Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 12.08.1907, Page 1
Verð árgangsins (vninnst
60 arkir) 3 kr. 50 aur.;
erlendis 4 kr. 50 aur., og
í Ameríku doll.: 1.50■
Borgist fyrir júnlmán-
aðarlok.
ÞJÓÐVILJINN.
——.— 1= Tuttugasti og UYRSTI ÁRGANGUR. =1--. =—
-g**d= RITSTJÓKI: SKÚLI THORODDSEN. =l~7.-3-
Uppsögn skrifleg, ögild
nema komið sé til útgef-
anda fyrir 30. dag júní-
mávaðar, ng kaupandi
samhliða uppsóyninni
horqi skuld sína fyrir
blaðið.
M 36. —37.
Bessastöðum. 12. ÁGÚST.
19 0 7
Konungs-heimsöknin.
Koma ríkisþingsmannanna.
--oQo—
I. Komið í land.
Að morgni 30. júlí kl. f. h. lagð-
ist konungsskipið nBirmau á Reykjavik-
urhöfn, og fylgdu þyí herskipin „Gfeysir“,
„Hekla“ og „Islands Falk“, sem og„ At-
lanta“, er flutti dönsku rikisþingsmenn-
ina.
Kl. 8V2 f- h brá ráðherra sér snöggv-
ast út á konungsskipið, og litlu síðar fór
Friðrik konungur í land, og drundu þá
fallbyssuskot frá herskipunum.
Um kl. 9 f. h. sté konungur á land
við bæjarbryggjuna. — Hafði þar safn-
azt saman múgur og margmenni, og er
gizkað á 6 —7 þús. manna.
Fremst á bryggjunni höfðu alþingis-
menn safnast saman, til þess að heilsa
konungi, og bauð ráðherra hann velkom-
inn með nokkrum orðum, og var þá hróp-
að nifalt húrra fyrir konunginum. — Of-
ar á bryggjunni hafði bæjarstjórn Reykja-
víkur numið staðar, og bauð bæjarfógeti
Halldór Dw ielssor konung þar velkominn,
i nafni bæ|arstjórnarinnar.
Þegar konunsur, og fylgdarlið hans,
gekk upp bryggjuna, hoilsaði hann al-
þingismönnum, ogýmsum embættismönn-
um landsins, en ungar telpur, prúðbúnar,
er skipað var í raðir á bryggjunni, stráðu
blómum á leið hans.
Á bryggjunni var sungið svo hljóð-
andi kvæði, eptir sira Matth. Jochumson:
Kom heill i faðrn vors fósturlands,
vor fylkir kær!
Þér fagnar byggð og fjallakrans,
þér fagnar hjarta sérhvers manns.
Kom heill í skjóli skaparans,
vor SkjÖldung kær!
í öðru sinni Islands snót
með ástarlotning kongi mót
nú hlær.
Svo liðu árin þrjátiu’ og þrjú
frá þeirri stund,
er hingað yfir hranna-brú
þinn hái faðir kom sem þú;
á ný vér fylki fögnum nú,
á feginsstund.
Hin gamla öld nú fyrst er full,
en fegri rís með vonargull
í mund!
Því sj-ngjum ^ér hvað sungum þá,
vor sjóli hár!
„Velkominn yfir Islands sjá!“ —
Nú ómar blitt sú tieillaspá,
að frelsið rætist Fróni á,
en fækki tár.
Ó Friðrik jöfur, fagur er
Sá friðinn boðar! Heill sé þér!
G-ott ár!
Efst á bæjarbryggjunni var reistur
heiðnrsbogi, og tveir minni bogar, sinn
hvoru megin við aðalbogann, og voru
bogastólparnir al-vafðir lyngi; en efst á
heiðursboganum voru þrjár kórónur, og
fyrir neðan danska ríkismerkið, ásamt
fangamarki Friðrilcs konungs, gylltir staf-
ir í bláum feldi. — En frá bryggjunni
alla leið upp að skólabrúnni stóðu steng-
ur hér og hvar, með dannebrogsfánum,
og víða var stöngum, með danska fán-
anum stungið út um glugga, og sérstak-
lega þótti vel skreytt umhverfis Austur-
völl, með fánum og smá-veifurn. Fálka-
merkin sáust einnig hér og hvar. — Við
skólabrúna, þar sem konungur gekk upp
í latinuskólann, er honum var fengin til
bústaðar, var og heiðursbogi, með kórón-
um yfir. Á verzlunarhúsum Thor Jen-
sen’s voru fest upp tvö spjöld, og var
ritað á annað þeiira: „Velkominn kon-
ungur Islendinga“. en á hitt: „Velkomn-
ir þingmenn bræðraþjóðar“. — Ymsar
verzlunarbúðir t. d. „Edinborg", „7hom-
sen’su, vBryde’su og „Duus’a, voru og vel
skreyttar að utan, sem og pósthúsið, bank-
arnir, og ýms hús einstakra manna.
Veður var einkar fagurt, logn og sól-
mun áhrifameiri, en ella niyndi.
Allir alþingismenn, sem og inúgur j
og margmenni, fylgdi konungi upp að j
skólabrúnni, og var öðru hvoru hrópað
húrra fyrir konunginum.
Kl. 10 f. h. komu ríkisþingsmennirn-
ir i land, og buðu alþingismerin þá vel-
komna á bryggjunni, og almenningur
hoilsaði þeim með húrra-hrópum, en is-
lenzkur söngflokkur söng danska þjóð-
sönginn, og síðan var hrópað húrra fyrir
Danmörku.
Dönsku þingmönnunum var síðan fylgt
til gistihúsanna „Hotel B,eykjavik“ og
„Hotel Island^, þar sem þeim var ætlað-
ur bústaður, og nokkru siðar, um hádeg-
isbilið, settust ríkisþingsmenn og alþing-
ismenn að morgunverði á „Hótel Reykja-
I vík“, og landlæknir Guðm. Björnssoyi bauð
j dönsku þingmennina velkomna. og svar-
aði Steff'ensen, vareformaður landsþingsins,
með nokkrum orðum.
II. Millilandanefnd. skipuð.
Skömmu eptir það, er konungur var
kominn í land, skipaði hann menn í
„millilandanefndina“, til þess að „rann-
saka og ræða stjórnskipulega stöðu ís-
lands í veldi Danakonungs“, og „taka til
íhugunar, hverjar ráðstafanir löggjafar-
völdin mundu eiga að gjöra, til að koma
máli þossu í fullnægjandi lag“.
I nefudinni eru: J. Chr. Christensen,
forsætisráðherra, H. Hafstein, ráðherra ís-
lands, Níds Andersen, etatsráð, Lárus H.
Bjarnason, sýslumaður,, Goos, fyrrum ráð-
herra, H. N- Hansen, konferenzráð, J. L.
Hansen, málfærzlumaður. Jöhannes sýslu-
maður Jóhannesson, N. K. Johansen, bú-
garðseigandi, Steingr. sýslumaður Jhnsson,
P. Chr. Knudsen, ráðmaður, Chr. Krabbe,
héraðsfógeti, Madsen-Mygdal, rikisendur-
skoðandi, skrifstofustjóri Jöi: Maqnfesson,
H. Matzen, háskólakennari, forseti N. T.
Neergaard, A. Níelsen, ríkisendurskoðandi,
St. Stefánsson gagnfræðaskólakennari, A.
Thomsen, fyrv. kennari, og ritstjóri Skúli
Thoroddsen.
Nefndinni er ætlað, að hafa lokið störf-
um sínum 30. júlí 1908, og er henni veitt
„heimild til þess, að fá úr öllum skjala-
söfnum . . öll þau skjöl og skilríki að
láni“, sem hún kann að „álíta nauðsyn-
leg“, sem og til þess, að „heimta þær
upplýsingar, og önnur skírteini", er hún
kann að óska, „bæði beint frá stjórnar-
ráðum“ kohungs, og _frá öðrum stjórnar-
völdum og embættismönnum“, og að lok-
um að „kveðja til viðt.als þá af embætt-
ismönnum“ konungs, er nefndin vill, sem
og „aðra, er fúsir mættu vera, til að ræða
málið“.
Formaður nefndarinnar, er danski for-
sætisráðherrann, en vara for-maður ráð-
herra Islands.
III, Móttökuhátíð í þiughúsinu.
30. júlí kl. 2 e. h. söfnuðu3t alþing-
ismenn, og ríkisþingsmenn ásamt kon-
ungi, og föruneyti hans, í þingsal neðri
deildar. — Sat konungur andspænis dyr-
um, þar seui lorsetastóli neðri deildar er
vanur að vera, og Haraldur prinz til
hægri handar honum, en Christensen, for-
sætisráðherra, til vinstri handar.
I lestrarsal alþingis, nefndarherbergí
neðri deildar, og í efri deildar salnum,
var fjöldi áheyranda, konur og karlar, er
boðið hafði verið.
En er menn höfðu skipazt í sæti, var
sunginn fyrri hlutinn af kvæðaflokki, ept-
ir Þorstein skáld Gíslason, en tónskáldið
Sveinbjörn Sveinbjörnsson í Edinborg hafði
samið lagið. — Upphaf kvæðaflokks þessa
er á þessa leið:
Yelkominn hilmir af hafi!
Hingað koin enginn
kærari. Fólkið þér fagnar,
Friðrekur kongur!
011 mælir þjóðin það einum róm:
„Alvaldur blessi þinn konungdóm!
Velkominn hilmir af hafi!tt
Lörig skilur lönd
leið. Yfir sund
hönd tengist hönd.
Heill stíg á grund
Friðrekur áttundi! Yelkominn ver!
„Velkomion“ hvervetna mæti þér hér.
Velkominn hilmir af hafi!