Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 07.10.1915, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 07.10.1915, Blaðsíða 4
100 ÞJUiJ V ílj iiN xs í Kaupmannahöfn. ,,Bikuben“ gekkst hann fyrir að stofn- uð yrði og varð forstjóri hennar árið 1867. Hellmann andaðist í Kaupmannahöfn árið 1881, — 66 ára að aldri. Nýlega lét Asquith, forsætisráðherra Breta, það í ljósi við fulltrúa verziunar- manna, er fund hans sóttu, að stjórnin yrði nú — atvikanna vegna — að íhuga, hvert ekki væri rétt, að í stað frjálsu verzlunarinnar, sem verið hefði, kæmu nú aðiiutningsgjöld á innfluttar vörur. Hjá Frökkum hefði sú stefnan orðið ofan á eptir fransk-þýzka stríðið 1870— 1871. Þegar Chamberlain hefði barizt fyrir verndartollum, hefði það orðið að engu, — og þá eigi að eins af 'því, hve gamall og lasburða hann var orðinn, en Iremur af hinu, að þörfin hefði þá enn engin verið. Samkvæmt skýrslu danska stórkaup- mannafélagsins i Kaupmannahöfn, þá er talið, að smálestatal ný smíðaðra skipa á jörðinni hafi árið 1914 orðið nær l/a millj. smálesta minna en árið áður, þ. e, lækkað úr 3,38 millj. niður i alls ‘2,85 millj. t Dáinn er í ágústmán. þ, á. í her- togadæminu Krain (í Austurríki) norður- farinn Julius von Payer, fæddur í Tep- litz árið 1842. Árið 1869—’70 tók hanu þátt í norð- urför Þjóðverjans Koldevey, og gerði þá uppdrætti af fjörðum og héruðum á aust- urströnd Grænlands. Árin þar á eptir var hann og í norð- urförum (fyrst árið 1871 og síðan árin 1872—’74) og fann hann þá vorið 1874 „Franz Josepsland11, sem svo var nefnt, eptir Austurríkiskeisaranum, Franz Josep, sem enn er á lífi. Tvo vetur voru þeir féiagar þar nyrðra inniluktir af hafísnum og hrakti þá nær til 83. gráðu norðlægrar breiddar og lentu að mun í ýmiskonar mannraunum. Payer hefir ntað fjölda greina í landa- fræðis-tímarit, samið bók um norðurför- ina 1872—’74 o. fl. Mest hefir hann þó, um frek þrjátíu árin síðustu, starfað sem listmálari, og málað þá tíðast sagnfræðilega atburði, þar á meðal úr lífi Franklins norðurfara, er ætlaði að fara „norðvestur-leiðina“, sem svo er nefnd, þ. e.: að komast alla leið norðan um Ameríku, á skipunum „Ere- bus“ og „Terror“, en beið bana í þeirri för (11. júní 1847), að þvi er upplýst varð nokkrum árum síðar. Mjög vandað rit hefir danska skipa- smíðastöðin „Burmeister & Wain“ gefið út í sumar. Ritið rekur starfsemi félagsins síðan það var stofnað, — flytur og myndir af skiputn, er þar hafa smíðuð verið. Fregnir frá Alþingi. Xll. Þingsályktunartillögurnar. (Tala þeirra á Alþingi 1916.) Þingsályktunartillögurnar, er bornar voru fram á þinginu ný afstaðna, voru alls 34 að tölu, og lutu 11 þeirra að eins að því, að skipuð yrði nefnd til að íhuga það eða það málefni (sbr. t. d.: strand- ferðanefnd, landbúnaðarnefnd, sjávarút- vegsnefnd o. s. frv.). Að öðru leyti voru 15 af þingsálykt- unartillögunum sam þykktai, en 6 felldar og 2 teknar aptur. Þjóðskjalasafnið.j Töluverður ágreiningur varð á þing- inu um frumvarpxð um Þjóðskjalasafnið, en það samþykkt þó að lokum í neðri deild til fullnaðar með 15 „já-um“ gegn 8 „nei-um“. Gegnir það þó að visu stærstri furdu, hve lengi formaður safnsins, dr. Jón Þor- kelsson hefir þolad almöglunarlaust mis- réttid, er hann hefir átt við að búa, ad hafa ad eins 1800 kr. ad launum, þar sem formadur landshókasafnsins hefii þó haft 3000 kr. fyrir mjög svipaðan starfa, — og engu meiri né veglegri, eða þýð- ingarmeiri fyrir landið. Fulltrúaráð íslandsbanka. Yið kosninguna í fulltrúaráóið í sam- eínuðu Alþingi (13. sept.) hlaut Stefán skólameistari 19 atkv., en 15 atkvæða- seðlar voru auðir. — Síra Sigurður Guiin- arsson hlaut á hinn bóginn 20 atkv. og 16 seðlar þá auðir. Fyrirspurnir. (bornar fram á Alþingi). Fyrirspurnirnar, er beint var tii rá<ð- herra á þinginu í sumar voru alls 7 að tölu, og er flestra þeirra, ef eigi allra, getið þegar í blaði voru. Landsbanka-yftrskoðaniinn. Við kosningu Landsbanka-revisorsins á fundi sameinaðs Alþingis (13. sept.) hlaut hr. Jakob Möller 24 atkv., en Ben. Sveinsson, sem gegnt hefir starftnu árum saman og eigi verið að fundið, hlaut að eine 15 atkv. Þad, ad kosinn er madur, sem verid hefir til skamms tima, ef hann þá eigi enn er það, nndirmaður bankastjórnar- innar (þ. e. bankastjóra og gæzlumanna), verdur og naumast talinkuiteisiihennar gard (þ. e. bankastjórnarinnar.) Rökstuddar dagskrár á þingi. Alls voru þær 23 að tölu „rökstuddu dagskrárnar“ svo nefndu, er fram voru bornar á þinginu í sumar. Af þeim voru alls 13 samþykktar, en um hinar, 10 að tölu fór svo, að þær voru felldar. AAI.V, ítð,—-td Sigurður Sigurðsson frá Vigur ylirdómslögmaður Aðalstræti 26 A Isafirði Talsími 43 Heima kl. 4—5 e. h. Söfnunarsjóðnrinn. Auk þess er neðri deild endurkaus M. Stephensen, sem gæzlustjóra „Söfn- unarsjóðsins", eins og þegar hefir í blaði voru getið verið, kaus og efri deild, sem hinn gæzlustjórann: Tryggva Gunnarsson K. af Dbr. Hann kom í stað Júlíusar heitins Hav- steen’s amtmanns. XIII. Þrettándi (þ. e. síðasti) þingtrétta-kaílinn. Þ4 hefst príttándi eða síðasti kafli þingfrétt- anna að þessu sinni, þvf aí lög ?rá þinginu o. fl., sera enn kanr< þ& ótalið að vera, birtist þá undir annari fyrirsogn eða fyrirsögnum f blaðinu Lagafrunivörpin. (Tala þeirra.) Lagafrumvörpin, sem borin voru fram á þing- in 1915 voru, sem hér segir: I. Stjórnarfrumvörpin .... 22 II, Þingmanna-frumvörpin 76 Alls 98 Frumvörpin) sem app voru borin á þinginu, voru því afar-mörg að þessu sinni,. eins og talan bér að ofan sýnir. Lögin, sein afgreidd voru. Frumvörpin,. sem fötluðust. Af 98 lagafruravörpum, er fram voru alls borin & þinginu, voru alls afgmdd sem lög: 1. Af stjórnartrumvörpunum..... 20 2. Af þingmannafrumvörpunuro. . 38 Alls 58 Frumvórpin, sem- tótluöust, þ>. e. eigi náðu.; fram að ganga & þinginu, voru:. 1. Fallin. frumvörp: a) stjórnarfrurnvörp ... 2? b) þingmanafrumvörp .2T......... 29 2. Þingmannnafrumvörp, teián aptur . 5 3. Óútrœdd þingroannafrumvörp .... 6. Alls 40;' Vörukaup landssjóðs. (Atbugað af þingnetnd.) íiefnd vtu, kosin f sameinuðu þingi til að 1- huga vörukaup landssjóðs, er gjörð höfðu verið (aí ráðberra) með ráði fráförnu „velferðarnefnd- aoiinnar11. Þinglokadaginn var lögð fram prenbuð skýrsla. frá nofndxnni. Þegnskylduvinnau. (Þjóðar-atkvæðis leitað.) Samkvæmt ályktun, er samþykkt var í báðum deildum Alþingis, verður — sarahliða almennu kosningunum, fyrsta vetrardag 1916 — þf&ðar- atkvœðis leitað um það, hvort lögleiða skuli sm nefnda þegnskylduvinnu hér á landi, þ. e. skylduvinna fyrir alla heilbrigða karlmenn við verk f þarfir hins opinbera, einhvern tfma á aldrinum 17—25 ára, allt að 3 mánaða tima, f eitt skipti. A þetta mál minnist „Þjóðv,“ nánar síðar, — hefir æ verið og er enn þegnskylduvinnunni algj'drlega mótfallinn.

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.