Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 22.04.1905, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 22.04.1905, Blaðsíða 1
Verð árgangsins (minnst 52 arkir) 3 kr. 50 aur.; erlendis 4 kr. 50 aur., og i Ameríku doll.: 1.50. Borgist fyrir júnímán- aðarlok. ÞJÓÐVILJINN. -- ■ -1=: NÍTJÁNDI ÁRGANGUH. =\~ - -«■—g** \= RITSTJÓRI: SKÚLI THORODDSEK. =lfco8gj—»■- Vppsögn skrifleg, ógild nema komin sé til útgef- anda fyrir 30. dag júní- mánaðar, og kaupandi samhliða uppsögninni horgi skuld sina fyrir blaðið. M 17. Bessastöbum, 22. apríl. 19 0 5. Ifna og ildavólaF selur Ráðherrann og ritsímamálíð. Dæmalaus frammistaöa. I. Loks er þá riteímasamnmgurmn — þetta annálaða þrekvirki ráðherrans — kominn fyrir íilmennings sjónir, þótt stjórninni sé að þakkarlausu. Eptir þvi, sem kvisazt hafði, um ein- stök atríði samnings þessa, hafa menn að líkÍD<ium, som betur fer, eigi gjört sér mjög glæsilegar vonir; en að hann væri eins fráleitur, eins og hann er. hefir þó óefað fæstum mönnum til hugar komið. Það er því miður engu líkara, en að hann hafi verið dáleiddur, ísl. sérmála- ráðherrann, er hann ritaði undir samn- ing þenna. „Eins og yður þóknast, herrar miniru, virðist hann hafa sagt við danska ríkis- mannvirkjaráðherrann, ognorræna frétta- þráðarfélagið, og verið þess því albúinn, að rita undir allt, sem þessir samnings- aðilar hans vildu vera láta. Það er leitt, að þurfa að segja það, að sjaldan hefir nokkar ráðherra, í nokkru landi, geett hagsnmna þjóðar sinnar ödu slcetcgar. Það er danski ríkismannvirkjaráð- herrann, sem hvívetna hefir töglin og hagldirnar, og danskir hagsmunir, sem alls staðar sitja í fyrirrúmi. Þanski ráðherrann hefir einn allt ept- irlitið, að því er lagnÍDgu sæsímans snertir, eins og hann einnig sker einn úr því, hvort lögmætar ástæður eru, ef rit- síminn getur eigi tekið til starfa 1. okt. 1906, eins og áskilið er í samningnum. Hann einn ákveður verðið á hrað- skeytasendingum milii íslands ogútlanda, og hann getur einn bannað notkun sæ- símans, ef honum þykir ástæða til þess, almennum friði til tryggingar. Og til þess að taka alveg af skarið. og syna réttleysi vor íslendinya, ákveður 12. gr. samningsins enn frenntr, að ef ágrein- ingur verði uni einhver atriði samningsins, þá leggi danski ráðherrann fullnáðar-úr- skurð á það mál. Öllu betur, en þetta, varð snörunni naumast komið fyrir, og Dönum tryggð öll yfirráðin yfir ritsímanum. Þau 20 ár, sem einkaleyfi félagsins stendur, er oss Isíendingum enn fremur liarðl'ega bannað, að koma á nokkurs lronar hraðskeytasambandi milli lands vors og Norðurálfunnar, hversu illa sem ritsíminn kynni að reynast, og hversu kostnaðarlítið, sem vér ættum kost á slíku sambandi. Og ekki er þó réttur vor betur tryggð- ur, eptir samninginum, en svo. að slitni sæsimÍDn, heldur félagið þó öllu árstil- laginu, bæði úr rikissjóði og landssjóði, ef símslitin eigi standa lengur, en 4 mán- uði í senn, og missir að eins tiltölulegan hluta yfir þann tímann, er simaslitin standa lengur yfir. Synd að segja, að ekki sé borin þol- anieg umönnun fyrir hagsmunum þessa danska stórgróðafélags, eða því ætlað, að hraða viðgjörðunum um of, ef sæsíminn slitnar. Og þar sem það er áskilið, að ef sím- slit haldist lengur, en 4 mánuði í senn, milli Hjaltlands og Færeyja, þá missist allur styrkur yfir þaDn tímann, sem er fram yfir 4 mánuði, þá er það á hinn bóginn tekið fram, að þó að símslithald ist lengur, en 4 mánuði, milli Islands og Færeyja, skuli félagið þó fá helming styrksins úr ríkissjóði, svo að félagið gæti jafn vel leitt viðgerðina alveg hjá sér, þætti sá hluti sæsimans eigi bera sig. En þrátt fyrir þetta, þá er oss bann- að, að koma upp braðskeytasambandi við Norðurálfuna, nema hvað oss er náðar- samlegast leyft, að koma upp þráðiausri firðritun roilli Færeyja og einhvers staðar í grennd við iteykjavík(!) Loks segir og í samningnum, að vilji félagið eigi endurnýja einkaleyfið, að 20 ár- um liðnum, verði sæsíminn sameign Dana og Islendinga þannig, að Danir eignist 2/g, þótt tillag rikissjóðsins sé að eins 1080 þús., en ísland ^/g, þótt tillag vort sé 700 þús., og atlar ráðherrann því á þenna hátt að gefa Dönum 160 þús.(!) Sízt að furða, þótt þorf þætti á við- | böfninni, og efnt væri til ritsímaátsins, til að íágna slíkum afrekum(!) II. Og þenna merkilega(!) samning gerir ráðherrann upp á sitt eindæmi, að alþingi fornspurðu, eins og blað vort hefir áður rækilega bent á, og án þess að geyma alþingi rétt til þess, að neyta lögmæts atkvæðis um málið. Það er þegar farið að kaupa staurana til landsímans, 15—20 þús að tölu, og maður ráðinn, til að standa fyrir síma- lagnisgunni. Auðsætt, að hagsmunir danska stór- gróðafélagsins hafa alls enga bið þolað. Mikið er traust ráðherrans á „heima- stjórnaru-þingmönnunum(!) Því bversu óljúft, sem ráðherranum kann að vera það, kemst hann þó að minnsta kosti ekki hjá því, að leita samþykkis alþingis, að því er ýms atr- iði samningsins snertir, og að beiðast ijárveitingar, til þess að koma á land- simanum, milli Austfjarða og Reykjavik- ur, því að skammt hrökkva vitanlega þær 300 þús., er norræna íélagið leggur fram, og sennilegast, að ekki veiti af jafn mik- illi upphæð úr landssjóði, að minnsta kosti, til þess að koma á fót þessu fyrir- tæki, sem ráðherrann hefir flanað út i, eins og ráðlaus unglingur, án nokkurrar fyrirhyggju, eða ábyggilegar áætlunar. En að þÍDgið verði ljúft til þeirrar fjárveitingar, eins og mál þetta er i garð- inn búinn, látum véi segja oss þrisvar, áður en vér trúum. III. Annars er þessi dæmafáa frammistaða ráðherrans lítt skiljanleg, og óíyrirgefan- leg með öllu. Það er kunnugt, að það, sem knúði fólagið til þess, að vinda nú bráðan bug að samningunum, var, að ritsímalagnÍDg- in til Islands var gerð að skilyrði fyrir 14 ára framlengingu á dansk-ensku og dansk-sænsku sæsíma-einkaleyfi, og svip- aðri framlengingu á dansk-frakknesku, og dansk-rússnesku sæsíma-einkaleyfi. Betra færi, en bér bauðst, til að ná hagkvæmum samningum, var því ekki hægt að hugsa sér. Og þó að ráðherrann hefði gerzt svo harður í kröfum, fjroir Islands hönd, að félagið hefði gengið frá, þá voru sann- arlega ekki hundrað í hættunni, þar sem A/arconí-félagið hafði áður boðizt til þess, að koma á þráðlausu firðrituDarsambandi, milli Skotlands og 4 kaupstaðanna hér á íandi, fyrir 1350 þús. króna. Enda þótt upphæð þessi hefði ekki fengizt færð neitt niður, sem er næsta ósennilegi. og enda þótt vér hefðum ein- ir átt að snara henni allri út, og Danir gert sér þá háðung, að skerast gjörsam- lega úr leik, þá liefði það orðið landi voru miklu kostnaðarminna, en þetta ritsíma- bákn, sem vér eigurn að leggja til sjálf- sagt minnst fraka milj. í byrjuninni, og kosta allt viðhald á hér inDan lands, yf- ir fjöll og firnindi, og endurnýja 9Íðan, ef til vill 15. hvert ár — hæpið, að staur- armr endist lengur — fyrir má sko allt að xl% milj. króna í bvert skipti. Með 4/arcoíii-íýrirkomulaginu er við- haldskostnaðurinn á hinn bóginn hverfandi, og þar við bœtist sú ómetanlega stórpolitiska, og fjárhagslega þyðing, sem það liefir fyr- ir þjóð vora, að eiga sjálf firðritunartœkin, og geta að öllu leyti rádið sjátf yfir þrðrit- unarsambandinu milli Islands og útlanda, ráðið hraðskeytataxtanum o. s. frv., í stað þess að festa oss á danskan klafa, sem fyrirsjáanlegt er, að orðið getur þjóð vorri til versta ófarnaðar.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.