Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 08.12.1902, Page 2
194
Þjóðviljinn.
XVI, 49.
f Látinn er nýlega prófessor Segélcke,
kennari við landbúnaðarháskólann; hon-
um þakka Danir mjög framfarir sínar í
landbúnaði á seinni árum.
Ekki hefir ráðaneytið meiri hluta at-
kvæða í landsþingínu, þar sem flokkur-
inn „hinir átta“ fylgir ýmist vinstri-
mönnum eða Estrupsliðum við atkvæða-
greiðslur.
Meðal merkra nýmæla, er þing Dana
á nú um að fjalla, má nefna frv. um borg-
aralegt hjónaband, sem mælir svo fyrir,
að til þess að hjúskapur sé löglega stofn-
aður að lögum, verði hann að stofnast
hjá verzlegum yfirvöldum, borgmeistur-
um i kaupstöðum, en utan kaupstaða hjá
„hjúskaparstofnurum11, er amtsráð skipa
í sveitarfélagi hverju, til þriggja ára í
senn. Kirkjuleg vígsla er þýðingarlaus
að lögum, en heimil þeim, er óska. —
Svíþjóð og Noregur. í síðastl. októ-
bermánuði var margt verkmanna á ferð
með járnbraut frá Gellivara, og voru ýms-
ir þeirra í meira lagi ölvaðir, og lenti í
svo áköfu handalögmáli, að margir hlutu
stór sár, einn t. d. kúlu í höfuðið, ann-
ar hættulegar hnífstungur o. s. frv. Járn-
brautarlestin varð að nema staðar, og
voru þá 19 teknir fastir, sem verstir
höfðu verið.
2. nóv. brunnu 8 bændabýli í Dölum
í Svíþjóð.
S. d. brann í Bergen stórt veitinga-
hús, og var skaðinn inetinn 400 þús.
Á veitingaliúsi í Þrándheimi skaut
rnaður nokkur fyrst 3 skotum á konu
sína, og skaut svo sjálfan sig; en bæði í
hjónin voru þó enn á lífi, er síðast
fréttist.
Finnland. Rússastjórn heldur enn á-
fram lögleysum sínum á Finnlandi, og
hefir nú síðast skipað svo fyrir, að leggj-
ast skuli niður þeir þrír yfirréttir, er
verið hafa á Finnlandi, og skuli í stað
þeirra koma einn yfirréttur í Helsingfors,
er skipaður sé að hálfu rússneskum em-
bættismönnum, en að hálfú „tryggumu
Finnum. —
Þýzkaland. Stjórnin hefir nýlega
lagt fyrir þingið frv., er hækkar að mun
aðflutningstoll á landbúnaðarafurðum og
iðnaðarvarningi, og er það gert innlend-
um landbúnaði og iðnaði til verndar.
Frv. þetta mætir þó megnri mótspyrnu
af hálfu „socialistaw o. fl., er telja því
það til óhelgis, að það hækki ýmsar lífs-
nauðsynjar verkmannalýðsins í verði.
f 22. okt. varð borgmeistari í Ham-
borg, Hinriksen að nafni, bráðkvaddur,
fékk hjartaslag, er hann var staddur á
bæjarstjórnarfundi.
23. okt. hófst í Berlín alþjóðafundur,
til að ræða um öflug ráð gegn berkla-
veikinni.
Bærinn Berlin er um þessar mundir
að taka stór-lán, 200 milj. rígsmarka, til
ýmsra framkvæmda.
Vilhjálmur keisari brá sér til Englands
í nóv., á fund Játvarðar konungs, móð-
urbróður síns, og ætla sumir, að þeir ætli
að þinga um ýms stjórnmál, einkum um
horfur í Kína, þó að látið sé í veðri
vaka, að ferðin sé skemmtiferð. —
Bretland. í borginni Glasgow á Skot-
landi var nýlega kosinn borgmeistari, og
hlaut „socialistinn“ Scott-Gibson langflest
atkvæði, og þykir það nýlunda.
Umræður um hið nýja skólalagafrum-
varp Balfour’s standa enn yfir á þingi
Breta, og mæta lögin megnri mótspyrnu af
hálfu framsóknarmanna, er þykir þau
auka um of áhrif prestanna á skólamálin.
Apturhaldsstjórnin á Bretlandi hefir
nú vakið upp þvingunarlögin irsku, er
samþykkt voru á þingi 1887, en aldrei
hefir beitt verið, síðan 1892, er Gladstone
varð forsætisráðherra í síðasta sinn, og
Morley var ráðherra Irlands; en
nú hefir Balfour tekið að beita þeim á
ný, og hafa nokkrir af þingmönnumíra,
t. d. O’Donnell og Mac Hugh verið dæmd-
ir í betrunarhússvinnu fyrir æsingar. Út
af þessu hefir gjörzt nokkuð róstusamt á
þingi Breta, og legið við handalögmáli;
t. d. steytti O’Donnell einu sinni hnef-
ann framan í Balfour í þingsalnum.
Enskt gufuskip, „Regulus11, rakst ný
skeð á spanska gufuskipið „Eneros“ i
grennd við strendur Bretlands, og sökk
„Enerosu þegar, og drukknuðu 22 menn.
Bretar eru nú komnir í nýjan ófrið í
Afríku, við soldáninn í Somalí-\saxdi, er
Mullah nefnist. Foringi Breta þar syðra
hét Swayne, og beið hann ósigur í við-
skiptum sínum við Mullah 6. okt. síðastl.
— Mullah hefir látið liðsforingja frá
Austurríki, Karl Inger að nafni, kenna
liði sínu vopnaburð, og er það honum
góður styrkur; en fremur er lið hans ílla
vopnum búið, þar sem að eins 2 þús.
manna hans höfðu byssur, en 15 þús.
höfðu að eins spjót að vopnum. — Sagt
er, að Midlah eigi þó von á fleiri skot-
tólum bráðlega, og Swayne er nú kvaddur
heim til Englands, en Bretar búanúall-
mikið lið, til þess að rétta hluta sinn.
— Nomflfó-landið liggur í grennd við
Abessiníu. —
Frakkland. 4. nóv. varð járnbrautar-
slys í grennd við borgina Reims, og urðu
10 sárir, og var einn þeirra bróðir
Hannotaux’, er fyr var utanríkisráðherra
Frakka; af honum var búizt við, að taka
yrði báða fætur.
72 biskupar hafa ný skeð sent stjórn-
inni mótmæli, út af aðförum hennar gegn
kaþólsku skólunum, en með því að bréf
biskupanna þótti eigi sem hógværast í
garð stjórnarinnar, hefir hún skipað
málshöfðun gegn þeim.
Ný skeð brann slotið Eu, sem var
eign hertogans af Orleans. —
ítalía. 2. marz næstk. verða 25 ar
liðin, síðan Leo páfi XIII tok pafatign,
og verður þá mikið um dýrðir 1 pafa-
höllinni. í mæli er og, að Vilhjálmur
keisari muni þá ef til vill heimsækja
páfa.
Nýlega gerði múgur manns ritstjóra
blaðsins „Caffarou í Róm aðsúg, braut
hjá honum glugga o. fl., og gerði
ritstjórinn, Gustavino skáld, ser þá litið
fyrir, og skaut 6 skammbyssuskotum út
um gluggann, og sundraðist þá mann-
fjöldinn.
Sjóræningjar, sem hafa aðsetur í lönd-
um Tyrkja við Rauðahafið, hafa gert
Itölum ýmsan óskunda, svo að ítalir hafa
sent þangað fallbyssubáta, og krefjast
þess, að Tyrkir láti ekki þegna sína
fremja slíkan ósóma, sem sjórán, og borgi
ltölum drjúgar skaðabætur, og hafa nú
Tyrkir lofað þessu, hvað sem um efnd-
irnar verður. — —
Holland. Gjörðardómurinn í Haag
kvað ný skeð upp úrskurð i ágreiningi,
er risið hafði milli Bandamanna og
Mexicomanna, út af kirkjueignum, og
varð sú niðurstaðan, að Mexicomenn skuli
borga Bandamönnum 1 milj. 400 þús.
dollara. —
Belgía. ítalskur stjórnleysingi, Robino
að nafni, veitti Leopold konungi bana-
tilræði 15. nóv., er konungur ók, með
föruneyti sínu, frá Gudúll kirkjunni í
Briissel, þar sem haldin hafði verið sorg-
arguðsþjÓDUsta, út af láti drottningarinn-
ar. En með því að konungur var í öðr-
um vagni, en Robino hugði, sakaði kon-
ung eigi, og einn maður hlaut að eins
litilfjörlegar skeinur. — Robino var þeg-
ar tekinn fastur. —
Balkanskaginn. Uppreisn víða í
Makedoniu, og all-mikilli grimmd beitt
þar á báðar hliðar; uppreisnarmenn hafa
eyðilagt ýms tyrknesk þorp, og Tyrkir
hafa á hinn bóginn brennt ýms þorp, er
kristnir menn búa í, svo að konur Og
börn flýja hópum saman úr landi.
Enginn vafi er á því, að Tyrkjum
veitir mjög auðvelt, að kúga uppreisn
þessa, ef eigi skerast aðrir í leikÍDn; en
á fjölmennum fundi, er haldinn var í
Belgrad 12. okt, skoruðu fundarmenn á
Serbastjórn, að veita Serbum í Make-
doníu fulltingi, og þegar Ignatíeff greifi
var staddur í Soffíu ný skeð, fórust hon-
um svo orð í ræðu, er hann beindi til
Bulgara og Makedoníumanna: „Eg er
nú svo gamall, sem á grönum má sjá,
en þér eruð ungir, og á frískum fæti, og
þori eg að fullyrða, að ef þér farið hyggi-
lega að ráði yðar, og haldið tryggð við
Rússa, þá munuð þér, með þeirra aðstoð,
fá réttlátum óskum yðar fullnægt, hvað
sem önnur stórveldi Evrópu segjau. Að
vísu er nú Ignatíeff greifi valdalaus mað-
ur á Rússlandi, sem stendur, en þó mjög
mikil8 metinn, svo að ýmsir gizka á, að
Rússum sé uppreisnin í Makedoníu eng-
an veginn ógeðfelld, enda brá Tyrkja-
soldáni svo við ræðu þessa, að hann
sendi þegar sendinefnd á fund Nicolaj
keisara, til að færa honum ýmsar vina-
gjafir.
Ráðherraskipti urðu ný skeð i Serbíu,
ráðaneytið Wuitsch sleppti völdum, en
hershöfðinginn Zinsar-Markowitsch veitir
hinu nýja ráðaneyti forstöðu.
Nýlega var Halju, sem sakaður er
um morð Stambulow’s, dæmdur til heng-
ingar. Hann þrætir þó fyrir verknað-
inn.