Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 06.07.1911, Qupperneq 5

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 06.07.1911, Qupperneq 5
XXY, 30.-31. Þjóðviljin.v. 121 Þá varð það æfiverk í saad að vinna’ oss auð og liróður i staðinn fyrir fargað lanl og fyrirlitna móður. En tii þess lengst hann liti sleit, við litla þökk, á verði, og varð að baki úr sinni sveit að sjá við*Hrappi’ og M.erði. Og lítið sýndist saknað hans þótt sigurhátíð stæði; hann fókk: að horfa langt til landi og lesa’ um aðra kvæði. Svo dapurt var á verði, Jón, svo víða’ í feiur skriðið, unz morgunbjarminn bryddi Frón og brýnt var doiga liðið. Þá dreymdi móður drauminn sinn um drengi, er ekki svikja, og heimti’ oss unga’ í hópinn þinn, því hann mundi’ aldrei víkja. Og enn þá mænir allt á þig á aldaidegi þínum, sem vonast til að verja sig, ■sem veit af arfi sinurn, sem ekki’ er keypt af eigin hag nó nndir hatri grafið. Er vandar byggt vort bræðralag en brú á Atlantshafið? Með þór var hver eiun háski fær um hrjósturvegu farna; og síz' með þór oss þjökun nær, ef því má nokkuð varna; og lengst í álfur ljóma slær á leiðir íslands barna við hvítra tinda heiðin skaer þiu há8, bjarta stjarna. Þ. E. Normandi-förin. —o— Jeg ræð það af »ísafold« o. fl., að cand. mag. hr. G-uðm. Finnbogason ætlar sér að fræða íslenzka blaðlesendur um Gröngu-Hrólfs-hátíðahöldin í Normandí- inu, og vil eg því eigi hlaupa þar í kapp við hann. Hann hafði heitið því — og boðið mór það ótilkvaddur — að láta bggja fyrir mér línu á »Hotel Commercial« í Leith, er eg kæmi þangað*), og ritaði hann því nafn gistihússins, er fyr var nefnt, í vasabók sína, — eins og hann einnig lofaði því, að vera kominn til Rouen, og hitta mig þar, jafn skjótt er eg kæmi þangað. Þótti mór þetta því betur, sem eg var því alókunnugur, hvernig ferðinni til Rouen yrði heppilegast hagað, og hann auk þess frönskumælandi, að því er hann sagði, en eg — vegna ýmsra anna lífsins — löngu farinri að ryðga í *) Eg lagði af stað héðan með „Sterling", 19. maí síðastl., en hr. G-uðm. Finnbogason — or alþingi hafði og veitt fjárstyrk nokkurn til Normandifarar — var lagður af stað rúmriviku áður, — með „Botníu“ 11. maí. því, sem eg lærði í frakknesku á yngri árum mínum.**) Hafði hann og lofað, að snara fyrir mig erindi á frakknesKii, ef eg þyrfti á að haida. En svo fór eg frá Leith — og dvaldi cg þar þó nokkra daga, þar sem Rouen- hátíðahöldin áttu eigi að byrja, fyr en 4. júní — að aldrei kom ein lína frá br. Gfuðm. Finnbogasyni. I Rouen gisti eg í einit af allra beztu gistihúsum borgarinnar, er nefndist: »Ho- tel de la Poste«, og dvaldi þar síðan allan tímann, er hátíðahöldin stóðn yfir, frá 4. —11. júní þ. á. Eins og fór um bréfið, svo brást það og, að Gluðm. Finnbogason hitti mig, er eg kom til Rouen. Mér fór að þykja þetta kynlegt, og lét því nokkru síðar spyrjast fyrir um hann í gistihúsum borgarinnar, en — hann fannst þar þá hvergi, og gizkaði eg því á það, að hann liéldi sig í Par- ísarborg, þætti skemmtilegra þar að vera, enda barst og þangað hið fréttnæmasta. Slysið (21. maí þ. á.), er olli því, að Berteaux, hermálaráðlierra Frakka, beið bana, og að Monis, forsætisráðherra slas- aðist mjög alvarlega, sbr. 26.-27. nr. blaðs vors þ. á., dró, sem von var, nokk- uð úr hátíðahöldunum, og þó eigi að mun, að því er virtist. J?að voru hátíðahöld, sem Falliéres forseti hafði ætlað að vera viðstaddur, *’) Sem ensku-mælanda, varð mér þó þetta ei»i að mun til baga, og frakkneskum mönn- ura sýndu skilrikin frá frakkneska konsúlnum í Reykjavfk, dags. 18. maí síðastl., hvor staða mín var, og i hvaða erindagjörðum eg var, eins og eg einnig hafði áður bréflega tjáð formanni hátíðanefndarinnar komu mína, og þakkað fyrir boðið. 191 það hafði meiri þýðingu fyrir mig, en peningarnir, því að þá gafst mér færi á. að hefna mín! Faðir yðar átti bróður, sem dó á undan honum, og erfði faðir yðar þá 60 þús. sterlingspunda. — Sex arum síðar dó faðir yðar, og lét yður eptir eig —w „Þar skorti nú nokkur þúsundin á!“ greip Ken- Avood fram í. „AUt og sumt, sem eg erfði, voru pen- ÍDgar móður minnar, tvær þúsundir sterlingepunda!- „Alveg rétt — með öðrum orðurn að eins þritug- »sti partur þess, er þór bjuggust við! En hvert runnu sllir peningarnir?“ KeDWOod hafði einatt heyrt, að faðir hans hefði «ytt fénu í spilum, og við drykkju, og pví hafði hann trúað. „Já, hver hafði hlaupizt burt með pmingana?* mælti Roachley enn fremur. „Enginn annar, en vinur yðar, Christopher Ratray!u „Jeg efa það núL „Enginn annar! Því megið þér trúa!u mælti Roich- ley. „Ratray hefur ma'gt brallað! Hann hefur eigi grætt allt i Craneboro! Hann var, ef rétt er skoðað, mesti okurkarlinn. sem til var!“ „Getur það verið?u „Það var liann, sem var E!yah HoskÍDs! Hann hafði banka á þrem stöðum, og ýms önnur útispjót til fjár!“ -mælti Roschley enn fremur. „Og þó að faðir yð- ar væri mikill lagamaður, tókst Ratray þó, að ginna hann, og hafa af honum fé!“ „Og þar sem þór voruð Bevington!" bætti Ratray við, „sá jeg, að með því, að hagnýta yður, gat eg gjörzt ■ikærandi, dómari, og böðull, eins og mig laDgaði til! 184 Hvar eruð þér? Hví heyrist ekki eitt orð frá yður? Hafið þér óbeit á mér, af því að eg sagði yður eigi frá manninum mínum? Þér komuð mér til þess, að fá ást á yður, og því þagði jeg, til þess að missa eigi af unaðar stund- inni! Var þetta sá stór-glæpur, að þér viljið, að jeg sé dæmd til fangelsisvistar, eða ef til vill til dauða? Ef þér segið mér, að svo eé, vil eg deyja, þó að eg jeg sé saklaus! Jeg myndi þá ganga í dauðann með opÍD augun, og kyssa varir hans! Já, ef þér segðuð mér það! En þér hafið ekk- ert sagt! Hallur lét algjörlega blekkjast af bréfi þessu. Síðm um kvö’dið er hann leit dauða asjónu Ralph’s Raycurt’s, hafði hann verið i vafa, og kennt bugar-angurs. Hann reyndi að telja sér trú nm, að Constancd væri saklaus, en var þó í raun og veru sannfærður um, að hún væri sek. Og með því að hann vissi, að ágreiningur hjón- anna hafði spunnizt út ef sér, leit hann svo á, sem hann væri í raun og veru morðinginn, og allar þjáningar hennar sér að kenra. En hann kunni engin ráð á að leggja, og nú barst honum þetta bréf, kvein og örvænting ástarinnar, og ásakandi hann. Hallur svaraði bréfinu jafnskjótt, sem hann gat því við komið, og beiddisl náktæmari skýiingar. Kvaðst hann eigi vita nein ráð, til að frelsa hana, en feginn vilja leggja lífið í sölurnar fyrir hana.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.