Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.09.1909, Qupperneq 8

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.09.1909, Qupperneq 8
168 Þ JÓÐV ItJINN. XXIII., 41.—42. . Otto Monsteds danska smjöriíki erbezt. Biðjið kaupmanninn yðar um þessi merki: ,Söley{ ,Ingólfur{ , 11 e k 1 a ‘ eða ,ísafold{. KONUNGL. HIRÐ-VERKSMIBJA. BræOarnir Gloetta mæla með sínum viðurkenndu Sjóliólaðe—teg'nnd.ixin, sem eingöngu eru búnar til úr fínasta Kakaó, Sykri og Vanille, Enn fremur Kakaópúlver af beztu tegund. Ágætir vitnisburðir frá efuafræðisrannsóknarstofum. » "■ ...-.......— ----------- Olíufatnaóur frá lansen I So. jfredriksstad, jjjforge. Verksmiðjan, sem brann sumarið 1906, heflr nú verið reist að nýiu, eptir nýj- ustu, amerískri gerð. Verksmiðjan getur því mœlt fram með varningi sínum, sem að eins eru vörur beztu tegundar. Heimtið því olíufatnað frá Hansen & Co. í Friðriksstad bjá kaupmanní yðar. Aðal-sali á íslandi og Færeyjum Éauritz íensen. Enghaveplads Nr. 11. Kjöbenhavn V- THE North British Ropework C^y. hA. Kirkcaldy Contractors to H. M. Government. búa til rússneskar og ítalskar fiskilínur og færi, Manila, Coees eg tjörukaðal, allt úr bezta efni, og sérlega vandað. Biðjið því ætíð um Xövlxcalcly fiskilínur og færi hjá kaupmanni þeim, sem þér verzlið \iðr því þá fáið þér það, sem bezt er. Tombólu li:i l<l:i Itvennfélögin „Thorvaldsensfélagiðu og „Hið íslenzka kvennfélagu í sameiningu 2.—3. n. xn. Til ágóða fvrir „barna-uppeldissjóðinnu og „styrktarsjóð kvennau. „Þjóðviljana14 hér í bæn- um, sem skipta um bú- staði, eru beðnir að láta vita af þvi á afgreiðslu blaðsins í Yonar- stræti 12 (beint á móti Bárunni). Prentsmiðja Þjóðviljans. Gaidra-nornin írá St. Qaenet. EPTIE Sidney Piekering. (Lauslcga þýtt). I. Það er eigi sem þægilegast, að kastað sé kastaníu- ávexti á nefið á manni, enda varð gömlu konunni ílla við, og .þreif höndinni til nefsins, en drengurinn, sem glettzt hafði við hana, hljóðaði upp af gleði, og strák- arnir, sera bjá honum voru, héldu nú áfram að áreita gömlu konuna á fyr greindan hátt. Konan gat hvorki flúið til hægri eða vinstri handar á veginum, því að strákarnir eltu bana, og hlupu fram með veginum, upp í fjallshlíðinni. Konan, sem var há vexti, og orðin hvít af hærum, hallaðist upp að vegbrúninni, þar sem hún var sem fjærst frá strákunum, og mælti eigi orð af munni. Strákarnir, ser» voru að áreita hana, voru á hinn bóginn allt annað, en þegjandalegir, og köstuðu að henni 68 óþvegnum orðum, jafnframt því, er þeir köstuðu i hana kastaníu-ávöxtunum. Þeir voru solbrunnir, en fimir, og| hraustlegir, þótt* smavaxnir væru, en fötin bætt, slitin, og báru þess ó- ræk merki, að þeir höfðu þréfaldlega velt sér í moldinni. „Hvernig hefir þér farist við veslings gamla mann- inn þinn?“ æpti einn þeirra. „Hverju hefurðu blandað saman við súpuna hans, fyrst hann er svona grænn i framan?u „Nú höfum vér ekki fleiri kastaníu-ávextiu, mælti annar. „Taktu þa stein!u greip þriðji strákurinn fram í. Steininum var nu kastað, en hitti, senn betur fór ekki, en þaut rett fyrir framan nefið á hesti, sem kom hlaupandi eptir veginum. Hesturinn reyndi að prjóna, en sá er á baki sat, greip i tauminn, svo að hesturinn stóð þegar grafkyrr. Strákarnir, sem stóðu uppi í hlíðinni, gjörðust hljóð- ir og vandræðalegir. Manninum varð litið þangað, og sagði stillilega, en þó með hvössum róm: „Var þetta gert viljandi?“ „Engan veginn, herra minn!u var mælt með dimmri hásri röddu rétt hjá honum. „Steinninn átti að fara i varnarlausa, hjálparlausa, gamla konu. — Þetta var fyrsti steinninn — það skal eg ját.a; þeir byrjuðu með því, ad kasta í mig kaetaníu-ávöxtum, strák-óþokkarnir“. „Litlu níðÍDgarnir!u mælti Rozede, afar-háðslega. Einn strékanna mótmælti þegar. „Húd er galdra- norn, herra minn, galdra-nornin fró St. Quenet!u Ungi maðurinn rak upp skellihlátur

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.