Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 28.07.1905, Blaðsíða 1
Verð árganqxim (mínnst
52 arkir) 3 kr. 50 aur.;
f.rlendis 4 kr. 50 aur., og
í Ameríku doll.: 1.50.
Borqist fyrir júnímán-
aðariok.
ÞJOÐVILJINN.
----1= NÍTJÁ-NDI ákgangur. =1 -—
■+—*»«|= RITSTJÓRI: SKÚLI THOKODD8EH. =|wg--
M 31.
Bessastöbum, 28. .jiílí.
| Vppsögn skrifteq, óqild
jnema komin sé til v.tqef-
'.anda fyrir 30. dag júní-
j m&naðar, og kaupandi
I samhliða uppsögninni
\borgi skuld sína fyrir
Iblaðiif.
19 0 5.
Ifna og ildavélar
selur
|§ristjdn Jsorgrímsson.
------------------
TÍT tlöntíl.
Marcouí-loptskeyti, er borizt hafa til
Reykjavíkur síðustu dagana, — síðasta
skeytið 24. júlí kl. 10 og 40 mín. síð-
degis — segja þessi tíðindi frá útlöndum:
Bandaríkin. Ákafir 'hitar voru i New-
York 18. og 19. júli, og varð hitinn 50
mönDum að bana fyrri daginn.
Ung stúlka, dóttir Monroe’s bankastjóra,
réð sér nýlega bana á þann hátt, að hún
bleytti föt sín í olíu, og kveikti svo í.
- Setti hún það fyrir sig, að hún fékk
ekki að giptast enskum aðalsmanni, er
hún hafði fellt ást við.
Amerískur fallbyssubátur sprakk ný-
Jega í Jopt upp, og létust um fimm tug-
ir manna.
Bandamenn halda áfram skurðgreptr-
inum gegnum Panama-tangann, og er
vinnunni haldið áfram fyrst um sinn und-
ir uinsjón herstjórnar. — — —
Austræni ófriðurinn. Mælt er, að jap-
anskur her hafi nýlega gengið á land
fyrir norðan Yladivostock, herslúpalægi
Rússa í Síberíu, og verður borgin þá sótt,
bæði af sjó og landi.
.Tapönum hefir nú tekizt, að gera svo
við rússnesku herskipin: Bayan, Peresvíet
og Retvísan, er sukku á höfninni í Port-
Arthur, að gert er ráð fyrir. að þau verði
bráðlega haffær til Japans
Witte, áður fjármálaráðherra Rússa, er
nýlega lagður af stað frá Riísslandi til
Paiisar, og ætlar þaðan til Washington,
til þess að vera fulltrúi Rússa á væntan-
legum friðarfundi. — — —
Rússland. 18. júlí hófst “zemstwou-
samkoma i Moskra, og lýsti samkoma
þessi því yfir, að frumvarp Bolygin’s, inn-
anríkisráðherra, um þjóðþing, væri ger-
samlega onógt, en ákvað þó að ræða mál-
ið, til þess að reyna, að fá frekari til-
slakanir. — Lögreglumenn brut.ust inn í
fundarsalinn, og skipuðu fundarmönnum
að fara út; en fundarmenn sinntu þvi eigi-
og rituðu lögreglumenn þá nöfn þeirra
hjá sér.
Qngur maður ætlaði nýlega að skjóta
Pobedonozjeff', forseta „synodunnar helguu,
en náðist, áður en hann fékk hleypt af
skammbyssunni.
í borginni Nijni Novgorod hat'a nokkr-
ar þúsundir skríls borgina algjörlega á
valdi sínu, brjótast inn í hús, og ráða á
hvern, sem r>r sæmilega til fara.
Varalandstjórinn á Pinnlandi var ný- I
lega særður með sprengikúlu, er hann
gekk af stjórnarráðsfundi, og komst sá
undan, er sprengikúlunni hafði varpað.
Nicolaj, Rússakeisari, og ViJhjáhnur
keisari, sem verið hefir á ferð í Eystra-
salti á skipi sinu „Hohenzollernu, hittust
nýlega í Borgo á Finnlandi, og er það
ætlun manna, að Nicolaj keisari hafi ótt-
azt uppreisn í Pétursborg, og eigi viljað
vera i borginni 22. júli, þvi að þá voru
6 mánuðir liðnir frá blbð-snnnvdeginum,
2i, janúar síðastl.
JgTcttir írd alþingi.
■rv.Ár*
Skipting lœknishéraðs.
Síra Sig. Jensson ber fram í efri deild
frumvarp um skiptingu Barðastrandar-
læknishéraðs í tvö læhnisbéruð, sem verða:
1, Patreksfjaifturherað, sem nær yfirRauða-
sandslirepp,TálknafjarðarhreppogBarða-
strandarhrepp, fyrir vestan VatDsdals-
á, og
2, Bílditdalshérað, sem nær yfir Suðurfjarð-
ar- og Dalahreppa.
Húsmennskuleyli — óþörf.
Skúli Thoroddsen ber fram frv. í neðri
deild þess efnis, að nema úr lögum rétt
þann, er lög hafa veitt hreppsnefndum og
bæjarstjórnum, til að synja húsmönnum,
og þurrabúðarmönnum, um aðsetursleyfi
| í hreppum eða bæjaríélögum.
„Undirskriptarmálið“.
Sjö neðri deildar þingmenn (Sk. Th.,
Stet’án Stefánsson, þm. Skagf., Einar
Þórðarson, Ól. Ólafsson, Ól. Briem, Björn
Kristjánsson og Ól. Thorlacíus) hafa bor-
ið fram svo látandi tillögu til þingsálykt-
unar.
„Neðri deild alþingis ályktar, að lýsa
yfir því, að hún álítur það eitt rétt, og
í samræmi við stjórnarskipun vora, að
íslandsráðherrann sé skipaður með und-
irskript sjálfs hans, eða fráfarandi Is-
landsráðherra, en ekki með undirskript
forsaitisráðherra Dana, og skorar á ráð-
herrann, að gera sitt til, að svo verði
eptirleiðisu.
Ekki ætti að gera ráð fyrir því, fyr
en á dettur, að meiri hluti deildarm anna verði
ráðherranum svo leiðitamur, að hafna jafn
hógværri tillögu, enda ættu IslendÍDgar,
hvað sem öllum deilum vor á meðal líð-
ur, að geta staðið, sem einn maður, þeg-
ar um það ræðir, að halda fram réttind-
um landsins gegn erlendri ásælni.
Yér skulum í lengstu lögin vona, að
svo verði.
Sala kirkjujarðar.
Dr. Valtýr ber fram í efri deild frv. |
þess efnis, að heimila Hjórninni, að selja I
ábúanda kirkjujörðÍDa Bygggarð i Seltjarn-
arneshreppi fyrir 2600 kr.
Aðflutningsbann á áfengi.
Frumvarp um það efni flytja í neðri
deild þingmennirnir: Guðm. Björnsson,
Gruðl. Guðmundsson, Björn Kristjánsson,
Ól. Ólafsson, síra Eggert Pálsson, Stefán
Eyfirðingur og síra Einar Þórðarson.
Óhætt er að fullyrða, að mál þetta
verði eigi útkljáð á þingi, enda mun sú
naumast tilætlunin, bó að það sé látið
skyggnast ÍDn í þingsalinn, og fái kurt-
eislegar viðtökur, hjá sumum óefað að
eins í orði.
Ríki Bachusar gamla er enn voldugra
hér á landi, en svo, að því sé nokkur
verulegur háski búinn af þessu áhlaupi.
Samþykktir um fjárframlög,
til að bæta lendingar.
I neðri deild hefir Sk. Jhoroddsen bor-
ið fram svo látandi frv. um viðauka við
lög 14. des. 1877, um ýmisleg atriði, er
snerta fiskiveiðar á opnum skipum:
„1. gr. í samþykktum, er geröar ei'u sam-
kvæmt lögum 14. des. 1877, um ýmisleg atriði,
er snerta fiskiveiðar á opnum skipum, er heim-
ilt, að ákveða, að greiða skuli allt að einnar
krónu gjald af hverjum hlut frá sjó, vfir ver-
tið hverja, til að bæta lendingar á því svæði,
er samþykktin nær yfir.
2. gr. G-jald það, er ræðir um í 1. gr., greið-
ist af óskiptum afla, og skal formaðurinn ann-
ast um greiðslu þess. — Að öðru leyti ekulu
í’ samþvkktinni settar reglur um innheimtu
gjaldsins, og má taka það lögtaki á þann hátt,
er segir í lögum 16. des. 1885.
3. gr. Fé það, sem heimt er inn samkvæmt
samþykktum þeim, er getur um i lögum þess-
um, skal vera í ábyrgð sýslunefndar, er sér
um ávöxtun þess á sem tryggastan og hagan-
legastan liátt, og veitir sýsluneíndin fé úr
sjóðnum, er þörf þvkir, til að bæta lendingar
á samþ_vkktarsvæðinu“.
Frv. þetta fær að líkindum góðan byr
á þingi, því að víða er þess brýn þörf,
að lendingar séu bættar, til að tiyggja
lif manna og sjávarútveg.
Afnám gjafsóknarrétts embœttismanna.
Frv. Sk. Th. um það efni var til 1.
umræðu í neðri deild 21. jiíli, og máiinu
þá visað til 5 manna nefndar: Sk. Th.„
Magn. Kristj., H. Þorst., Hermann og
Lárus Bj.
m ii i ...
Brú á Fnjóská.
Þingmenn Þingeyinga vilja verja úr
íandssjóði allt að 25 þús. króna, til að gera
brií á Fnjóská i Þingeyjarsýsln.
BegJugjörðir um notkun haftia.
í neðri deild bera þeir GuW. sýslumað-
ur og J'on frá Múla frarn frv. þess efnis,
að heimila stjórnarráðinu, eptir tillögum
hlutaðeigandi sveitarstjórnar og sýslu-
manns, að staðfesta reglugjörðir um notk-