Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 17.04.1907, Síða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 17.04.1907, Síða 3
XXI. 17. Þj ÓBYILINN. 67 I»in gr oís-áskorun hafa kjósendur í Neshreppi innan Enn- ;is nýlega sent til ráðherrans. Kjósendur í Neshreppi hafa enn frem- ur sent þingmanni sinum „dánumannin- j uniu Lárusi Bjarnasyni áskorun um að I segja af sér þingmennsku, svo tímanlega, að hægt verði að ganga til kosninga fyr- ir næsta þing, ef ráðhorrann verður ekki "við áskorun þeirra. Því miður verður liklega hvorugum þessara áskorana sinnt, en vonandi hugsa kjósendur i Snæfollsnessýslu þeim Hann- -esi og Lárusi þegjandi þörfina við næ9tu kosningar. Úi' Dýrafirði. er „Þjóðv.“ ritað 29. marz síðastl.: „Það eru -engar hreytingar á fróttum héðan, hvað snertir tíðarfarið, síðan um jólaföstu má heita, að hafi verið sama lotulausa ínnistaðan fyrir allar skepn- •ur, þá sjaldan blota hefir gert á vetrinum, hef- ir á sama sóiarhring gert snjókomu ofan í, með frosti, og tekið strax fyrir þau litlu snöp, sem komið hafa á_stöku stöðum, enda heyrist nú nokk- uð víða mikið um kvörtun um heyskort, það ,má lengi ganga að ámæla mönnum fyrir van- hyggni með of mikinn ásetning, en þegar Uross geta nálega ekkert létt úr á allan veturinn frem- ur en kýr og lömh, og allt verður að standa við fulla gjöf um og yfir 20 vikur, þá er ekki að furða þó sneyðist um hey á slægnalitlum jörðum og þar um víðast einvirkja fyrir vinnu, því um hjú og kaupafólk er lítið að tala nú orð- ið á mörgum stöðum, og sá búskapur bænda, sem hér á sér víðast stað, getur ekki borgað þá rándýru vinnu,,sem einstakir menn kunna að gefa kost á, ef annars nokkurt handarvik fæst unnið. Svo er fyrirkomuiagið um land allt, þegar hver maður, sem i brækur klæðist setur upp 14 kr., máske upp að 20 kr. á vikuna, og fæði og þjón- ustu þar að auki, þá er heystráið komið í sæmi- iegt verð hjá bóndanum, sem fær opt ekki meira en 1 og 2 hesta af þurkuðu heyi, eptir mann- ió° <gMu) SPIRITUS i6°. Ivorn-Spiritus (Kristai tœr) fæst hvergi annars staðar, en í YÍllVGrzl- un Ben. S. Þórarinssonar Laugaveg 7. Reykjavík. Jafngóður spiritus hefir aldrei fyrr til landsins komið. Eeynslan er sannleikur. inn á dag, þvi á snöggum slæjum eru engin uppgrip, enda þótt fullvel að verki verið, þannig er nú víða ástandið, þegar vel er að gáð, en einyrkinn, sem opt er, verður að vera sjálfur við atla heyvinnuna, slátt, rakstur, bindingu og hirð- ingu. Hann gotur ekki afklofið að fá hey fyrir margar skepnur í vondum vetri, nema þá að setja ekkert á, eða sama sem ekkkert, og á hverju á þá að lifa? Þó bágt þætti fyrir 80 árum, þá er líf og búskapur margra manna orðin hungurs líf hjá því sem þá var, og allra verst síðan báta fiskiríið var eyðilagt, því þá fengu nllir eitthvað frá sjó, og margir að miklum niun. Það eru hinar sýnilegu og áþreifanlogu framfarir aí þil- skipunum, sem allur fjöldinn af aluienningi hef- ir á Vestfjörðum; það eru að vísu nokkuð margir menn, sem stunda afla á þilskipum, og hafa gott af þ ví, en hvað er sú tala stór-á móti þeirri, sem engin tök hafa á að fara frá heimilum sínum allan þann tima, sem afli er stundaður á þil- skipum, og sem ekki hafa ráð á neinum manni að fara fyrir sig, það er eitt af þvi marga, sem þyrfti að fá nákvæmar skýrslur um, og myndi þá sjást bezt, hvort talan yrði ekki ærið stór, þeirra, sem alls ekkert hafa af sjáfar afla að segja og ekkert af að lifa nema fáar skepnur með iít- illi fyrir vinnu, þá yrði að likindum ljósara hvað sterkt er gjaldþol sumra manna, sem verða þó að bera þjóðarbyrðina að sínum hluta, opt miklu meira en nokkur tök eru til. Byrði þjóðarinnar er fleira en skattar og gjöld til landssjóðs, það er hið allra minnsta brot af öll- um útgjalda bálki íslenzku þjóðarinnar, vestir og ranglátastir eru þeir tollar, sem kaupmenn leggja á sínar vörur, þvi tollana leggja þeir ekki einungis á þær tollskyldu vörur, heldur og á allar þær nauðsynjar, sem óhjákvæmilega verður að kaupa, en það er Jöggjafarvaldinu ofraun að ráða við. Það má líklega teija með framför, að mótor bátum er heldur að fjölga hér, einkum i Þing- eyrarhrepp, enda er þess von þar, þar standa Haukdælir fremst. í flokki með dugnað og mann- I > dáð flestum fremur, og verið er að smíða einn í mótorbát fyrir verzlunarstjóra Carl Proppé á ; Þingeyri og nokkra aðra, sem eru í félagi með f honum: Pyrir smíðinni er Lárus skipasmiður Björnsson, sem lært hefii hjá hagleiksmanninura í Bjarna Þorkelssyni í Reykjavik, og verður sá j bátur allur með þilfari, fagurt skip og mikiö, j eptir því sem þeir bátar. gerast, vandaður mjög j að efni og smíði, enda bera allar smíðar Lárusar vott um mjög vandaðan og verklegan frágang, þótt enn sé hann ungur að aldri. Það hörmúlega slys vildi til, mánudaginn 11. marz, að Guðmundur bóndi Engilbertston áBirnu- stöðum í Núpssókn í Mýrahrepp, missti son sinn, er Halldór hét, nærri fullra 19 ára að aldri, á þann hátt, að pilturinn var á heim leið innan af sveit, og hafði snjóhongja fallið á hann ofan utan til í hamrinum milli Arnarness og Birnustaða, en þar er mjög tæp leið og hefir hann orðið að ganga undir hengjunni; ofsaveður var þann «lag af suðri með rigningu fram i rökkrið, en þá hleypti á kafaldshríð, og hefir vatn verið komið í snjó- inn. Tveim nóttum síðar fór faðir piltsins að leita hans og sá staf hans uppistandandi þar ná- lægt og hund hans lifandi, sem ekki hefir vil jað yfirgefa hann, en sagt er að ofan á líkinu hali verið nær tvegga álna þykkur snjóskafl, s«un sprungið hafði og fallið á hann ofan, en hund- I urinn hefir líklega runnið á undan og því ekki orðið fyrir hinu sama. Bessastaði'• 17. april 1907. Tíðarfar. Góð vorveðrátta hefir verið undan- farna daga, alveg rigningarlaust og heiðríkja stundum. 2 fyrirlestra um páfann og katólska guðs- menn hélt Þorsteinn Björnsson, cand. theol. ný- legá í Reykjavík. Var gerður hinn bezti rómur að máli hans. A skirdag vígði ,,kristilegt félag ungra manna“ nýtt samkomuhús við Skólastræti. Var þar margt manna samankomið. Ræður héJdu: dó- Cent Jón Helgason og síra Friðrik Priðriksson. 168 hættan var svona yfirvofandi, því að hann hlyti þá að ihafa gert einhverjar ráðstafanir sér til varnar. „Og þú ímyndar þér, að fjandmaður hans hafi fal- •izt í svefnherberginu allan tímann“, mælti Stanhope. _Já, að honum óaðvitandi“, svaraði Hollister. „1 stað þess að fara beint út, hefir hann farið inn í svefn- herbergið, er hann gekk brott, og hefir faðir þinn eigi veitt því eptirtekt, þar sem hann var þá önnum kafinn • og var annars hugar. — En þegar hann kom aptur úr kirkjunni, hefir hann rekizt á fjandmann sinn, og eigi getað forðað sér“. „Sé þetta rétt“, svaraði Stanhope, „ætti faðir minn alls eigi að hafa farið inn í svefnherbergið allan þenna tíma. — Þetta er eigi óhugsandi; hann frestaði aldrei því sem gjöra þurfti, og hefir því klætt sig brúðguma- fötunum þegar, er hann kom frá morgunverði. — Svo hefir hann ritað bréfin, og þegar jeg vitjaði hans, stóð hann upp frá skrifborðinu sinu, greip hattinn og glófana sina, og varð mér samferða, án þess að mæla orð frá munni“. „Hann hlýtur að hafa ímyndað sór, að fjandmaður hans væri löngu farinn brott úr húsinu“. „En hvernig gat ofurstinn skotið úr skárnmbyssunni hafi hann fengið vesliugs föður tnínum hana fjórum kl. tímum áður?“ „Faðir þinn lrefir ef til vill hafnað gjöfinni“, mælti Hollister, „og ef til vill hefir ofurstinn að eins fekið skammbyssuna upp, og látið hana svo renna ofan í vasa sinn, og það þyki mór Hklegast“. „Og þegar menn æddu inn á skrifstofuna, er skotið heyrðist“, mælti Hollister enn frernur, „hefir hann getað 165 Var nú baráttunni loks lokið? Átti hún nú eigi að fá að halda þessu heimili? Mátti hún nú eigi fylgja löng- un hjarta síns, og setja upp gullhringinn, sem Stanhope hafði gefið henni? En hvar var Stanhope, og hvernig gat staðið á þvi, að hann var að tala við fjandraaun föður hennar? Það greip hana einhver hræðsla, og hún lagði eyr- un að, ef einhver hávaði heyrðist. Þegat- klukkan var langt gengin til ellefu, kom Flora heim; en það var komið miðnætti, er hún heyrði Stan- lrope koma upp stigann. En hann var ekki einn! Hver gat það venð, sem með honum var? Glat það verið, að það væri bólugrafni maðurinn? Hún spratt upp, og gekk fram að hurðinni í gang- inum, en brosti þá að hræðslunni í sjálfri sár, því að hún heyrði, að Stanhope nefndi þá nafn Hollister’s aptur og aptur Hvað Hollister gat verið að vilja, þegar orðið var svona framorðið; vissi hún ekki; en ástvinur hennar var heill á húfi, og fór hún því að hátta, og var nú afar- þakklát í huga. Hún sofnaði brátt, og drevmdi um töfrandi ástar- sælu; en vinirnir sátu nú í herhergi Stanhope’s, og töl- uðu þar um alvarleg málefni. Eins og áður er getið, bafði Hollister látið í ljósi þá skoðun sína, að hr. White hefði ekki verið einn, er hann andaðist, en að Deering væri valdur að dauða hans. Þetta hafði fyrst haft mikil áhrif á Stanhope, en hann var nú farinn að jafna sig, og hlustaði nú með at- hygli á röksemdir þær, er vinur hans hafði fram að færa.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.