Alþýðublaðið - 29.06.1960, Qupperneq 7

Alþýðublaðið - 29.06.1960, Qupperneq 7
 - eftir að hún hafði sprungið fimm sinnum MÖEG síldveiðiskip- anna era nú með nýjar næíur, er kosía mörg hundrttð þúsund krónur svo og kraftblakkír. En svo óheppilega hefur viljað til, að mörg skip- annó hafa sprengt hinar nýju nætur sínar hvað eftir annað og orðið fyr- ir gífulegu tjóni. í fyrstu síldveíðihrotunni við Kolbeinsey bárust fregnir um mörg skip, er_ sprengdu nætur sínar. í hópi þessara skipa var eitt, er var aflahæst á síðustu vetrarvertíð. Skip þetta fór norður með nýja nælonnót upp á 630 þús. krón- ur svo og nýja kraftblökk. SPRENGDI FIMM SINNUM! En hin nýja nót átti eftir að leika hið aflasæla skip grátt. í fyrstu köstunum sprakk nótin en skipverjar tóku því með jafnaðargeði. En stuttu síðar sprakk nótin öðru sinni — og nokkru síðar í þriðja sinn og síðan í fjórða sinn — og enn í hið fimmta — en þá sprungu skipverjar og misstu bolin- mæðina. Skipið hélt inn á Siglu fjörð þar sem hinni nýju 630 Bera saman sildarbækur á Seyðisfirði SEYÐISFIRÐI, 28. júní. RANNSÓKNARSKIPIN, sem hiafa athugað síldargöngurnar og ástand sjávarins hafa nú komið hér saman að venju. Rússneska rannsóknarskipið Neben 2 kom hingað í gær- kvöldi. í morgun kom norska rannsóknarskipið Hjort Niel- sen og Ægir. Færeyskt rann- sóknarskip er einnig komið hing að. Vísindamennirnir eru þegar hyrjaðir á því að bera saman bækur sínar, en ekki fást nið- urtsöður þeirra fyrr en eftir nokkurn tíma. — G.B. þús. króna nælonnót var kast- að á land og kraftblökkin fór sömu leið. Skipið útvegaði sér síðan gamla nót og hélt út til veiða með gamlan útbúnað. MÖRG SLITUR Á SIGLUFIRÐI. Menn segja, að fleiri slitur éftir sprungnar nætur liggi nú á Siglufirði og er það vafalaust gífurlegt tjón er orðið hefur hjá bátunum vegna þessa. Menn spyrja að vonum: Hvað veldur? Ástæðan mun sú, að kappið er helzt til mikið hjá mörgum bátunum. Næturnar eru felldar alltof mikið svo að pokarnir verða of stórir og þungir í drætti. Kunnugur maður tjáði blaðinu í gær, að í Bandaríkjunum, þar sera hin nýju veiðarfæri hafa mesf rutt sér til rúms, séu næturnar aldr- ei felldar ein? mikið og hér. Er hér vissulega um mikið vanda- mál að ræða er taka verður föstum tökufn þegar í upphafi, þar eð hinn nýi útbúnaður er of dýr til þess að unnt sé að láta hann skemmast um leið og hann er tekinn í riotkun. í GÆRDAG kom hingað til Reykjavíkur pólskt skólaskip (sjá mynd), sem er skipag sjó- mannsefnum af pólskum sjó- mannaskólum. Skipið mun vera hér í Reykjavík í þrjá daga, en heidur síðan á Grænlandsmið, þar sem það verður um nokk- urn tíma. Piltarnir, sem á skipinu eru, fá kennslu f ýmsu er lítur aö fiskveiðum og siglingafræði. — Þessi kennsla er hluti af þríggja ára skólanámi fyrir þá pilta, sem ætla sér að verða yfirmenn á togurum. Skip sem þessi eru á sjó nær allt árið, og er þá far- ið víðsvegar, m. a. veitt í Norð- ursjó, við Noreg, við Vestur- Grænland, ísland, Vestur-Afr- íku og víðar. Skiþstjórinn á þessu skipi, — sem ep frá Gdynia, heitir Wikt- or Gorzadek og hefur verið hér áður með sams konar hóp. Það var fyrir tveim árum, og ferð- uðust þá skiþverjar og nemend- ur víða um nágrenni Reykjavík- ur. Upp á stýrishúsi skipsins er sérstakur klefi þar sem öllum helztu siglingartækjum er kom- ið fyrir, og er þessi klefi eins- konar „kennslustöfa“ fyrir pilt- ana. Pólverjar eiga nú um 100 slík skip, sem öll eru notuð til kennslu. Skipið sem hingað kem ur heitir Jan Turlefsky, ov er 6 ára gamalt, búið öllum nýtízku siglingar- og veiðitækjum. Þegar skip þetta hafði við- dvöl í Harstad í Noregi I maí s. 1. höfðu tveir piltar af því fengið landgönguleyfi', en komu ekki aftur til skipsins á tilsett- um tíma. Kom í ljós að þeir höfðu beðið um hæli í Noregi sem pcuíiski}' flóttamenn. Þegar skipið fer héðan á Grænlandsmið ef'tir þrjá daga, ier með þvi islenzkur skipst jóri, Halldór Gísiason, og mun hann verða einskonar „fararstjcri ‘ meðan skipið er á Græniands- miðum. MIKIL SÍLD er nú komin á austursvæðið og fékk fjöldi báta góðan afla þar í gær. Veður var gott á miðunum og seint í gærkvöldi voru bátar að fá stór köst austur af Langanesi og aust-norð austur af Eaufarhöfn, um 60 mílur út. Síldin fór að veiðast á aust- ursvæðinu á sunnudag og síð- an hafa skip verið að koma lát- laust til Raufarhafnar með mikið magn á degi hverjum. í gærmorgun var svo komið, eftir að síldarverksmiðjan gaf út þá tilkynningu til flotans, að hún gæti ekki tekið á móti meiri síld í bili. Tilkynning þessi var send út klukkan níu um morguninn, en þá voru all- ar þrær verksmiðjunnar orðn- ar fullar af síld. Segir betta meir en einstakar aflatölur báta um það, hve mikið hefur borizt á land á skömmum tíma. Er það heldur óvenjulegt, að minnsta kosti hin síðari ár, að verksmiðjan á Raufarhöfn verði að tilkynna löndunar- stopp, skömmu eftir að síldin byrjar að veiðast á austur- svæðinu. Bátarnir stefna nú með veiði sína af austursvæðinu til Siglu- fjarðar, þar sem síldarverk- smiðjur ríkisins geta afkastað 19—20 þús. málum í bræiðslu á sólarhring. Aðrir bátar feara til Seyðisfjarðar, en verksmiðj an þar tekur til starfa í dag. Hun vihnur 2500 mál á sólar- hring. Vitað var að margir höfðu fengið stór köst á austursVæð- inu í gærkvöldi og sumir bétar höfðu sprengt nætur sínar. Sem betur fer varir löndunarstopp- ið á Raufarhöfn ekki lengi, enda vinnUr nú verksmiðjau þar í fullum afköstum állan. sólarhringinn og verður t því fljót að gera borð á þrærnar. Alþýðublaðið — 29. júní 1960 f

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.