Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 17.08.1904, Síða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 17.08.1904, Síða 3
XVIIi., 33. Þjóbviljinn 131 á bazarnum til skiptis þóknunarlaust. Alls vinna við bazarinn 40 kvennmenn. Bazarinn byrjaði í einu litlu herbergi, en nú er orðið all-þröngt um hann í 3 stofum. Þess er getið til marks um góða reglu og eptirlit á bazarnum, að þar hafi ekki glatazt eyrisvirði frá því er hann byrjaði. — Talsvert meira mundi hafa selst af ísl. vaðmáli, ef eigi fylgdi því sá ókostur, að það er of mjótt. Félagið tekur lítils háttar sölulaun, er fara til að gjalda húsaleigu og annan nauðsynlegan smákostnað. Afgangurinn rennur i sjóð Thorvaldsensfélagsins. (Eptir „ísafold“.j Mannalát. 18. júli síðastl. andaðist að Kleifum í Seyðisfirði í Isafjarðarsýslu konan Þor- gerður Einarsdóttir, ekki tvítug, dóttir merkishjónanna Einars Jónssonar og Jön- inu Jónsdóttur ú Kleifum. Arið 1302 giptist hún Guðmundi Stefáni Guðmunds- syni, fóstursyni Þórarins bónda Jónsson- ar á Folafæti, en bróðursyni Kristjáns bónda Þorlákssonar á Múla á Langadals- strönd, og dvöldu þau hjónin í hús- mennsku á Folafæti, og lifir Guðmund- ur konu sína, ásamt tveim kornungum börnum þeirra hjóna. Þorgerður sáluga var efnilegur kvenn- maður, vel gefin til sálar og líkama, og dó hún úr afleiðingum mislingaveikinnar, eptir ný-afstaðinn barnsburð. — Fráfall hennar er mjög sorglegt, ekki að eins fyrir eiginmann hennar, er naut sam- vista hennar svo skamma stund, heldur einnig fyrir foreldra hennar, er á siðustu árum hafa misst tvö uppkomin böm sín, Önnu (f 1901) og Guðjón (f 1903), auk fleira andstreymis. — 19. s. m. andaðist að Hlíðarhúsum í Snæfjallahreppi í sömu sýslu Arnör Kristjánsson, er var bóndi að Skarði í Snæfjallahreppi yfir 30 ár, og var hann á sjötugsaldri. — Eptir það, er hann brá búi að Skarði, dvaldist hann 6—7 ár í Strandasýslu, en fluttist svo aptur í Snæ- fjallahreppinn fyrir rúmum tveim árum. — Kona hans, Guðrún Þórðardóttir, er látin fyrir mörgum árum, og af börnum þeirra hjóna eru nú að eins tvær dætur á lífi: Þórdís, gipt Bjarna Jónssyni, for- manni við Berjadalsá, og Kristjana. — Nýlega andaðist og að Hrafnabjörgum í Ögurhroppi konan Mar'ia Jóhannsdóttir, um sextugt. — Hún var kona Þórarins Bolbeinssonar, fyrrum bónda á Hrafna- björgum, er lifir hana, og áttu þau hjón ekki barna. — Bessastöðum 17. ágúst 1904. Tiðarfar. Sólskin o<x bezti þurkur daglega. Rektorsembættinu hefir stjórnin til bráða- byrgða ráðstafað þannig: að yfirkennari Stgr. Thorsteinsson er settur rector, en kand. theol Jóhannes Sigfússon kennari við Flensborgar- skólann, settur yfirkennari við lærða skólann. Það er því líkast, sem „Þjóðólfur“ hafi sagn- aranda, er fræði hann um fyrirætlanir stjórnar- innar, því þess ama gat hann til fyrir skömmu, að rektorsembættið yrði ekki veitt að svo stöddu holdur að eins sett í það. Yikið frá. Stjórnin hefir vikið Bjarna Jóns- syni kennara frá aukakennslu þeirri er hann hef- ir haft við lærða skólann. „Þjóðv.“ athugar síðar þessar síðustu ráð- stafanir nýju stjórnarinnar viðvíkjandi lærða skólanum. Orður og titlar. L. E. Sveinbjörnsen háyfir- dómari, er gjörður kommandör af dannebr. II., en riddarar af dannebr. þeir Halldór Daníelsson bæjarfógeti og kaupm. Geir Zoega (G. Z. var áður dannebrogsmaðurl, Sighvatur Bjarnason banka- stjóri gerður að justizráði. Skipal'regnir. „Tryggvi konungur“ fór frá Rvík til útlanda 10. þ. m. Með honum sigldi frú Stefanía Guðmundsdóttir leikkona. „Vesta“ kom frá útlöndum til Bvíkur 10. þ. m., norðan og vestan um land, með henni fjöldi fólks, þar á meðal: Benidikt próf. Kristjánsson á Grenjaðarstað, með frú sinni, verzlunarstjóri Stefán Guðjohnsen á Hvisavik með frú, amtmanns- frú Alfheiður Briem, alflutt til Rvíkur með börn þeirra hjóna, Þór. B. Þorláksson málari, kaupm. Jes Zimsen, stud. med. Valdemar Steffenssen, úr lækningaför sinni til ísafjarðar, dr. Finnur Jóns- son með frú og syni, frú Jarðþr. Jónsdóttir og frk. Þóra Magnússon. 1 1 1 1 1 1 .. 'i i'■ i i i i i i i i i i' i ii i i i i i i t i i m i i i i i ■ •initiiii:ii: i ■ i i i iiiim Til þeirra, sem neyta hins ekta Kina-lifs-eiexirs. Með því að eg hefi komizt að þvi, að það eru margir, sem efast ttm, að Kína- lífselexír sé eins góður og hann var áður, er hér með leidd athygli að því, að hann er alveg eins, og fæst alls staðar á íslandi hjá kaupmönnum. 136 Lionel lávarði, Kynsam og síra Ching söguna, og mun þeim óefað þykja mikið i hana varið“. Frú Westcote leit til hans leiptrandi augum, og beit sig í neðri vörina. Drago vissi of mikið um íortíð hennar, svo að eigi var leikur gjörandi að því, að bjóða honum byrginn, og varð iiún þvi að láta undan, þar sem hún þóttist þess full vís, að hann myndi ella gjöra alvöru úr hót- an sinni. „Setjist þér niður hr. Drageu, mælti hún, og benti honum á auða stólinn. „Setjist, og segið mér sögu yðaru. „Sagan er mjög skáldleg“, mælti Drage, og settist aptur á stólinn. „Jeg er sannfærður um, að yður þykir mikið til hennar koma. Hún er mm fyrverandi leikkonu — já um leikkonu“. „Jeg heyri það hr. Drage. Haldið sögunni áframu. „Fyrir rúmum tuttugu árum var alkunn leikkona í Lundúnum, er nefndi sig Clara Vaux. — Þér munið má ske eptir henni frú Westcote?“ „Jeg man ekkert eptir henni, enda var eg þá ekki i Lundúnum“. „Þér leikið ágætlega“, mælti Drage „og eruð engu lakari leikkona, en Clara Vauxu. „En hverfum þá aptur að sögunniu, mælti hann enn frernur. „Þessi fræga leikkona lék einkum sorgarleiki, og sérstaklega tókst henni ágætlega, er hún lék frú Mac- beth. En hún var ekki ánægð með lifið, enda sögðu menn, að hún hefði skilið við inann sinn, sakir annars manns, 133 „Það skal jég láta ósagt. — En hvernig var hún til fara?“ „Jeg veit það ekki. — Jeg sá að eins lafið af grá- um silkikjól“. „Það er frú Westcoteu, kallaði ungfrú Lametry fljótlega. En hvað þú ert utan við þið William. Frú Westcote er einatt í gráum silkikjól á kvöldinu. „Þá hefir það að líkindum verið hún. En hvaða erindi getur hún átt þangað á nóttu?u „Jeg skal inna hana eptir þvíu. „Neiu, mælti Drage, um leið og hann gekk inn í herbergið „gjörið það ekki ungfrú góð“. „Hvað?“ kallaði William fokvondur. Hafið þér staðið á hleri? „Það leiðir af starfi mínu, sem sjálfsagður hlutur“, svaraði Drage rólega. „Jeg heyrði, hvað þér sögðuð um frú Westcote, og með yðar leyfi ætla jeg að spyrja hana úr spjörunum. Er hún ekki ráðskona hérna?" „Jú. — Frú Westcote er hár kvennmaður, fölleit og dökkhærð“. „Frú Westcote11, tók Drage upp aptur, „og jeg, sem hugði, að hún væri dáinu. 13. kapítuli. Saga fru Westcote's. Það var kynlegt, að kvennmaður sá, er kallaði sig frú Westcote, skyldi hafa verið svo heppin, að vera eigi á vegi hr. Drage’s, þar sem hann hafði þó séð allt hitt vinnufólkið á Landy Court. Það var að eins af tilviljun, að hann hafði séð

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.