Alþýðublaðið - 29.06.1960, Side 1

Alþýðublaðið - 29.06.1960, Side 1
tmmM) 41. árg. — Miðvikudagur 29. júní 1960 — 143. tbl. MYNDIR AF VALDBEITINGUNNI Á GRÍMSEYJARSUNDI Á BAKSÍÐU Sjónarvottur segir frá, 3. SÍÐA Breíinn sendir sjóliðana af stað ÆkÆ m SÁ ATBURÐUR gerðist um miðjan dag í gær á Grímseyjarsundi, að brezkt herskip beitti valdi gegn íslenzkum va rðskipsmönnum, er þeir hugðust taka brezkan togara, sem var að veiðum í landhelgi. Hafði Þór sett menn um borð í brezka togarann, en brezka herskipið Duncan sendi þá sjóliða, vopnaða kylf- um eftir þeim og flutti þá með valdi aftur um borð í Þór. Alþýðu’blaðið átti í gær- kvöldi tal við Gunnar Berg- steinsson, yfirmann Landihelgis gaszlunnar í fjarveru Péturs Si'g urðssonar. Eftirfarandi frásögn af atburðinum byggist; á upplýs- ingum þeim, sem Gunnar veitti blaðinu: Gæzluflugvélin Rán kom í gærdag um klukkan 14,30 að brezka togaranum Northern Queen, GY-124, að veiðum um 2 sjómílur innan fiskvei'ðitak- markanna norðvestur af Gríms- ey- Flugvélin hafði samband við vcirosK.ipio ir'or, sem var a svip uðum slóðum. Þór fór þegar á vettvang. Varðskipið staðsetti togarann einnig innan fiskveiði takmarkanna. Þór tókst að koma mönnum um borð í Northern Queen, þar sem togarinn var að taka inn vörpuna. Skipstjóri togarans lokaði sig inni í brúnni og einn ig var loftskeytaklefanum læst, -----------------j x dag. Eins og þið sjáið varð ailt að víkja fyrir fréttinni, en orð- sendingin til ykkar verður birt á morgun. Takið eftir þessari mynd af ,ósýnilegu síldarstúlkunni/

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.