Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 12.10.1910, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 12.10.1910, Blaðsíða 4
184 Þjóðviljtnn XXIV., 16.-47. LÆRI, söltað. — Sennilegt, að verðið verði um 32 aura pd. TÓLK. Um verðið eigi auðið að segja með vissu, en líklegt; að verðið veiði um 32 aur. ÆÐARDÚNN. Norðlenzkur aust- firzkur á 12]/2 kr. pd., en sunnlenzkur og vestfirskur á 12 kr. pd. — LAMBSKINN. Hvít á 48 aur., en mislit á 24 aura. Gölluð iambskinn á 12 aur. SELSKINN. Hvert á 4 kr. Irá festur-Mendmgum. Einn af löndum vorum í Vesturheirni, Jóhann S. Jakobsson að nafni, tók em bættispróf í læknisfræði 1. júlí síðastl. Hann er fæddur á Eskifirði 3. ág. 1875, og voru foreldrar hans: Jóhannes Jak- obksson, veitingamaður á Eskifirði. og kona hans, G-uðný Jónsdóttir. Arið 1893 gekk hann f lærðaskólann hér á landi, og stundaði þar nám í tvö ár, en fluttist érið 1895 til Vesturheims, ásarnt foreldrum sínutn. Faðir Jóhanns er nú látinn, en Guð- ný, móðir han6 er enn á lífi, ogáheima í Grenfell í Saskatcbewan í Canada. Aður en Jóbann fór að nema læknis- fræði, hafði hann lokið prófi í rafmagns- fræði. 9.—11. ág. þ. á. var í Winnip3g hald- ið yfirstórstúkuþing fyrir C »nada, og var það háð í f'undabúsi íslenzku Good-Templ- arascúknanua í Winnipeg. Mikið vel létu fundarmenn yfir starf semi islenzku stúkuanna í Winnipeg, að því er skýrt er frá í blaðinu „Heims- kringla1-. Úr Dýralirði er „Þjóðv.“ ritað 24: sept. þ. á.: „Sumar gat eigi iieitið, að hér væri, nema yfir tvo mánuð- ina, júlí og ágúst, því að með september brá til votviðra og storma, svo að sumir eiga enn úti hey. Mest kvað hér að rokinu aðfaranóttina 21. þ. m., og urðu þá skaðar á bátum, húsum og heyj- um á sumum stöðum, einkum í Önundarfirði. Hvernig heyskapur hefir orðið yfirleitt, verð- ur enn eigi sagt, en mun víða hafa orðið all- góður á útengjum. — Túnasláttur byrjaði fullri viku síðar, en vant hefir verið, og hefir taðan orðið miklum mun minni, en í fvrra. Eptir síðastliðið vor bera hér all-ftestír hallt höfuð, vegna korn og mjölkaupa banda skepn- um sínum, er urðu lítt bærileg. - En margri skepnunni virð það til lífs, og því eigi áhorfs- mál, eins og ástatt var orðið. „Friður á j'órðu“. 8vo nefniso all-langur kvæðabálkur, evG-uðm. Guðmundsson á Isafirði hefir ort nýskeð. Kvæðabálk þsnna las hann upp á ísafirði 18.sept. síðastl.; f áheyrn nokkurra kaupstaðarbúa. Brú á Norðurá. Norðurá í Mýrasýslu hefir verið brúuðísum- ar, í grennd við sýslumannssetrið Arnarholt og hefir landsverkfræðingurinn, hr. Jón Þorláksson haft á hendi yfirumsjónina, að því er til brúar- gjörðarinnar kemur. Skemindir af ofviðri. Timburhjallur fauk að Sæbóli í Aðal vík aðfara nóttina 81. sept. þ. á., og missti eigandinn bæði sjávarútveg og matvæli, sem þar var geymt: — Blaðið „Vestri“ telur skaðann metinn 1000 kr. Vélabátur sökk og nýskeð í Fljótavík á Horn- ströndum, og hafði bann eigi náðzt á flot, er síðast fréttist. Maður ilrukkuar. Nýskeð datt maður út af bryggju f ísafjarðar- kaupstað, og drukknaði. Maður þessi hét Þorlcell Guðmundsson, og var trésmiður í Bolungarvík. Hafði hann risið snemma úr rekkju, til þess að líta eptir bát, og fannst litlu síðar örendur við bryggju Edinborgar-verzlunar á Isafirði, hef- ir að líkindum skrikað fótur, og dottið í sjóinn. Halishroði. Þegar norska eimskipið „Flora“ kom norðan um land síðast, rakst það á nokkurn bafíshroða utarlega á Strandaflóanum. Hafísinn er þvi að öllum líkindum eigi langt undan landinu. l'rá Ieatirði; Þar var komin baustveðrátta seinni part sept- emberrnánaðar, krapa-rigníngar öðru hvoru, og fjöllin farjn að klæðast hvítum skrúða. Minna varð um smokkfisksaflann, en vænzt hafði verið; en vera má, að enn réttist úr. Kvöldskóla Iðnaðarmannafélagsins verðurhald- ið áfram í vetur, og átti hann að byrja í önd- verðum október. A bæjarstjórnarfundi var nýskeð vakið máls á þvi, að heppilegt væri, að fjölgað yrði bæjar- fulltrúum kaupstaðarins; en eigi var þvi málefni þó til lykta ráðið, er síðast fréttist. „tSkíðu-skóli“. Hr. Helgi \altýsson hefir í huga, fáist hlut- takendur nógu margir, að halda svo nefndan „skíða-skóla,, að Kolviðarhóli í Arnessýslu um 2 augunum, var gert viljandi, og það var einmitt þetta, sem olli því, hve mörgum varð starsýnt á myndina. Fyrir framan myndina höíðu verið látnir nokkrir stólar, og sátu þar einatt einhverjir, og voru að virða fyrir sér myndina, og brjóta heilann um það, hvað mál- aranurn hefði getað gengið til þess, að mála auguD, eins og myodin bar með sér. Frá París brá eg mér til eyjunnar Wight, til þess að hvílast við Shanklín-böðin. I gistihúsinu, sem eg bjó í, var nú hringt til mið- degisverðar, og þustu þá karlar og konur frá sjónum og settust við smáborð í útbyggingu gistihússins, sem að mestu var úr gleri, og óx vínviður upp með húsinu. Af tilviljun varð eg heyrnarvottur að samræðu, er íór fram undir borðum. Tveir karlmenn, og einn kvennmaður, voru að spjalla um eitthvað, sem auðsætt var, að þeim þótti mjög miklu máli skipta. Jeg heyrði þann karlmanninn, sem eldri var, nefna ziafnið Abbot. En glemrið i diskunum, og skeiðunum, aptraði því, að eg heyrði samræður þeirra til fulls, þó að eg að vísu heyrði, að hún laut að Abbot. Stúlkan heyrði eg, að sagði: „Það er undarlegt! Það er hræðilegt! Jeg hefi enri aldrei . . . .“ Meira heyrði jeg ekki, en rétt á eptir, mælti mað- urinn: „Mig hefir og aldrei hent slíkt fyr, og þetta er mér gata, nema . . .“ Hór fór, sem fyr, að jeg heyrði ekki meira, v, gna hávaðans, og af því fáa, sem eg heyrði, gat eg eigi iáðið hver meiningin var. 11 Eu í stað þess að hlægja að mór, eins eg hafði bú- izt við, varð hann æ forvitoari og forvitnari, og mæliist til þess, að eg lýsti málaranum aptur sem nákvæmast fyrir sór. Hann bauð mér að koma til sín diginn eptir, í skjalasafnið i Tower-kastalanum, og þáði eg boðið. Tók hanu þá út úr einum skápnum skjal.sem farið var að gulna, og sást þar mynd at atburðimun, sem eg sá í sýninni, og var hún eptir málarann, sern eg og hafði sóð í sama skipti. Neðan undir myndinui stóð auk ártalsins 1554 eitthvað, sem eigi varð lengur lesið. Hvernig öllu þessu var varið, skildum við eigi. Jeg var gallharður á því, að eg hefði horft á, er myndin var máluð, og spurði hann mig þá, hvort eg héldi, að eg þekkti málarann, ef eg sæi myndina af hon- um í myndasafni skjalasasafnsins. Jeg jánkaði því, og leiddi hann mig þá inn i sal, þar sem fjöldi gamalla inyndi hékk á veggjunum. An þess að nokkurt hik væri á mór, tók eg þá eina myndin i af \ eggnum, og mælti: „Hjá þessurn manni stóð eg! Hann hefur, eins og jeg, verið við staddur, er stúlkan var af lífi tekin“. „Þér hafið þá séð líflát Jane Grey’s!” mælti hann. „Málarinn heitir Jhou Bossan, og það var hann, sem 12. febr. 1554 málaði myndina af lífláti henuar, sem þór sáuð áðan % ❖ * Abbot hafði nú lokið sögu sinui, og kastaði sér lómagna í hægindastól, og studdi hönd utidir kiun, og starði út í loptið.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.