Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.05.1915, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.05.1915, Blaðsíða 2
8i ÞJOÐVILJINN. XXIX., Í4.-25. „Með því að fundurinn væntir þess fast- l«ga, að mál þetta verði lagt fyrir þingið, áður en stjórnaiskráin verður staðfest og að þingið þá verði leyst upp, ef ekki tæst samkomulag um málið innan Sjálfstæðie- flokksins, tekur fundurinn fyrir næsta mál á dagskrá11. En dagskrá þessi var felld með 78 atkv. gegn 24. 'íillaga h>. Sigurdar Eggerz, — áskor- unin uni þingrof og nýjar kosningar, áður en stjórnarskrárbreytingin yrði staðfest, var síðan samþykkt með 82 atkv. gegn 10. Meiri en þessi var byr „ný-bræðing- anna“ þá eigi í félaginu, og böfðu þeir þó haft viðbúnað töluverðan áður og sízt legið á liði sínu, að mælt er. Urgur i „ný-bræðingunum“. Töluverður urgur kom í „ný-bræð- ingana“, höfuðpaurana fjóra, i Sjálfstæð- isflokks-miðstjórninni gömlu, er þeim barst bréfið frá oss Sjálfstæðismönnunum, sem birt er hér framar f blaðinu. Svöruðu þeir oss bréflega daginnept- ir (24. maí), — töldu oss hafa ólöglega ,,úrskurðað“(!) sig úr miðstjórninni, gæt- andi þess þá eigi, eða viljandi eigi viður- kenna, að þeir voru að sjálfsögðu allir sjálf-oltnir úr Sjálfstæðisflokknum, er þeir tóku höndum saman við menn úr mót- flokknum1): a) til að hremma til sín ráðherra-sess- inn, að Sjálfstæðisflokknum (þing- meirihlutanum) fornspurðum, og b) til að traðka þingviljanum, þ. e. „fyrirvara“ síðasta Alþingis í stjórn- arskrármálinu. Um tvo þessara manna (hr. Brynjólf Björnsson og Ólaf Björnsson) er þess og að geta, að eigi voru þeir, sem vér hinir fimm, í miðstjórnina kosnir í þinglokin í fyrra, en kvaddir af oss fimm-menningunum oss til aðstoðar á siðastl. hausti. Auðvitað voru þeir þá og í miðstjórn- ina teknir sem verandi Sjálfstæðismenn, og af því að vér treystum því þá, sem brugðist liefur, að þeir viltust eigi frá stefnu Sjálfstæðisflokksins. Hefðum vér þá vitað það fyrir, sem nú er fram komið, hefdum vér ad sjálf- sögdu hvorugan þeirra í midstjórnina tekid. Þetta allt er nú hefur sagt verið, og 1) Það, að hr. E. A. hafi giörzt ráðherra með etuðningi mótflokksins, þ. e. manna úr „heima- stjórnar''flokknum, eins og segir í bréfinu, bygg- ist að sjálfsögðu að eins á ágizkun. Talið vist, að Hafstein o. fl. muni honum hliðhollir, til að skapa sundrunginj í Sjálfstæðis- flokknum, en neitað á hinn bóginn af öðrum, þeim megin, að þeir hafi heilið honum stuðningi. Sennilegast, að ekki séu þeir Sveinn og Guð- mundur þó al-einu styðjendurnir, þó að eptirlauna- vonin sé vitanlegs mjög sæt. Sk. Th. '!■1 'i"-i'i.i'LipjijL'pjH||MlljnpjMun :y r j -. ÞJÓÐVILJINN. Verð árgangsins (minnst 60 arkir) 3 kr. 50 aur., erlendis 4 kr. 50 aur. og i Ameriku doll.: 1,50. Borgist fyrir júni- mánaðarlok. — Uppsögn skrifleg, ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 30. dag júnimánaðar og ksupandi samhliða uppsögninni borgi skuid slna fyrir blaðið. svo hitt, er „ný-bræðingarnir“ gefa það ótvírætt í skyn í fyr greindu bréfi sínu (frá 24. maí), að þeir telji sig enn í stjórn Sjálfstæðisflokksins, gerði það því nauð- synlegt að senda mönnunum — til frek- ari glöggvunar þeim á bréfi voru (frá 23. maí) — línurnar, er hér fara á eptir: Bréfi yðar, frá í gær, svarast á þessa leið: Þér sjáið það sjálfir, að miðstjórn- in gamla getur ekki annað en verið úr sögunni, og vér, sem í henni vor- um, eigi saman unnið að svo stöddu. Vér förum þá vorra ferða og höf- um vora flokksstjórn, og viljum eigi að það sé talið gert í voru nafni, sem þér kunnið að gera; — en svo mætti álita, ef þér gerðuð eða gæf- uð út ályktanir í nafni gömlu mið- stjórnarinnar. Fundabók Sjálfstæðisflokksins á þingi og miðstjórnarinnar, verða að sjálfsögðu, er þingmenn koma sam- an, afhentar þingmönnunum, er í Sjáltstæðisflokknum voru á síðasta Alþingi, en ef þér þarfnist eptirrits af einhverju, getur Bjarni frá Vogi, er bækurnar geymir, látið yður það í té. Reykjavik 25. maí 1915. Skúli lho> oddsen. Til hr. Sveins Björnssonar, Einars Arn- órssonar, Ólaf's Björnssonar og Br. Björnssonar. „ísafold" (26. maí þ. á.) telur oss eigi munu „vaxa í áliti og trausti þjóðarinn- ar, eptir svona lagað athæfi“, — segir þar heitustu og einlægustu óskina sína. Ótrúlegt er það þó, að þjóðinni þyki það eigi iallegra, að vilja, að allir, sem hlut eiga að máli, komi hér til dyranna eins og þeir eru klæddir, þ. e. reyni eigi að blekkja menn á sér, með því að látast nú vera allir aðrir, en þeir eru, — telji sig til Sjálfstæðisflokksins, þótt þeir berj- ist nú sem öfluglegast gegn stefnu hans. Vér öfundum því hvorki „ísafold11 né aðra af heiðrinum (!), sem slíkt athæn bakar. ~f~ símskeyti frá Reykjavík, sem birt er í dansks -L blaiinu „Politiken“ 4. maí þ. á. (1915) oe nafnið „Finsen“ stendur undir, segir i niður- laginu: „Bæjarfógetinn á Akureyri,*) Júlíus Havsteen, andaðist í morgun“. Merkilegt, að „íaafold11 skuli haía sést yfir þetta, — hefði sjálfsagt talið sér skylt ella, að fræða lesendur sina um það. *) A óefað að tákna Július amtmann Hav- stoen. Blekkinga-tilrannir „ný-bræðinganna“. Ekki getur það verið í öðru skyni gert, en til að reyna að villa mönnum sýn, er bæði ntstjóri „ísafoldar“, nýi ráðherrann (hr. E. A.), Sveinn alþm. Björnsson o. fl., telja sig enn þá til Sjálf- stæðisflokksins. Hví hafa mennirnir eigi hreinskilnis- lega sagt, sem er, að þeir hafi nú — rétt eina ferðina(!) — skipt um flokk og skoðun? Tilgangurinn er auðsær. Þeir hafa verið og eru sem óðast að reyna að ginna æ fleiri og fleiri úr Sjálf- stæðisflokknum og inn á dönsku „ný- bræðings“ -brautina. Og meðan það er að gerast, þá er þeim það mjög áríðandi, að vera taldir í Sjálfstæðisflokknum. Segðu þeir, sem er, að nú væri „Lög- rétta“ m. m. orðin adál-leidai stjai nan þeirra þá væri afla-vonin óefad minní, — færri Sjálfstæðismennirnir, er flekast létu. En því fremur verða Sjálfstæðismenn þá og að varast það, að láta „ný-bræð- ingana“ græða á þessu laumuspili sinu. Það á að leiða til hins — gagnstæða. Nýjar bækur. Kynbætur sauðfjár, yfirlit og leiðbeiningar ept- ir Jón H. Þotbergsson. — Rvík 1915. — 144 bls. 8vo. Höfundur bókarinnar, hr. Jón H. Þor- bergsson, hefur þegar, sem kunnugt er, ritað eigi all-lítið um fjárræktina hér á landi, og haldið fjölda fyrirlestra um sama efni, bæði á bændanámskeiðum og víðar. Um sömu efnin fræðir hann menn nú og í bókinni „Kynbætur sauðfjár11, og verður þá gengið að öllu á einum stað Efum vér eigi, að öllum, sem sauð- fjárrækt stunda, eða um hana verða að hugsa, verði bókin mjög kærkomin og geri sér því brátt far um að eignast hana, — láti sig ekki muna um verðið (1 kr. 25 a.), enda fái það þá og fyr eða síðar marg-borgað, hagnýti þeir sér leiðbein- ingarnar, sem í bókinni eru. Efninu skiptir höfundunnn í tvo aðal- kafla: a) Yflrlit og b) Leidbeiningat. Ræðir hann í fyrra aðal-kaflanum um uppruna fjátins, hvar það sé edlisbezt hér á landi, sem og um fódureydsluna, hirdingu saudfjár, ardinn afþví, um naud- syn skynsamlegs heyásetnings o. fl. o. fl. í síðari aðal-kaflanum er á hinn bóg- inn skýrt frá því, hversu greina eigi gódu rœktar einkennin á fénu frá hinum, sem íll eru, — gefur og leiðbeiningar um kynbœtut saudfjá), um œttgengid, áhrif

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.