Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.12.1904, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.12.1904, Blaðsíða 3
XVIII, 60. Þjóbviljinn 199 húsum Thnmsen8 konsúls, og stolið þar 110 pd. smjöi'H, hangiketskrofi, um 60 pd. af'kaffi, o. fl., sem öllum er að likindum ókunnugt um, nema þjófunum sjálfum. Glaða tunglskin var um nóttina, er þjófnað- •unnn var iraminn, og gegnir pvi iuröu, að eng- inn skuli hafa orðið neitt var við þjófana, er þeir voru á ferðinni, með jafn mikinn flutning. Thomsen konsúll hefir heitið 100 kr., ef ein- hver geti gefið upplýsingar um það, hverjir vald- ir séu að þjófnaðinum; en eigi hefir þó enn neitt orðið upplýst, að þvi er frétzt hefir. ——— 1 Póstgufuskipið „Laura“ lagði af stað frá Reykjavik á áætlunardegi, 9. þ. m., og tók kaup- maður Thor Jensen sér far með þvi skipi til útlanda. Úr styrktarsjóði W. Fischers hafa þessar ekkj- ur fengið styrk í þ. m., 50 kr. hver: Ingigerður Þorvaldsdóttir, Guðrún Arnadóttir, Kristlaug Guð- mundsdóttir, Jóhanna Gestsdóttir og Málfríður Jó- hannsdóttir, allar úr Reykjavik, Steinunn'Jónsdóttir i Hafnarfirði, Ingibj'órg Guðmundsdóttir í Litlabæ á Álptanesi, Júlíana Jónsdóttir í Keflavík, Gróa Jónsdóttir í Presthúsum i Garði, og Þorbjörg Ol- afsdóttir í Stöðulkoti á Miðnesi. Til þess að nema sjómannafræði eru úr sama sjóði veittar 150 kr., er skiptast jafnt milli pilt- anna: Einars Stefánssonar i Knararnesi, Guðm, Einarseonar i R.vik og Guðm. Þorvarðssonar s. st. Loks eru og drengnum Þórarni Brynjolfssyni í Keflavik veittar 50 kr. úr sama sjóði. ý 11. þ. m. andaðist í Reykjavík ekkjan Ingi- björg Jóhannsdóttir Hansen, fædd 1817, móðir M. Hansen’s, barnaskólastjóra í Reykjavik, og verð- ur hennar siðar minnzt nánar i blaði voru. Póstgufuskipið „Yesta“ kom frá útlöndum til Reykjavikur aðfaranóttina 13. þ. m., og hafði komið við á Austfjörðum. — Meðal farþegja, er komu með skipinu fráútlöndum, voru: frú Bríet Bjarnhéðinsdóttir, og kaupmennirnir Björn Guð- mundsson og Ben. Stefánssorfy en frá Austfjörðum alþm. Pitur Jónsson á Gautlöndum. f 14. þ. m. andaðist i Reykjavik frú Anna Uafliðadóttir, kona Einars stúdents Ghmnarssonar, og eiga þau hjónin eitt barn á lifi. Thore-félagsskipið „Ingi kongur“ kom til Reykjavíkur 13. þ. m., norðan og austan um land, og lagði daginn eptir af stað tif útlanda. t 14. þ. m. lézt í Reykjavik verzlunarmað- ur Svend J. Hall, sonur bókhaldara Jónasar Hall á Þingeyri. — Hann dó úr slagi. í verzlun Einars Þorgílssonar, Óseyri, fást ýmsar vörur til J ólaima svo sem: Itjðt, hangið og saltað. íslenzkt smjör, tólg. Hveiti, melís, strau- sykur. Sitrónolía Cho colade Rúsínur Púðurs ykur. Tvíbökur. Kringlur. J ólalierti. Spil- Vindlar. Enn fremur fæst í sömu verzlun: 11 rísgrjón. Bankabygg. Smjörlilii. Hænsnabygg. IV etagarn. Ná ttlampar, og margt fl. Ofan greindar vörur eru seldar m j ö g ódýrt fyrir peninga. KIRKJUSTRÆTI 10, REYKJAVÍK hefir ávallt nægar birgðir Ofna, Eldavéla, Eldunarpotta, Ofnrör, Hreinsunarramma, GrUFURAMMA o fi. frá elztu og beztu verksmiðju í Danmörku (Anker Hegaard). Allar vörurnar eru seldar með WGT innkaupsverði að viðbættum flutningskostnaði. laupið hjá undirrituðum Hfilbúin föt — Jegnkdpur jjdlstaU, með ÖUu tilheyrandi Jöngustafi — jegnhlífar jjdlsklúta, ur silki °e uil, vasaklúta og Jataefni, og látiö að eins sauma hjá H. Andersen & Sön, Aðalstræti 16, R.vík. 200 „En maður þessi átti, að því er mér er frekast kunnugt, að sjá um fullnustu refsidóma, sem á þeim tím- um voru ærið harðir11, mælti Dacre enn fremur. „Og hvað svo?“ „Líttu snöggvast á efri látúns-spöngina, og gáðu að, hvort þú sérð þar nokkurt letur“, mælti Dacre. „Jú, þarna eru einhver hálf-máð strik, sem sýnast líkust B-iu. „Heldurðu, að það sé B?“ „Án efau. „Það hygg eg og; það er vafalaust Bu, mælti Dacre. „En hefði trektin verið eign embættismanns þess, er þú nefndir, hefði stafurinn átt að vera Ru. „Alveg réttu, mælti Dacre. „Það er kynlegt, að þó að hann ætti trektina, þá skuli þó fangamark annars vera á henni. Hvernig getur staðið á því?“ Það get eg eigi gizkað áu, svaraði eg. „Getur þú það?u „Má vera“, svaraði Dacre. „En sástu ekki neitt annað letrað á látúnið?u „Jú eitthvað, er likist einhvers konar aðalsmerkiu. „Já, eins konar kórónu, er sýnir, að þessi B, sem við ekki vitum, hver er, hefir haft rétt til þess, að bera þess konár aðalsmerkiu, mælti Dacre. „Heldurðu þá, að það hafi verið aðalsmaður, er átti þessa lélegu leðurtrekt?“ Dacre brosti bynlega, og mælti: „Eða þá einhver af aðalsættum“. Að svo mæltu þagði Dacre stutta stund, en spurði evo allt í einu: „Hefirðu trú á draumum?“ 197 Leðurtrektin. Eptir Arthur C. Doyle. (Lauslega þýtt.j Vinur minn, Líonel Dacre, átti heima i Wagram- stræti í París, og var húsið, sem hann bjó í, fremur lítið, til að sjá, þar sem að eins voru fimm gluggar á fram- hliðinni, að því er mig minnir. Á hinn bóginn var húsið all-breitt, og í bakhlið- inni var heljar-mikill salur, er var jafn langur húsinu. í sal þessum geymdi Dacre bækur sínar, er allar lutu að ýmis konar dulspeki, og þar hafði hann einnig feyknin öll af ýmis konar kynlegum, og fáséðum, forn- menjum. Hann var vel fjáður, og þar sem hann hafði hvorki sparað tima, né peninga, til að auka safn sitt, var það í almæli, að safn hans væri mjög mikils virði, og gripirn- ir margir mjög fágætir. Jeg haíði kynnzt Dacre á Englandi vorið 1882, og urðum við þá góðkunningjar, svo að eg lofaði honum, að heimsækja hann, ef eg kæmi til Parísar. Eg bjó i búsi einu i grennd við Fontainebleau, er eg batt enda á þetta loforð mitt, og með þvi að illa stóð

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.