Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 27.03.1905, Page 2
50
Þjóðviljinn.
usta þessi hafi verið ógurlegasta orusta,
er sögur fara aí, enda segjast Japanar
hafa talið lík nær 30 þús. fallinna Rússa
á vígvellinum, og svipað mannfall hefir
að likindum einnig orðið í liði Japana;
en greiniiegar fregnir um þetta brestur
þó enn.
50 þús. særðra manna er mælt, að
Rússar hafi sent með járnbrautinni til
Charbin, áður en Japanar náðu Mukden.
Kuropatkin, yfirhershöfðingi Rússa,
var flúinn til Tieiing, ásamt nokkru af
herliði því, sem eptir er; en hitt liðið
var á flótta í ýmsar áttir.
Mælt er, að Kuropatkin hafi nú beð-
izt iausnar frá yfirhershöfðingja-störfun-
um, yfirkominn af líkamlegri og andlegri
áreynzlu.
Eitthvað af heriiði Japana er þegar
komið norður fyrir borgina Tieling, svo
að ekki er ósennilegt, að Kuropatkin
verði kvíaður þar, og verði að gefastupp.
Rússar eru þvi mjög að þrotum komn-
ir i ófriði þessum, og verða því að lík-
indurn að leita friðar, ekki sízt þar sem
þeim er nú synjað um peningalán, er
þeir höfðu leitað hjá bönkum á Frakk-
landi og í Þýzkalandi.
Herskipafloti Rússa, er verið hefir á
sveimi í grennd við Madagascar, verður
nú ekki látinn halda lengra í bráðina, og
fer líklega aldrei til ófriðarstöðvanna,
eins og nú er komið.
A Rússlandi eru einatt uppþot hér og
hvar, og í sumum fylkjum, t. d. í Orel,
Samara og Kursk, hafa bændur ráðið á
höfðingja-setur, brennt hús, og rænt bú-
peningi o. fl. — Mjög hætt við, að ófar-
ir Rússa í Mandsjúríi leiði til þess, að
almenn uppreisn verði heima á Rússlandi,
og að lýðurinn hrindi af sér hinni ill-
ræmdu einvaldsstjórn, sem þykir hafa
sýnt sig jafn ónýta út á við, eins og
hún er einráð, og hörð í horn að taka,
heima fyrir, og væri þá eigi blóði því,
sem streymt hefir í Mandsjúríi, út hellt
til einskis. — —
Noregur. Þar er nú nýtt ráðaneyti
sett á laggirnar, og er Miclielsen forsæt-
isráðherra, og ráðaneytið skipað mönnum
úr öllum þingflokkum. Ætlar ráðaneyti
þetta að koma fram konsúlamálinu, hvað
sem Svía-stjórn, og konungur, segir, og
neyta þess, að konungur hefir að eins
frestandi synjunarvald í löggjafarmálum.
HMinunrnj m m i<
Drukknun.
Það slys vildi til á fiskiskipinu „Pollux", eign
Brydes-verzlunar, að stórsjór tók út stýrimann-
inn 10. marz síðastl., og drukknaði kann. Mað-
nr þessi hét Sigwður Bjarnason.
lír Býralirði
er „Þjóðv.“ ritað 15. marz síðastl.: „Siðan um
þrettánda hafa hér verið sífelldar jarðleysur, svell
og áfreðar, svo að allar skepnur hafa staðið inni
lotulaust, því að þegar blotar hafa komið, hefir
óðara fryst að, og orðið einn sveUbræðingur yfir
allt. — Baðanirnar eru nú nýlega um garð gengn-
ar, og hefir enginn beðið óbag af þeim, að því
er heygjöf snertir, þar sein engin skepna hofði
farið út úr húsi, hvort sem var.“
Þingeyrarklaustiii's-uiiiboð
í Húnavatnssýslu er auglýst til umsóknar, og
eiga umsóknarbréfin að sendast stjórnarráðiuu
fyrir 16. maínæstk.—Umboðið veitist frá næstk.
fardögum.
Dauska ný 1 eudu-sýni mri n.
Dr. Valtýr Ouðmundsson hefir nú loks sagt
sig úr dönsku sýningar-nefndinni. — Það er þvi
eingöngu venzla- og vina-fólk ráðherrans, sem
heiðurinn/'!; hefir af því, að hjálpa Dönum, til
að halda sýningu þessa, íslendingum þver-nanð-
ugt.
Þingmálafundur Vestur-Ísfirðínga.
Vestur-Isfirðingar héldu þingmálafund
að Flateyri í Onundarfirði 17. febr. síð-
astl., og mættu þar kjörnir fulltrúar úr
Suðureyrar-, Mosvalla- og Mýra-hreppum.
FuDdarstjóri var Friðrik hreppstjóri
Bjarnason á Mýrum, en skrifari síra Þor-
varður Brynjólfsson á Stað í Súgandafirði.
Helztu málin, er rædd voru á fundi
þessuin, voru:
I. Tolltnál. Talið tiltækilegast, að
hækka húsaskatt allt að helmingi, og að
leggja nýjan toll á alla jnnflutta vöru, er
nemi að minnsta ko3ti 2 af hundraði.
II. Þegnshylduvinna. Fundurinn tjáði
sig henni algjörlega mótfallinn, og skor-
aði á þingið, að leggja eigi á þjóðina
neina slíka skyldukvöð.
III. Vitamál. Fundurinn taldi mjög
nauðsynlegt, að vitar yrðu settir á Önd-
verðarneai, Bjargtöngum, og sérstaklega
á Kögrinum.
IV. Skipunar-aðferð ráðherrans. Sam-
þykkt i einu hljóði svo látandi ályktun:
„Fundurinn skorar á alþingi, að íhuga
nákvæmlega aðferð þá, sem höfð var
við skipun núverandi ráðherra Islands,
að þvi er undirskript forsætisráðherrans
snortir, og mótmæla henni kröptulega,
ef þingið kemst að þeirri niðurstöðu,
að skipunar-aðferðin sé gagnstæð stjórn-
arskránni“.
V. Menntamál Talið nauðsynlegt,
að koma upp öflugum alþýðukennaraskóla,
og að hækka að miklum mun styrkÍDn
til barnaskóla og sveitakennsiu.
VI. Bítsímamálið. Samþykktar um
það mál svo felldar ályktanir:
„a. Fundurinn álítur, að alþingi ætti að
fara mjög varlega út í, að samþykkja
fjárframlög iir landssjóði til ritsíma-
lagningar, eins og nú stendur, þar
sem hugsanlegt er, að takast mætti,
að komast að betri samningum, eða
jafn vel að ritsímalagningin kynni að
geta átt sér stað, án nokkurs Qárfram-
lags af Islands hálfu.
b. Fundurinn álítur, að sæsímann beri
að leggja á land í Reykjavík, svo
framarlega sem landssjóður tekur
nokkurn þátt í kostnaðinum”.
Enn fremur ræddi fundurinn, og gerði
ályktanir um, bindindismálið, strandgœzlu,
um búnaðarmál, og um samgöngumál, og
var fundurinn yfirleitt hinn röggsamleg-
asti, og Vestur-ísfirðingum til mikils sóma,
enda vonandi, að þingmaður kjördasmis-
ins, hr. Jóhannes hreppstjóri Ólafsson á
Þingeyri, láti eigi sitt eptir liggja, að
fylgja rækilega fram ályktunum hans á
XIX., 13.
alþingi, ekki sízt að því er til stórmál-
anna kemur.
Man o alát.
Hinn 18. nóvbr. f. á. andaðist i Narfakoti í
Njarðvíkum konan Þórhildur Jónsdóttir, eigin-
kona Jóns bónda Loptssonar, 70 ára gömvtl. Einka-
sonur þeirra hjóna, Gruðjón að nafni, drukknaði
fyrir nokkrum árum síðan. Þórhildur sál. var
siðprýðis- og stillingarkona, guðhrædd, og yfir
höfuð talin valkvenndi af þeim, er henni voru
nákunnugir.
Hinn 21. desbr. f. á. andaðist að heimili sinu
Tumakoti í Vogum bóndinti Pétur Andrésson, 66
ára að aldri. Hann lætur eptir sig aldurhnigna
konu, og 7 uppkomin og einkar mannvænleg
börn. Pétur sál. var mesti fjörmaður, lipurmenni,
og einkar nærfærinn við skepnur, er veikar voru,
og tókst honum opt mjög vel að hjálpa þeim.
Hann vann mikið, fagurt og þarft dagsverk, og
er hans almennt saknað, sem eins bins liprasta og
greiðviknasta manns. —
Hinn 4. jan. þ. á. andaðist að heimili sinu
Kálfatjörn ekkjumaður Arnoddur Gunnlaugsson,
rúmlega 60 ára. Arnoddur sál. eignaðist 8 börn;
og er eitt þeirra á lifi, uppkomin stvilka i Am-
eriku. Arnoddur sál. var talinn með betri for-
mönnum hér í hreppi, ágætur stjórnari, með ó-
bilandi kjarki, lipur í lund, og drengur góður.
Er hans sárt saknað af hinum síðustu húsbæná-
um hans, sem hann dvaldi hjá síðustu 12 ár æfi
sinnar, fyrst sem lausamaður, og síðari árin vinn-
maður.
Hinn 17 þ. m. (febrj andaðist að heimili sínu
Hliði i Kálfatjarnarhverfi bóndinn Egill Halldórs-
son, Egilssonar; var Halldór faðir Egils sál. bróð-
ir Margrétar, móður Guðmundaf hreppstjóra í
Lundakoti. Árið 1896 kvæntist Egill sál. Ást-
ríði Eyjólfsdóttur, ættaðri úr Árnessýslu, og lif-
ir hún mann sinn, ásamt einkadóttur þeirra, sem
er á barnsaldri. Egill sál. var mesti dugnaðar-
maður, bæði til sjós og lands, prúðmenni í fram-
göngu, einkar góður faðir og eiginmaður, ágæt-
ur nágranni, og búhöldur góður. Er það harm-
ur mikill konu hans og barni, og skaði mikill
félaginu, að missa hans á bezta aldursskeiði, eða
að eins 44 ára að aldri. A. Þ.
Bessastöðvm 27. marz 1907.
Það, sem af er einmánuði, hefir tíðin verið
rosa- og storma-söm. — 22.—28. þ. m. var af-
taka sunnanrok, með hafróti, enda féll barómetrið,
fyrri daginn niður fyrir storm, og færi betur, að
ekkert fiskiskipanna hefði þá orðið fyrir áfalli.
Gufuskipið „Maríe“ kom 21. þ. m.tiIReykja-
vikur, með viðarfarm til „Völundar“, frá Halm-
stad, og með því skipi bárust útlendu fréttirnar,
sem getið er í þessu nr. blaðs vors.
„Vesta“ lagði af stað til útlanda 20. þ. m.
— Með henni sigldu: consúll S. H. Bjarnarson
frá ísafirði, ungfrú Ounnhildur Thorsteinsson
kaupmaður ./. Lambertsen í Reykjavík, o. fl.
„Ceres“ kom frá Vestfjörðurn, og Breiðaflóa,
28. þ. m., og margt farþegja, þar á meðal Jó-
hdnnes Pet.ursson á ísafirði, Jón verzlunarstjóri
Laxdal, Ólafur Jónsson frá Garðstöðum, próf.
Sig. Gunnarsson í Stykkishólmi, o. fl.
iiiiiiii i i i i i> i i i i i iii i i i'iiMim i i i iii iiiniiiin.'iitiiniiiiiiiiiiniiniii'iiiiniiiiHiiiiiii ..miiiiinii
THE
North British Ropework C2Z.
K i r k c a 1 d y
Contractors to H. M. Government
búa til
rússneskar og italskar
fiskilínur og focri,
Manila, Coces og tjörukaðal,
allt úr bezta efni, og sérlega vandað.
Biðjið því ætið um IKirlt/ealcÞy
fiskilínur og færi hjá kaupmanni þeim,