Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.06.1907, Blaðsíða 1
Verð árgangsins (minns I
60 arkir) 3 kr. 50 aur.;
trlendis 4 kr. 50 aur., og
í Ameríku doll.: 1.50.
Borgist fyrir júnimán-
aðarlok.
ÞJÓÐVILJINN.
— 1= Tuttugasti og íyesti ákgangub. =1-.=—
|= RITSTJÓKI: SKÚLI THORODDSEN. =»■
Uppsögn skrifleg, ógild
nema komið s'e til útyef-
anda fyrir 30. dag júní-
mávaðar, og kaupandi
I samhliða uppsöyninni
borgi skuld sína fyrir
blaðið.
M 28.
Bessastöbum, 15. JÚNÍ.
19 0 7.
Útlönd.
Til viðbótar við útlendu fréttirnar i
símskeytuDurn, tkal þessara tíðinda getið:
Danmörk. Ný látinn er í Kaupmanna-
böfn merkur þingmaður, K. L. Fogtmann
að nafni.
Dönsk kona, frú Gadd að nafni, hef-
ir nýlega verið sæmd rússneskri heiðurs-
orðu fyrir hreysti og hugrekki. Hún var
gipt rússneskum sjóliðsforingja, er harðist
í ófriðnum miili Rússa og Japana. Kona
hans fylgdi honum og dvaldi með hon-
um í Port-Arthur. Hún stundaði særða
menn með mestu urahyggjusemi og var
einu sÍDni stödd í all-hættulegri sjóorustu.
Dess konar orður hafa að eins fimm kon-
ur fengið áður.
Mjög margir rússneskir flóttamenn
komu í fyrra mánuði til Esbjærg. Þeim
hefir verið vol tekið af dönskum jafnað- |
armönnum.
11. maí brann þriðji hluti þorpsins j
Kristrup, sem er í nánd við ítanders, til j
kaldra kola. Eldurinn hefir valdið miklu
tjóni og 50 fjölskyldur eru húsDæðislausar.
Svíþjóð. ‘26. maí síðastl. voru liðin 200
ár frá fæðingu náttúrufræðingsins Linné.
Hefir því verið mikið um hátiðaböld, eink-
um í bænum Upsala, þar sem Lrané dvaldi j
lengi, sem prófessoi við háskólann þar.
Bretland. Bússneskir uppreisnarmenn
korau í maímánuði (il Lundúna, til þess
að halda þar fund. Allt af eru leyni-
lögieglumenn frá Rússlandi í hæluuum
á þeim.
Mikla undrun og eptirtekt hefir það
vakið, að ein af frægustu leikkonum Breta,
Ellen Terry að nafni, hefir nýloga giptst
ungum AmeríkumanDÍ. Hann er 32 ára,
en hún yfir sextugt. Hún á uppkomin
börn, sem eru eldri, en rnaður liennar.
Stærsta farþegjaskip í heimi er nýlega
hlaupið af stokkuuum í Englandi. Það
heitir „Adriatic“. Lengd skipsins er 690
fet, breidd 75 fet og dýpt 50 fet. Það
er 25000 smálestir og h'»fir rúrn fyrir
4000 farþegja.
Nýlega dvaldi í Lundúnum frægasti
kafari heimsins. Hann heitir Speedy.
Hann stÍDgur sér úr 130 feta hæð og hef-
ir fengið 134 orður, fyrir íþrótt sina. 63
mannslífum hefir hann bjargað og fong-
ið jafn margar orður fyrir það.
Rússland. Mikla gremju hefir það vak-
ið hjá rússneskum ættjarðarvinum, sem
mj-ndað hafa féiög víðs vegar um landið,
að Stolypin hefir bannað þeim að halda
samkomur sínar. Þeir hafa dreift, fiug-
ritum um allt Rússland til að mítmæla
og ávíta þetta atferli.
Eldur kom nýlega upp á járnbrautar-
stöð í Czarskoje Selo í nánd við þau her-
bergi, er keisarinn dvelur í, þegar hann
er þar staddur. Húsbúnað’num, sem var
mjög verðmætur, var bjargað og settur í
geyrnslu í rammbyggðri höll þar í nánd.
Otal verðir voru settir til að gæta hans,
dag og nótt. Samt sem áður var öllu
stolið og skrifað á miða: „Næ9t sækjum
við keisarannu.
VerkmannadagÍDn 1. maí síðastl. neit-
uðu 93 þús. verkamenn að vinna í 236
verksmiðjum í Pétursborg. I Ríga neit-
uðu 15 af 25 þúsundum að vinna. Lög-
reglumenn ætluðu að þröngva mönnum
til vinnu, en var ekki hlýtt. Einn lög-
reglumaður var skotinn til bana, þegar
átti að setja tvo verkaraenn í fangelsi.
Ekki hofir vorkinönnum vorið hognt
í neinni borg í Rússlandi, fyrir framkomu
sína 1. mai, nema í Ríga. Þar á að reka
15 forsprakka í útlegð til (Jralfjallanua,
en 200 hafa orðið að borga sekt.
Allt af lielzt sama stjórnleysið í Odessa.
Einkum verða GyðÍDgar fyrir miklum á-
rásum, sem fyr. Þeir eru meiddir og
drepnir daglega og skotið á hús þeirra.
Allir halda sig inni i húsum og öllum
búðum er lokað. Lögreglumenn livetja
blóðhundana miklu fremur til þeirra ó-
dáða, en hegna þeim fyrir það.
Frakkland. Ekkert varð úr miklu upp-
þoti, sem menn höfðu búizt við, verk-
manuadaginn 1. maí. Þó höfðu margir
safnast saman hjá verkmannasamkundu-
húsinu i Paris og ienti þeim í deilum
við lögregluna, 700 manns voru hneppt-
ir í varðhald.
Ungur maður frá Rússlandi hleypti
nýlega úr skammbyssu, frá þakinu af
götuvagni, á herdeild, sem gekk þar fram
hjá. Samferðamenn hans hentu honum
niður á götuna og þyrptist skríllinn þar
utari að honum og misþyrmdi honum,
svo hann beið bana af. Haldið var að
hann væri stjórnleysingi.
Ný látinn er i Prakklandi merkur rit-
höt'undur, I. K. Huysmann að nafni.
Þýzkaland. Snemma í maímánuði vildi
það slys til, að gufuvagn og rafuiagns-
j vagn rákust á, í nánd við Berlin. 2 menn
j biðu þegar bana, en 4 hlutu banasár, 15
I urðu meira eða minna særðir.
I
3. fyrra mánaðar kom upp eldur í nánd
við höfnina í Hamborg. Mörg vörugeymslu-
hús brunnu. Skaðin rnetinn 4 millj. mörk.
4. sama mánaðar kviknaði einDÍg í
vörugeymsluhúsuni í borginni Breinen.
úegna hvassviðris breiddist eldurinn tölu-
vert út. Skaðinn er metinn 6 millj. mörk.
Herrétturinn í Slesvík kvað nýlega
upp dóm ytír Petersen undiiforingja, fyrir
j svivirðilega meðferð á nýliðum. Hann
var dæmdur í 6 mánaða fangelsi. Peter-
sen þessi er vondur maður og grinnnur.
Sem dæmi má nefna, að hann eitt sinn
neyddi nýliða, sem í ógáti hafði lirækt á
gólfið, til að sleikja það upp.
Belgía. Mikið uppþot var hjá áheyr-
endum á þingfundi í borginni BrússeL
Astæðan til þess var, að stjórnÍD hafði
tekið burt frumvarp um stj'tting vinnu-
tíma. Lauk ekki óróaouin fyr en forseti
var neyddur til að slíta fundi.
Indland. Uppþot og óeyrðir eru í mörg-
um héruðum á Indlandi. Yirðast stúdent-
ar þar vinna mikið að æsingum gegn Eng-
lendingum. Bretar hafa sent her á móti
uppreisnarinönnum og hefir foringi þeirra
verið handtekinn. Margir halda þó, að
það verði til að æsa uppreisnarmenn enn
þá meir. Yirðast horfurnar vera þar all-
ískyggilegar, þó að ekki horfi til eins al-
mennrar uppreisnar og 1857. Ræningjar
og þjófar eru á hverri þúfu og onginn ó-
hultur um líf og limu. 34 ræningjar hafa
þegar verið hándteknir.
Bandaríkin. Læknafundur var nýlega
haldinn í borginni Washington. Prægur
tæringarlæknir, Knoph að nafni, kom með
þá tillögu til lækna, að stytta tæringar-
veikum sjúklingum, sem lægju fyrir dauð-
anum, ptundir, með svefnlyfi. Sjálfur
kvaðst hann gjöra það og áliti það helga
skyldu allra lækna að fylgja dæmi sinu.
Mexieo. I öndverðum maímánuði kvikn-
aði i koparnámu við Yelardena í Mexico.
107 manns biðu bana, en 17 komust lífs af.
Brazilia. Stjórnin í Braziliu hefir bann-
að Louis frá Orleans, sem er ný kominn
til höfuðborgarinnar að stíga fæti sínum
þar á land, þrátt fyrir það að hann er
Braziliskur borgari. Hann er barnabarn
keisarans Dom Pedros, sem var rekinn
frá rikjutn 1889. Hervörður hofir verið
settur til að gæta straDdarinnar í höfuð-
borginni og varna honurn landgöngu.
•........",....
JC>ing,málaívin(lvix* var haldinn
í Stykkishólmi 5. júní. Þingmaðurinn
hafði haft mikinn viðtúnað og ætlaði
alls ekki að láta sigurinn ganga úr greip-
um sér. Fundarboðið var orðið þannig, að
ekki var hægt að skilja það öðruvisi on
svo, að fundurinn væri eÍDungis haldinn
fyrir Stykkishólm.
En þrátt fyrir það þótt Lárus léti stnala
fylgifiskum sínum úr Helgafellsveit, var
samþj'kkt svolátandi tillaga, samhljóða
blaðaávarpinu:
rFundurinn krefst þess, að i ráðgerðri
millilanda nefnd um sambaDdsmál vort
við Dani, verði ekki samið á öðrum
grundvelli en þeim, að Island sé frjálst
sambandsland við Danmörku, og að
kveðið verði á um það með sambands-
lögum, er ísland taki óháðan þátt í,
hver málefni hljóta að vera sauieigin-
leg mál þess og Danmerkur, en að Is-