Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.01.1908, Blaðsíða 1
Yerð árgangsins (minnst
f>0 arkir) 3 kr. 50 aur.;
rrlendÍ8 4 kr. 50 aur.,'og
í Ameriku doll.: 1.50.
Borgist fyrir júnlmán-
aðarlok.
ÞJÓÐVILJINN.
. .-j= TuTTUGASTI 0» ANNAR ÁRGANGTJR. ==1—. ==-
-4—S*H= RITST JÓR'I: SHÚLI TH0R0DDSEN. =|m«—>—
I Vppsögn skrifleg, ðgild
I nema komið sé til útgef-
\ anda f'yrir 30. dagjúní-
máriaðar. og kaupandi
samhliða uppsögninní
borqi skuld sína tvrir
blaðið.
M 4.—5. íi
Bf.ssastöðum, 31. JAN.
1908.
Utlönö.
Helztu tíðindi, er borizt hafa í er-
lendum blöðum, eru þessi:
Danmörk. 7. janúar fóru fram bæjar-
fulltrúakosningar á Friðriksbergí, og hlutu
fulltrúaefni jafnaðarmanua, og frjálslynd-
ari vinstrimanna, kosningu, með um 700
atkvæða meiri hluta, og hafa þeir því afl
atkvæða i bæjarstjórninni, sem að und-
anförna.
f 22. des. síðastl. andaðist Schaclc,
hæztaréttardómari, fæddur 7. okt. 1850.
Klitgaard, stórkaupmaður i Nörresund-
by, einn af ötulustu hestasölum í Dan-
mörku, varð nýlega gjaldþrota, og eru
skuldir hans taidar um 300 þús., en eign-
ir að eius um 100 þús. króna.
Verzlunarfélagið „Storm og Hirseh“
í Kaupmannahöín, er verzlaði með korn
og skepnufóður, varð og nýskeð gjald-
þrota, og eru skuldir þess taldar 200—
300 þús. króna, en eignir að eins um
50. þús.
Sýna gjaldþrot þessi, hve djarft ýms-
ir menn tefla, og baka öðrum þannig
stór tjón.
t 6. janúar þ. á. andaðist í Kaup-
rnannahöfn JölmJce, aðmíráll, fyrrum sjó-
liðsráðherra í Deuntzers-ráðaneytinu, 70
ára að aldri.
4. janúar lagði AJexandríne, krónprins-
essa, af stað fra Kaupmannahöfn suður
til St. Moritz, ásamt tveim börnum þeirra
hjóna, og ætlar að dvelja þar um hríð,
sér til heilsubótar.
Verksmiðja brann i Lyngby í des. f.
á., og er skaðinn metinn 70 þús. króna.
t 1. janúar þ. á. andaðist í Kaup-
mannaböfn stórkaupmaður Andreas Holm-
hlad, á fertugsaldri. - Kannast ýmsir við
hann hér á landi, sakir spilanna, sem
voru ein af helztu vörutegundum, sem
hann verzlaði með.
30. des. f. á. voru 25 ár liðin, síðan
P. Knudsen, fólksþingsmaður, varð einn
af aðal-leiðtogum jafnaðarmanna, og héldu
jafnaðarmenn honum veizlu, til minning-
ar um þarft starf, og létu einn af helztu
málurum Dana mála mynd af honum.
t Fr. Lange, yfirlæknir við geðveikra-
spitala í Middelfart, varð bráðkvaddur í
hægindastól sínum 29. des. f. á. — Hann
var 65 ára að aldri, og mikils virður.
Danskt eimskip „Dora“ strandaði i
í janúar við Runö í Ríga-flóanum, en
menn björguðust allir. — — —
Noregur. Þar hafa orðið nokkrir brun-
ar, síðan um áramótin, bæði til sveita, og
í kaupstöðum, og er getið tveggja gam-
almenna, er brunnið hafi inni, sitt við
hvorn brunann; nautgripir, og alifénaður,
brann og inni á nokkrum stöðum.
22. des. síðastl. voru hundrað ár liðin,
síðan norska skáldið Johan WeJhaven (t
1873) fæddist í Bergen. Hann átti, sem
kunnugt er, í all-hörðum ritdeilum við
norska skáldið Werr/eland, og er talið, að
sn ritdeila hafi haft all-rnikla þýðingu
fyrir bókmenntalíf Norðmanna. —-------
Svíþjóð. Gustaf, Svía-konungur, hefir
nú áformað, að láta ekki krýna sig til
konungs, þykir það óþarfa kostnaðarauki,
og mælist þessi élyktun konungs mjög
vel fyrir hjá almenningi. — Drottning
hans hefir lengi verið mjög heilsutæp,
þolir eigi loptslagið í Svíþjóð á vetrum,
og dvelur því í Suðurlöndum. — í vetur j
er konungaskiptin urðu, brá hún sér þó
heim til Svíþjóðar, en nú horfin til Suð-
urlanda aptur.
Sven Hedin, sænski landkönnunarmað-
urinn, hefir fundið uppsprettur fljótsins j
Bramaputra, sem eru í iökli i norðanverð- |
um Himalayafjöllum. —Þegar vorar, ætl-
ar hann til Indlands, eða ef til vill til
Peking í Kína. — — —
Bretland. írskur þingmaður, Lawrence
Ginnell að nafni, var nýlega dæmdur i 6
mánaða fangelsi fyrir æsingaræður, talið,
að hann hafi eggjað Ira til ólöghlýðni.
2. janúar þ. á. kviknaði í „patrónu“-
birgðum í City í Lundúnum, og beið einn
maður bana, en nokkrir urðu sárir. —
Kviknaði og í ýmsum vörugeymsluhúsum
í grenndinni.
Arið 1907 hefir í Lundúnaborg verið
skotið saman alls 140 millj. króna til
.' líknar bágstöddu fólki, og er það meira,
en nokkuru sinni fyr.
Lögreglustjórinn í borginni Cork á
Irlandi, ásamt hundrað lögregluþjónum,
fór til bóndabýlis nokkurs, til þess að
framkvæma fjárnám, til lúkningar ógreiddu
jarðarafgjaldi, og söfnuðust þá bændur úr
nágrenninu saman, og réðu á lögreglu-
menn, með bareflum, svo að þeir urðu
frá að hverfa, án þess að fá fjárnáminu
fullnægt.
Sakir hins háa kolaverðs, sem nú er
á Bretlandi, er mælt, nð ýmsum botn-
vörpungum verði eigi haldið úti frá Hull
°g Crimsby. — Sagt er og, að ýms fiutn-
ingagufuskip á Bretlandi verði af sömu
ástæðu látin standa á landi, og að brezka
herskipaflotanum séu ætlaðar minni her-
æfingar, en vant hefir verið.
, Sakir kola-hækkunarinnar er sagt, að
stóru eimskipin, sem yfir Atlantshafið
fara, eyði 18 þús. krónum meira i kol
fyrir hverja ferð. — — —
Belgía. Forsætisráðherrann í Belgíu,
y. de Irooz að nafni, er nýlega látinn.
Frakkland. Mælt er, að Fallíeres, for-
seti lj’ðveldisins, bregði sér til Norður-
landa á næstk. sumri, og komi þá við í
Kaupmannahöfn, Stokkhólrni og í Christj-
aníu.
f 31. des. síðastl. andaðist Guyot-Dessa-
igue, dómsmálaráðherra Frakka, 74 f ra
að aldri, fæddur 25. des. 1833. — Hana
varð bráðkvaddur, en hafði gengið &ð
þingstörfum fyrri hluta dags. — Á síð-
ustu tuttugu árUm hefir enginn ráðherra
dáið á Frakklandi, meðan er hann gengdi
embætti.
f Látinn er enn fremur I. Cornéiy,
nafnkunnur blaðamaður.
Drude, herforingi Frakka í Marocco,
hefir nýlega sleppt herstjórn, og er hún
nú falin D'Amade, hérshöfðingja. t— Sagt
er, að Frakkar muni enn þurfa að eiga
um hríð í ófriði í Marocco, með því að
ýmsir þjóðflokkar þar í landi láti all-ó-
friðlega.
t í síðastl. des. andaðist í Parí> próf-
essor Janssen, forstöðumaður stjörnurann-
sóknarstöðvanna, 83 ára. að aldri. — Lang-
feðgar hans voru danskir. — Árið 1871,
er Þjóðverjar sátu um París, fór hann
þaðan í loptfari, til þess að missa eigi af
þvi, að geta athugað sólmyrkva í Algier.
Spánn. Á gamla-ársdag sprakk tund-
urvél á götu i Barcelona, og beið einn
lögregluþjónn bana, en tveir menn urðu
sárir. — — —
Fortugal. Nú er mælt, að Carlos kon-
ungur sjái sér eigi annað fært, en að láta
undan, og Verði því þingkosningar látn-
ar fara fram i næstk. aprílmánuði. —
Eigna sumir þetta tillögum Játvarðar,
Breta-konungs. — Drott.ningin í Portu-
gal keimsótti nýlega brezku konungs-
hjónin, og kvað hún hafa flutt manni
sinum bréf frá Játvarði konungi, er hún
kom heim aptur, og hafi hann þar ráðið
Carlos til þess, að gera sem fyrst endá á
stjórnarólaginu, og tefla eigi konungsiign
sinni i voða. Mælt er og, að Franco,
forsætisráðherra, sé farinn að leita sam-
komulags við helztu menn þjóðmálaflokk-
anna. — — —
Italía. 19. des. f. á. sprakk „dynamítu
í vopnaverzlun í borginni Palermo, og
hrundi húsið. — Biðu tiu menn bana, en
sextiu urðu sárir. — — —
Tyrkland., Látinn er nýskeð Musurus
pascha, sem verið hefir séndiherra Tyrkja
í Lundúnum, 67 ára að aldri. — Þegar
óstandið var sem mest í Makedoníu, fyrir
fám árum, þótti hann eltki of sðell af því,
að eiga að verja aðgerðir Tyrkja þar; en
hann var hygginn maður, og stilltur. —
Þýzkaland. I öndverðum janúar var
30 stiga frost í Múnchen og Thuringen,
og víðar á Suður-Þýzkalandi, en 10 stiga
frost i Berlín. — Urðu þá fimm menn
úti í Miinchen, en sox í Thúring' n.
7. janúar gekk voða-veður, og hláka,