Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 22.12.1904, Side 2
202
Þjóbvil jiicw.
xvin., 51.
leiðar sinnar; en er dyravörður íór að at-
huga körfuna betur, virtist honum rjúka
upp úr henni, og kastaði henni þvi frá
sér, en þá sprakk vítisvél, sem i körfunni
var, með ógurlegum hvelli, og urðu 21
menn sárir, er þar voru í grennd, og
voru þrír þeirra þegar dánir úr sárum,
er síðast fréttist.
Heitið hefir verið 5 þús. peseta verð-
launum, ef einhver geti bent á þorpar-
ann, er glæp þenna hefir unnið, en eigi
var þó enn neitt orðið uppvíst um það,
er síðast fréttist.
Stjórnin hefir nú lagt fyrir þingið
frumvarp, til að hnekkja morðráðum an-
arkista, og er það mjög svipað frv., er Can-
ovas lagði fyrir þingið 1896.
Carl, konungur í Portugal, lagði 12.
nóv. af stað, ásamt drottningu sinni, í
kynnisferð til Bretlands, og komu þau
hjón þangað 15 nóv., og fengu glsesileg-
ustu viðtökur hjá Játvarði kongi.
Ítalía. Þeir atburðir gerðust ný skeð
i þorpinu Polignano við Adría-hafið, er
vakið hafa mikið umtal. Læknir þar í
þorpinu, dr. PeUegríní að nafni, hafði fyr-
ir rúmum tveim árum kynnzt ungri, lag-
legri stúlku, AppoUoníu að nafni, dóttur
efnaðs vagnstjóra, er Gallíusí hét, og
heitið henni eiginorði, en brugðið heit
sitt, eptir að hafa tælt stúlkuna. — Þessu
reiddust vandamenn stúlkunnar, sem
von var, og komu því til leiðar, að höfð-
að var mál gegn dr. Pellegríni, og var
hann í héraði dæmdur í eins árs fang-
elsi, fyrir að hafa tælt ófulltíða stúlku,
og sviptur læknisembætti sínu; en yfir-
réttur ónýtti dóminn, og sýknaði dr.
Pellegríni, og óx þá hatur vagnstjórans,
og annara vandamanna stúlkunnar, um
allan helming, svo að dr. Pellegrini þorði
hvergi óvopnaður að vera, og bar því
jafnan hlaðna skammbyssu, hvert sem
hann gekk. — En einn daginn, er dr.
Pellegrini, og bróðir hans, voru á gangi
á einni af götum bæjarins, mættu þeir
Gallíusi vagnstjóra, konu hans, og bróð-
ur, ásamt Appoloniu, og sló þegar íbar-
daga. — Gallíusí, og hans fólk, hafði
barefli, og sveðjur, en bræðumir skamm-
byssur, og urðu þær lyktir á, að Gallíusí,
kona hans, og bróðir, biðu bana, en Appol-
lonía varð hættulega sár. — Bræðamir
hlutu og báðir mikil sár, og andaðist dr.
Pellegríni nóttina eptir.
Balkanskaginn. Tyrkjasoldán hefirný
skeð leitað láns hjá bönkum á Bretlandi.
— Það era 100 milj. franka, sem soldán
þykist þarfnast, en lánstraust Tyrkja lítið,
sem fyr, svo að mjög hæpið þótti, að lán
þetta fengist.
Griska gufuskipið „Elpis“ fórst ný
skeð í Svartahafi, og drakknuðu þar um
60 menn.
Bandaríkin. 19. nóv. var i Washing-
ton afhjúpað líkneskí Friðriks mikla
Prússa-konungs, er Vilhjálmur keisari
hafði gefið Bandamönnum.
Á gripatorginu í Jersey-City vildi ný
skeð það slys til, aðkviknaðií slátrunar-
húsum, þar sem mesti urmull svína var
geymdur. Brunnu þar 3 þús. svín, og
4 þús. svínsskrokkar, en 40 þúsundir
svína gátu brotizt út, og hlupu öskrandi
um götur borgarinnar, og þóttu ófrýn
læti.
Um miðjan nóv. ruddust ræningjar
inn hjá þýzkum presti, Baumann að nafni,
í þorpinu Beranza, myrtu klerkinn, konu
hans, bam þeirra, og vinnukonu, og
rændu öllu, sem fémætt var í húsinu.
14. nóv. gekk afskaplegt óveður yfir
austurhluta Bandaríkjanna, með blind-
hríðar-byl. — Fjöldi skipa skemmdist,
járnbrautarlestir komust eigi áfram, og
frétta- og tal-þræðir eyðilögðust, og er
fullyrt, að eigi hafi orðið jafn miklar
skemmdir af óveðri i Bandaríkjunum, síð-
an árið 1888. — Manntjón varð nokkuð,
en þó eigi stórkostlegt.
18. nóv. sprangu gas-ílát í gasverk-
smiðju í Chicago, og biðu 40mennbana.
Um sýningarsvæðið í St. Louisgeng-
ur ofur-lítii jámbrautarlest, er flytur sýn-
ingargestina fram og aptur um sýning-
arsvæðið. — A lest þessa réðu ræningjar
16. nóv. síðastl., og rændu 3 sýningar-
gesti öllu fémætu, er þeir höfðu meðferðis.
Brazilía. 13. nóv. síðastl. urðu all-
mikiar óspektir í höfuðborginni Rio de
Janeiro, og barist þar á götunum. —
Sprattu óeyrðir þessar af óánægju yfir
framvarpi um bólusetningar-skyldu, er
þingið hafði til meðferðar, og notuðu
ýmsir liðsforingjar, einkum kennarar við
hermannaskólann, og nokkrir þingmenn,
sér óánægju þessa, til þess að reyna að
kveikja almenna uppreisn. — I óspektum
þessum biðu nokkrir menn bana, og marg-
ir urðu sárir, þar á meðal Travassos, for-
stöðumaður herskólans, sem var einn af
aðal-forsprökkum uppreisnarmanna. —
Sodre þingmaður, er átt hafði þátt í ó-
spektunum, réð sór og bana. —
Afríka. Gnótt gulls hefir ný skeð
fundizt í Victoría-héraðinu í Mashona-
landi.
í námum í Transvaal lenti ný skeð í
bardaga milli Kinverja og innfæddra
verkamanna, og urðu margir sárir í þeirri
viðureign. —
Kína. Þar vex fylgi „hnefamannaa
óðum, enda fara kínverskir munkar fram
og aptur um landið, og æsa landslýðinn
gegn hvítum mönnum, svo að „hnefa-
menn- era nú taldir miklu liðfleiri, en
1899, og margir æðstu hershöfðingjar á
þeirra bandi. — Nýlega unnu „hnefa-
menn- sigur á hersveitum stjómarinnar
við Líutshufu í Kvangsi-héraði, og kvað
hafa náð 5 stórborgum á sitt vald, og
hafa því kaupmenn, og efnamenn, flúið
þaðan hópum saman.
Sektaður botnTCrpin)fur.
„Beskytteren11, landvarnarskip Dana við Fær-
eyjar, sem dvalið hefir bér við land um hrið, tók
ný skeð botnverping, er var að landhelgisveiðum,
og fór með hann til Vestmanneyja.
Það kostaði botnverpinginn 2700 kr. sekt.
Óveitt prestaköll
eru: Sauðanes f Norður-þingeyjai’prófastsdæmi,
metið 1506 kr. 74 a. — A bruuðinu hvfla eptir-
stöðvar af landssjóðslini til steinhúsbvggingar,
er tekið var 17.. marz 1883, og upprunalega var
4 þús., en átti að' afborgast og ávaxtast með 6°/0
á 28 árum.
Hrwni í Arnesprófastsdæmi (Hruna- og Tungu-
fellssóknir^, metið 1294 kr. 27 a. — Prestsekkja
nýtur náðarárs, og. sfðan 94 kr. 27 a. í eptir-
laun. — Á brauðinu hviia eptiarstöðvar af 2800
kr. lámi, er tekið> var til húsbyggingar 1897, og
endurborgast á 28> áirum.
Umsóknarfrestur um bæði þessi brauð er til
næstk. janúarloka,. og veitast frá næstk. far-
dögum.
Taugaveiki
hefir gert vart við sig á Eyrarbakka, í húsi
Pétnrs GuðmundSsmar barnakennara, og hefir þvi
barnaskólanumi á Eyrarbakka verið lokað fyrst
um sinn.
Prentara-samtökin.
Ný p rentsmiðju-stofnun.
Allur þorri prentara í Reykjavík hefir í
vetur buadizt fólagsskap, til að koma á
fót uýrri pireutsmiðju í Reykjavík, og er
tilætlunin,. að prentsmiðja þessi taki að
sér alla opinbera prentun (Stj.tíðindi,
landshagsskýrslur, alþingistíðindi o. fl.),
auk annars. — Félag þetta hefir þegar
koypt sér lóð í Reykjavík, og or að láta
reisa þar tvílypt stórhýsi, 25-|—15 álnir
að stærð.
Félag þetta kaupir, eða hefir þegar
keypt, prentsmiðju hr. Þorvarðar Þor-
varðssonar, sem prentað hefir stjórnar-
málgagnið „Reykjavík-, og ætlar að nota
hana, jafn framt öflugri nýrri hraðpressu,
sem pöntuð var frá útlöndum.
Fullyrt er, að nær allir prentarar, er
nú vinna í prentsmiðju „Isafoldar-, og í
gömlu „Félagsprentsmiðjunni-, séu við
fyrirtæki þetta riðnir, svo að „ísafoldar“-
prentsmiðjan haldi að eins eptir einum
prentara nú á nýárinu, og „Fólagsprent-
smiðjan- sömuleiðis einum, eða engum,
enda kvað það hafa verið tilætlunin, sem
alls ekki hefir farið mjög dult, að reyna
helzt að knýja báðar þessar prentsmiðjur
til þess, að verða að hætta algjörlega, að
minnsta kosti í svip, svo að nýja prent-
félagið geti náð í störf þeirra.
í þessu skyni kvað prentarafélagið
einnig hafa gert öflugar tilraunir, til þess
að hindra, að erlendir prentarar fáist til
Reykjavíkur. ’ rt svo frá, að verk-
fall só í Reykjavík(!), sem virðist þónokk-
uð liðugt krítað.
Mælt er, að hlutafólag þetta þurfi alls
um 60 þús. króna, til þess að koma fyrir-
tæki þessu á fót, og enda þótt hlutafóð
muni enn naumast fara mikið fram úr tí-
unda hluta þeirrar upphæðar, sór þó ekki
á, að peningana skorti, enda er það opin-
ber leyndardómur, að það eru ýmsir stœk-
ustu Jtokksrnenn stjórnarinnar, er að baki
standa, og hafa ýtt undir fólagsskap þenna,
og komið honum af stað, í þeim miður
góðgjarnlega tilgangi, að hafa atvinnu af
politiskum andstæðingum, sérstaklega
„ísafold- og „Fólagsprentsmiðjunniu, því
að það er vitanlega eitt af fyrstu og
æðstu boðorðunum í fræðum þeirra, að
hugsa eigi að eins fyrir þvi, að allir
„stjórnarbitar- lendi í vösum sjálfra