Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 27.08.1902, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 27.08.1902, Blaðsíða 1
V'trð árgangsms (minnst 52 arkir) 3 kr. 50 aur.; erlendis 4 kr. 50 aur.,og í Ameríku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- aðarlok. ÞJÓÐVILJINN. —-.—1== Sextándi árganöub. =|===— —i—-gsc^; |j|EEE RITST.7 ÓRI: SKÚLI THORODDSEN. ^=Ibos.: - Uppsögn skrifleg, ógild nema komin sé tilútgef- anda fyrir 30. aag júní- mánaðar. og kaupandi samhliða uppsögninni borgi skuld sína fyrir blaðið. M 37. Bessastöðum, 27. ágúst. 19 0 2. Biðjið œtíð um: Otto Monsteds I )auska smjörlíki, sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott, eins og smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í D a n m ö r k u, o g b ý r til óefað hina beztu vöru og ódýrustu, í samanburði við gæðin. Fæst tdá l5.au.pmönmiimm. Útlönci. Frá útlöndum tíðindafátt. Helztu fréttirnar þessar: Danmörk. Þ>ar er nú allt friðsam- legt í politikinni um þessar mundir, nema þjark nokkuð, út af kosningunum til landsþingsins, er fara fram 1 sept. Ymsir heldri menn Dana hafa nú efnt til samskota um land allt, til þess að reisa Hörup sáluga veglegan minnisvarða í Kaupmannahöfn. Þýzkaland. 4. ág. iagði Vilhjálmur keisari af stað til Rússlands, og hittust þeir keisararnir, hann og Nikolaj í borg- inni Reval. 26. júlí gekk haglél, og ákafur hvirf- ilbylur yfir borgina Köln, og héruðin þar í grenndinni, feykti um húsum, og gerði annan skaða, en 2 menn biðu bana, og margir hlutu meiðsli. t 7. ág. andaðist Rudolph von Bennigsen, fæddur 1824, nafnkunnur þýzkur stjórn- málamaður, lengi foringi þjóðfrelsis- ilokksins. Bretland. Krýning Játvarðar kon- ungs er nú um garð gengin, fór fram 9. ág., með mikilli viðhöfn. — Konungur hefir gefið þjóðinni höllina „Osborne House“, að undanteknum herbergjum þeim, er Victoría drottning bjó í, og á að nota höllina til hælis handa liðsfor- ingjum, er biðið hafa heilsutjón í þjón- ustu ættjarðarinnar. 6. ág. var í Lundúnum haldin „frið- arhátíðu, og sátu að þeirri veizlu 2500 manna, mjög margt af stórmennum Breta, indverskir furstar 0. s. frv. Þingkosning fór nýlega fram i kjör- dæminu North-Leeds, og var þíngmanns- efni frjálslynda flokksins kosið, með 758 atkv. meirihluta; en þegar kosið var þar næst á undan sigruðu íhaldsmenn með 2157 atkv. meirihluta. Kosning þessi þykir þ ví benda í þá átt, að skoðanir al- mennings hneigist fremur að frjálslynda flokknum, enda þykja ihaldsmenn hafa reynzt fremur aðgjörðalitlir, að því er innanlandslöggjöfina snertir, síðan Búa- ófriðurinn byrjaði. 27 júlí gekk ákafur stomur i Lund- únum, er kippti upp trjám með rótum, og olli miklum skaða, og slysum nokkr- um. — — Prakkland. Ráðaneytið Combes gengur öfluglega fram í því, að loka kaþólskum skólum, er eigi hafa fengið leyfi stjórnarinnar. Út af þessu hafa viða spunnizt óspektir nokkrar á götum, og ýmsir verið i varðhald settir. Ný skeð beiddust 3 hefðarfrúr, bar- ónsfrú Reille, greifafrú Mun og frú Píon, áheyrnar hjá frú Loubet, konu forsetans, en var synjað viðtals, og gjörðist baróns- frúin þá svo stórorð, að hún lét sér þau orð um munn fara, að ef eigi yrði hætt þessum ofsóknum, gegn nunnuin og munk- um, gæti svo farið, að göturnar yrðu kvennblóði laugaðar. Qallifet, er fyrrum var hermálaráðherra, hefir ný skeð látið sér um rnunn fara, að þó að Dreyfus eigi hafi staðið í sam- baDdi við þjóðverja, þá hafi hann þó gefið Rússastjórn ýmsar upplýsingar um hermál Frakka. Dreyfus hefir þegar mótmælt áburði þessum, og skorað á Rússastjórn, að bera þenna áburð til baka; en svar hennar var ókomið, er siðast fréttist. 10. ág. varð járnbrautarslys milli borg- anna Charleville og Lille, og biðu 5 menn bana, en 10 hlutu meiðsli. — Rússland. Þar gera bændur enn róstur öðru hvoru, síðast i Saratoff-kér&ð- inu, þar sem amtmaðurinn og hóraðsstjór- inn urðu báðir sárir. Spánn og Portugal. Nú þykir vist, að /Saya.sfa-ráðaneytið fari frá völd- um á Spáni i haust. 30. júli sprakk bómullargeymsluhús i Cadix i lopt upp, og urðu margir menn sárir. í Portugal hafa orðið róstur í ýmsum borgum, svo að borgin Aveiro hefir verið lýst í herkvíum. — í t a 1 í a. Frá Venedig koma þær fregn- ir, að turninn á Stefáns-kirk]unni sé svo sprunginn, að vænta megi, að hann hrynji þá og þegar, og sumir ætla jafn vel, að allri borginni só hætta búin, með þvi að vatnið hafi jetið grunninn undan húsunum. Bandaríkin. 31. júlí varð talsvert gyðinga-uppþot í New-York. Urn 100 þús. gyðinga fylgdu þann dag til grafar einum af æðstu prestum sínum, er Joseph hét, og hafði verið rnjög góðgjörðasamur mann- vinur; en með því að sumir bæjarbúa hæddust að líkfylgdinni, þá lenti i áflog- um, rúðubrotum o. s. frv., og urðu marg- ir lögregluþjónar 'sárir, er þeir reyndu, að skakka leikinn. 6. ág. varð járnbrautarslys i grennd við borgina Rhodes í Jova, og biðu 13 menu bana. — Búa-foringjarnir eru nú margir á ferð í Evrópu, sem fyr hefir verið get- ið. Stejn, fyrrurn forseti í Oranje-lýðveld- inu, var ný kominn til Hollands, og fagn- að þar vel. f 8. ág. andaðist í Briissel hershöfð- inginn Lucas Meyer, sem frægur er úr Búa-ófriðinum. Australía. Slys varð ný skeð í kolanámu við Wollengton, og biðu nær 100 manna bana. Venezuela. Borgarastyrjöldin stend- ur þar enn yfir, og vegnar uppreisnar- mönnum betur, unnu ný skeð sigur á 1 þús. stjórnarliðs. — Haítí. Þar geysar einnig borgara- styrjöld, og keppa þar tveir um forseta- tignina, Fouchard og Firmín. — Þorpið Qoave de Pet var ný skeð brennt til ösku, í ófriði þessurn, og beið þar margt manna bana.-------- Kolera er enn í Kaíro, og í fleiri borgum á Egyptalandi. Jar ðskj álftar hafa gengið á Ind- landi. — Borgin Khischm sögð i rústum, og manntjón nokkurt jjrd alpingi. Leynilegar kosningar. Nefnd sú, er efri deild alþingis kaus til þess að íhuga kosningalaganýmælið, segir, meðal ann- ars, í álitsskjali sínu: „Helztu nýmælin í frumvarpi þessu eru þau: 1, að kosn- ingar skuli vera leynilegar, 2, að þær skuli fara fram í hverjum hreppi og bæj- arfélagi kjördæmanna, 3, að kjördagur við almennar kosningar skuli vera hinn sami um land allt, og í sambandi við það stendur, 4, að engin ræðuhöld skuli vera þeim samfara, með því að gert er ráð fyrir, að þingmannaefnin hafi fyrir kosningu gert kjósendum kunnar skoð- anir sínar á landsmálum“. Nefndin róð deildinni því eindregið að samþykkja frumvarpið að eins með óverulegum breytingum. Fjáraukalaganefndin í efri deild féllst

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.