Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 23.04.1907, Blaðsíða 2
70
Þ JÖÐTILJINN
mýktina öllu erleudu, sem alþýðan sýn-
ir þeim.
Einkunnarorð fyrir lýsingu á þessu
lundarfari Islendinga gætu verið þessi:
„Tvisvar hefir hundur þinn runnið til
Róms og mundi renna hið þriðja sinn“.
Uppruni þess er auðþekktur. Það er
brennimark ánauðarinnar.
Afleiðingin er auðsæ. Hún er lítils-
virðing.
Nú væri eigi all-lítið undir því kom-
ið, er hinir dönsku gestir koma í sumar,
að íslendingar sýndu þeim höfðinglega
gestrisni, að þeir yrðu alúðlegir og örlátir
húsbændur á heimili sinu, en ekki auð-
mjúkir þrælar.
Fleiri hafa auðsjáanlega tekið eptir
þessum skaplesti tslendinga en jeg og
bera kviðboga fyrir því, að Bjarni verði
sannur að skreitni, fyrir vísuna: „Kongs-
þræiar islenzkir aldregi voru“. Það sé
jeg á visum Stefáns G. Stefánssonar, helzta
skálds Yestur-íslendinga. Þær eru svo:
Þeir sögðu áður íllt um hann
sem upphafs-lið í prett og tjóuum'.
Og niðri fyrir flostum brann,
hvað fast i sig hann læsti klónum.
Þeir sku ’ann Auð með eigin sjón —
og af því fór þoim iika’ að volgna —
sem átti marga milljón,
að miklu leyti frá þeim stolna.
En bærinn hafði búizt um,
þvi hezta tjaldað á hans götum.
Með fólk i þvögu’ og þyrpingum,
öll þjóðin gekk í spari-fötum.
Og kropið hafði þegn og þing,
með þakkargerðum, við hans stóla,
og blessun fyrir blóð-pening —
hans bóta-gjöf til kirkju’ og skóla.
En þakklætið ei þangað rann,
né þrotin björg, sem á bann sníkti. —
Að geta orðið eins og hann,
var óskin, sem hjá flestum rikti!
Því sérhvert vald og upphefð er
oss öfundsvert, hvað ljótt sem grunar —
og annars vonzka er verst sem þér
þinn vesaldómur fyrir munar.
Að stela aldrei fólki frá.
Er fornyrði, og ílit að sanna.
En það. som falsið fellur á,
er fyrirlitning þorra manna. —
Nú fanst mér grenja glópur hver,
sem gapti uppi’ á stétt og haugi:
„Sko, allt vort fjas um flekk á þér
var fyndni tóm — og sagt í spaugiu.
Námsmenn vorir i Khöfn bera kvíð-
boga fyrir því sama. Jeg hef heyrt, að
þeir hafi nýlega leikið gamanleik, sem
lýtur að þessu. Er þar hennt gaman að
þessari þjóðaratiðmýkt. Meðal annars er
lítið siglt skáld látið flytja konungÍDum
kvæði. Þar í er þetta:
Glamntr í gómstáli,
gneistar af hugbáli,
verður að vátáli
vegurinn ginnháli.
Fimbul fónandi
flytjum sónandi,
hvelt og hrynjandi,
hljóuistef drynjandi.
Heilsar mildingi.
mætum sildingi,
dýrum döglingi.
dönskum öjlingi
kona, mey, móöir,
maður, son, bróðir,
aular og fróðir,
íllir og góðir.
Jöfur er kostflestur
og kynbeztur,
eldi áls hlesstur
sem æðsti prestur.
Fjáður fær sigur
með fimbulvigur,
hraustur, hár, digur
og hermannligur.
Fylkir hinn fulldanski!
fáikinn er kykvendi.
Enginn etur hann.
ekkert getur hann.
Sjáðu svífandi
segulblaktandi
Dannebrog drottnandi
dingla yfir íslandi.
Votling hvað veldur,
vatn, loft, jörð, eldur,
grasið, grjót, keldur,
garðar og sjálfheldur
dæsi og háhlymji,
hvæsi og þrárymji,
þræsi og gljáglymji,
glæsispá ymji.
Yel sé þeim, sem minna mörlandann
á, að hann getnr sýot gestum sínum fulla
hæverzku, þótt honum vaxi ekki rófa.
Eysteinn.
Ritsímaskeyti
til „Þjóðv.“
K.höfn 16. apríl.
Rússland.
Þrætan milli Stolypins og Golivins
er útkljáð.
Bretland.
I gær var hafinn nýlendumálatund-
urinn i Lundúnum. Við þá athöfn hélt
Bannerrnann ræðu.
Fundin sækja allir ráðaneytisforsetar
brezku nýlendanna: Botha héit ræðu á
hollenzku og vottaði Englendingum holl-
ustu Transwaals búa.
Svíþjóð.
I fyrra var stofnað félag i Gautaborg,
er ætlar aö reka fiskiveiðar við Island.
Þet.ta félag sækir um 50 þús. kr. úr ríkis-
sjóði.
Danmörk.
A. T. Möller hefir höfðað mál gegn
Tuliniusi.
Konungshjónin fara til Kristjaníu í
lok þessa mánaðar.
Khöfn 18. apríl kl. 6 e. m.
Frá Danmörku.
I dag var rikisþinginu slitið. Ekki
var neitt útkljáð um sveitarstjórnarlaga-
frumvarpið og tolllagafrumvarpið.
Hannes Hafstein og Jón Magnússon
korriu hingað á þriðjudaginn. Hafstein
var i konungsboði í gær.
Umbótaflokksmenn hafa tilnefnt. í milli-
landanefndina: A. Thomsen, forseta ífóiks-
þinginu, og A. NlelseD, enuurskoðunar-
mann ríkisreikninganna.
Sameinaða eimskipafélagið ætlar að
senda nýtýzku gufuskip, með rúmi fyrir
100 fatþegja, til íslands, um leið og
„Birma“ fer.
Frá Mexieo.
Mikill landskjálfti í Mexico. Margir
menn hafa týnt lífi og margir hlotið meiðsli.
XXI., 18.
Khöfn 18. apríl kl. 10 e. m.
Frá Danmörku.
34 þingmenn úr ríkisþinginu hafa gef-
ið sig fram til Islands fararinnar. Þeir
eiga að vera 17 úr landsþinginu, en 23
úr fólksþinginu.
Meðal þingmanna úr fólksþinginu má
nefna: A. Thomsen forseta, Anders Niel-
sen, endurskoðuDarmann ríkisreikning-
anna, Bluhme kommandör, Blem ogZahle.
Meðal þingmanna úr landsþinginu:
Bramsen fyrverandi ráðherra, AlfredHage,
Goos og Madzen Mygdal, endurskoðun-
armann ríkisreikninganna. Skrifstofustjóri
ríkisþingsins verður með.
Jafnaðarmenn hafa ekki ákveðið onn
þá, hvort nokkur úr þeirra flokki taki
þátt í förinDÍ, eða ekki.
Khöfn 19. apríl kl. 7. f. m.
Jafnaðarmenn ætla ekki að vera með
í Islandsförinni.
Þeir hafa tilnefnt í millilaudanefnd-
ina P Knudsen.
Dauöasyndin.
Leikfélag Reykjavíkur er nú að leika
leik með þessu nafni. Er höf. þýzknr og
heitir fullu nafni Otto Ernst Schmidt, en
höfundar nafn han3 er Otto Ernst.
Efni leiksins er barátte ungs gáfu-
manns við þjóðlygar og hræsni. Eru það
trúmálÍD, sem höf. tekur hér til meðferð-
ar og liggur efnisvalið í því, að Þjóðverj-
ar eru langtum þrÖDgsýnni en vér í þeim
málum og óþolsfyllri. Hér álandimundi
liggja miklu nær að taka eitthvað atinað
ástfóstur þjóðlyga og hræsni. Þó berum
vér svo mikil kennzl á trúaróþol, að vér
getum vel skilið verkið. Er og leikritið
vel gert að öllu leyti. Mannfélagið læt-
ur ekki á sér standa að heyja féránsdóm
yfir honum og gera manoorð hans og at-
vinnu upptækt. Þá drýgir haon dauða-
syndina til þess að þjarga lífi konunnar
sinnar. En dauðasyndin er að selja sannfær-
ing sína. Dauðinn einn máhreinsa tuinn-
ing þess manns, sem slíkt hefir gert, það
er að segja ef hann býr sér sjálfur bana.
Og dauðinn þaggar niður samvizkubit
hans af því að dauðinD þaggar allt. En
heillar æfi starf til yfirbótar er hið eina,
sem getur þvegið skugga dauðasyndar-
innar af sál maDnsins. — Þetta er sýnt
í leikuum, Jens Waaye leikur þenna mann
mjög vel og víða ágætlega. Skal jeg
nefna sem dæmi, þegar hann er að selja
sig, er reiðin verður öllu öðru yfirsterk-
ari. Þetta varð svo eðlilegt hjá leikand-
anum að áhorfendum hnykkti við, alveg
á sama hátt eins og verður, þegar menn
sjá einhvern verða ofsareiðan í alvöru.
Quðrún Indriðadbttir leikur konuna mjög
vel. Verður ekki á betri leik kosið en
hjá henni, þar sem bamið er að deyja
og hún vanmegnastí bardaganum. Tengda-
foreldrarnir eru rétt vel leiknir. Það gera
þau Þóra G-uðjohnsen og Jón Kristjánsson.
Hlutverk hennar er lítið, en laglega Jeyst
af hendi. Hann hefir ekki getað náð vel
alvarlegu sniði verzlunarherrans, sem er
guðsþjónum þóknanlegur og sér um sinn
J