Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 07.04.1904, Blaðsíða 1
Verð árganqsins (minnst \
52 arkir) 3 kr. 50 aur.;
erlendis 4 kr. 50 aur., og
í Ameríku doll.: 1.50.
Borgist fyrir júnímán-
aðarlok.
ÞJÓÐVILJINN.
- |= ÁtJÁNDI ÁB9AN8HE. =|-. .
-!-^sl^EITST.IÓRI: SKÚLI THOEODDSEN. -
Uppsögn skrifleg, ógild
nema lcomin sé til útgef-
anda fyrir 30. dag júní-
mánaðar, og kaupandi
samhliða uppsögninni
borgi skuld sína fyrvr
blaðið.
M 14.
BeSSASTÖÐUM, 7. APRÍL.
19 0 4.
Útlönd.
Til viðbótar útlendu fréttunum í síð-
asta nr. „Þjóðv.u, skal þessara tíðinda
getið:
Danmörk. Talið er vist, að frv. stjórn-
arinnar um breytta dómaskipun, kvið-
dóma i sakamálum o. fl., muni eigi ná
fram að ganga á þingi, enda horfa sum-
ir i kostnaðinn, sem verður að minnsta
kosti yfir 2 milj. króna.
t 10. marz síðastl. andaðist í Kaup-
mannahöfn Jóhan Ottosen, fyrrum fólks-
þingismaður, rúmlega hálf-fimmtugur, og
munu sagnfræðisrit hans, um ýms atriði
í sögu Dana, lengi halda nafni hans á
lopti.
Bretland. 6. marz voru liðin 100 ár,
síðan enska biblíufélagið var stofnað, og
var þess minnzt með guðsþjónustugjörð
í St. Pauls-dómkirkjunni í Lundúnum. —
Síðan félagið var stofnað, hefir það alls
haft 14 milj. sterlingspunda milli handa,
og varið þeirri upphæð, til að breiða út
biblíuna meðal ýmsra þjóða, enda hefir
félagið alls látið af hendi 47,967,550 biblí-
ur og 74,034,376 nýja-testamenti, og að
auki 55,980,814 kafla úr ritningunni. —
Félagið hefir látið þýða biblíuna á 97
tungumál, og nýja-testamentið enn frem-
ur á 93 tungumál, og ýmsa kafla ritn-
ingarinnar enn fremur á 118 þjóðatung-
ur.
15. marz siðastl. varð sá atburður á
þingi Breta, að stjórnin varð i minni
hluta við atkvæðagreiðslu eina um fjár-
lögin. — Irski þingmaðurinn John Red-
mond hafði fundið að því, að stjórnin
hefði minnkað kennslu í írsku (keltnesku)
í skólum á írlandi, og lagði það þvi til,
að þingið lýsti vanþóknun sinni á þessu
atferli stjórnarinnar á þann hátt, að
minnka fjárveitinguna til menntamála á
írlandi um 100 pund, og var tillagan
samþykkt með 141 atkv. gegn 130.
Detta þóttu tíðindi mikii, og æptu
ýmsir þingmenn, að stjórnin skyldi þeg-
ar sleppa völdunum, en með þvi að litlu
siðar fór fram önnur atkvæðagreiðsla sam-
dægurs, ogönnur tillaga stjórnarinnar var
þá samþykkt með 171 atkv. gegn 146,
þá þóttist, stjórnin geta setið, þar sem
sýnt væri, að meiri hlutinn væri sér enn
fylgjandi, enda hafði stjórnin, áðurenat-
kvæðagreiðslan um tillögu Bedmond’s fór
fram, lýst því yfir, að hún eigi væriþví
mótfallin, að taka umkvörtun Bedmond’s
til greina.
En engu að síður þykir þó atkvæða-
greiðslan Ijós vottur þess, að stjórnin
standi á völtum fæti, og víta stjórnar-
blöðin mjög fylgismenn stjórnarinnar, að
gæta sín eigi betur við atkvæðagreiðslur,
en raun varð á að þessu sinni.
Einn af skörungunum í liði framsókn-
arflokksins, William Harcourt, hefir ný
skeð lýst því yfir, að hann muni eigi
gefa kost á sér til þingmennsku optar,
þar sem hann er nú tekinn mjög að eld-
ast. — Hann var lengi talinn ganga
Gladstone næstur að skörungsskap, og var
það ættgöfgi, er réð því, er Hosebery lá-
varður, en eigi Harcourt, tók forustuna,
er Gladstone sleppti.
Þing Breta hefir nýlega aukið mjög
fjárveitingar til herskipaflotans, til þess
að vera sem bezt búnir, ef þeir þurfi að
skerast i leikinn með Japönum.
Krakkland. 5. marz kvað ógildingar-
dómurinn i París þann úrskurð upp i
Dreyfus-máLinu, að herréttardómurinn
skyldi úr gildi numinn, og ætlar réttur-
inn sjálfur að annast nýjar rannsóknir i
málinu, áður en fullnaðardómur er upp
kveðinn, og ganga allir að því vísu, að
Dreyfus verði þá algjörlega sýknaður.
f 12. marz síðastl. andaðist Traríenx,
merkur stjórnmálamaður, einn af helztu
styrktarmönnum Dreyfusar. — Hann var
og helztur hvatamaður þess, að ýmsir
vísinda- og stjórnmála-menn í Evrópu
sendu menn á fund Nicolaj, Eússa keis-
ara, til að tala máli Finna; en nefndinni
var synjað um áheyrn, svo sem mörgum
mun enn minnisstætt.
Combes-ráðaneytið heldur enn fram
baráttu sinni gegn skólum kaþólska
klerkalýðsins, og þykir ýmsum þingmönn-
um nóg um, svo að 15. marz samþykkti
neðri málstofan, gegn tillögu stjórnarinn-
ar, með 282 atkv. gegn 273, að bannið
gegn skólum klerka á Frakklandi skyldi
eigi koma til framkvæmda, fyr en smátt
'og smátt á næstu 10 árum, og var enn
óráðið, er siðast fréttist, hvort stjórnin
færi frá völdum. sakir atkvæðagreiðslu
þessarar. —
Spánn. Þar hefir verið róstusamt í
ýmsum borgum, og er orsökin sú, að
matvæli hafa hækkað í verði, svo að
hungursneyð vofir yfir i sumum héruð-
um. — í borginni Yalladolíd var barist
á götunum 7.—8. marz, og urðu margir
sárir, bæði af borgarbúum og lögreglu-
mönnum, og einn maður beið bana; en
herliðið kom ioks friði á.
Mælt er, að þingið muui nú lækka
aðflutningsgjald á korni, til að friða hugi
manna. —
Aústurríki—ITngverjaland. Þar er
enn, sem fyr, grunnt á þvi góða milli
þjóðflokkanna, Tjekka og Þjóðverja, og
hefir ný skeð lent í óeyrðum í Prag, og víðar.
I Vín gjörðist það og sögulegt einn dag-
inn, að þýzkir og slafneskir stúdentar
börðust með prikum í grennd við háskól-
ann, svo að háskólanum var lokað um
hríð.
í Buda-Pest, höfuðborginni á Ung-
verjalandi, gerðu 5 þús. skraddarar verk-
fall, og 15.—16. marz gerðu þeir tölu-
verðar óspektir á götunum, brutu rúður
í húsum o. s. frv., og voru ýmsir teknir
fastir. —
Bússland. Svo er að sjá, sem stjórn
Bússa þykist eigi alls kostar örugg heima
fyrir, ef það er rétt, sem þýzk blöð
herma, að Plehve ráðherra hafi í huga, að
senda 60 rithöfunda til Siberiu, með þvi
að vera þeirra á Bússlandi geti orðið
rikinu hættuleg.
Hallonblad, borgarstjóri í Finnlandi,
er tekinn var höndum fyrir skömmu, og
átti að sendast til Síberíu, slapp nýskeð
frá gæzlumönnum sínum, og er kominn
til Svíþjóðar. — Bóbrikoff hefir nú bann-
að að flytja ýms blöð til Finnlands, er
hann telur hafa spillandi áhrif, og flytja
ýmsar greinar, sem séu móðgandi fyrir
Nicolaj keisara, og stjórn hans. — Af
dönskum blöðum, er bönnuð eru, má
nefna „Sncialdemokratenu og „Politiken“.
Rússneskur spákarl, og kynja-læknir,
„gamli J'on frá Cronstadtu, sem er al-
þekktur á Bússlandi, og vitjað var, með-
al annars, til Alexanders III., er hann
lá banaleguna, hefir ný skeð spáð því,
að ófriðurinn við Japana muni standa
yfir i 25 ár. Herdeild ein lagði nýskeð
af stað frá Cronstadt, og var „gamli Jónu
þá sóttur, til að árna þeim fararheilla,
og mælti hann þá svo felldum orðum,
um leið og hann veitti þeim blessun
sína:
„Ofriður þessi mun standa yfir í 25
ár, bræður mínir, og kosta strauma af
blóði. Kínverjar munu hervæðast hóp-
um saman, en Bússar þó reynast sig-
ursælir, enda mun þjóð vor öll grípa
til vopna, jafn vel sjötugir gráskeggj-
amir, til að berjast gegn gula kyn-
þættinum, og vegurinn frá Pétursborg
til Kyrrahafsins mun allur líkum
stráðuru.
Svona spáir „Jón gamliu, en vonandi,
að spádómar hans reynist lítils virði. —
Bandaríkin. Auðmaðurinn Andrew
Carnegie hefir nýlega gefið V/% milj. doll-
ara, til að stofna skóla fyrir verkfræðinga
i New-York.
f 15. marz síðastl. andaðist einn af
merkustu stjórnmálamönnum Banda-
manna, Hanna þingmaður, er ýmsir vildu,
að byði sig fram gegn Roosevelt við
næstu forseta-kosningar. <
Byrjað er ný skeð að grafa járnl%ut-
argöng undir Hudson-fljótið, og er gert
ráð fyrir, að það muni að minnsta kosti
kosta um 20 milj. dollara.