Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 20.11.1902, Side 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 20.11.1902, Side 1
Verð árgangsins (minnst 52 arkir) 3 kr. 50 aur.; erlendis 4 kr. 50 aur., og í Ameríku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- aðarlok. ÞJÓÐ YILJINN. -—|=: SexTÁNDI ÁEGAN9UB. =| =- -!—-r.3>- 1= RITST.7 Ó R I: SKÚLI THORODDSEN. EEEEl^o®;— i— Uppsögn skrifleg, ögild nema komin sé til útgef- anda fyrir 30. dagjúní- mánaðar, og kaupandi samhliða uppsögninni borgi skuld sína fyrir blaðið. M 46. Bessastöðum, 20. NÓV. 19 0 2. Biðjið œtíð um: Otto Monsteds Danska siiijörlíki, sein er alveg eins notadrjúgt og bragðgott, eins og smjör. Verksmiðjan er hin elzta og stærsta í D a n m ö r k u, o g b ý r til óefað hina beztn vöru og ódýrustu, í samanburði við gæðin. Föost iijá itaupmönmimim. Áugnlæknir á Dinpyri. Undirritaður hefir stundað augnlækn- ingar í rúmt ár hjá Prof. Grut Hansen og J. Bjerresen í Kaupmannahöfn, hefir öll nauðsynleg verkfæri, er til þeirra þurfa, og er enn fremur byrgur af gleraugum. Þingeyri í nóvember 1902. A. lújelclsted.. tJtlönd. Frá útlöndum er þessara tiðinda helzt getið: Veðráttufar. Svo er að sjá, sem vetr- arveðrátta hafi komið í fyrra lagi í Evr- ópu, því að fyrstu dagana í októbermán- uði var þegar farið að frysta og snjóa suður á Þýzkalandi. Danmörk. 1. okt. síðastl. brunnu B býli í þorpi einu á Jótlandi, í grennd við Randers, og orsakaðist eldurinn af því, að tveir drengir, 3 og 4 ára gamlir, voru að leika sér með eldspítur. Þar brunnu inni 10 kýr, og einn hestur, en fólk ekki. f 26. sept. siðastl. andaðist Jakob Erslev, alkunnur bóksali og útgefandi í Kaupmannahöfn, 84 ára að aldri. Hann var bróðir landfræðingsins Edv. Erslev, en sonur hans, Kr. Erslev, er kennari við háskólann. Frakkneska leikkonan Sardh Bern- hardt var stödd i Kaupmannahöfn í okt., og var aðsóknin mjög mikil, þar sem flesta fýsti að sja leikíþrótt þessarar heimsfrægu leikkonu. Kennslumálaráðherrann lagði í haust fyrir þingið frv. um kennslu í lærðu skólunum, um takmörkun forntungna- náms o. fl, sem vonandi er, að reiði vel af, því að skemmra myndi þá sams kon- ar umbóta hjá oss íslendingum að bíða. ílla láta Danir yfir fjárhag sinum um þessar mundir, þar sem í ár verður eytt 14 x/2 milj. um fram árstekjur, og á fjár- lagafrumvarpi því, er stjórnin lagði fyr- ir ríkisþingið í haust, er gert ráð fyrir 4 milj. tekjuhalla. 22. okt. felldi landsþingið frumvarp stjórnarinnar um sölu Yesturheimseyjanna, með 32 atkv. gegn 32, en einn þing- manna greiddi eigi atkvæði. Hrósa hægrimenn mjög sigri yfir þessum ur- slitum, enda þótt það væri Estrup, sem fyrstur hóf máls á eyjasölunni, meðan hann sat við stjórn, og hann, sem nú hefir barizt mest á móti henni. Svo er að heyra, sem mál þetta sé nú úr sögunni, að minnsta kosti i bráð, þar sem vinstrimannaráðaneytið mun eigi ætla sér að leggja það mál optar fyrir þingið. Noregur og Svíþjóð. 8. okt. vildi það hörmulega slys til í Kristjaníu, að 5 systkini brunnu inni. Slys þetta atvik- aðist á þá leið, að petroleumslampi velt- ist um, og brotnaði, og læsti eldurinn sig þegar út um dyrnar, og ofan stig- ann; en faðir barnanna, sem var heima, virðist hafa gengið frá vitinu í svip, þvi að hann gætti ekki annars, en að bjarga sjálfum sér, og stökk út um gluggann, og slapp svo nokkurn veginn óskemmd- ur. Móðir barnanna var ekki heima, er slys þetta vildi til, og var heimkoman því í meira lagi sorgleg. Stórþing Norðmanna tók til starfa 11. okt., og voru þingforsetarnir endurkosn- ir: Berner í stórþinginu, Arctander í óð- alsþinginu og Horst í lögþinginu. í héraðinu Norrbotten í Sviþjóð horf- ir til stórra báginda, sakir uppskeru- brests, og hefir Oscar konungur gefið 10 þús. króna, til þess að bæta þar úr neyð manna. Þingkosningar í Svíþjóð eru nú ný- lega um garð gengnar, og hafa framsókn- armenn nú meiri hluta atkvæða á þingi, svo að talið er vist, að frv. um rýmkun kosningarréttarins nái nú fram að ganga. Aðfaranóttina 3. okt. brann bóndabær í Mellby í Sviþjóð, og brunnu þar inni 3 börn, en hinum var bjargað út um glugga, og fengu nokkur brunasár. Finnland. Þar hefir einnig brugðizt mjög uppskera, svo að til töluverðra vandræða horfir þar í ýmsum héruðum. Rússastjórn heldur enn áfram gjör- ræðistiltektum sínum á Finnlandi, og hefir nýlega gefið út 5 tilskipanir, er þröngva mjög réttindum landsmanna; meðal annnars er Rússum nú veittur réttur til allra embætta þar í landi, á- kveðið, að alla embættismenn geti það yfirvald, er þá hefir skipað, sett af, án dóms og laga, og dómarar eigi undan skildir, sem áður hafa þó verið óafsetj- anlegir, nema með dómi. Enn er og á- kveðið, að ábyrgð verði eigi fram kom- ið á hendur neinum embættismanni, nema yfirboðarar hans samþykki o. s. frv. Bretland. Stjórnin hefir í haust lagt fyrir þingið frv. til nýrra alþýðumennt- unarlaga („Education Bill“), og leggur svo mikið kapp á það mál, að Balfour, forsætisráðherra, hefir lýst því yfir, að stjórnÍD færi frá völdum, ef frv. næði eigi fram að ganga. Um frv. þetta hafa nú staðið funda- höld víða á Bretlandi, því að framsókn- armönnum þykir frv. ófrjálslegt í ýmsum greinum, og í sama strenginn taka ýms- ir af „uníonistunum“ („Chamberlain’s- mönnum“). Búahershöfðingjarnir, Botha, Delarey og De Wet, komu til Parísar 13. okt., og var fagnað þar forkunnar vel. — Aldrei varð neitt af því, að þeir færu á fund VUhjálms keisara, með þvi að keisari gerði þeim þá orðsendingu, að ef þeir vildu sinn fund sækja, þá yrði eDski sendiherrann í Berlín að beiðast áheyrn- ar fyrir þá. Þetta gerði keisari auðvit- að til þess, að styggja eigi Breta, og varð sú niðurstaðan, að hershöfðingjarnir slepptu þá heimsókninni. Chamberlain hefir nú lagt fyrir brezka þingið frv. þess efnis, að taka 30 milj. sterlingspunda að láni handa Transvaals- stjórn, og er þar jatn framt kveðið svo á, að ekki skuli heimta neitt fé af Trans- vaals-búum til herkostnaðarÍDs 3—4 fyrstu árin. 11. okt. síðastl. var i Glasgow af- hjúpað likneski Oladstone’s, og hélt Bose- bery þar aðal-ræðuna. Frakkland. Þar hófst verkfall, all- umfangsmikið, í kolanámum víðsvegar um land 8. okt., og hafa því fylgt ýmis konar róstur, eins og opt vill verða, enda hafa verkamenn haldið vörð við nám- urnar, til þess að aptra þvi, að nýir verkamenn geti tekið við vinnunni. 27. sept. varð járnbrautarslys, á járn- brautinni milli Lille og Parísar, og lét- ust þar 20, en 50 hlutu meiðsli. Efnt er þegar til samskota, til að reisa Emile Zola minnisvarða, og söfn- uðust 24 þús. franka á 2—3 fyrstu dög- unum. 13. okt. vildi það slys til, að lopt-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.