Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 23.11.1912, Blaðsíða 2
210
.ÞJOÐVILJINN.
XXVI, 53.-54.
ÞJÓÐVILJINN.
Verð árgangsins (minnst 60 arkir) 3 kr. 50 a.,
erlendis 4 kr. 50 a. og í Ameríku doll.: 1,60.
Borgist fyrir júnimánaðarlok. Uppsögn skrifleg
ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 80. dag
júnimánaðar og kaupandi samhliða uppsögninni
borgi skuld sina fyrir blaðið.
XJ 11 ö n d.
—o—
Helztu tiðindi, er borizt hafa ný skeð
frá fitlöndum, eru:
Danmörk.
Ríkisþing Dana situr nú á rökstólum.
Merkust tiðindi þaðan, að Kl. Bernt-
.zen's-ráðaneytið hefir lagt fyrir fólksþingið
all-frjálslynt írumvarp um breytingar á
grund vallarlögun um.
Helztu breytingarnar eru:
a, að konur fá kosningarrétt,
b, að kosningarréttinn fá menn, er þeir
eru 25 ára (nú 30 ára).
c, að vmnuhjú fá og kosningarrétt,
d, að konungkjörnir landsþingsmenn falla
úr sögunni, og kosningunum til lands-
þingsins verður gjörbreytt.
Ætlast til, að bæjarstjórmr og hrepps-
nefndir, kjósi kjörmenn, miðað við í-
búatölu, og sé landinu öllu í því skyni
skipt í þrjú kjördæmi. — En kjör-
mennirnir kjósa siðan, hverir í sínu
kjördæmi, hinna þriggja, landsþings-
menn, 52 að tölu. — Enn fremur velja
Færeymgar og eirm landsþingsmann,
og íbúarnir á Borgundarhólmi annan.
En nefndum 54 landsþingsmönnum
er síðan ætlað, að kjósa 12 landsþings-
menn, og verður tala landsþingsmanna
þá 06, eins og nú er.
e, að bemar kosningar verða að því er
til fólksþingsmanna kemur, en hlut-
fallskosningar að því er kosningu lands-
þingsmannanna snertir.
f\ að semji þmgunum (fólksþinginu og
landsþinginu) eigi um fjárlögin, ráði
sameinað þing úrslitunum, og ráði þá
aíi atkvæða.
g, að bráðabirgðalög falli æ úr gildi, séu
þau eigi staðfest á ríkisþinginu, er
kemur saman næst eptir það, er þau
voru gefin út af konungi.
Svo er að sjá, sem allir þirxgfiokkarmr
muni fylgjast að máli til þess að koma
breytingunni fram, nema hvað hægrimenn
rísa mjög öndverðir gegn henni.
Erumvarpið var bonð fram í fólks-
þinginu 23. okt. þ. á., og voru þá liðin
rétt 64 ár síðan er grundvallarlagaþing
Dana hófst, 23. okt. 1848.
f 23. okt. þ. á. andaðist skáldsagna-
höfundurinn Albert Gnudtzmann.
Hann var prestssonur, fæddur 3. júní
1865, og varð því að eins frekra 57 ára
gamall.
Gnudtzmann var lögfræðingur, en hefir
ritað eigi all-fáar skáldsögur, og leikrit.
28. okt. síðastl. var þess minnst í
dómkirkjunni í Hróarskeldu, að þá voru
liðin 500 ár, síðan er Margrét drottning
Valdemarsdóttir andaðist, — eða þó frek-
lega það (f 24. okt. 1412).
Hún var fædd 1353, — dóttir Valde-
marn Attei dag’s, Dana-konungs, og réð
ríkjum bæði í Danmörku, Noregi og í
Sviþjóð, og þótti kvennskörungur mikilL.
f Seint i okt. þ. á. andaðist prófessor
J. A. Fredericia, — talinn í röð merkari
manna Dana.
Nýiega var skáldinu Jens Baggesen
reist líkneski i Korsör, þar sem hann var
tæddur 15. febrúar 1764, og sem hann
kvað um, að
„han gynged i sin ömme Moders Arme,
og red til Hest paa EJ^stefaders Knæ“.
Baggesen, sem mörgurn Islendingi er
kunnur af kvæðum hans, andaðist 3. okt.
1826.
f 20. okt. þ. á. andaðist i borginni
Randers málarinn .7. T. Hansen.
Hann var fæddur 1848, og hafði numið
málaralistina í París, og ferðast að mun
í Suður-Evrópu. — Þótti honum eigi
hvað sízt takast það vel, að láta ljósið
og litina, njóta sín sem bezt í málverk-
um sínum.
Ritstjóraskipti eru nýlega orðin við
„Berlinga tiðindi“, og heitir nýi ritstjór-
inn Chr. Gulmann.
Hann er að eins 43 ára að aldri, og
hefir verið við blaðamennsku riðinn í
tugi ára, — óefað nú hægrhnaður, því
að eigi mundu eigendur blaðsins ella
hafa hleypt honum í ritstjóra sessmn.
Landmandsbanken í Kaupmannahöfn
fékk nýlega peningasendingu frá banka
í París, og áttu það að vera 10 þús- franka
i frakknesku gulli (20 franka gullpen-
ingum). — En er peningasendingin kom
til Kaupmannahafnar sást á pokanum,
að í hann hafði verið farið, og vantaði
í hann 6600 franka, en í stað gullpen-
inganna höfðu í pokann verið látnir þýzk-
ir eins og tveggja pfenmnga-koparpen-
ingar.
Hald manna, og þó eigi vissa, er það,
að þjófnaðurinn hafi verið framinn á
Þýzkalandi, og var nú, er síðast' fréttist
verið sem óðast að gera eptirgrennslanir.
Hreift hefir því verið i blöðum í Ev-
rópu, að Haraldi prinz, bróður Christians
konungs X., verði ef til viii boðið, að
gjörast fursti eða þá konungur í Make-
doníu, er ófriðinum á Balkanskaganum
lýkur, en sænskum prinz þá boðið fursta-
eða konungdæmi í Albaníu.
Hvort nokkuð verður frekara úr þessu,
en lauslegt blaða-þvaður, skal þó alósagt
látið að sinni.
Noregur.
Þar fóru fram þingkosningar 21. okt.
þ. á., og hefir fréttzt, að kosnir hafi þá
verið 38 vinstrimenn, 15 hægrimenn og
9 jafnaðarmenn, en í 61 kjördæmi verð-
ur að endurkjósa.
Kosningarnar, sem þegar eru um garð
gengnar, sýna þó, að vinstnmenn hafa
byrinn með sér, þar sem þeir hafa þegar
unnið 9 þingsæti frá hægnmönnum.
Talið því víst, að Bratlie-ráðaneytiö
verði að sleppa völdum, jafnskjótt er
kosningarnar eru um garð gengnar.
Bautasteinn var Joh. Soendsen, hinum
fræga tónlagasmið Norðmanna, reístur i
sumar í kirkjugarðinum í Kristjaníu.
Bautasteinninn er óhöggvinn granít-
steinn, mcð svartn plötu á framhiiðinni,
og á hana letrað nafn hans og fæðingar-
og dánarárið (1848—1911).
En leiðið er örskammt frá leiði norsku
stórskáldanna, Björnson’s og 1 bsen’s.
Svíþjóð.
10. okt. þ. á. var í Stokkhólmi af-
hjúpað líkneski til minningar um orust-
una við Brunkebjerg, er sænski bænda-
herinn vann sigur á herliði Christiern’s
konungs I.; en Brunkebjerg er sandhæð,
sem nokkur hluti Stokkhólms nær nú
yfir.
Aður en sænska skáldið August Strind-
berg andaðist, ánafnaði hann, í erfðaskrá
sinni, 20 þús. króna til satns, er bera á
nafn hans.
Yerður það því rrefnt „Strindberg-
Museum“, og þar þá óefað varðveitt
ýmislegt, er að æfi hans og ritstörfum
lýtur.
Þýzkaland.
Það slys varð í grennd við borgina
Dresden, 20. okt. þ. á., að loptfar steypt-
ist til jarðar úr ail-mikilli hæð, og biðu
báðir mennirnir, sem í loptfarrnu voru,
bráðan bana.
Var annar þeirra Gerich verkfræðing-
ur, alvanur loptsiglingum, og hafði í fyrra
hlotið hæstu verðlaun við kappraun í
Ameriku.
Næsta ár (1913) verður í grennd við
borgina Leipzig afhjúpað afar-stórt lik-
neski til minningar um fólkorustuna, er
þar var háð við Napoleon míkla árið 1813,
og Þjóðverjar áttu sigri að hrósa, enda
telja þerr þá og viðrersnartíma sinn byrja.
Aformað er, að V ilhjAlmur keisari
verði þar viðstaddur, enda verða þá og
25 ár lrðin siðan er hann hófst til keisara-
tignar.
Seint i okt. þ. á. vildi það slys til,
að þýzki krónprinsinn datt af hestsbaki,
og meiddist á hægri handlegg; —meiðsl-
in þó eigi talin hættuieg.
Kjötskortur hefir í haust verið afar-
mikill víða á Þýzkalandi, og var þvi ný
3keð, í borginni Halle, farið að slátra að
mun hundum, og eptirspurnin — eptir
hundaketinu — feykileg.
Frakkland.
26. okt. til 10. nóv. þ. á. var í París