Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 07.10.1915, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 07.10.1915, Blaðsíða 2
£ j C J) V ií'i xT. XXIX, 4®.—49. Aíhjúpað líkneski Christian’s konungs IX. Sunnudagiun 26. septbr. síðastl., á afmælisdegi núverandi konungs vors, Christian’s X., fór fram afhjúpun líkneskis Christian’s konungs IX. Líkneskið er reist á Stjórnaráðs-blett- inum, til vinstri handar er upp að hús- inu er gengið frá Lækjartorgi, en til hægri handar er likneski Jóns forseta Sigurðs- sonar. Afhjúpunar-athöfnin hófst kl. 2 e. h. og hafði þá safnast þar mesti aragrúi fólks þar í grenndinni (á Lækjartorginu, Hverfisgötu og „Bakarastignum“ eða í Bankastræti, som nú mun svo kallað). Lúðrasveit Bernburg’s lók lagið: „Ó, guð vors lands“, og flutti Kleraenz land- ritari Jónsson síðan afhjúpunarræðuna, og bað að iokum elzta borgara bæjarins, Geir kaupmann Zoega, að svipta blæj- uuni af líkneskinu. En er Geir kaupmaður Zoéga hafði svipt biæjunni af líkneskinu kváðu við dynjandi fallbyssuskotin frá danska varð- skipinu „Islands Falk“, er lá hér á höfn- inni, en lúðraflokkur Bernburg’s lék síðan „Kong ChrÍ8tian“ og að lokum alkunna, íslenzka ættjarðarkvæðið: „Ó, fögur er vor fósturjörð11. Guðm. skáld Guðmundsson hafði og ort kvæði, sem er svo látandi: Af minning Kristjáns konungs stafar Ijómi, í kærleik þjóðar lifir nafnið hans: af „frelsisskrá“ hans óx vor auðna og sómi og auknar heilla-vonir þessa lands. Guð blessi alla’ er unnu’ að því og vinna að ísland megi fullum rétti ná, og láti’ oss krapt og kjarkinn til þess finna að kunna’ að nota vora stjórnarskrá. Líkneskið er eirlíkneski, er gjört hefir Einar myndhöggvari Jónsson, og er sagt, að ættmennum Kristjáns konungs IX., sem hann þekktu vel, hafi líkað líkneskið mjög vel. „Fréttir“. Lað er nafnið á dagbiaði, sem cand. Einar Gunnarsson er‘ ný byrjaður að gefa út. — Fyrsta töiublaðið kom út 2. okt. þ. á. Óveitt prófessoi's-embætti. (Lagadeild Háskólans). Umsækendur um prófessors-embættið við lagadeild Háskólans (embættið, sem núverandi ráðherra gegndi) eru: Lög- fræðingarnir: Bogi Brynjólfsson, Oddur Hermannsson, ólafur Lárusson og Sig. Lýðsson. — Einn þeirra, hr. Ólafur Lárus- son hefur nú verið settur til að gegna embættinu, og er þá óefað ætlað það. Norðurálfu-ófriðurinn. (Hvað helzt hefur tíðinda gerzt.) Síðan blað vort gat síðast tíðmda af ófriðnum, hefir það gerzt sögulegast, er nú greinir: Nokkru eptir það, er Þjóðverjar höfðu náð Warschaw, hötuðborginni í Pólverja- landi (sbr. 40.—41. nr. blaðs vors þ. á.), náðu þeir og borginni Vilna. En Vilna er stórborg (ibúar um 175 þús.), við járnbrautarstöðina milli War- schaw og Pétursborgar. Um sömu mundir tókst Þjóðverjum og að rjúfa herlínu Rússa í Kúrlandi og yfirleitt urðu Rússar þá hvívetna undan að hörfa. Ófarir þessar eigna sumir Rússa vinir því, að ein af aðal-hergagnaverksmiðjum þeirra — verksmiðjan í Ochta í útjaðri Pétursborgar — hafi verið sprengd í lopt upp. í verksmiðjunni vann fjöldi þýzku- mælandi manna úr Eystrasaltslöndum Rússa, og segja menn, að einhverjir þeirra hafi verið fengnir til þess að sprengja hana í lopt upp. Á hinn bóginn herma síðustu fregnir þó, að Rússar séu nú farnir að sækja sig, — haft náð borgunum Luzk og Kras- nov og sæki nú fram á öllu orustu-svæð- inu. Þá herma og síðustu fregnir (sim- skeyti frá Kaupmannahöfn 28. sept. o. fl.), að Frakkar liafi tekið fremstu varnarlinu Þjóðverja i Champagne- héraðiuu, handtekid þar 22 þús. Þjód- veija og nád hei fangi miklu, þar á med- al um 100 fallbyssum. Jafn framt er og sagt, ad Bietum hafi og unnist á i Belgiu. Loks bárust og (síðast í sept.) fregn- ir um það, að Grikkir væru nú tekn- ir að hervæðast, — hefdu bodid út 350 j þús. manna. Það er því audsœtt, ad Gtikkh œtla sér eigi ad sitja hjá lengui, — vilja án efa ná i eitthvad af reitum Tyrkjans (eyjar í Grikklandshafi og lönd á Litlu- Asiuströndum), er til fridarsamninganna kemur. Meðan Þjóðverjar halda enn megninu af herskipastól sínum og óvinunum hefir enn ekki tekist að brjótast inn i land þeirra, þá er þó friðarsamninganna óefað enn langt að bíða. „Eimskipafélag íslands". Ný hlutafjár-söfnun. Eins og sést af auglýsingunni, sem birt var í 45.—46. nr. blaðs vors þ. á. og birt er að nýju í þessu nr. blaðsins, hefir stjórn „Eimskipafélags íslands11 ný- lega ályktað, ad efna ad nýju til hluta- fjársöfnunar, og er það gert í því skyni, að fólagið geti útvegað sér 1500 smá- lesta vöruflutningaskip. Það er kunnugt, að síðan skip félags- ins tóku til starfa í ár, hafa þau einatt haft fullfermi af vörum frá útlöndum og jafn vel orðið að neita að taka útl. vörur til flutnings, svo sem óskað hefir verið. Að vísu er nú svo, að „opt er fyrst allt frægast“, svo að valt er að byggja um of á reynzlunni, sera fenginn er, ekki lengri en tíminn enn er. Á hinn bóginn má þó án efa gera ráð fyrir því, að ekki hefði stjórn félags- ins ráðist í það, að efna nú þegar til hlutafjáruöfnunar í ofangreindu skyni, teldi hún það eigi alveg vist, að félag- inu sé það vis hagut, og landinu þá og í heild sinni mjög gagnlegt, að félagið færi svo út kvíarnar, sem fyr segir. Hvort sem á land- eða sjávar-afurðir er litið, þá er og árið í ár slikt velti-át, ekki sízt vegna geypi-háa verðsins, sem varan er í, ad sliks eru engin dœmi, og því fráleitt að efa, að fjöldi þeirra, er góðs njóta af, bregðist nú vel við áskor- un „Eimskipafélags-stjórnarinnar“, svo að talsvert fé hafist saman þegar í haust. Um hina, sem eigi eru í tölu fram- leiðandanna, en háa verðið á innlendum og útlendum varningi bitnar mjög þungt á, verður á hinn bóginn að sjálfsögðu allt ödru máli ad gegna, þar sem margir þeirra geta nú iafn vel eigi hugsað kvíða- laust til vetrarins, er í hönd fer. Sjálfsagt er og — eins og félagsstjórn- in víkur og að i boðsbréfinu —, að ekk- ert sé átt við smíði skipsins, eins og nú er ástatt, þ. e. rr.eðan efni og smíði er jafn afskaplega dýrt, eins og nú er, vegna norðurálfu-ófriðarins. En hitt er rétt, að þeir, sem styðja vilja fyrirtækið og nú hafa nóg féð til þess — og þeir eru án efa eigi fáir — dtagi þad þó eigi ad leggja framhlutaféd* Ekki er að vita, hve lengi það verður, sem tökin eru jafn góð, — peniugarnir eitt af því, sem fljótt er einatt að fara. t Laugardaginn 25. sept. þ. á. andaðist Skúli pöntunarfélagsstjóri Jónsson á Blönduósi (í Húnavatnssýslu). Banamein hans var lungnabólga. Skúli heitinn var dugnaðarmaður á bezta aldri, og er samsýslungum hans og öðrum, er hann þekktu, mikil eptirsjá að honum,

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.