01.06.1901, Page 1
Verð árgangsins (minnst 52 arkir) 3 kr. 50 aur.; erlendis 4 kr. 50 aur., og í Ameríku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- aðarlok. ÞJOÐVILJINN. —--- FlMMTÁNDI ÁBdANGUK. -j= -Skx.|= RITSTJÓRI: SKÚLI THORODDSEN. \ Upysiign skrifleg, óyild \ netna komin sé til útgef- j anda fyrir 30. dag jnm- mónaáar, og kaupandi samhliða uppsögninni j borgi skuld sína fyrir blaðiö. M 25.-26. ÍSAS'IBÐI, 1. JÚNÍ. 19 0 1. Biðjið ætíð um: Otto Monsteds Danska smjörlíki, sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott, eins og smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefað hina beztu vöru og ódýrustu, í samanburði við gæðin. Fsest HJa teLatipmöiimiimm. írt, ag óskar a? fá ötulan og duglegan lífsábyrgðarmann, og býður honum einkar hag- kvæma kosti, til að vera A B a 1 aqcnt. Bréf, merkt „Generalagent 5646“, er inni haldi nákvæmar upplýsingar um hæfileika hlutaðeiganda, meðmæli o. s. frv., sendist AUG. I. VOLFF & Co. ANN. BUR. K0BENHAVN. Nýir vitar. Siglingar til landsins fara vaxandi ár frá ári, og þilskipastóll landsmanna, er til fiskiveiða gengur, vex, sem betur fer drjúgum. En eptir því sem siglingar til lands- ins, og fram með ströndum þess, aukast, að þvi skapi verður þörfin á fleiri vitum, til leiðbeiningar sæfarendum, einatt brýnni og tilfinnanlegri. Vitaleysið, sem nú er, stendur því iandinu eigi all-lítið fyrir þrifum, og þurfa vitamál landsins því, sem allra fyrst, að komast í viðunanlegra horf. Stjórn sameinaða gufuskipafélagsins, ogfieiri skipaútgerðármenn í Kaupmanna- höfn, er hafa skip í förum til íslands, hafa þvi í vetur sent áskorun til ráða- neytisins þess efnis, að koma vitamálum landsins í það horf, er betur sarnsvari kröfurn tímans. I áskorun þessari er tekið fram, að brýnust sé þörfin á vitum á þessum stöðum: Á Seley á Reyðarfirði, á Port- landi syðra, og á Siglunesi, fyrir norðan, enn fremur á Melrakkaslettu, á Skagatá, á Öndverðarnesi, í Vestmannaeytam og á Lanyanesi, og loks á Eyjafirði (á Hrísey, Oddeyri og á Akureyri) á Arnarnesi við ísafjarðardjúp, og á Elliðaey á Breiðafirði. Það má því að líkindum ganga að því visu, að stjórnin leiti fjárveit- inga hjá alþingi í sumar til nokkurra nýrra vitabygginga, og þarf fráleitt að efa, að máli því verði yfir höfuð vel tekið á þingi. En þar sem fjárhagur landsins eigi er svo glæsilegur, að mikið fé verði lagt fram í þessu skyni á einu fjárhagstíma- bili, enda nrargar aðrar þarfirnar, sem kalla að, þá ríður á, að byrjað sé þar, sem þörfin er brýnust. Skemmtilegast, og mannalegast, væri það óneitanlega. að geta nú byrjað nýju öldina með því, að stiga sem stærst sporið í þessu efni. En til þess þyrfti eitt af tvennu, annað hvort að auka drjúgum toliálögur, eða að taka lán; en varla er það þingi voru láandi, þótt það fari varlega í þær sakir, meðan ekkert greiðist, úr stjórnar- óstandinu. Það er sitt hvað, að fá þeirri stjórn fé í hendur, sem er i samvinnu við þing- ið, eða að auka álögur á landsmönnum, og fá þeirri stjórn í hendur, til að rasla með, sem er ábyrgðarlaus gjörða sinna, og kunn að því, að sinna vilja’ þings og þjóðar þráfalldlega að vettugi. Það er þvi mjög hætt við því, að stjórnar-óstandið verði sá þröskuldurinn, er hindrar skjótar framfarir í þessu, sem i fleiru, ---------------- Bókfregn. (Bœhtr sendar ritstjóranum.) I. Henning Jensen: Bernska oy œska Jesú. Skráð fyrir leihnenn. Þýtt hefur: Vilhjálmur Jónsson. Rvík 1901. 156 bls. 8yo. Höfundur rits þessa, síra Henniny Jensen, er alkunnur maður í Danmörku. — Fyrir 16—17 árum var honum vikið frá prestskap, af politiskum ástæðum, og er rit þetta ágætt sýnishorn þess, hvern- ig ýmsir prestar hugsa og tala um ýms- ar kenningar þjóðkirkjunnar, þegar em- bættisfjötrarnir binda þá eigi lengur. í formála ritsins tekur síra Henning Jensen það fram, að kirkjufélag, er haft hefði upptök sín í lífi og kenningu Jesú frá Nazaret, hefði getað falið kenningu sína í þessum fáu orðum: Allt, sem þér viljið, að mennirnir gjöri yður, það skul- ið þér og þeim gjöra“, en i stað þess að safna mönnum í kirkjufélag utan um þessa háleitu grundvallarsetningu kær- leikans, þá hafi, þegar á dögum postul- anna, verið farið að safna þeim um trú- setningar, er hver hafi verið annari vitlausari, og óskiljanlegri fyrir mann- lega skýnsemi, svo sem t. d. kenningin um guðdóm Krists. Höfundurinn telur það því eitt afað- al-hlutverkum frarntíðarinnar, að skipa Jesii í sitt rót.ta sæti, sem þeim manni, er gert hafi sór ljósasta hugmynd um guðdóminn, og skyggnzt bezt inn i eðli guðs. Sýnir hann því næst fram á það, með tilvitnunum í sjálft Nýja testamentið, að hvorki hafi Jesú sjálfum dottið í bug, að hann væri guð, né heldur hafi áhang- endur hans. almennt litið svo á, á fyrstu árum kristninnar, enda, sóu frásagnir guðspjallamannanna, er þar að lúta, hver annari gagnstæða.r, bæði að því er yfir- náttúrlega fæðingu hans snertir o. fl., og margir staðir í Nýja t.estamentinu, sem beinlínis sýna, að hann hefur verið álit- inn sonur Jóseps o. s. frv. o. s. frv. Yfir höfuð beitir höfundurinn við Nýja testamentið sarns konar „æðri kri- tík“, sem síra Jón Helyason er tekinn að beita, að því er til Gamla testamentisins kemur, og inun fæstum virðast, að rök- semdaleiðsla hans sé óskarpari; báðir virðast hafa mikið til síns máls, og kæmi því sjálfsagt ágætlega sainan, ef staða beggja væri jafn óháð; en það eru til takmörk, sem guðfræðingar, er i þjóð- kirkjuembættum eru, ekki mega yfir stíga. II. Aldarnót. Sjónleikur með kvæð- um og kórum. Eptir Mattlnas Jochums- son. Rvík 1901. 44 bls. 8yo. Það er ekki að þvi að spyrja, að þeg- ar þetta höfuð-skáld þjóðar vorrar sting- ur niður penna, til þess að láta rödd sina hljóma í bundnu letri, þá hlýtur hver, sem á fógrum kveðskap hefur mætur, að dást að snilldinni, sem ein- kennir ljóð hans. I sjónleik þessum, sem allur er í Ijóðurn, eru fjöldamörg erindi, hvert öðru fegurra og tilkomumeira, og má því með sanni segja, að síra Matth. Jocli- umsson hafi gefið þjóð sinni einkar snotra aldamótagjöf, þar sem sjónleikur þessi er, enda hefur hann hlotið einróma Íof allra, er á hann hafa minnzt opinberlegai

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.