Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.07.1909, Síða 1

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 31.07.1909, Síða 1
Verð árgangsim (minnst 60 arkir) 3 kr. 50 aur.; erlendis 4 kr. 50 aur., og i Amerííu doll.: 1.50. Bwrgist iyrir júnimán- aðarlok. ÞJÓÐVILJINN. • —[= Tuttuöasti oa þeibji áeoangue =1-. =— *—S*o«|e= KITSTJÓRI: SKÚLI THORODDSEN. =l»o»a—<- I TJppsöíin skrifleg ðgild nema komið se til útgeý- anda fgrir 30. dag júrn- mánaðar, og kaupandi \ samhliða uppsögninni I borgi skuld sína fyrir \blaðið. M 34.-35. Reykjavík, 31. JÚLÍ. 1909. Utlönd. - -o— Danmörk. I ráði er að Danir taki 40 millj. króna ríkislán. Stjórnin hefirþeg- ar samið um lántökuna, að sjálfsögðu með þeim fyrirvara, að ríkisþingið fallist á hana. Það eru franskar peningastofnan- ir sem lánið veita; vextirnir eru 31/,0/,, af hundraði, og iánið má standa svo lengi, sem lánþegi óskar. Lánið verður tekið á þann hátt, að Frakkarnir kaupa dönsk ríkisskuldabréf, og gefa 948/8 kr. fyrir hverjar 100 kr. í ríkisskuldabréfunum. Lántaka þessi hefir sætt þegar nokkrum andmælum frá frjálslyndu flokkunum, og vilja þeir að minnsta kosti lækka lánið niður í 30 millj. kr., en fá þvi fráleitt ráðið. Kæran út af kosningunni í 8. kjör- dæmi Kaupmannahafnar sem getið hefir verið hér i blaðinu, hefir nú verið rann- sökuð, og leggur kjörbréfanefndin til að hún sé samþykkt, með þvi að sannað er, að atkvæði þau, sem ólöglega kunna að hafa verið greidd, geta ekki verið svo mörg, að þau hafi getað ráðið úrslitum. Noregur. Kirkjumálaráðherrann í ráða- neyti Gunnar Knudsen’s hefir sagt af sér sakir vanheilsu. í hans stað er settur Knud Johannes Haugen, áður embættis- maðurí kirkjuraálastjórnardeildinni Hinn nýji ráðherra er fæddur í Kristjaníu, son- ur yfirkennara þar, er var merkur stjórn- málamaður. Sjálfur er hann sagður dug- legur maður og fróður. Norskt skip, „ErroD, sem gekk á milli vesturstrandar Ameríku og New- castle í Australíu strandaði 18. júní síð- astliðinn. Þar voru 22 roenn um borð, sem allir komust í bátana, en áður en þeirn tókst að ná í gufuskip, er þeir loks hittu, var skipstjórinn og kona hans á- samt 4 börnum þeirra, sem og margir menn af skipshöfninni dáið úr hungri. Að eins 5 menn voru eDn með lífi, en voru ekkert nema beinin fyrir hor, og því nær gengnir af vitÍDU af sulti og þorsta. í Þrándheimi var ófermd telpa ný- lega tekin föst, sökuð um þjófnað og erfðaskrárfölsun. Yið yfirheyrslumar hefir hún játað að hún einnig hafi myrt frænku sína, sem hún var hjá. Frænkan hafði tekið eptir því, að telpan hafði breytt erfðaskránni, og hafði hótað henni lög- reglunDÍ, en þá tók telpa sig til og drap fóstru sína á þann hátt að hún kæfði hana undir sæng. ' Stórt norskt fólksflutningsskip „Ólafur kyrri“ strandaði nýskeð á skeri við strÖDd Noregs, allir menn björguðust, eD skipið ónýttist með öllu. Svíþjóð. Bússakeisari kom til Stokk- hólms seint í júnímánuði. Rétt áður voru 8 menn teknir þar fastir, grunaðir um að hafa í byggju að veita keisara bana- tilræði. Við rannsóknina, er sagt, að það hafi sannast, að þetta væru rússneskir stjórDleysingjar, og höfu '1 af þeim búið með Wang, þeirn er myrti herforingja Beckman, sem frá var skýrt í eíðasta biaði. Menn tóku eptir því að þessi 2. sem annað var 18 ára stúlka, en hitt piltur um tvítugt, veittu herbergjum þeim, er keisara voru ætluð sérstaka eptirtekt, er almenningi var gefinn kostur á að skoða þau. Lögreglunni var bent á þetta, og fylgdi hún þeim þá eptir næstu daga, og komst við það að earoastað annara Rússa, sem þau umgengust, og var svo allt tekið fast ekömmu fyrir komu keisara, og enn voru 3 teknir í viðbót seinna, en um 2 af þeim sannaðist, að það voru stúdentar á skemmtiferð, sem þess vegna var sleppt daginn eptir, leynilögreglan kvartaði um að mjög erfitt væri að komast fram úr málinu, og ekki var það sannað að ákveð- ið hefði verið að veita keisara banatil- ræði, en eigi að síður telur lögreglan menn þessa bættule >a, og ieggur til að þeim sé vísað úr landi, þar sem þeir eru útlendingar. Nýlega var með mikilli viðhöfn vigð ’árnbrautarferja, sem á að ganga á milli Trelleborg í Svíþjóð og Sassnitz á Þýzka- landi. Er það fyrsta beina samband af þeirri tegund, sem komist befir á milli Svíþjóðar og Þýzkalands. England. I síðastliðnum júnímánuði hefir töluvert meira verið bæði flutt út úr landinu og inn i það, en á sama tíma í fyrra, og þykir það beDda til, að þar muni betra árferði í vændum, en ver- ið hefir að undanförnu. Shackleton heimskautafaranum fræga, sem nær hefir komist Suður-heimsskaut- inu en nokkur annar maður, var tekið með miklum virtum, er hann kom til Lundúna. Á fyrsta fyrirlestur hans hlust- uðu 10000 mánna; sýndi hanD þar jafn- framt myndir af staðháttum og dýralífi í Suðurheimskautslöndunnm, og þótti mönnum margt af því nýstárlegt. Að ræðunni lokinni afhenti prinzinn af Wales honum gullmedalíu landfræðingafélagsins brezka. Sagt er að Kitchener lávarður eigi að verða forstöðumaður brezks herráðs, er eigi að hafa það hlutverk með höndum að koma skipulagi á allar varnir Breta- veldis. Kitchener er stórfrægur maður af framgöngu sinni, fyrst íNúbíu og síðan í Búastríðinu. Frakkland. Fyrveraodi frakkDeskur þingmaður Bos gekk að fjármálaráðherran- um, Caillaux, og rak honum snoppung. Or- sökin til þ 'ssa var sú, að Caillaux hafði sagt að Bos, sem þingmaður hefði gerst talsmaður fyrir hagsmuni gufuskipafélags nokkurs, er var að semja við ríkið; Bos skoraði á Caillaux að taka þessi ummæli aptur, en Caillaux vildi ekki, sökum þess að honum þótti Bos setja kröfuna fram með ókurteisum orðum. Þýzkaland. Svo sem skýrt var frá i símskeyti hér í síðasta blaði hafa orðið kanzlaraskipti og Bethmann Hollweg tekið við embættinu. Btilow hafði þegar beiðst lausnar er meiri hiuti þings gekk á móti honurn í skattamálinu, en keisari vildi þá ekki veita honum haDa, og það var fyrst eptir að þingi var slitið 14. þ. m. að kaDzlaraskiptin urðu. Keisari þakkaði Bti’ow starf hans og óskaði hon- um heilla í framtiðinni. Hinn Lýi kanzl- ari er sagður að vera prýðilega gáfaður og menntaður maður, af gömlum höfð- ÍDgjaættum, er lengi hafi rniklu ráðið, að því er stjórnmál snertir; afi kanziarans var t. d. ráðherra hjá Vilhjálmi keisara hinum I Hann er 63 ára að aldri, komst hanD fyrst í ráðaneytið 1905. Hollweg er íhaldsmaður og líkur Btilow að skoð- unum, hann hefir hingað til mest fengist við innanríkismál, og er því ekki jafn vel búinn undir starfann að því er utan- ríkÍ9politíkina snertir, sem Btilow, er lengi hafði við þau fengist, áður en hann varð kanzlari. Rússland. Keisarinn ætlar að ferðast frá Pétursborg til Poltava (það eru nú 200 ár liðin síðan Pétur mikli vann þar sigurinn á Karli 12) og er boðið út hersveitum til þess að gæta járnbraut- arinnar á þeirri leið, að hún sé ekkí skemmd, og 3 lestir eiga að fara fráPét- ursborg allar nákvæmlega eins með 10 minútna millibili og halda til Poltava, og verður það ekki ákveðið fyr en rétt áður en lagt er af stað, með hverri þeirra keisarinn tekur sór far. Burzew heitir stjórnleysingi einn, sem í fyrra haust kom því upp, að lögreglu- stjórinn í Pétursborg ásamt spæjara nokkr- um hafði ginnt fjölda stjórnleysingja til íllvirkja, til þess svo að geta hegnt þeim á eptir. Nú hefir þessi sarni, Burzew skýrt frá því, að yfirmaður leynilögregl- unnar í París, Harting, sé sami maður- inn sem 1890, undir nafninu Landesson, var dæmdur til 5 ára fangelsisvistar fyr- ir hluttöku í dýnamit-banatilræði, en dóm- inum varð ekki fullnægt, því að hann fiúði þá til Parísar, en þar tók bann þátt í að undirbúa samsærið gegn Alexander III., sem uppvíst varð um, áður til fram- kvæmdanna kom; náðust samsærismenn allir, nema Landesson, hann hvarf. Bur- zew segir hann þá farið hafa til Rúss-

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.