Alþýðublaðið - 29.06.1960, Side 13

Alþýðublaðið - 29.06.1960, Side 13
M9NNINGAR0RÐ c' SÍÐASTLIÐINN föstudag. var tekið fyrir mál Pólverj- ans Jan Boczewski, sem er norskur ríkisborgari frá 1957. Hann er ákærður fyrir njósn- ir í þágu erlends ríkis. Ekkert bendir til, að hann hafi kom- izt yfir sárlega mikilsverðar upplýsingar um varnarkerfi Norðmanna að því er Arbeid- erbladet segir. En starf hans varpar Ijósi yfir víðtækt njnsnakerfi f Noregi. Enginn hefur látið sér detta í hug hve þetta net er um- fangsmikið fyrr en mál Pól- verjans komst upp í vetur. Það eru einstakir sendiherrar og sendiráð í Osló,- sem staðið hafa fyrir njósnunum og hafa fengið norska ríkisborgara tii þess að afla upplýsinga. Eink- um eru njósnirnar umfangs- miklar í þeim bæjum, sem skip frá löndum Austur-Evr- ópu koma oft til. Boczev/ski gaf sig sjálfur fram við lögregluna í janúar í vetur. Ástæðuna sagði hann vera þá, að hann óttaðist að „vinnuveitendur“ sínir hefðu á sér illan bifur. Það var 1957, að hann var kallaður á fund pólska sendi- herrans í Osló, Marceli Szym- kiewiecz, og tók að sér að njósna um flugvelli, skipa- lægi, rannsóknarstöð herslns og eldflaugastöðvar við Osló. Hann reyndi að fá landa sína í Noregi sér til aðstoðar og 1958 fór hann til Varsjár og tók þátt í námskeiði fyrir njósnara. Réttarhöldin fara fram fvr- ir lokuðum dy-rum enda er rætt um mörg leyndarmál hersins þar. Boczewski er fertugur að aldri. Hann kom til Noregs í stríðinu sem stríðsfangi og eftir stríð fékk hann dvalar- leyfi sem flóttamaður. Ríkis- borgararétt fékk hann 1957. Hann kveðst ekki hafa fengið Boezewski. neitt fyrir nósnastörf sín nema tóbak og brennivín. FYRIR nokkrum dögum skýrðu blöð og fréttastofur í Þýzkalandi frá því, að sættir hefðu tekizt með Adenauer kanzlara og Erhard efnahags- málaráðherra. Þessir tveir á- hrifamestu menn Bonnstjórn- arinnar hafa loksins rétt hvor öðrum hendi til sátta og bund ið flokk Kristilegra Demó- ári síðan hafði nær því klof- •i(S iflokk Kjistilegra Demó- krata. Sættirnar voru inn- siglaðar er Erhard hitti Ad- enauer í sumarbústað hans við Comovatn á Ítalíu og þeir höfðu ræðst við í einrúmi í fjóra klukkutíma. Strax á eftir hélt Erahrd til Bonn. Nokkrum dögum seinna sagði hann vlið iblaáamenn: „Þið getið verið vissir um, að all- ar deilur milli mín og kanzl- arans eru úr sögunni. Að öðr- um kosti væri óhugsandi fyr- ir Kr.istilaga Demókrata', að vinna þingkosningarnar árið 1961.“ Það kemur mörgum vafa- laust á óvart, að Adenauer og Erhard hafa ekki ræðst við í einrúmi í heilt ár. Þeir hafa horft tortryggnislega hvor á annan á fundum* Kristilegra Demókrata. Þessi spenna milli hinna tveggja sterku í Bonn- stjórninni náði hámarki í sam bandi við forsetakasningarn- ar í Vestur-Þýzkalandi í fyrra sumar. Tveim mánuðum eftir áð Adenauer hafði tilkynnt, að hann byði sig fram við for- setakosningarnar kúvendi hann og ákvað að vera kanzl- ari áfram, þrátt fyrir það, að þingflokkur Kristiíegra Demó- krata hafði samþykkt að Er- hard skyldi taka við því emb- ætti. Þrátt fyrir margra ára samstarf í ríkisstjórn, lýsti Adenauer því yfir, að hann teldi ekki Erhard hæfan til þess að faka að sér stjórnar- forystuna. Erhard varð rasandi og sagði: „Okkar samstarfi er lokið.“ Tilraunir kanzlarans til þess að grafa undan áliti Er- hards höfðu nær því klofið flokkinn. Þær sættir, er nú hafa tekizt, eru nauðsynlegar vegna kom- andi kosninga. Kristilegir De- mókratar óttast stóraukið fylgi jafnaðarmanna, einkum vegna þess að búizt er við, að þeir velji Framhald á 14. síðu. HELGA ÞORGRÍMSDÓTTIR HINN 14. júní s. 1. var til grafar borin á Húsavík ekkjan Helga Þorgrímsdóttir frá Hlöðum s. st. að viðstöddu miklu fjölmenni. Þessi háaldr- aða merkiskona var svo sér- stæð um margt, að hún verður ógleymanleg þeim, sem kynnt- ust henni nokkuð að ráði. Hér verður aðeins talið fátt af því sem um hana mætti segja, því það gæti fyllt stóra bók. Helga Þorgrímsdóttir var fædd að Hraunkoti í Aðaldal 10. sept. 1871. Foreldrar henn- ar voru Þorgrímur Halldórsson •bóndi á Hraunkoti og kona hans Guðrún Jónsdóttir. Stóðu að Helgu merkar og fjölmenn- ar ættir hér um Suður-Þingeyj- arsýslu, oft kenndar við Hraun kot og Hólmavað. Verða ættir þessar ekki raktar hér, en geta má þess, að móðir nú- verandi forsetafrúar, Valgerður cg Helga voru bræðradætur. Helga ólst upp hjá foreldrum sír.um fyrstu árin í Hraun- koti og fluttist síðan með þeim að Stórutungri í Bárðardal. — Árið áður en Helga var fermd fluttu foreldrar hennar að Ingjaldsstöðurn í Reykjadal, en hún réðist þá til vistar hjá ' hjónunum Haraldi og Ásrúnu á Einarsstöðum í sömu sveit. Efnahagur foreldra Helgu mun hafa vei'ið þröngur og ómegð mikil, börnin 7 að tölu, svo þau urðu að fara að heiman til að vinna fyrir sér jafnharð- an og þau komust á legg. Á Einarsstöðum var Helga nokk- ur ár. Ilún minntist jafnan veru sinnar þar með gleði. — Heimilið var stórt, mannmargt og mikil glaðværð þar, enda húsbændurnir ágætir. Allir voru henni góðir á heimilinu og mér skildist að öll vera hennar á þessu heimili hefðu verið sannkallaðir sólskinsdag- ar. 'Veit ég af reynd, að Helga hefur sjálf átt sinn þátt í að gera þá svo ánægjulega. Þeg- ar hún fór frá Einarsstöðum, var hún um skeið á vegum bróður síns, sem þá var farinn að búa. Þaðan fluttist hún svo til Séyðisfjarðar og dvaldist á Austurlandi um þriggja ára skeið, af þeim tíma vann hún tvo vetur á saumastofu við , karlmannafatasaum. i En nú höfðu örlög hennar i ráðist. Árið 1896 kom hún heim til foreldra sinna, sem þá voru aftur komnir í Hraun- kot, og var þá heitbundin Mar- kúsi Benediktssyni útvegs- bónda á Húsavík, hinum á- gætasta manni. Og 10. okt. 1896 voru þau gefin saman í Húsavíkurkirkju. Það er tákn- rænt fyrir líf manna á þessum tímum, að á brúðkaupsdaginn fór brúðurinn fótgangandi frá Hraunkoti til Húsavíkur, en það er um 20 km. og fór yfir Laxá á ísi, því engip var brú- in þá. í Húsavík átti Helga heimili upp frá því til dánar- dægurs. Þau hjónin bjuggu fyrstu árin í Þröskuldi, elzta húsi, sem nú er uppistandandi — í Húsavík að sögn. 1904 reistu þau timburhúsið Hlaðir, — og bjuggu þar til æviloka. Þau hjónin eignuðust sex sonu. Þann elzta, Benedikt, misstu þau í æsku, en hinir 5 ei'u allir á lífi og hinir mestu atgervismenn og dugnaðar. Nöfn þeirra eru Héðinn, Þrá- inn, Þorgrímur, Gunnar og Hákon. Allir eru þeir bræður búsettir hér í Húsavík. Helga andaðist í sjúkrahúsi Húsa- víkur hinn 5. júní sl. eftir fárra vikna legu þar. Þetta er í fám dráttum hinn ytri rammi um ævi þessarar gagnmerku konu, en með þeim dráttum er lítið sagt, og verð- ur hér reynt að bæta það nokkuð upp. Helga var meðalkona á vöxt og ekki sterklega byggð, hafði ekki af meiri manni að má en almennt gerist, en hún var skörp til allrar vinnu og heim- ilisstörfin léku í höndum henn ar. Heimili hennar varð brátt annasamt. Það þarf mikils með, þar sem 5 drengir eru að alast upp. Bóndi hennar stund aði sjávarútveg og landbúnað jöfnum höndum og hvort tveggja af kappi. Því var ekki alltaf sofið mikið eða matast reglulega, þegar annirnar köll- uðu að, stundum af sjó og landi samtímis. Þá varð oft að hafa snör handtök. En Helga lét sinn hlut sem húsfreyja og móðir þar hvergi eftir liggja, og þrátt fyrir stórt heimili og miklar annar, tókst henqi að eiga margar frístundir tll að siúna hugðarefnum sínurft, en þau voru einkum bóklestur og félagsstörf, eins og síðar mun að vikið. Hún var ástúðleg og skilningsrík bæði sem eigin- kona og móðir. Hjónabandið varð því hið farsælasta allt til enda. Hjónin unnust heitt og mátu hvort annað að verðleik- um. Samheldni þeirra hjóna orkaði svo á syni þeirra, að morg ár eftir að þeir höfðu stofnað sitt eigið heimili, höfðu þeir samvinnu á ýmsan hátt um búskap og sjómennsku og var heimili foreldranna löngum miðstöð þeirrar sam- vinnu. Hefi ég hvergi kynnzt slíkri samvinnu milli stórrar fjölskyldu sem þar. Sýnir þetta meðal annars, hvernig Helga rækti móðurhlutverk sitt. Vegna frábærrar hagsýni og dugnaðar þeirra hjóna, voru þau jafnan í sæmilegum efnum eða betri en almennt gerizt um þá, er sams konar störf stunduðu hér um og eftir alda- mót. Synirnir komu líka fljótt til gagns er þeir uxu úr grasi og léttu undir með foreldrun- um, enda allir starfsfúsir í bezta lagi. Heimilið varð ein1 órofa heild, þar sem hver hönd in studdi aðra, meðan æskan var að ná fullum þroska. Eins og áður er að vikið, Framhald á 14. síðu. Alþýðublaðið — 29. júní 1960 |3

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.