Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 27.08.1902, Side 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 27.08.1902, Side 2
146 Þjóðviljinn. XVI, 37. að mestu leyti á fjárveitingar neðri deild- ar. — Sóttvarnarhús vildi nefndin þó i bráðina að eins reisa í Reykjavík og á Seyðisfirði, en láta hin tvö bíða betri tíma, af þvi að þörfin þar sé ekki jafn brýn. Stjórnin hafði ætlazt svo til, að út- lendur verkfræðingur yrði fenginn, til að annast um brúargjörðina á Lagarfljóti, en nefndin telur réttara, og landssjóðnum mun kostnaðarminna, að verkfræðingur landsins, Sig. Thorðddsen, sjái um brúar- smíðið, ekki sizt þar sem hann þurfi, hvort sem er, að hafa eptirlit með vega- vinnu á Fjarðarheiði og á Fagradal á komanda sumri, enda telur nefndin, að hann hafi gjört rétt í því, að láta hætta brúarvinnunni i fyrra sumar. Að því er snertir loptritann („aéro- grafinn“) vill nefndin heimila stjórninni að fullgera samningana, án þess leitað sé samþykkis almennings, svo að fyrir- tæki þetta drægist eigi, en gefa skal stjórnin helztu félögum, er fást við lopt- ritun, þar á meðal Marconifélaginu í Lundúnum, kost á að keppa um fyrir- tækið, og að tillagið frá Islands hálfu verði eigi hærra, en sem samsvarar 2/B af af allri þeirri fjárupphæð, sem danska ríkið (Danmörk og Island) leggur til. Til að koma upp vatnsleiðslu á holds- veikraspítalanum á Laugarnesi vill nefnd- in veita 1350 kr. — Allar tillögur nefnd- arinnar voru samþ. í efri deild 19. ág. Manntalsþmgin. I stað manntalsþing- anna, sem nú eru, vildi nefnd sú, er efri deild skipaði í málið, gjöra sýslumönnum að skyldu að fara, að minnsta kosti einu sinni á ári, um alla sýsluna á þeim tima, er amtmaður ákveður, í samráði við sýslu- nefnd, og dvelja að minnsta kosti einn dag í hverii dómþinghá, til að svara málum manna, og sé það auglýst með minnst 10 daga fyrirvara, og amtmanni síðan send skýrsla um f'erðirnar. Landbúnaðarlaganefndin í neðri deild hefir, sem vænta mátti, þar sem þingtím- inn er jafn stuttur, verið ærið afkasta- litil, og að eins tekið til yfirvegunar fá- ein atriði úr ábúðarlögunum frá 12. janúar 1884, sem og búnaðarskólamálið, og legg- ur til, að neðri deild skori á landstjórn- ina, að útvega fyrir næsta þing sem ræki- legastar upplýsingar um leiguliða-ábúðina í landinu, til undirbúnings væntanlegri endurskoðun á ábúðarlöggjöfinni. Að þvi er búnaðarskólana snertir, álít- ur nefndin, að heppilegast væri, að hafa skólana að eins tvo, er væru landsins eign, og nytu þá ríflegri fjárstyrks, en nú gerist; ætti þá Eiðaskólinn og Ólafs- dalsskólinn að leggjast niður. Svo vill og nefndin fá eina framkvæmdarstjórn yfir búnaðarskólana, og telur landbúnað- arfélagið bezt til þeirrar yfirstjórnar fallið. Kjördæmabreyting, — Þingsályktun. Síra Sig. Stef. ber fram þingsályktunar- tillögu í neðri deild þess efnis, að skora á stjórnina, að leggja fyrir næsta þing frv. til laga um nýja skipun á kjördæm- um hér á landi, er sérstaklega fari i þá átt, að gjöra kjördæmin sem jöfnust, að auðið er, bæði að kjósendatölu og víðáttu, og að ekki sé kosinn nema einn þing- maður fyrir hvert kjördæmi. Berklaveikismálið. Xefnd sú, er neðri deild alþingis kaus, til að ihuga það mál, hefir birt mjög ýtarlegt álit um málið, og eru tillögur hennar þær, að neðri deild skori á stjórnina að sjá um: 1, Að samin só og prentuð á landssjóðs kostnað lýsing á berklaveikinni, og varúðarreglur gegn henni, er svo sé út- býtt meðal almennings ókeypis. Enn fremur, að prentaðar séu helztu varúð- arreglur gegn berklaveikinni til þess, að festa á spjöld, er svo séu hengd upp á sem flestum opinberum stöðum. 2, Að héraðslæknar grennslist eptir út- breiðslu berklaveikinnar í umdæmum sinum, og sendi landlækni skýrslu fyrir 1. júní 1903 um, hve margir berkla- veikir, sórstaklega í lungum, séu í um- dæminu, og á hve háu stígi. 3, Að héraðslæknum só skipað að hafa eptirlit með skólum í umdæmum sin- um, og framkvæma skoðanir á nem- endum, að minnsta kosti einu sinni á hverju kennslutímabili, þeim sé og boðið, að hafa vakandi auga á því, að varrúðarreglum þeim, sem settar kunna að verða, um varnir gegn útbreiðslu berklaveikinnar, só fylgt í hóraðinu. 4, Að leggja fyrir næsta alþingi frv. til laga um varnir gegn útbreiðslu berkla- veikinnar hér á landi. Þingsályktun, sams konar, bar yfirdóm- ari Kr. Jónsson einnig fram í efri deild þingsins. Stjórnvalda-auglýsingar. I báðum deildum þingsins voru bornar fram til- lögur þess efnis, að skora á stjórnina að hlutast til um, að einkaróttur til þess, að birta stjórnvalda-auglýsingar næstu 3 ár, frá nýjári 1903 að telja, verði veittur þeim útgefanda hinna þriggja elztu þjóð- blaða í Reykjavík, er bjóða kynni hæzt árlegt gjald til landssjóðs fyrir þenna rétt, að því tilskildu, að hver þumlung- ur dálkslengdar (272 þuml. breiður) kosti ekk’i meira, en 1 kr., með venjulegu meginmálsletri (corpus). Kláðamálið. Landbúnaðarnefndin hef- ir birt all-ýtarlegt álit um fjárkláðamál- ið. Telur hún kláðann útbreiddan um land allt, nema í Rangárvalla- og Skapta- fells-sýslum, Suður-Múlasýslu, Yestur-ísa- fjarðar- og Vestur-Barðastrandar-sýslum, og sums staðar all-magnaðan t. d. í Húna- vatnssýslu. Nefndin litur svo á, að markmiðið eigi nú framvegis að vera algjörð út- rýming fjárkláðans úr landinu, því að það stórfé, sem til þess hlyti að ganga, só þó að eins lítilræði i saman- burði við þann árlega skatt, sem fjár- kláðinn leggi á landið. Nefndin vill þó eigi þegar ráða til atlögu við kláðann, og eru ástæður henn- ar þær, að erfitt myndi, sem stendur, að koma fullu samræmi á framkvæmdirnar í öllum ömtum, af því að framkvæmdar- valdið só skipt, og skoðanir amtmanna og amtsráða sundurleitar, enda eigi, sem stendur, völ á kláðafróðum mönnum, er væri fulltreystandi til þess, að standa fyrir lækningunum, og loks vanti enn mikið á, að almenningur hafi þá þekk- ingu og áhuga á málinu, sem æskilegt væri, og því hætt við skorti á nauðsyn- legu fylgi af hálfu almennings í útrým- ingarbaráttunni. Til þess að bæta úr þessu vill nefndin, að komið só á verklegri kennslu í kláða- lækningum á einum eða tveimur stöðum á landinu, og ættu sveitastjórnir að hlutast til um, að einn skynsamur og áreiðan- legur maður úr hverri sveit nyti kennsl- unnar að minnsta kosti, og kennslunni ætti að haga svo, að kláðalæknirinn færi að vetrinum, með lærisveinahóp sinn, urn einhver svæði, þar sem kláðinn væri magnaðastur t. d. Mýra- og Borgarfjarð- ar-sýslu eða Húnavatnssýslu, og kenn- arinn kenndi lærisveinunum allar aðferð- ir og varúðarregiur, sem nauðsynlegar eru til útrýmingar kláðanum) En er fenginn væri nægur hópur æfðra og áreiðanlegra kláðalækna, ætti að breyta lögunum í þá átt, að algjörð útrýming fjárkláðans væri höfð fyrir aug- um. Nefndin lagði það því til, að skora á stjórnina að hlutast til urn, að verkleg kennsla i kláðalækningum komist á svo fljótt, sem auðið er, helzt á tveim stöð- um í landinu, í því skyni að undirbúa öfluga tilraun til algjörðrar útrýmingar fjárkláðans. Leynilegar kosningar. Efri deild gerði þá breytingu á frumvarpi þessu, að í staðinn fyrir það. að undirkjörstjórnir áttu að opna atkvæðakassann, og telja atkvæðin, þá skulú þær, eptir ákvæðum efri deildar, þegar atkvæðagreiðslunni er lokið, innsigla atkvæðakassana, án þess að opna þá, og senda síðan með þa til yfirkjörstjórnarinnar, svo að skoðun kjör- seðla, og talning atkvæðanna sé eingöngu í hennar höndum- Nefndin í neðri deild lagði svo ein- dregið með því, að samþykkja frv. óbreytt, og var því þar með borgið. Breyting á umboðsstjórn landsins. Stjórnarskrárnefndirnar í efri og neðri deild alþingis hafa látið uppi álit sitt um væntanlegt fyrirkomulag á umboðsstjórn landsins, er stjórnarskrárbreytingin kemst á, enda hafði ráðherrann óskað að heyra álit þingsins, svo að hann geti stuðzt við það, er hann semur frv. um þetta efni, er lagt verður fyrir næsta alþingi. Tillögur nefndanna beggja mega heita samhljóða, og telja eigi ráðlegt, að stofn- að sé til frekari breytinga á emhætta- skipuninni, en nauðsynleg afleiðing er af stjórnarskrárbreytingunni. Sem nauðsynleg afleiðing af stjórnar-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.