Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.03.1911, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 18.03.1911, Blaðsíða 4
52 Þjóbviljinn XXV. 13.—14. hr. Kr. J. muni „ekki hvað sízt“ hafa tekið við ráðherra-embættÍDU aí því, að „haDn muni hafa þótzt vita, að kon- ungi væri ekki um það gefið, að taka Skúla“. í>að er þá konungsholluatan, aem leitt hefur hr. Kr. J. til hrösunarionar, — lát- ið hann afneita þingræðinu, og öllu athæfi flokks 8ins. Ritstjóra blaðs þessa þykir nú að vísu eigi sem trúlegast, að hann hafi verið konungsvaldinu sú grýlan, sem hr. Kr. J. hafi verið nauðugur einn kostur- inn, að frelsa það frá. Á hinn bóginn er það eigi ósennilegt að atkvæði Sk. Tb. í millilandanefndÍDni kunni að hafa valdið því, að dönskum etjórnmalamönnum væri einhver annar kærari, sem ráðherra Islands, en hann, — hvað sem konunginum persónulega kann að líða. Rey k vikin^ai* mötmæla. Samkvæmt fundarboði skrifstofusjálf- stæðismanna iReykjavík, var fundur hald- inn i „Iðnóu 14. marz að kvöldi. Fundarefnið var, að mótmæla þegar þingræðisbroti nýja ráðherrans (br. Kr. J.) Síra Ólafur frikirkjuprestur Olafsson setti fundinn. — Taldí hann nýja ráð- ( herranD hafa framið höfuðsynd, er hann tók við ráðherra-útnefningunni, án þess að hafa meiri hluta þjóðkjörinna þing- manná að baki sér, og kvað nú öllum Isleodingura skylt, að taka sér í munn orð Jöns heitins Sigurðssonar á þjóðfund- inum 1851, er hann mælti: „Vér mót- mælmn alIir!“ Var síra Olafur kosinn fundarstjóri, en Árni Jóhannsson bankaritara fundar- skrifari. Á fundinum mættu nær allir þing- menn sjálfstæðisflokksins, og tóku ýmsir þeirra til máls o. fl.. og fór fundurion yfirleitt mjög vel fram. Að lokum var, með 520 atkvæðum gegn 2, samþykkt svo látandí fundará- ályktun: „Pundurinn mótmælir því fastlega, sem ótvíræðu þingræðisbroti, að nokk- ur taki við ráðherra-embætti, nema hann hafi. fylgi meiri hluta þjóðkjör- inna þingmanna, og telur sjálfsögðum rétti þjóðarinnar, til þess að hafa á- hrif á stjórn landsins, freklega mis- boðið, ef þessarar meginreglu er ekki vandlega gætt“. i Höfuðstaðurinn á þakkir skilið fyrir það, að hafa riðið jafn myndarlega á vaðið. Hr. léfur lóphoníasson! Mitstjórí „gjóðólfs11. Öt af þeim ummælum yðar í „Þjóð- ólfi“, dags 17. þ. m., að sjálfstæðismenn hafi sent konungi lyga-símskeyti, þá er- uð þér hér með opinberlega lgstur ósvífinn lggari og er yður vísað til sannrar skýrslu um málið, sem birt er í blaði voru í dag. Þ>á eruð þér og í öðru lagi lýstur opinberlega ósvifinn lggari að þvi. að þagað hafi verið yfir því tyrir konungi, i hvaða flokki Kr. Jönsson væri, og skal í því skyni bent á það, að í fyrra símskeyti mínu til konungs („langa sim- skeytinu“) var Kristján Jbnsson talinn meðal þeirra, er verið höfðu flytjendur vantraustsyfirlýsingarÍDnar í efri deild, og var það símskeyti lesið upp á fundi alls sjálfstæðisflokksins, áður en það var sent, þar á meðal fyrir Kr. Jbnssyni sjálf- um. Þá eruð þér og í þriðja lagi opin- berlega lgstur ósvífinn lggari að því, að fylgi þeirra Ara Jonssonar, Bjarna Jönssonar, Benedikts Sveinssonar og Jóns Þorkelssonar hafi verið nokkrum skilyrðum bundið. — Ekkert skilyrði hef- ur nokkuru sinni af nokkurum þeirra verið nefnt, enda fylgið aldrei af mér fal- að, og því yfir eDgu að þegja. í fjórða lagi eruð þér og opinber- lega lýstur ósvífinn lygari að því, að þér segið, að fylgi 12 þingmanna hafi veiið því skilyrði bundið, að „greiða Sk. Th. ekki vamraustsyfirlýsingu að nauð- synjalausu á þessu þingi“, sbr. hér fram- ar í blaðinu, enda og önnur skrifleg gögn til, er fram geta komið. 95 Hún símaði þegar til læknisins, og hjálpaði garð- yrkjumanninum síðan, til að bera'líkið inn. — — — Kynlegast var, að enginn hafði verið í vafa um, að það værij lík Ratray’s, sem hér væri um að ræða. Frú Benfold, vinnufólkið, læknirinn, og jafn vel lögreglumennirnir, voru þegar saDnfærðir um, að það væri Ratray, sem myrtur hafði verið. „En hvernig komust þér að raun um, að myrti mað- urinn væri ekki hr. Ratray?“ spurði Mallabar lögreglu- stjórann, er þeir, ásamt Kenwood, voru ao aka í vagni til heimilis Ratray’s. „Jeg hélt, að þér væruð í engum vafa um það að það væri Ratray, sem myrtur hafði verið, þar sem þér mótmæltuð þegar efablendni minni“, mælti Mallabar enn fremur. „Ljótt, að eg skyldi eigi virða líkið betur fyrir mér! En þetta gekk allt í flýti!u „Fregnritari yðar virti likið sannarlega nógu lengi fyrir sér!u mælti lögreglustjórinn. „HaDn er heimskingi, og skal fá það borgað!“ mæltí Mallabar. „En lögreglustjóranum sjálfum tókst eigi betur!“ mælti Kenwood dræmt. „Þetta var allt í flýtr!“ mæ'.ti lögreglustjórinD, sýDÍ- lega gramur. „Menn sögðu, að það væri Ratray, sem myrtur hafði verið, og jeg veitti því að eins eptirtekt, að maðurinn var gráskeggjaður, með ör, er náði frá hægra auganu að eyranu' eins og Ratray, og þótti þá óþarft, að rannsaka það frekar. — En auðvitað hefði eg átt að gera það! En læknirinn var þarna einnig, og rannsakaði sárið, en sagði ekki neitt, — Þess utan var og rúmið autt —“ 104 „Já! Hefði hann t. d. eigi getað skrifað bréf?“ „Engan veginn!“ „Hefði hanD getað klætt sig hjálparlaust?14 „Ekki fortek eg, að hann kynni að hafa getað það!u mælti læknirinn. « „Þá verð eg að leggja aðra spurningu fyrir yður!“ mælti rannsóknardómarinn dræmt, og gaf hr. Merriett, málfærslumanni Ratray-ættarinnar, auga! „Setjum nú, að gestur hefði komið inn í svefnherbergi hr. Ratray’s ’og að þeir hefðu orðið ósáttir — hefði hr. Ratray þá verið þess megnugur, að drepa hanD 'fleygja honum út um gluggann, klæða sig, og flýja?u „Þessi spurning sýnist méru, greip hr. Merriott frara i, „leyfist mér að segja — —“ „Hér ræðir að eins um, hvað hann telur líklegt“, mælti dómariun, brosandi. „Auk þess“, mælti Merriott enn fremur „hefur hin- um myrta eigi verið varpað út um gluggann. Það mátti vel sjá á því, hversu likið láu. „En skiljið þér ekki, hvað eg á við?“ mælti rann- sóknardómarinn við lækninn. „Jú!u svaraði læknirinn, og herti nú upp hugann. „Þér spyrjið, hvort eg álíti, að Ratray hafi getað framið morðið?u „Hví orðið þér þetta svona?u „Af þvi að dauði maðurinn er sami maðurinn, sem eg hefi vitjað í húsi hr. Ratray’s!“ Þessi orð læknisins vöktu mikla eptirtekt. Rannsóknardómarinn hnyklaði brýrnar. Hr. Merriott hálf-settist upp í stólnum, en hné svo geispandi aptUr á bak í stólinn aptur.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.