Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.05.1915, Qupperneq 7

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 29.05.1915, Qupperneq 7
ÞjOÐ VILJIiSxV. 89 XXIX., 24.-25. 7. — Sigr. Guðrmindsson á Li'óaavatni Líklega verða það þeir sira Asgeir i Hvammi, og síra Páll Stephensen, sem aðal-kosningar- hríðin verður mest um. „IngólfshvoIl“. „Ingólfshvolu, hús dánarhús Guðjóns heitins Sigurðssonar, úi-smiðs, er nú i ráði, að Oddfélag- ar í Reykjavik kaupi, fyrir OS1/^ þús. króna, og flytja þá fundasal sinn þangað. Skaðinn, som af brunanum mikla hlauzt, kvað vera metinn alls 17,760 kr., sem Oddfélagar fá þá og að sjálfsögðu borgaðau, og nota til að- gjörða á húsinu. Maður fyrirfer sér. (íslendingur i Kaupmannahöfn) Ný frétt er hingað, að Moeses Jónsson ís- lendingur, er dvaldi i Kaupmannahöfn, hafi fyrir- farið sér þar, — atvinnuskortur, og peninga- vandræði, kreppt svo mjög að honum. Aður enn maður þessi sigldi til útlanda, dvaldi hann hér i höfuðstaðnum (Reykjavík), en kvað hafa verið ættaður úr Mosfellssveitinni. REYKJAVÍK 29. mai 1915. „Christianssundu, aukaskip „Sameinaða gufu- skipafélagsins11, hélt héðan til ísafjarðar laugar- daginn 15. þ. m. „Erfðaskráin hennar Binu frænku11 er nafnið á sjónleik eptir danska leikritahöfundinn Edgar Höyer, sem félagið „Hringurinn“ sýndi hér i bænum i „Iðnó“, fjögur kvöld í röð, 18.—21. þ. m. Agóðanum ver félagið til styrktar fátækum berklaveikis-s j úk lingum. Höfundur leikritsins, hr. Edgar, er fæddur í Kaupmannaböfn 24. okt. 1859 og varð yfir- réttarmálafærslumaður árið 1886. Hann hefur samið fjölda leikrita, er sýnd hafa verið i leikhúsum i Kaupmannahöfn, og sum og í Noregi og í Svíþjóð. Leikurinn þótti fara konunum (meðlimum ,,Hringsins“) mjög vel úr hendi og skemmtu áhorfendurnir sér prýðilega. „Morgunblaðið11 (15. mai) getur þess, að hr. Harry Bookless, bróðir útgerðarmannsins i Hafn- arfirði, hafi nýlega fallið i orustu á Gallipoli- skaganum, — var einn í herliðinu, sem brezku herskipin skutu þar á land, til þess aðhaldatil Konstantínópel þá leiðina. Hr. Harry Bookless var staddur í Hafnarfirði, er norðurálfu-ófriðurinn hófst, og brá þá við og gerðist sjálfboðaliði í her Breta. „Gullfoss" lagði af stað hingað heimleiðis frá New York að kvöldi 14. þ. m. Seglskipsfarm af cementi fékk verzlunarfélag- ið Johnson & Kaaber frá útlöndum 16, þ. m. f Aðfaranóttina 17. þ. m. andaðist hér í bæn- um frú María Finsen, ekkja Óla heitins Finsen’s póstmeistara. Hún var fædd 18. júlf 1845, og voru foreldr- ar hennar: Þórður háyfirdómari Jónassen og Soffía, kona hans. 26. júni 1875 giptist hún Óla póstmeistara Finsen (f 1897) og varð þeim alls 6 barna auðið. — Af börnunum eru nú þessi 4 á Hfi: 1. Soffía, gipt Pétri Hjaltested, aðstoðarmanni i Stjórnarráðinu. 2. Vilhjálmur, ritstjóri „Morgunblaðsins11. 3. Carl. 4. Hendrikka, og eru hin tvö síðast nefndu enn ógipt.1) 1) Carl giptist i dag ungfrú Guðrúnu Aðal- stein, simamey, og færir blaðið þeim heilla-ósk sfna. Frú María Finsen var einkar stjóinsöm sem húsmóðir, vel menntuð og prúðmannleg i fram- göngu, og f hvivetna mesta sómakona. Börnum sínum var hún hin umhyggjusamasta og vinum sínum hin trygglyndasta. „Flora“ lagði af Btað héðan vestur og norður um land. Meðal farþega, er héðan fóru með skipinu, var Páll bæjarfógeti Einarsson á Akureyri. „Vesta11 kom hingað trá útlöndum, sunnan ura land, 21. þ. m., og hafði á hingað-leiðinni komið við á Austfjcrðum. Frá útlöndum kom með skipinu: Nathan umboðssali, og frá Austfjörðum: Guðm. land- læknir Björnsson (úr embættiseptirlitsferð), Lárus bóksali Tómasson o. fl. Jarðarför frú Mariu Finseu fór fram hér f bænum laugardaginn 22. þ. m. Húskveðjuna, er hófst á sorgarheimilinu (í Austurstræti nr. 1) á hádegi, flutti síra Bjarni Jónsson. Dómkirkjan var að mun Ijósum prýdd f kórn- um, og líkfylgdin all-fjölmenn. Á undan líkræðunni, er dómkirkjupresturinn síra Jóhann Þorkelsson flutti, vorn sungin síðustu versin af 44. sálminum í passíusálmunum: „Vertu guð faðir, faðir minn“, en á eptir sálmurinn: „Hærra minn guð til þín“. ý í 21.—22. nr. blaðs vors þ. á. var stutt- lega getið láts Sigurður Waage verzlunarmanns. Hann dó að morgni 5. maf siðastl., og voru það afleiðingar „influenzu“-veikinnar, er leiddu hann til bana. Fæddur var hann hér í bænum 28. sept. 1861, og var tvikvæntur. — Fyrri konuna. Magdalenu Olsen, missti haun 1896, og drengur, er þau áttu, var og dáinn á undan honum. Seinni kona hans, er lifir hann, heitir Hend- rikka Jónsdóttir, og eiga þau tvo drengi á lífi. 190 Símskeytið var þá svo látandi: „Tom“, sem í spaugi er hér nefndnr Phöbus Morghan, «r hér talinn maður, sem stúlkurnar hafa látið ósköpin öll með, og talinn þó heiðvirður, að eðlisfari. Hann neyddist, til að fara- alfarinn frá W . . ., vegna hræðslu konu nokkurrar, tiginnar, er notaði hann, til að hlífa annari konu, er hann eigi vildi, að komið væri upp um. í Rómaborg er sagt, að hann hafi kvongazt rfkri, ítalskri ionu, er mikinn arf eigi f vændum. Faðir hans komst á vonarvöl, — átti námu, er flla fór um“. „Ríkri, ítalskri, konu, er mikinn arf eigi í vænd- nm“, tók Windmuller upp aptur. „Komst hann nú að sannleikanum fyrir brúðkauptð, eða eptir það? Og hafi hið fyrra átt sér stað, hefur hon- um þá þótt leitt, að hætta við allt, eða hefur hann — hafi hið siðara vesið — borið vonbrigðin, sem heiðvirð- um manni vel sæmdi? Elskar hann konu sína sjálfrar hennar vegna? Gerir Gío honum rangt til, er hún hefir ótrú á honum, — ótrú, sem sprottin er þá að eins af því, að henni geðjast eigi að honum? Jeg þekki menn, sem heiðvirðir voru, meðan er fé höfðu, en féllu síðan fyrir freistingunni, og hafa síðan gert ýtrustu tilraunir til þess, að komast aptur á rétta braut! Hm! En hvað skyldi klukkan annars vera orðin? Orðin — þrjú! Og enn ekkert starfað! Kom inn! Það var Pfifferling, sem var að troða sér inn um dyrnar. „Þóknast prófessornum að skipa mér nokkuð?“ 187 „Þér megið kaila mig, hvað sem þér viljið, skilji jeg eitt orð af þvi, sem þér segið!u svaraði Nikkel. „Hvað eigið þér við? Segið það skýrt, og skilmerkilega! Til hvers á eg að hjálpa yður?“ „Ætlið þér að telja mér trú um, að þér, eigi óskyn- samari, en þér eruð, hafið eigi þegar gizkað á það?u svar- aði Windmuller, og brosti, en hvíslaði síðan að henni: „Við sameinum krapta okkar, og sjáum svo um, að Gío verði þó húsbóndi í sínu eigin húsi! Skiljið þér mig þá ekki?“ „Jú, vist geri eg það! En — „En sofið nú fyrst stundarkorn!*1 mælti Windmuller „Sjáum6t svo aptur! Sofið nú vel!“ l „Þakka yður! óska yður hins sama!“ tautaði Nikkel frænka, lágt, og hvarf inn í herbergi sitt Þar staðnæmdist hún um hríð, studdi höndum í siðu, einblíndi upp í loptið, og hugsaði. Loks brosti hún, og andlitið varð að mun býrara. „Jæja! Jeg á þá að hjálpa Gio! Já, hví ekki?“ mælti hún við sjálfa sig. „Maður getur brennt á sér putana — en hafi maður þá glófa, sem við á---------! fróð- legt annars að vita, af hverju Maller gamli ræður það, að jeg geti að liði orðið í því tílliti!“ Nikkel frænka sofnaði siðan, hálf-blægjandi. Að þvi er Windmuller snerti, gerði hann á hinn bóginn hvorki, að hlægja, né að tæra að sofa. Honum bjó alvara í huga, og því ekkertfjær skapi, en að fara að sofa. Þegar hann var kominn upp á herbergi sitt, gekk hann fyrst að mynd BíönkuCapello, og virt; hana lengi, og nákvæmlega, fyrir sér, ekki sízt hringinn, sem á fingri

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.