Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.02.1905, Side 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 16.02.1905, Side 1
Verð árgancfsvns (minnst 52 twkir) 3 kr. 30 cwr.; erlendis 4 kr. SOcmr., og i Ameriku doll.: 1.50. Borffist fyrir júmmá/n- aðarlök. ÞJOÐVILJINN. — |= Nítjándi Aböanqur. =|- -— | Vppsögn skrifleg, ógild nema komin sé til útgef- \ anda fyrir 30. dag júní- I mánaðar, og kaupandi samhliða uppsögninni borgi skuld sína fyrir blaðið. M 7. BkSSASTÖDUM, 16. I’EBR. 19 0 5. Ifna og lldavólar selnr pristjdn Jorgrímsson. Danska nýlendu-sýningin. Er ráöherrann snúinn? Svar Reykjavíkur-nefndarirmar til að- al-sýningarnefndarinnar í Kaupmanna- höfn, er getið var um í 5. nr. blaðs vors, hefir vakið mikið umtal. Menn benda á, að í nefndinni sé syst- ir ráðherrans, frú Þörunn Jönassen, og að hinir, sem í nefndinni eru, séu flestir alda-vinir ráðherrans, sem engum skyldi til hugar koma, að vildu haga sér öðru vísi í máii þessu, en ráðherranum er þóknanlegt. Hér við bætist og, að stjórnarmáltólið „Reykjavík“, er fyrst talaði eindregið gegn sýningunni, er nú farið að snúast, og telja henni margt til gildis. Þetta þykir hvorttveggja benda á það, að ráðherranum sé snúinn hugur, því að væri hann nú eins eindreginn gegn sýn- ingunni, eins og hann var, þegar hann sagði sig úr dönsku sýningamefndinni, og heimtaði þá úrsögn sina birta í dönsk- um blöðum, þá er næsta ótrúlegt, að þetta ofan nefnda skyldulið hans hegðaði 6ér, sem það gerir. Miklu trúlegra, að það léti sér þá um ekkert annara, en að sýna Dönum, að ísl. ráðherrann hefði svo mikið fylgi, og álit hér á landi, að sýningin væri dauða- dæmd, þar sem hann hefði lýst á henni vanþóknun sinni, og sagt sig úr nefnd- inni. En nú er engu líkara, en að nánustu venzlamenn ráðlierrans, og vinir, hafi gjört samsæri gegn honum í því skyni, að draga úr áliti hans í augum Dana, og vilji sýna, að sýningin geti fram farið, hvað sem honum líði. Allir, sem til þekkja hér á landi, vita þó, að slíkt samsæri er blátt áfram óhugsandi, þar sem jafn auðsveipið mál- tól, sem „íteykjavíkin“, á hlut að máli, og venzla- og vina-fólk ráðherrans. Það er því naumast neinn vafi á því, að svar Reykjavíkur-nefndarinnar, og snúningur „Reykjavíkur“, sé í fyllsta sam- ræmi við vilja ráðherrans. En hvernig má það vera? Ekki getur ráðherranum verið annt um það, að styðja að þvi, að sýningin verði, sé hann henni andvigur enn. Honum‘hlýtur því að hafa snúizt hug- ur; annað virðist óhugsandi. Og hvað er það, sem valdið hefir þeim sinnaskiptum hans? Menn vita, að úrsögn hans úr dönsku sýningarnefndinni hefirverið tekin óstinnt upp í Danmörku, svo að þung orð hafa fallið í hans garð, og að danska sýning- arnefndin i Kaupmannahöfn hefir skorað á hann, að skipta skoðun sinni, og ganga inn í nefndina aptur. Það er þá þetta, sem hefir gert hann hjartveikan, ráðherrann. Og þá er eitt af tvennu, að hann hef- ir beðið forláts, eins og góðu börnin, og gengið í nefndina aptur, eða hitt, sem sennilegra er, að hann hefir að vísu eigi gengið inn í nefndina, en lofað henni, að styðja málið engu að síður, sem bezt hann gæti. Þetta er skilningurinn, sem almennt er lagður í snúning „Reykjavíkur“, og svar Reykjavíkur-nefndarinnar. Yegna álits ráðherrans, bæði hér á landi og erlendis, væri þó óskandi, að þessi skilningur almennings væri ekki réttur, og hljóta menn því að bíða þess með óþreyju, að ráMierrann taki semfyrst af öll tvímœii í þessu efni. Hvort af tvennu væri, að ráðherrann hefði gengið inn í nefndina aptur, eða lofað að styðja hana á annan hátt, getur Islendingum á sama staðið, því að hvort sem væri, hefði hann lítillœlckað sig fyrir Dönum, og styddi málefni, sem öllum þorra þjóðarinnar er afar-andstætt. Eptir öll þau smánaryrði, sem dönsk blöð hafa ausið yfir Islendinga, út af þessu sýningarmáli, skyldu menn ætla, að ráðherra íslands yrði manna síðastur til þess, að krjúpa á kné, og kyssa vönd- inn. Og svo bíðum vér því fréttanna með óþreyju, sem aðrir. ti.1.'1BM11EEE i1 ".i l< Otiönci. Voðalegt blóðbað í Pétursborg. Þau tiðindi bárust með gufuskipinu „Firda“, er kom til Reykjavikur 13. febr., að 21. janúar siðastl. hefði fjöldi verka- manna í Pétursborg gengið til keisarahall- ar þeirrar, er „Yetrarhöll“ nefnist, til þess að leita fulltingis keisara, og stjórn- ar hans, út af verbfalli, er þá stóð þar yfir. — Nicólaj keisari var eigi í borg- inni, er þetta gerðist, en Vlademír, frændi keisara, er mun hafa talið þetta byrjun til uppreisnar, tók það óheillaráð, að láta fall- byssuskot dynja á mannfjöldanum, er safn- azt hafði saman á torginu, fyrir framan höllina. — Biðuþar margar þús- undir manna bana, og margar þúsundir urðu sárar, jafnt konur, sem karlar ungir, sem gamlir.— Lýðurinn varð, sem von var, óður og upp- vægur, og héldust róstur, og manndráp, þann dag allan, og daginn eptir. Mælt er, að Nicolaj beisari hafi fyrst haft í huga, að flýja land, og leita til Danmerkur, ásamt ættmönnum sínum, er honum barst fregn þessi, en réð það þó af, að hann fékk Irepoff hershöfðingja, sem er íll-ræmdur grimmdarseggur, alræð- isvald í Pétursborg. Síðan atburðir þessir gjörðust, hafa ver- ið uppþot í ýmsum borgurn á Rússlandi, en fregnir eru fremur ógreinilegar, og biða því næsta nr. blaðsins. — — — Svo fór, sem „Þjóðv.“ gizkaði á (sbr. 4. tölublað þ. á.), að Combes-ráðaneytið myndi ekki eiga langan aldur, þar sem mótstöðumenn þess réðu forseta-kosning- unni í fulltrúa-þinginu 10. janúar síðastl., enda er ráðaneytið nú farið frá völdum, og heitir sá Nouvíer, er veitir hinu nýja ráðaneyti forstöðu. Landsverk frœðingur er cand. polyt. Jón Þorláksson skipaður frá 1. febr. síðastl., í stað skólakennara Sig. Thoroddsen’s. Lækna-skipun. Höfða-læknishérað er 16. jan. veitt Sigurjóni Jónssyni, lækni á Mýrum. Læknirinn í Fljótsdalshéraði, hr. Jónas Kristj- ánsson, er settur, til að gegna læknisstörfum i Hróarstunguhéraði til april loka, er cand. med. Þorv. Pálsson tekur við embættinu. Eidur uppi. Úr Bárðardal, og Mývatnssveit, hefir sézt eld- ur i Dyngjufjöllum, að því er skýrt er frá í blaðinu „Norðurland11 21. janúar síðastl. Úr Snæfellsnessýslu (Skógarströnd) er „E>jóðv.“ ritað 18. janúar síðastl.: „Tíð var hér góð, og hagstæð, næstl. sumar, til rétta, er algjörlega skipti um, og gerði stórfelldar rign- ingar, og sunnan rok, og stundum kafaldshríðar. — Þeir, sem hey áttu úti í réttum, eiga það á túnunum enn. — Eldiviður (mór) ónýttist og að mestu hjá fólki, svo að til báginda horfir. — Með jólaföstu batnaði tíðin aptur, og hefir nú verið góð um tíma“. Skemmdir af brimi. Aðfaranóttina 8. janúar urðu miklar skemmd- ir af brimi í Ólafsfirði í Eyjafjarðarsýslu, enda var þar þá norðaustan ofsa-rok, með frosthörku mikilli, sama rokið, er olli mannskaðanum mikla á ísafjarðardjúpi daginn fyrir. — Sjór gekk langt á land upp, eyðilagði 5 báta gjörsamlega, og braut ýmsa aðra báta, meira eða minna, auk þess er talsverðar skemmdir urðu á húsum o. fl. Mannlaust liskiskip, er lá á höfninni á Patreksfirði, rak þar í land í ofsa-veðri 27. janúar síðastl., og brotnaði svo, að talið er, að ekki verði við það gert. — Skipið var eign „Isl. Handels & Fiskeri 0o“. Úti varð um mánaðamótin síðustu maður suður á Mið- nesi. Hann hét Sigurður Qíslason, rúmlega tvít- ugur, og var frá Melabergi. í Sauðaness-prestakalli verða í kjöri: prófastarnir Arni Jónsson á

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.