Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 28.01.1905, Qupperneq 2
11
ÞJÓÐVJ.LJÍJÍN .
XIX., 4.
ítalia. ítalskur muukur, Carbo jnano að
nafni, kvað ný skeð hafa fundið upp áhöld, tii
þess að senda þráðlaus talskeyti, og er það
mjög inikilsverð uppfundning.
öjaldkeri í innanríkisráðaneyti ítaia, Nardí
að nafni, réð sér ný skeð hana, með skamm-
byssuskoti, hafði sðlundað all-miklu af opinberu
fé, er hann hafði undir höndum.
25. maí síðastl. fékk sjómaður i Genua all-
einkennilegan drátt í net sitt á höfninni i Q-enua;
það var kvenniík, hræðilega limlest. — Sannað-
ist síðar, að þetta var lík konu einnar í Qenua,
er hafði verið gipt Alberto Olivo bókhaldara, og
hafði hann veitt henni bana, on sökkt síðan lík-
inu á iiöfninni. Hafði Oiivo árið 1895 kynnzt
konu þessári, er hét Ernestina Beccara, og fellt
brennandi á'varhug til hennar, enda þótt hún
vævi lítt menntuð, og af lágum stigum, og hefði
all-inikið lauslætisorð á sér, því að hann bjóst
við því, að hún myndi baeta ráð sitt, er hún
væri gipt; en þotta fór á annan veg, því að
Ernestina hélt fyrri lifnaði sínum áfram, og fór
samlyndi þeirra hjónanna því dagversnandi. —
Nótt eina, er Olivo var lasiun, og hqfði beðið
konu sína, að útvega sér vatnssopa að drekka,
þvertók hún fyrir það, og hæddi hann, og smán-
aði, á ýmsar lundir, og otaði loks að honum
hníf, svo að Olivo varð hamslaus, greip af henni
hnífinn, og gekk af henni dauðri, og kvaðst
hann þá hafa verið svo óður, að hann vissi ekk-
ert, hvað hann gerði. — Dómarar tóku máls-
varnir hans gildar, og var hann því ný skeð al-
gjÖJ-lega sýknaður. —
Austurríki—Ungverjalnnd. Þar gengu víða 4-
kafir kafaldsbylir nú um áramótin, erjsumstaðar
ollu all-miklu tjóni.
I Austurríki urðu ný skeð ráðherraskipti, með
því að Koerber, forsætisráðherra, beiddistllausnar,
sakir heilsubrests, og var GautscA fríherra skip-
aður forsætisráðherra í hans stað.
Eullyrt er, að það, sem einkum hafi valdið
því, að Koerber beiddist lausnar, sé reyndar’ekki
heilsulasleiki, heldur hitt, að hann sé orðinn sár-
þreyttur á hinnrn sífelldu deilum hinna ýmsu
þjóðflokka í Austurríki, einkum Tjekka og Þjóð-
verja, er valda því, að löggjafarstörfum verður
þar lítt sinnt að gagni.--------
(Irikklaiid. Þar urðu ráðherraskipti um jól-
in, með því að Þeotokis sleppti völdum, en De-
lyannis gjörðist formaður hins nýja ráðaneytis.
Þýzkaland. Þýzkum heiðursmerkjum hefir
Vilhjálmur keisari ný skeð sæmt þá Nogí og
Stössel, japanska og rússneska hershöfðingjana,
or sótti, og varði Port-Arthur.
Tannlæknir Vilhjálms keisara, Allanto Syl-
vester að nafni, réð sér hana í Berlín, með byssu-
skoti 10. janúar, hafði tapað of-fjár í spilum.
S. d. hengdi verkamaður í Berlin, er Meder-
slcy hét, þrjú börn sín, 2 —5 ára gömul, en var
tekinn fastur, er hann var að snúa snöruna að
hálsi sjálfs sin.
Krónprinsessan i Saxlandi, er nú er nefnd
greifaírú Montignoso, brá sér til Saxlands um
jólin, og ætlaði að fá að sjá börn sín, er hún
eignaðist með núverandi Saxlands konungi, áður
en hún hljóp burt með Gíron kennara. — Krón-
prinsessan er mjög vinsæl hjá þjóðinni, og var
þvi fagnað vel, en lögregluliðið bað hana að
koma sér þegar burt úr iandinu, eptir konungs
skipun, og börn sín fékk hún þvi eigi að sjá.
Ekkja nokkur, Sinniy að nafni, er hafði vindla-
söluhúð í Berlín, fannst ný skeð myrt i búðinni,
og var peningaskúffan tæmd. — Hefir verið
heitið þúsund rígsmarka verðlaunum, ef skýrt
sé frá, hver glæp þenna lieEir framið. — — —
Uússiand. Rússastjórn hefir ný skeð tekið
500 milj. rigsmarka að láni, gegn 4'/2°/0 vöxtum,
til að standast herkostnað.
1 des. brann þorpið Vyszk til kaldra kola,
um 100 hús, svo að þorpsbúar voru husnæðis-
lausir, og báglega staddir.
f Látinn er nýlega Emanuel Schiffcrs, 54
ára að aldri, einn af frægustu taflinönnum.
Skattheirntumaður i Kaukasus, er Sherbakoff
heitir, vai' nýlega skotinn á götu um hábjartan
dag, og'komust morðingjarnir, er voru tveir, báð-
ir undan.
Innanríkisráðherra Rússa, Svíatopolsk-Mirskí,
hefir i öndverðum janúarmán. sótt um lausn frá
embætti, með því hann fær litlu ráðið, sakir
hins megna ófrelsis- og kúgunar-anda, er ríkir
í stjórninni, en kvað sjálfur viija slaka til, og
rýmka um frelsi þjóðarinnar.
Sí og æ er stjórnin að láta smala saman
mönnum. til þess að senia austur á blíð/ellina
í Mandsjúríi, ea fættir fi:a þangað með fúsu
geði. — í 'néraðinu Radom í rússneska Póllandi
sprengdu karmenn nýlega tvær járnbrautarbrýr
í lopt upp, til þess að hinlra herflutninga aust-
ur, og ienti þar síðan í bardtgi, og féllu þrír
liðsforingjar, og rnargt hermanna.
Nýlega var kveðinn upp dómur yfir morð-
ingjum Plehtv’s, innanríkisráðherra, og var Sasso-
no,ff dæmdur í æfilanga typtunarhússvinnu, en
Likorksí til 20 ára, en hegningunni þó þegar
breytt þannig, að hinn fyraofndi skyldi að eins
vera 14 ár í typtunarhúsi, en hinn siðarnefndi í 10
ár. — Ýmsir fuilyrða þó, að Sassonoff hafi ný-
lega verið i borginni Zúrich á Svissaralandi, og far-
ið þaðan til Lundúna, og er íllt að vita, hvað
sannast er. — — —
Bandarikin. 5. jan. var 5 fota djúpur snjór
á götunum í Ne.w-Tork, og frost mikil, svo að
nokkrir menn kvað hafa helírosið. — Oll um'
ferð um göturnar stöðvaðist og að miklu leyti-
Lengi hefir verið undan þ /í kvartað, að laun
forsetans, sem eru 50 þús. dollara á ári, væru
heldur lítil, svo að forseti yrði að eiga eignir,
ef hann ætti að geta lifað sómasamlega, sam-
kvæmt stöðu sinni, og hefir því nýlega verið
borið fram frumvarp á þingi, or fer fram á að
hækka árslaun forseta upp i 100 þús. dollara
og er talið víst, að það frv. nái fram að ganga.
í miðjum des. brotnaði hengibrú á ánni Elk
í Vestur-Yirginíu, og voru þá 6 vagnar á hrúnni,
með börnum, or voru í skemmtiför, og drukkn-
uðu 25 þoirra.
Sýningunni í St. Louis var lokað 2. des. síð-
astl., og höfðu alls 19 milj. manna sótt sýning-
una, eða leyst. þar aðgöngumiða.
Stórkostlegt fjárprettamál er nýlega orðið upp-
víst í Bandarikjunum. — Kona nokkur, Cassío
L. Chadwiclc að nafni, 58 ára að aldri, hefir lifað
á því í mörg ár, að narra út milj. fjár, og í því
skyni falsað víxla o. fl. — Meðal annars kvað
hún hafa fengið alls um 5 miij. dollara upp á
nafn Carnegiets auðmanns, hjá ýmsum bönkum,
og hefir látizt vera dóttir hans. — En upp kom-
ast svik um síðir, og situr hún nú í varðhaldi,
og bíður dóms síns. — — —
Afríka. Ófriði Þjóðverja við Hereroa-þ jóð-
flokkinn er enn eigi lokið, enda þótt Tortha,
hershöfðingi Þjóðverja, ynni all-mildnn sigur á
þeim í síðastl. nóv. — Nú hefir Hendrik Witboi,
höfðingi Hottentotta, sem áður hefir verið banda-
maður Þjóðverja, en sagður er mesti bragðaref-
ur, snúizt í lið með Hereroum, svo að Vilhjálm-
ur keisari er um þessar mundir að senda liðs-
auka til landeigna Þjóðverja þar syðra.
Taugaveiki hefir og gert all-mikinn usla í
liði Þjóðverja þar syðra, því að fyrri part des-
embermánaðar sýktust 974, og voru 184 þegar
látnir, er síðast fréttist. —
16. des. var Kriiger, fyrrum forseti Trans-
vaals, jarðaður i Prætoríu, og voru þar við stadd-
ir um 30 þús. manna. — Meðal annara, er töluðu
yfir moldum hans, voru herforingjarnir Botha og
Christian de Wet. —
Eins og áður hefir getið verið í blaði voru,
gerðu Bretar og Frakkar 8. ág. síðastl. þann
samning moð sér, að Frakkar skyldu hafa yfir-
umsjá alla í Marocco gogn því, að þeir sam-
þykktu yfirumsjá Breta í Egvptalandi.
Samningar þessir voru gjörðir, án þess soldán-
inn í Marocco, oða landslýður þar, væri spurður,
þótt Marocco sé sjálfstætt riki, og or þetta því
ágætt dæmi gjörræðis þess, og ósvífni, er nú
drottnar í heiminum.
Nýlega sondu nú Frakkar sendiherrasveit til
Marocco, til þess að tilkynna soldáni þetta, og
segja honum fyrir siðunum, og heitir sá René
Taillander, er sendiherrasveit þessari stýrir.
Sendiherrasveit þessi lenti í hafnarborginni
Tanger, og er ferðinni heitið þaðan til höfuð-
borgarinnar Fez, á fund Abdul Azís soldáns;
en yfir þessu hefir landsiýður orðið óður og
uppvægur, sem naumast er furða, og því heflr
höfðinginn Raísulí safnað liði, og ætlar að varna
sendiherrasveitinni förina til höfuðborgarinnar,
svo að hún hefir enn eigi séð sér fært, að leggja
af stað frá Tanger. — TJppreisnarforinginn Bu-
Hamara, kvað og hafa ritað soldáni, og boðið
honum fulltingi sitt, til að reka alla Evrópu-
menn burt úr Marocco.
Veslings soldáninn er því staddur miLii
steins og sleggju, og hefir beðið stórveldin, að
kveðja heim alla sendiherra sína um hríð, unz
landið sé friðað. — En þetta allt telja Frakkar
stórum móðgandi fyrir sig, og voru því nú um
áramótin að húa út herskipafLota í herskipalægi
sínu í Toulon, sem væntanlega er lagður af stað
til Marocco.
Er stjóraarskráin brotin á ny?
Töluvert umtal hefir orðið utn það í
Reykjavíkurblöðunum, hvort; ráðherra H.
Hafstein hafi fengið lausn frá embætti á-
samt dönsku ráðherrunum, og verið svo
skipaður ráðherra að nýju, með undirskript
nýja foraætisráðherrans, eða hann hafi oinn
allra ráðherranQa setið óhaggaður í sessi,
og sitji því enn í skjóli Dountzers-skip-
uuarbréfsins sæla.
Spurningin er um það, hvort stjórn-
arskrá vor hafi enn verið brotin á nýjan
leik, eða enn sitji að eins við stjórnarskrár-
brotið gamla?
Yms ummæli í dörtskum blöðum, svo
sem að sótt hafi verið um lausn fyrir allt
ráðaneytið (ndet samlede Ministerium“),
virðast benda á, að hið fyrra hafi átt sór
stað, eins og líka það, að eitt danskt biað
(nExtrabladet“) segist vita það úr álveg á-
reiðanlegri átt, að Hafstein verði skipaður
ráðherra aptur.
A hinn bóginn neita blöð scjórnar-
innar því eindregið, að hr. H. Hafstein
hafi feagið nokkra tilkynningu um þetta
frá nýja forsætisráðherranum, og grein í
blaðinu „Politiken“, er birtist daginn ept-
ir, að nýja ráðaneytið var skipað, virðist
benda í þá átt, að það só enn gamli
Deuntzer’s-snaginu, sem heldur hr. H.
Hafstein á lopti.
Dotta siðast nefnda er og óneitanlega
sennilegast, ef gert er ráð fyrir því, að
hr. H. Hafstein hafi hermt rétt skilaboðin
frá Deuntzer, er hann kom úr utanför-
inni síðustu.
En fulla vissu í þessu efni vantar þó
ertn, og eptir þeirri vissu bíða íslending-
ar auðvitað oaeð töluverðri óþreyju.
Stjórnin þarf sem allra bráðast að
geta friðað hugi manna.
Óveitt prestakall.
Torfastaðaprestakall í Arnesprófastsdæmi (Torfa-
staða-, Haukadals-, Bræðratungu- og Úthlíðar-
sóknir) or auglýst til umsóknar, og er umsókn-
arfrestui' til 25. febr. næsck. — Brauðið or metið
830 kr. 92 a., og veitist frá næstk. fardögum. —
Á brauðinu hvíla eptirstöðvar af 500 kr. láni til
túnbóta, er tekið var 1. júli 1904, og ávaxtast
með 4°/0, og endurborgast á 10 árum.
Hundapest
hefir víða stungið sór niður í Húnavatnssýslu,