Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 12.10.1910, Page 3
XXIV., 46.-47.
Þjóðviljinn.
183
Spánn.
Spanskt eimskip, ,.Marlos“ að nafni,
fórst nýskéd i grennd við Afríku strendur
og atvikaðist það á þann hátt, að annað
gufuskip rakst á það, svo að það sökk
þegar. — Mælt er, að þar hafi farizt nær
fjórir tugir manna.
Vatnavextir hafa í síðastl, ágústmán-
uði valdið talsverðu tjóni, um fjögur
þúsund hús sögð hafa eyðilagzt, fjöldi
manna beðið bana.
Bandaríki n.
Við skógabrunana miklu, sem nýskeð
bafa valdið afskaplegu tjóni í Montana
og í Idaho, sem talið er að valdið hafi
tuga milljóna dollara skaða, kvaðallsum
tvö hundruð manDa hafa látið lífið.
Kina.
Kínverjar gera sér um þessar mundir
'mjög far um, að koma samskonar skipu-
lagi á ber sinn, sem norðurálfu-þjóðirnar
hafa, svo sem bent hefur nýskeð verið
á í blaði voru.
Tvö herskip eru þeir að láta smíða
handa sér á Bretlandi um þessar mundir.
Japan.
Vatnavexiir hafa nýlega valdið miklu
tjóni, fjöidi húsa sópast burt, og um tólf
hundruð manna beðið bana.
Að öðru leyti eru fregnir um atburði
þessa mjög óljósar.
Serbía.
Þar eru nýskéð fundnar auðugar gull-
námur í greDnd við Almasarfljótið, í dal-
verpi nokkru, og er mælt, að þangað
streymi þegar fjöldi fólks.
Næsti bærinn er Nertshinsk (íbúar um
sjö þúsundir), í hóraðinu Transbaikalien
í Austur-Serbíu.
Verzlunarfréttir.
—o—
Samkvæmt skýrslu, dags. í Kaup-
mannahöfn 16. sept. þ. á., eru söluhorfur,
að því er íslenzkar afurðir snertir, sem
hér segir:
SALTFISKUR. — Málfiskur, beztu
tegundar, á 65—70 kr. sk//. — Smáfisk-
ur á 58—61 kr. skM — Isaáb'2—55 kr.
Langa á 68 kr. sk/Ó — Keila á 45—
48 kr., og upsi á 32 kr.
Hnakkakýldur fiskur, stór á 75—80
kr., en millifiskur á 65—70 kr. sk$5. —
BARÐFISKUR, nýr á 90 kr. sk$.
LYSI. Hákarls- og þorskalýsi ljóst
á 30 - 33 kr., en dökkt. á 28 kr. — Með-
alalýsi á 60 kr.
Verðið miðað við 210 pd. —
SÍLD. Stór síld, nýveidd, ekki yfir
14—15 kr. tuDDan. —
SUNDMAGAR á 65 aura pd. —
PRJÓNLES. Eptirspurn er nijög lít-
il, og talsvert enn óseit frá f. á.
Sjóvetlingar ganga betur út en sokkar.
Aætlað verð: alsokkar 70 aur., hálf-
sokkar 45 aur., og sjóvetlingar 35 aur.
parið. —
VORULL, sem eigi var seld fyrir
fram, snemma i vor, liggur öll óseld.
Um verð er enn eigi hægt að segja
með vissu, en ef menn vildu selja eins
og nú stendur, myndi ef til vill fást
fyrir beztu norðlenzku ull 85 aur., en
fyrir „secunda“, þ. e. lakari tegund (en
svo er ullin úr Húnavatns- og Skaga-
fjarðarsýslum talin) 80 aur., og sunnlenzka
og vestfirzka 75 aur.
En fyrir þetta verð vilja menn ekki
selja að svo stöddu, þar sem menn gera
sér von um, að verðið kunni að hækka
rneð haustinu.
Likur ti! þess, að verðið fari lækk-
andi eru að vísu eigi, en þó engin vissa
um það að svo stöddu, að verðið fari
hækkandi.
Tatsvert af mislitri ull hefir verið
selt á 60 aura.
HAUSTULL. Um verð á óþveginni
haustull verður eigi sagt með vissu, eD
likur til þess, að verðið kunni að verða
um 55 aura.
GrÆRUR. Um verðið á hertum og
söltuðum gærum verður eigi sagt að svo
stöddu. —
SALTKET. Fyrir saltket, verkað,
sem almennt gerist. fást 48 —50 kr. fyrir
tunnuna (224 pd.)
Gott, linsaltað dilkaket selst á 56 kr.
tunnan.
Berist að mun meira af keti á mark-
aðinn, en venjulegt er, getur skeð, að
verið lækki nokkuð. —
RtJLLUPYLSUR. Liklegt er að
verðið verði um 38 aur. pd.
12
«
Mér varð litið á hanD.
Því varð ekki neitað, að hann var likastur manni,
er orðinn væri mörg hundruð ára”gamall.
Jane Grey, eða Jðbanna Gray, sem hún og nefnist, var
fœdd árið 1537, og var riki ráðandi drottning í EDglandi i níu
daga árið 1553, er hún afsalaði sér ríkinu í hendur Mariu drottn-
ingar, er kölluð var siðan Blóð-Maria (Englandsdrottning 1552—
1558), og fórst henni svo illa við hana, að hún lét taka hana|af lifi
ásamt manni hennar, föður og tengdaföður, með því að Maria ótt-
aðist, að mótmælenda-flokkurinn myndi styðja hana til ríkis að
nýju.
MIND ÁBBOT’S
(Lauslega þýt.t).
A málverkasýningu, sem haldin var í París árið 1890
vakti eitt af málverkunum öðrum fremur eptirtekt, og hét
sá, er málað hafði James Abbot.
Jeg þekkti málara þenna mjög vel, með því að við
höfðum, fyrir nokkrum árum, verið báðir í Rómaborg í
senn, og málað ýmsar landlagsmyndir, í grennd við sól-
sæla Neapel-flóann.
Það var þó einkum jeg, sem landlagsmyndirnar mál-
aði, en Abbot fremur myndir af mönnum o. fl., er að dag-
lega lífinu laut.
Jeg þóttist því hafa ástæðu, til að ætla, að eg þekkti
Abbot svo vel, að mér kæmi ekkert á óvænt; en í þessu
efni hafði mér þó skjátlazt, og mér varð, sem öðrum, mjög
btarsýnt á málverkið
Það var höfuð ungrar stúlku, 17—18 ára, er blasti
við áhorfendunum, og voru augun stór, en óskýr.
Enginn litur, eða roði, sást í andlitinu, og væri vel
að gáð, sást, að óskýrleikÍDn, eða hulan, sem hvíldi yfir