Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 13.01.1905, Page 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 13.01.1905, Page 3
XIX., 2. ÞjóWiljinn. 7 því til leiðar, að „Landmandsbanken11 í Kaup- mannahöfn tekur þá framvegis fullu verði. Sömuleiðis auglýsir stjórn Landsbankans, að bankinn greiði frá byrjun þ. á. 33/4°/0 ársvexti af sparisjóðsfé, og eru það betri kostir, en „tslands" banki“ befir boðið enn, sem komið er. Hoettur prestskap. Síra Magnús Helgason á Torfastöðum, sem í vetur er kennari við Flensborgarskólann í Hafu- arfirði, í stað Jóhannesar Sigfússonar, befir nú sagt af sér prestskap, og verður því óefað kenn- ari við Flensborgarskólann framvegis. Fríkirkjusöfnuðurinn i Reykjavík hefir aukizt stórkostlega, síðan sira Ólafur Óla/sson varð prestur hans, enda er bann sköru- legur kennimaður, og mikils metinn. — Setn dæmi þess, bve fríkirkjumönnum fjölgar, getur „Fjallk.“ þess, að 23. des. síðastl. bafi 69 fjölskyldur geng- ið í söfnuðinn, 27. des. 21 fjölskvlda, og 31. des. -B7 fjölskyldur, er allar bafa sagt sig úr þjóð- kirkjunni. í ráði er nú einnig, að kirkja fríkirkjusafn- aðarins verði stækkuð að mun á binu ný-byrj- aða ári. Setudómari skipaður. Cand. jur. Guðm. Eggerz hefir verið skipaður setudómari í máli sira Heiga Arnasonar i Ólafs- vík gegn Stykkishólms-„dánumanninum“. Ljósið slokknað. „Verði ljós!“, kirkjublaðið, sem þeir síra Jón Helgason og cand. theol. Haraldur Níelsson bafa gefið út, hætti að koma út nú um áramótin. Aumt er það, að íslenzka þjóðkirkjan skuli þess eigi megnug, að geta haldið lífinu í einu litlu blaði, er ræðir málefni þjóðkirkju-kristin- dómsins. ]\orrænn skólaíundur. Kennarar, og kennslukonur, á Norður- löndum halda fund í Kaupmannahöfn 8.—11. ágúst næstk., til þess aðræðaum ýms skóla- og kennslu-málefni. Fundur þessi verður níundi norræni skólafundurinn, sem haldinn er, og var síðasti fundurinn haldinn i Christjaniu árið 1900. „Bc'vncli er biistólpi44 o. s. frv. Með þessari gömlu, og góðu, fyrirsögn hefir _Þjóðv.“ borizt grein um búnaðar- málefni, eptir hr. Bjarna Jónsson kenn- ara; en grein þessi er lengri, en svo, að blað vort geti tekið hana, enda ætti hún fremur heima i „Freyu, eða í bún- aðarritinu. Aðal-efni greinar sinnar innibindur höfundurinn að lokum i þessum heilræð- um: „Það þarf að auka garðrækt og gras- rækt. Það þarf að rata meðal-hóf í heyá- setningu. Það þarf að gæta þess, að útgjöldin fari ekki fram úr tekjunum. Það þarf að lifa sem mest á afurð- um búanna. Heimilisiðnaðurinn má ekki falla niður með öilu. Það er farsælast, að hafa sem iengst sömu vinnuhjúin. Það þarf að fara vel með jörðina, til þess að geta farið vel með skepnurnar. Það þarf að gjöra dvalarhreppinn að framfærslubreppi. Sveitarfélagið verður að fóstra þá mannúðlega, sem þurfandi eru. Efnameiri bændur verða að efla sinn hag meðþvi, að styrkja hina efnaminni“. Höfundurinn telur víst, að landbún- aðurinn geti orðið „sannarlegur vitaz- gjafi“, ef alls þessa sé gætt eptir megni. Heilræðin eru og góð, enda flest, eða öll, margsinnis áður prédikuð. — En meinið er, að það er hægra að kenna heilræðin, en halda. „Jeg sé ráðið, takið þið þrælinn, og riðið honumu, sagði maðurinn forðum, er tilrætt varð um liklegustu ráðin, til þess að ná styggum hesti; og svipað er um það, að ekki nægir, að segja mönnum, að „auka grasræktina og garðræktina“, sem allir vita, að þörf er á, heldur er vandinn einmitt sá, að finna líklegustu ráðin til þess. Að auka sem mest framleiðsluna, með sem minnstum kostnaði, til þess að geta mætt óhjákvæmilegum, vaxandi þörfum og kröfum, það er galdurinn. Og ekki verður því neitað, að all- miklu fé, er nú árlega varið úr lands- sjóði, til þess að styðja og efla landbún- aðinn á ýmsar lundir, og ekki sízt tilað hvetja menn til aukningar á grasrækt- inni, enda góðar horfur á þvi, að ýms störf landbúnaðarfélagsins beri viða góða ávexti, svo að mestu skiptir, að halda nú vel í horfinu, og þá fjölgar óðum sæti- legu jörðunum, og þeim landbændunum, sem þolanlega bjargast. S t alia. Járnsmiður Kristján heitinn Arngrimsson á Isa- firði, sem var all-vel hagorður, kom einu sinni á bæ, og hitti sro á, að fólkið var allt í háa-rifr- ildi, og varð honum þá þessi staka af munni: 212 Mannsandlitiö á veggnum. Maður er nefndur Benidikt Oddsson, er lengi bjó í Gjarðey á Hvammsfirði. — Hann var áður í húsmennsku i íRúffeyjum á Breiðafirði, ásamt konu sinni, Ingibjörgu Þorlcelsdbttur, og byggðu þau sér þar bæ upp úr gömlum rústum. En er grafið var fyrir undirstöðum, kom þar upp hauskúpa, og varð umtal nokkurt um það, hvort hún væri af rnanni, eður sel. Benidikt lét síðan hauskúpu þessa í bæjarvegginn, er hann hlóð hann, og vissi kona hans eigi, hvar hann hafði látið hana. Skömmu síðar, er Benidikt var fjarverandi, og kona ihans ein heima, vaknar hún eina nóttina, verður litið til veggjar, og sér þar þá mannsandlit, er einblínir á hana. — Jngibjörg reyndi að sofna aptur, en verður eigi svefn- eamt, og í hvert skipti, er hún leit upp, sér hún sama andlitið. Þegar Benidikt kom heim daginn eptir, innti kona hans hann eptir, hvað orðið hefði af hauskúpunni, og kom það þá i ljós, að hún hafði verið látin inn í vegginn ein- mitt þar, er Ingibjörg sá mannsandlitið. Ekki varð siðar neitt vart við þetta, og Ingibjörg for- tekur, að hún hafi nokkuð verið að hugsa um hauskúp- una, áður en hún sofnaði kvöldið áður. 209 „Þetta er skrifað 16. júlí 1667“, mælti Dacre enn fremur. „Kynlegt er þetta“, mælti eg, „en það sannfærir mig þó ekki, því að hvernig geturðu sannað, að þetta sé sami kvennmaðurinn?“ „Jeg kem nú að því“, svaraði Dacre, „því að frá- sögnin heldur áfram, og skýrir frá því, hvernig hún hag_ aði sér, meðan á pintingunum stóð. Hlustaðu nú á: „þeg- ar böðullinn kom inn, þekkti hún hann strax, því hann bar snæriehönk á hægri handleggnura. Hún virti hann mjög nákvæmlega fyrir sér, og rétti fram hendurnar“. „Kannastu nokkuð við þetta?“ spurði Dacre. „Það er alveg, eins og fyrir mig bar í draumnurn“, mælti eg. „Henni sást í engu brugðið“, las Dacre áfram, „er hún starði á tréhestinn, og hringina, sem höfðu margan liminn skaðskemmt, og valdið ótal kvalafullum ópum. En er hún sá mennina, er komu með allt vatnið, mælti hún brosandi: „Það hlýtur að vera komið hingað með öll þessi ósköp af vatni, til þess að drekkja mér í því? Jeg er sannfærð um, að það getur eigi verið ætlun yðar, góðir hálsar, að láta jafn litla manneskju, eins og jeg er, gleypa öll þessi kynstur“. „Og síðan — „. „Á jeg að lesa áfram?“ spnrði Dacre. „Nei, í guðanna bænum, hættu, hættu!“ „Bíddu samt ögn“, mælti Dacre. Hér kemur máls- grein, er mun sannfæra þig um, að það er sama stúlkan, sem við er átt: „Valmennið Perot ábóti, er eigi kenndi sig mann til þess, að vera sjónarvottur að pintingunum, er skiptabamið hans átti í vændum, flýtti sér, mjög ótta- sleginn, út úr hvelfingunnl“.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.