Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 04.12.1907, Page 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 04.12.1907, Page 2
218 Þ JÓÐVIL j 1K N XXI., 55.—5G --------------------- ------ _- Sá atburður gerðist ný skeð á gisti- húsi i Kristjaniu, að dr. Chr. Nicolajsen, kennari í efnafræði, og ung stúlka, sem hafði komið þangað, ásamt honum,fyrir- fóru sér. Blaðamaður í Kristjaniu, jafnaðarmað- ur, er Einar Lí nefnist, var nýlega dærnd- ur i eins árs fangelsi, með því að hann neitaði, að eiga þátt í herþjónustu. — Honum var þó lofað, að hann þyrfti eigi að byrja, að taka út hegninguna, fyr en á ákveðnum degi, og ætiaði hann því eitt kvöldið að halda ræðu á mannfundi, er stofnað var til í því skyni, að and- mæla hermennskunni; en áður, en til þess kæmi, var hann fluttur í tangelsi, gagnstætt því, er yfirvöldin höfðu heitið honum. Þetta atferli vakti, sem von var, all- mikla gremju, og kvað svo rammt að, að jafn vel blöð íhaldsmanna átöldu það; en jafnaðarmenn gengu all-fjölmennir til fangelsisins, og hrópuðu húrra f'yrir fó- Jaga sinum, og báru fána, er á var letrað: „Til vitis með allan hernaðar hégómann!“ Nýlega er byrjað að gefa út bréf skálds- íds Alexanders L. Kjelland’s. — I þvi safni eru ýms bréf hans til Brandesanna, og til Björnson’s. Uppskera hefir brugðizt mjög í Noregi, að þvi er hafra, og aðrar fóðurtegundir, SDertir, svo að Norðmenn verða að flytja inn óvanalega mikið af fóðurbæti. — — Svíþjóð. 11. nóv. b- á. var rænt 24 þús. króna (í peningum og póstávísunum) úr járnbrautarvagni, sem var á leið til Stokkhólms. Verziunar-hlutafólagið Karl A. Malm- herg & Co. i Stokkhólmi, er jafn framt hafði skrífstofur í Hamborg og í Kaup- mannahöfn, varð nýlega gjaldþrota, og er mælt, að skuldir séu allt. að 10 millj. króna. — Við gjaldþrot þetta bíða bank- ar í Stokkholmi tnlsvert fjártjón. — Malm- berg hefir verið hnepptur í varðhald. Eimskip frá Gautaborg rakst ný skeð á finnska seglskipið „Capeila“, er sökk. — Drukknaði skipherrann, og þrír bá- setar. Stúdent nokkur, Berggrcen að nafni, var nýlega tekinn fastur i Stokkhólmi.— Hafði hann framið um 50 innbrotsþjófn- aði. — Hann bjó hjá ekkju, er þótti mjög vænt um, að hafa hann i híbýlum sin- um, með því að hún var mjög hrædd við innbrotsþjóía. Stórkaupmaður í Stokkhólmi, er var á leið til Parisar, slasaðist á Þýzkalandi, með því að járnbrautinni hlekktist á. - Lá bann um hríð veikur, og á með&n andaðist viðskiptavinur hans í París, er hann ætlaði að útkljá viðskipti við, er skiptu mörgum millj. króna. — Hefir hann nú höfðað mál gegn eigendum járn- brautarinDar, og vill fá eina millj. rigs- marka í sárabætur. — — — Bretland. Eimskipið „Lusitanía“ var nýlega sent frá Bretlandi til Bandaríkja, fermt 44 millj. króna í gulli, og er það talÍDn dýrasti farmurinn, er sendur hefir Terið yfir Atlantshafið. Gullið var sumt í stöngum, en sumt í peningum. — Það var flutt í kistum, og voru 90 þús. króoa í hverri. —• Vopnaðír monn héldu vörð á skipinu dag og nótt, við dyrnar á her- bergi því, er gullið var geymt í. Líkneski af Victorín drottningu var nýlega afhjúpað í Leith. — Bosehery lávarður hélt ræðu við það tækifæri, og nefndi haDa: „Victoríu góou“. Dr. Francís Bourne, erkibiskup i West- minster, fæddur 1861, er nýlega kjörinn kardináli af Píusi páfa X. Vilhjálmur, Þýzkalands keisari, og drottning haDS, komu til Portsmouth 12. dóv. á skipi keisarans „Hohenzollern“. — Var þeim síðan haldin veglegasta veizla í Guildhall í Lundúnum, og skipti maDn- fjöldinn hundruðum þúsunda, er keisara- hjónin óku gegn um göturnar i Lundúna- borg. Mælt er, að Vilhjálmur keisari muni dvelja nokkrar vikur, sér til heilsubótar, á eyjunni Wight. Hvoiti, og brauð alls konar, hefir ný- lega hækkað mjög í verði á Bretlandi. Holland. Stjórnin hefir lagt fyrir þÍDg- ið frumvarp, er veitir konum kosnÍDgar- rétt, og kjörgengi, til þings. Friðarfundinum í Haag var slitið 18. okt. Það slys varð ný skeð í Hoogkerk, í niðaþoku, að vagn datt ofan i skipaskurð, og drukknuðu 4 menn, sem í vagninum voru: ráðherrann Panhuys, borgmeistar- inn i Leek, og konur þeirra beggja. — Frakkland. Arnar Rliono og Loire (frb: Loar) flóðu ný skeð yfir bakka sÍDa, og ollu miklu eignatjóni i héruðum á Suður-Frakklandi. I borginni Rouen (fbr: Rúang) var nýlega afhjúpað líkneski skáldsagnahöf- undarins Gusiave Flaubert. — Af skáld- sögum hans er skáldsagan „Frú Bovary“ einna nafnkunnust. f I síðastl. okt. andaðist í París stjörnu- fræðingurinn Maurice Locroy, 75 ára að aldri, forstöðumaður stjömurannsóknar- stöðvanna í París. Idinn alkunni stjórnmálamaður Henrí Rochefort, sem orðinn var 77 ára að aldri, hefir nú hætt við ritstjórn blaðsins L’in- trangeant“, og te’kið við ritstjórn blaðs- ins „Patrie“. — Hann varð ráðherra, er Napohon III. var hrundið frá keisaradómi, en var síðan útlagi í nokkur ár, með þvi að hann var riðinn við bæjarráðs-bylting- una i París. — HanD kvað enn vera vel ern, og rita fjörugar blaðagreÍDar, sem á fyrri æfiárum sínum. — — — Svissaraland. Nýlega var leit&ð at- kvæða þjóðarinnar um það, hvort lengja skyldi æfingartírna hermanna, og gera meiri kröfur, en verið hefir, að þvi er þekkingu liðsforinga snertir, og var það samþykkt, með 826,102 atkv. gegn 264,183. Mikil vatnsflóð voru ný skeð í Tessin. — Stöðuvatnið „Lago magiore“ flóði yfir bakka sina, svo að borgirnar Arona, Pall- anza, Loeano o. fl. stóðu í vatni, hús hrundu, og annað eignatjón varð. — — Portugal. Þar gengu afskapleg óveð- ur seint í okt., sainfara vatnsflóðuin, og jarðskjálfta, og olli það viða miklu tjóni, og búist við himgursneyð i sumum hér- uðum landsins. — — — ítalía. 28. okt gengu ákafar rigning- ar, og vatnsflóð í borginni Neapel. Yerkföll hafa verið í borgunum Mílano, Turin og Bologna. — í Mílano varð ekki kveikt i nokkur kvöld, og seDdí stjórnin herlið þangað, til að gæta reglu. Við jarðskjálftana i okt. er talið, að um 800 manna hafa beðið bana, en að 1000 manna hafi hlotið meiðsli. — Sumar sagnir telja þó manntjónið meira. Þýzkaland. Jafnaðarmaðurinn dr. Lieb- knecht hefir í okt. við ríkisréttinn í Leip- zig verið dæmdur til 18 mánaða kastala- vistar, út af pésa, er haDn hafði ritað' gegn hermennskunni. Þýzka stjórnin hefir lagt frumvarp fyrir ríkisþingið, er bannar, að • talað sé annað tungumál, en þýzka, á politískum fundum, nema landstjó.rmn veiti sérstakt leyfi til þess. — Líkar Dönum þetta ílla, sem von er, sakir landa sinna í Norður- Slésvik, enda er vonandi, að frjálslyndir menn á þingi samþykki ekki slík kúg- unarlög. I nóv. sprakk gufuketillinn i heræf- ingaskipinu „Blúcher“ í grennd við Flens- borg, og slöngvuðust tré- og járnbútar í ýmsar áttir. — Biðu 8 menn bana, en 22 urðu sárir. 22 ára gamail prentari í Berlin, Poul Mínow að nafni, myrti nýlega 4 börn, sem hann ginnti á afskektan stað.—Mað- urinn var geðvoikur. ý 31. okt aDdaðist Georg Engels, ninn af frægustu leikendum á Þýzkalandi. -— Austurríki. Aformað er, að mikil sýn- ing verði haldin í borginni Prag á næstk. ári. Líkneski af Franz Karti, erkihertoga, föður Franz Jöseps keisara, verður bráð— lega reist i Vinarborg. — — — Balkanskaginn. í Serbíu ber morð Alexanders konungs, og Drógu drottning- ar, enn opt á góma. I þingræðu kvað foringi 8tjórnarandstæðinga, Pecistcli, ný- lega svo að orði, að bendur innamíkis- ráðherrans væru ataðar í blóði, og kall- aði: „Niður með morðingjann!“, og tóku stjórnarandstæðingar undir það einum rómi. Á þingi i Buigaríu fór Zanow, forÍDgi stjórnarandstæðinga nýlega mjög hörðum orðum um Ferdínand fursta, og lenti i haodalögmáli meðal þÍDgmanna. — Að lokum ályktaði þingið, að Zanow mætti ekki mæta á næstu fimm þingfundum. B,ussland. I grennd við keisarahöllina Czarskoje Zeio vísaði veiðihundur veiði- mönnum í okt. þ. á. á gryfju, sem rept var yfir með staurum og torfi, og er að var gáð, fundu þeir jarðgöng þar undir, og voru tveir verkamenn að koma þar fyrir vítisvéh — Menn þessir voru þeg- ar teknir fastir, og fundust í vörzlum þeirra skeyti frá félögum þeirra. — Sið- an þetta gjörðist hafa all-margir Finn- lendingar verið hnepptir i varðhald í Pét- ursborg, og ætla menn, að það standi £ sambanrli við ofan greindan atburð.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.