Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.04.1907, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 10.04.1907, Blaðsíða 3
XXI., 15.—16. I? J Ó ÐTILJIN.V. 59 ■ónunrii er rúbin-steinn, sem er á stærð YÍð hænuegg. — Belti, sett demöntum, sem vegur 18 pd., er talið uokkurra millj. króna virði. — Einn dýrgripurinn er sverð, og eru slíðriri al-sett demöntum, og er sá gripur metinn 9 millj. króna; og margt er þar fleira góðra gripa. — — — Bandarrkin. Afskapleg flóð voru i Vestur-Virginíu í marzmánuði, og gerði þ>að 100 þús. manna atvinnulausa, en 30 þús. húsnæðislausa. — Eignatjónið er met- ið 10 millj. dollara. Einn milljóna-eigandinn í Bandaríkj- unum, Jasper Newt.on Smith að nafni, hefir nýlega reist lieljar-mikið likneski af sjálf- um sór, þar sem hann hefir kosið sér grafstæði. Annar milljóna-eigandinn i Bandaríkj- unurn, Frederik Weyerhauser *»ð nafni, hvarf í öndverðum marzniánuði, og hefir ekkert til hans spurzt. — Hann er talinn „timbur-kongur“ Bandamanna, þviað hann á meira skóglendi, en nokkur annar. Vatnsveitingar í Flóanum. Danski verkfræðingurinn Karl Ihal- bitzer, er dvaldi hór á landi síðastl. sumar, til þess að raunsaka, hvernig vatnsveit- ingxtm yrði haganlegast komið við í Fló- anum, og á Skeiðunum, í Arnessýslu, hefir í marzmánuði þ. á. látið prenta skýrslu um rannsóknir sinar. Að stærð eru Skeiðin, og Eióinn, aust- an frá Þjórsá, og vestur að Hvítá og Olfusá, milli Vörðufells og sjávar, alls ulli 8^/a ferhyrnings miia. — Svæði þetta er að mestu ein flatneskja, að eins með örfáum hæðum, og skiptir Merkurhraun þvi í tvennt. — Meginhlutinn af sv.eði þejsu er Flóinn, sem er ein flatneskja, nema umhverfis Villingaholt, og haliar mót suðri; hallinn all-viðast frá 1: 800 til 1: 500. Að því er áveitu á Skeiðin snertir, regir hr. Thatbitzer, að hún geti eigi komið til neinna mála, fyr en sandfokið, sem þar er, sé teppt; en til þess sé áveit- nn eigi einhlit, heldur verði að rækta þar mel o. f 1., sem hagkvæmast sé. — En er til áveitunnar komi, verði hagan- legast, að veita vatni úr Þjórsá. Að því er til Flóa-áveitunnar kemur, gerir hr. llialbitzer áætlun um, að hún muni kosta 600 þús. króna, og telur hann hentugast, að veita vatni úr Hvitá, er tekið sé beint fyrir norðan Brunastaði, þvi að þar standi vatnið svo hátt, að vatninu megi þá einnig veita umhverfis bæinn Heyki. Rannsóknir hr. Asgeirs Torf'asonar, sem skýrt er frá í ritlingi hr. Thalbitzer’s, sýna, að í jökulvatninu er mikið af kalí og fosfori, enda hefir reynzla manna hér á landi, þar sem jökulvatn hefir verið notað til áveitu, einnig sýnt, að það reyn- ist mjög vel. Að því er framkvæmd fyrirtækis þessa snertir, segir hr. Thalbitzer, að allt veltí á þvi, að féð fáist með þolanlegum kjör- um, og að fólki fjölgi svo í Flóanum, að að menn geti hagnýtt sér hin auknu gæði landsins. Jarueigendam í Flóanum telur hann vera það um megn, að leggja frám fótil áveitunnar af eigin rammleik, og muni því hyggilegast, að landið leggi frara fóð, gegn því að fá eignarráð yfir nokkurum hluta landsins. — Sanngjarnt telur hann. einuig, að sveita- og sýslusjóðir leggi fram nokkurn hluta kostnaðarins, þar sem þeim aukist tekjur, er fyrirtækið sé kom- ið á laggirnar. — Tillag þetta ætlast hann þó eigi til, að nemi miklu, enda gerir hann yfir höfuð eigi grein fyrir því, hve mikið hverir málsaðilar leggi fram. Til þess að fjölga fólki i Flóanmn, gjörir hr. Karl Thalbitzer það að tillögu sinni, að landssjóður gefi þeim mönnum, er vílja taka sér bólfcstu í Flóanum, kost á landi til eignar, með vægum borguuar- skilmálum, eða heiti þeim, er land taka þar til ábúðar, hagkvæmum leigukjörum fyrstu áriu, því að eigi sé þessaðvænta, að fyrirtækið svari vöxtum, ef eigi sé séð fyrir fólksfjölguninni. — Hr. Tíial- bitzer tekur i því efni svo djúpt í árinni, að liann gerir jafn vel ráð fyrir þvi að vextirnir hafist naumast upp obeiniíriis, þótt langt sé litið fram i tímann, ef eigi sé séð fyrir því, að fólkinu fjölgi þar, sem þörf gjörist. Það virðist því sízt vanþörf á þvi, að ínál þetta só rækilega athugað, allt vel í garðinn búinn, og að engu flanað, ef það á að verða að þeim notum, sem til er ætlast. — En víst er um það, að hór er um það fyrirtæki að ræða, er veitt getur afar-mörgum fjölskyldum viðurværi, og því fýsilegt að koma því í framkvæmd. 164 heyrði það nú reyndar heldur ekki“, svaraði Hollister, „en jeg sá það þeim mun betur. Hann sneri bakinu að þór, en ekki að mér, er þú barst upp spurninguna, og lýsti sór þá svo napurt, og dauðlegt hatur í andliti hans, að jeg var í engum minnsta vafa um, að það var fjand- maður föður þíns, er hjá okkur stóð. — Hefði samtalinu verið haldið áfram, hefði það eftil orðið enn augljósara, að hann var sekur, og það kaus eg ekki.“ „Að hann væri sekur? Við hvað áttu, Hollist.er? Nú ert það þú, sem ert æstur, en ekki jeg. — Hvaða sök áttu við?“ „Heyrðu mér nú, Stanhope11, mælti Hollister. „Nei; horfðu ekki á dyrnar, því að jeg 'iæt þig okki fara hóð- an, fyr en jeg er þess fullvís, að hann er farinn burt úr húsinu. — Jeg er sannfærður um, — að svo miklu leyti sem maður getur verið sannfærður um hlut, sem maður hefir eigi séð með sínum eigin augum —, að þessi maður hefir eigi að eins komið með skainmbyssuna, heldur hefir hann einnig hleypt úr henni skotinu, er varð föður þín- um að bana. — Faðir þinn hefir verið myrtur, og Deer- ing ofursti ei morðingi hans. XXVII. kapítuli. Nœturhjal og afleiðingar þess. María var svo heppinn að koma heim, áður en Flora og Stanhope, komu. — Hún fiýtti sór nú, að náíbréfin, sem hún hafði skilið eptir á skrifborði Floru. Henni fannst nú litla, snotra herbergið sitt vera einskonar höfn friðarins, er hún lengi hafði þráð. Tilfinningarnar brutust nú fram, sem hressandi tára- istraumur. 153 Að svo mæltu kyssti hann á enni hennar að skiln* aði, ýtti henni hægt frá sér, og flýtti hún sér þá brott. En er hún opnaði útidyrahurðina, og sá, að vagn Stanhope’s stóð enn hjá lyfjabúðinnþhinu megin viðgötuna, varð henni eigi litið bylt við. Hún sá, að tveir menn stóðu þar, og voru að spjalla saman, annar þeirra var Stanhope, en hinn maðurinn var — fjandmaður fÖður hennar, bólugrafni maðurinn, er henni stóð eigi lítill ótti at. Hún sá menn þessa síðan setjast upp ivagninn, og vagnion aka brott. En er Maria hafði náð sór, eptir þettr, og kyrrð var komin á á torginu, heyrði hún, að hvislað var að henni: „Jeg hefi látið dyravörðinn fara að útvega vagn, dóttir góð! Segðu ökumanninum, að aka svo hratt, sem unnt er, svo að þú sért komin heitn áður en hr. Whioe“. XXVI. kapítuli. Sókn og vörn. Eins og áður er getið, hatði Stanhope látið aka sér til Markham-torgs, til þess að vita, hvort hann gæti eigi komizt á snoðir um, hvar maður sá væri niður kominn, er hann hugði, að einn gæti gefið upplýsingar um atvikin við dauða föður hans. En er hann hringdi útidyrabjöllunni á húsinu nr. 6 við Markham-torg, og nýi dyravörðurinn, Kurtis, kom til dyra, en eigi frú Braun, þóttist hann vita, að þar myndi engar upplýsingar fáanlegar. En er hann ætlaði að fara að aka af stað aptur heimleiðis, sá hann risavaxinn mann, mjög bólugrafinn i andliti, standa í dyrunum á lyfjabúðinni.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.