Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 07.10.1905, Page 1
Verö árganqsins (minnst
S2 arkir) 3 kr. 50 aur.;
irlsndú 4 kr. 50 aur., og
í Ameriku doll.: 1.50.
Borgist fyrir júnímán-
alarlok.
1 L'ppsögn skri/leg, ögild
J nema komin sétilútge/-
anda fyrir 30. dag júní-
6 mánaðar, og kaupartdi
samhliöa uppsögninni
— - |= NÍTJÁNDI Í88AN8CS. =jt ' ^Matiö^ ^ ^
4—|r>«|= RIT S T.T ÓRI: SKÚLI THOBvDDSEN. =M-«- J__________________________________
ÞJOÐVILJINN
M 41.
Bessastösum, 7.. OKT.
19 0 5.
Ifna og lldavélar
selur
Ipristjdn gorgrímsson.
iesfi þjóðraeðis-voði.
— <«f>0 —
Enda þótt 31. gr. stjórnarskrárinnar
segi, að alþingismenn séu að eins bundn-
ir við sannfæringu sina, en eigi við regl-
ur frá kjósendum sínum, munu þó flest-
ir líta svo á, sem það sé engu að síður
siðferðisleg skylda alþingismanna, að virða
vilja kjósenda sinna, og fara eptir kon-
ura, eigi sízt er um stórmál þjóðarinnar
ræðir.
Það er líkt um þá, eins og um hvern
þann urnboðsmann, er hefir ótakmarkað
umboð.
Lagalega getur hvor um sig skuld-
bundið umbjóðanda sinn; en engum mun
þykja sá umboðsmaður reynast vel, er
breytir þvert á móti þvi, er hann veit,
að umbjóðandi hons vill vera láta, né
heldur sá þingmaður, er virðir vilja kjós-
enda sinDa vettugi.
En eins og umbjóðandinn verður að
s;etta sig við gjörðir umboðsmanns sins,
meðan er umboð hans er eigi apturkall-
að, svo verða og kjósendurnir að súpa
seyðið af gjörðum þingmanna, er nota hið
Ótakmarkaða urnboð, sem þingmennskan
veitir þeim, til að breyta þvert á móti
vilja þeirra.
A hinn bóginn dettur e«gum hyggpn-
ULn manni i hug, að trúa aptur umboðs-
manni, er reynzt hefir honum illa, og á
sama hátt verða kjósendur að haga sér,
að því er þá þingmenn snertir, er brugð-
izt hafa trausti þeirra.
Kjósendur verða að varast, að trúa
þeiin mönnum fyrir þingmennsku-umboði
aptur, hversu fagurlega sem þeir kunna
þá að tala, rétt á rneðan verið er að
ginna út atkvæðin.
„Brennt barn forðast eldinn14, og slík-
um mönnum ætti kjósendum að vera
v«rkunnarlaust að sjá við, og hafDa þeim
þvi afdráttarlaust, jafn skjótt er færi býðst.
Auðvitað eigum vér hér eigi við það,
er þingmaðurinn fer í bága við vilja kjós-
andanna í einhverju smámálinu, er litlu
varðar.
En í stórmálunum, er varðaheill lands-
ins, eða sjálfstæði, verða kjósendurnir að
vera vel vakandi, og krefjast þess hik-
laust, að farið sé eptir vilja þeirra, en
hitt eigi látið sitja í fyrirrými, að þókD-
ast vilja valdhafanna.
Þá þingmenn, er virða eiriskis vilja
þjóðarinnar í slíkum málum, má alls ehki
endurkjósa.
Og kjósendur geta gert meira, og þeir
eiga að gera meira, er svo ber undir.
Þeir eiga að lýsa vanþóknun sinni á
athæfi þingmannsins þegar i stað, án þess
að biða kosninganna, og skora. á hann,
að leggja tafarlaust niður þingmennskuDa,
svo að þeir eigi kost á því, að kjósa sér
þegar annan þingmann, er virðir óskir
þeirra, og fylgir því fram á alþingi, sem
þeir vilja vera láta.
Því betur sem þjóðin vakir yfir því,
að þingmennirnir séu bergmál skoðana
hennar á alþingi, þvi nær komumst vér
því takmarki, að það verði í raun og veru
þjóðin sjálf, eða meiri hluti hennar, sem
ræður málum sínum.
A hinn bóginn er það beint rothögg
alls þjóðræðis að þingmenn skoði sig,
sem einskonar óháða smá-kónga, meðan
er kosningatími þeirra stendur yfir.
Þeir telja sig þá að engu leyti þurfa
að fara að vilja þjóðarÍDnar fremur, en
þeim þóknast í þann eða þann svipinn,
íþyngja henni með álögum, að henni'forn-
spurðri, virða sjálfstæðiskröfur hennar að
vettugi, er svo býður við að horfa o. s. frv.
Slíkar skoðanir mega því fyrir engan
mun ná að festa rætur.
En gjörðir síðasta alþingis, bæði í rit-
símamálinu, undirskriptarmálinu o. f 1.,
sýna ljóslega, að meiri hluti alþingis,
stjórnarliðið, er á mjög hættulegri braut
i þessu efni, þvi að aldrei hefir meiri
hluti þingsins fótum troðið, og lítilsrirt,
vilja þjóðarinnar greinilegar, en stjórnar-
liðið gjörði.
Það er því brýn nauðsyn, að tekið sé
fljótt, og alvarlega, i taumana, svo að
eigi sé lengra gengið inn á þessa óheilla-
brautina, sem þjóðræðmu hér á landi staf-
ar svo afar-mikill háski af.
Kjósendur þeirra þingmanna, er lítils-
virtu vilja þeirra í stórmálum þjóðarinn-
ar á síðasta alþingi, og roöttu meira, að
gera vilja ráðherrans, þurfa því að taka
þá pilt-a rækilega til bæna, og skoraáþá,
ad lefjgja tafarlaust niður þingmennskuna.
Þjóðin verður að sýna það sem ótví-
ræðlegast, að hún metur þjóðræðið svo
mikils, að hún lætur ekki að sér hæða,
þegar því er misboðið.
Og það er lofsvert, að í ýmsum kjör-
dæmum hafa menn þegar brugðið rösk-
lega við, og krafizt þess, að þingmenn-
irnir afsöluðu sér umboðinu, sem þeir
misbeittu svo herfilega.
Það sýnir, að menn eru vakandi, og
skilja vel, hvað i húfi er, og hver iífs-
nauðsyn það er þjóðfélagi vorn, að þjóð-
ræðiskröfunni sé fullnægt.
Á því byggist framtíð landsins öllu
fremur, og það verður bæði þing og stjórn
að viðurke^na í verkinu.
Burt með alla ráðherra-þjóna af þing-
inu, er lítilsvirða vilja þjóðarinnar!
Og burt með hverja þá stjórn, er eigi
lætur vilja þjóðarinns^ stjórna gjörðum
sínum.
Það er hlutverk kjósendanna, að kenna
þingi, og stjórn, þessi fræðin, svo að þau
aldrei gleymist.
Frá útlöndum
(eptir Marconiskeytum 25.—29. f. m.|
Marokkomálið. Um það mál eru á
döfinni samningar með Frökkum og Þjóð-
verjum, en þykir all óvænlega áhorfast.
Færa Þjóðverjar sig æ lengra upp á
skaptið nfeð kröfur sinar, og rekur hvorki
né gengur með samningana.
Friðarfundur. Rússakeisari ráðgerir
að boða þjóðhöfðingja á annan friðarfund
í Haag. Vill Booseirelt forseti að hann
gangist fyrir því, með því að hann hafi
boðað til fyrra fundarins, 1898.
Sprenging í Kína. Þegar kinverska
umbótanefndin var að leggja á stað frá
Peking, í ferð, er fyrirhuguð var, um
heiminn til að kynna sér stjórnarfyrir-
komulag annara landa, var sprengd kúla
i járnbrautarvagni beim, er nefndinni var
ætlaður. Misstu 4 naenn líf og tuttugu
urðu sárir. Wu Ting Fang, fyrverandi
sendiherra Kínverja í Washington, særð-
ist litið eitt, ea sá er verkið vann, tætt-
ist i sundur. Sprenging þessi veldur þvi,
að menn eru hræddir um líf manna við
hirðina og annara embættismanna.
Gyðingar á Póllandi. Laugardaginn
23. f. m. umkringdi lögreglan skemmti-
garða alruennings i Varsjá og lokaði þeim.
Þar voru nokkur þúsund Gyðinga að
ganga sér til skemmtunar, með því að
þá var sabbatsdagur þeirra. Var leitað á
hverjum manni oig 200 teknir höndum.
Roosevelt forseti er að undirbúa boð-
skap til sambandsþingsins, verður þar
farið fram á alsherjar umbætur og endur-
skoðun á lifsábyrgðarmálum og eptirlit
með þeim, svo og um járnbrautarfargjald
og flutningsgjald. Enn fremur um við-
skipti Bandaríkjastjórnar við Venezuela.
Þjóðfundur á Rússlandi. 18. f. m.
komu sveitanefndir og borgarafulltrúar
úr öllu Rússaveldi saman á þjóðfund í
Moskva.
Samband Ungverja. Framkoma Aust-
urríkiskeisara gagnvart nokkrum ung-
verskum fulltrúum, er nýlega sóttu fund
hans, hefir sameinað alla ungverska flokka
gegn þjóðhöfðingja sínum. Foringjar sam-