Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.06.1907, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 15.06.1907, Blaðsíða 3
ÞJOÐVILJINN. 111 XXI., 28. Otto Monsted* danska smjörlíki er bezt. hag sem vildi’ og heillir lýða hverra, 9em að til fekk náð. Yesturlandsins brúða blóm, sárt er þig und svörð að hylja, sú er bót, að herrans vilja npp þú ris við alvalds hljóm. Lifðu sæl i ljóma bliðum, laus við þrautir bak við hel. Drottins til i friði fríðum Farðu kæra Guðný vel. Sighv. Gr. Borgfirðingur. Qtteimspekisprófi. lauk Páll Sigwðísson stud. theol. 29. f. m., með ágætiseinkunn. Próf i rafmagnsfræði lauk nýlega Guðni. Jðnasson Hlíðdal í Þýzka- dandi með ágætiseinkunn. Próf í læknisfrœði hefir Hrefna Finnbogadóttir tekið í Chicago. .Það er fyrsta íslenzka kona, sem það próf hefir tekið. JFyrri Iiluta lœknisprófs hefir Gunnlaugur Claesen tekið með 1. ein- kunn. Bessastaðir 15. júní 1907. Tíðin hefir verið köld undanfarna daga, en heiðskírt og sólmikið daglega. Skipaferðir. Thorefélagsskipið „Sterling11 fór morður um land þann 9. þ. m. með um 50 far- þegja. Flestir voru þeir fulltrúar á stórstúkuþing, sem í ár á að haldast á Akureyri/ „Lára“ fór til Vesturlands daginn eptir. Meðal ifarþegja var ritstjóri þessa blaðs, til ísafjarðar. Borgarafundur var haldinn í Beykjavík 5. þ. m. Blaðamannnfélagið hafði boðað til fundar- ins og var umræðuefni: raflýsingamálið. Eptir allmiklar umræður var samþykkt svohljóðandi tillaga, frá Ara ritstjóra Jónssyni: „Fundurinn skorar á hæjarstjórnina að kjósa nokkra sérfróða menn i nefnd, til þess að segja álit sitt um raflýsingatilboð það, er fyrir bæjarstjórninni liggur, og ráða málinu ekki til lykta, fyr en borgarar bæjarins hefðu útt kost á að kvnna sér álit þeirrar nefndar. Bæjarstjórnin fór ekki eptir þessari tillögu, en samþykkti á fundi þann 7. þ. m, að taka tilboði frá Thor Jensen, Eggert Claesen & Co. Það var samþykkt með 8 atkv. gegn 4. 1. þ. m. lézt úr tæringu i Reykjavik Helgi Sigurður Þórðarson frá Hólabrekku. Hann var um tvítugt. Nýr Faxaflóabátur er væntanlegur bráðlega ! frá Englandi. Hann á að heita „Reykjavík9 * 11, en i verður miklu stærri og hraðskreyðari en sá fyrri. j Nefndin, sem gengsi fyrir samskotum til standmyndar Kristjáns konungs, hefir falið Einari Jónssyni að búa til myndina. Reykvíkingar héldu „Vestmannafagnað11 þann 8. þ. m. i Báruhúsinu í R.vík. Þar vor haldn- ar ræður og sungin ættjarðarkvæði og höfðu menn hina beztu skemmtun af. ...rf, ■ , i i i . i I .Tff ii.mii.in L ■ ■- THE North British RopeworK C?y. L^. Kirkcaldy Contractors to H. M. Government búa til rússneskar og ítalskar fiskilínur og fxrir Manila, Coees og tjörukaðal, allt úr bezta efni, og sórlega vandað. Biðjið þvi ætíð um KJx*kcalci..y fiskilínur og færi hjá kaupmanni þeim, sem þór verzlið við, því þá fáið þér það, sem bezt er. 12 .„Þetta hefi eg aldrei heyrt“, svaraði frú Moore. .„Mór er ókunnugt um, að hann hafi nokkurn sinni átt ■börn“. „Það er mér þó nær að halda! En hvernig var það? Það var víst dóttir, en ekki sonur; já nú man jeg það; dóttir var það“. Frú Moore stakk þessu hjá sér, og ásetti sér, að komast betur eiptir öllu þessu við tækifæri. Meðan er þessu fór fram, skemmti Friðrik Musgrave :sér við dansinn, og gekk síðan inn 1 hliðarherbergi, er var áfast við dans-salinn, og fylgdist Susie þangan með honum, og fór að inna eptir lifnaðarháttum hans, og f ram tí ðarhorf um. „Mér er engin launung á því“, mælti hann, „að mig fýsir mest af öllu að verða frægur sjónleikahöfund- ur, en þvi miður fellur töðurbróður mínum það eigi sem bezt“. „Þið eruð ef fil vill opt sinn á hvorri skoðun?“ imælti unga stúlkan. „Ekki get eg beiint sagt það“, svaraði Friðrik „í raun og veru semur okkur ágætlega. — því er nú þann- ig háttað um hann, að hann er jafnan á öðru rnáli, en eá, er við hann úalar. — TTm visindalega starfsemi mína er honum lítið gefið, og jeg hygg nú reyndar, sannast að segja, áð þó að mér væri boðið, að vera forsætisráð- herra, og jeg þæði það„ myndi hann ekki vera ánægð- ur með það“. „Semur ykkur þá ekki ílla, fyrst lundareinkenni ykkar eru svona ólík?“ „Ó nei“, svaráði Friðrik. „Jeg er farinn að venj- ast öllum kenjum hans, og læt hann því ráða. — Stund- 9 Rectorinn kvaddi nú, en í stað þess að fara rakleið- is heim til sín, fór hann til næstu póststöðvar, og sim- ritaði — á sjálfs sín ábyrgð — til Friðriks Musgrave, sem staddur var í Lundúnum. Hann hefði getað sparað sór þá fyrirhöfn, því að þegar símskeytið kom þangað, er Friðrik átti heima, var hann að skemmta sér með kunningjum sínum, og er hann kom heim til sín löngu eptir miðnætti, var föðurbróðir hans dáinn fyrir nokkrum kl.tímum. Annar kapítuli. Hvert augnablikið í lífi voru færir oss nær gröf- inni. — A hverri sekúndunni fæðist einhver, og ann- ar deyr. Yér getum eigi hryggzt með hverjum, sem hrygg- ur er, nó glaðst með hverjum, sem glaður er. — Það myndi taka of mikinn tíma. Það var óheppilegt, að Friðrik Musgrave skyldi sitja að miðdegisverði, í hóp kunningja sinna, þegar föður- bróðir hans dó. En það var jafnan glatt á hjalla í húsi Moore’s hers- liöfðingja, er gestir voru boðnir, því að hjónin höfðu bæði yndi af heimboðum. Kona hershöfðingjans, seinni konan hans, var tutt- ugu og fimm árum yngri, en hann, og var Susie, stjúp- dóttir hennar, fullra 18 ára að aldri. — Frúin var stjúp- dóttur sinni rnjög góð, þó að hún ætti sjálf fjögur ung börn. — í heimboðunum var þvi jafnan eitthvað afung- um, efnilegum karlmönnum, sem eigulegir þóttu, og gætti

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.