Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi


Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 07.10.1915, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi - 07.10.1915, Blaðsíða 5
XAjlJL., 48 - ‘i'J. 4» j kjí) v xLJir-i' id9 Brezkur konsúll á Akureyri. Hr. KAgnar Ólafsson kaupmaður á Akureyri, er nýlega orðinn brezkur vísi-konsiill. Konsúll Breta mr. Oable, brá sér ný skeð þangað norður, og hefir þetta ef til vill orðið árangurinn fararinnar. Frá ísaflrði. (Taflfélag. — Hlutavelta. — Síldveiðar.) Taflfélagi hafa verzlunarnaenn á ísafirði ný- lega komið þar á fót. Hlutaveltu hélt „Iðnaðarmannafélagið á Isa- firði 29. ágúst slðastl. — Agóðinn rann i sjúkva- sjóð félagsins. Vélskipin er stundað hafa sildveiðar frá ísa- firði í sumar, hafa aflað prýðis vel, — aflinn alls um 7. þús. tunnur. „Mínerva" (eimskip) fór i öndverðum sept. þ. ú., með síldarfarm, frá félögunum, til Noregs. Bræðra-sjóöur Háskóla íslands. Kgl. staðfesting var 11. júní síðastl, veitt á skipulagsskrá „Bræðra-sjóðs Háskóla íslands". Tilefnið til stofnunar sjóðsins var fráfall Geirs stúdents Einarssonar, frá Borg. Ætlast er til að Háskóla-stúdentar greiði að minnsta kosti 2 kr. árstillag til sjóðsins. Gert er og ráð fyrir að sjóðnum bætist eitt- hvað, ef stúdent er nám stundar við háskólann, fellur frá, — verði þá gefið, sem „lik-kranz“ hefði kostað, eða þá þar um. Akveðið er í skipulagsskránni, að e?ki sknli veitt neitt úr sjóðnum, fyr enn hann nemur 15 þús. króna. — Þá má veita s/4 vaxta, og alla er sjóðurinn er orðinn 20 þús. Engum háskólanemanda má veita minni styrk, en 75 kr. Þegar til styrkveitingu úr sjóðnum kemur, skulu í okt. ár hvert kosnir stúdentar, einn úr hverri háskóla-deildinni, og voitir háskólaráðið siðan styrkinn eptir tilmælum þeirra. Maður drukknar (með hesti sínum og hundi.) Aðfaranóttina 20. sept. þ. á. (ef eigi fremur aðfaranóttina 21. sept.) drukknaði maður i avo nefndu Hafravatni í Mosfellssveit. Maðurinn hét Bjarni Guðmundsson og var úr Reykjavík, og er ætlað að hsnn hafi í myrkri riðið út í vatnið, og orðið þá viðskila við hestinn er hann greip sundtökin. Pundust hesturinn og hundurinn dauðir þar morguninn eptir. Gizkað er á að he3turinn hafi orðið flæktur í taumnum, og því eigi getað bjargað sér til lands, eða þá eigi getað krapsað sig upp bakkann. ÍTr Öxarflrði (í Norður-Þingeyjarsýslu). Sóknarmenn síra Þorleifs heitins Jónssonar á Skinnastað í Öxarfirði hafa nýlega reist leg- stein á leiði bans. Ekkjan og börn hins látna (og tengdasonur), hafa vottað þeim þakklæti aitt i „ísafold“. Yttrdómara-embættið veitt.) Yfirdómari f stað Jóns heitins Jenssonar er nú orðinn Eggert Briem skrifstofustjóri, þ. e Halldór yfirdómari Daníelssou fluttur upp í em- hætti Jóns heitins og Eggert þá dómsmálarit- arinn. Stjórnarráðið. Hr. Guðm. Sveinbjarnarson, aðstoðarmaður i Stjórnarráðinu, er nú orðinn skrifstofustjóri i stað Eggers Briems, en cand. jur. Björn Þórðar- son er orðinn þar aðstoðarmaður. Minningarsjóður Torfa i Ólafsdal. Við jarðarfór Torfa heitins Bjarnasonar i Ól- afsdal, er fór fram 2. júli þ. á., var (af 10 þar stöddum lærisveinum hans) skotið saman 250 kr., er verða eiga visirinn til „Minningarsjóðs Torfa Bjarnasonar, búnaðarskólastjóra í ólafsdal11. Sjóðnum er ætlað að verðlauna framúrskar- andi framkvæmdir i landbúnaði og standa undir stjórn isl. Landbúnaðarfélagsins. Gjöfum til sjóðsins veitir hr, Bjarni Jensson i Asgarði í Dalasýslu móttöku. Norðlirfarinn, landi vor Vilhjálmur Stefánsson, sem enginn vissi, hvort lífs var eða liðinn, er nú loks ný skeð kom- inn í leitirnar. Hann var staddur í Banksiandi, er loks fróttist af honum. En Banksland er eyja í Norður-ís- haíinu, við norðurstrendur Norður-Amer- íku, fyrir suð-austan Melvilles-eyju, — Bankssundið, sem svo er nefnt þar á milli —, og hét sá Parry (enskur norðurfari, fæddur 1790, — dáinn 1885), er fyrstur fann það, árið 1819. Sagt er, að Vilhjálmur hafi nú og fundið nýtt, áður óþekkt land þar nyrðra, og ætli sér að dvelja þar um hríð við vísindalegar rannsóknir. Láta menn í Bandaríkjunum, Canada og víðar all-mikið af rannsóknum Vil- hjálms og dugriaði, og hrýtur þá þaðan og eitthvað til vor Islendinga, þar sem hann eigi leynir því, hvers þjóðernis hann er. , i PCStsVlgslfl fór fram í Reykjavíkur- dómkirkju sunnudaginn 3. oktober síðastl. ^5 Vígðir voru kandidatarnir Sig. Sig- urðsson úr Hornafirði, er verður aðstoð- arprestur að Þykkvabæjarklaustri og Stef- án Björnsson (fyr ritstjóri ,,Lögbergs“), sem verður prestur fríkirkjusafnaðar í Fáskrúðsfirði. Dómkirkjupresturinn, síra Jóhanu Þor- kelsson, lýsti vígslu, og framkvæmdi bisk- up landsins, hr. Þórhallur Bjarnarson síð- an vígslu-athöfnina. Að heDni lokinni sté annar ný vígðu prestanna, sira Stefán Björnsson, í stólinn. 270 Gío nam staðar, og hólt í hurðar-húninn, — brá mjög, er hún sá Wettersbach standa þar. Wettersbach gekk þá þegar til hennar. „Já! Gío! Eg er korninn hingað, til þess að —“ Ástin þarfnast aldrei rnargra orða, enda gekk Gío nú móti honum og brosti mjög ánægjulega. „Já! Eg hefi lengi vænzt þín!u"mælti hún, og efaði alls eigi, að hann skildi sig. „Eg fann það á mér og kom því svona snemma!u 'svaraði Wettersbaoh. a <1 Fleiri orða gjörðist nú<j ails engin þörf, — þau skildu hvort annað otur vel. Windmulier beið á meðan, fyrir utan dyrnar, og leit þó æ öðru hvoru á vasa-klukkuna sina. * i a* Onesta hatði eigi gert boð eptir Deinum. „Hún trúir því ekki, að nú grípi til hins versta!“ mælti hann við sjálfan sig. „Jæja! Hún skal þá fá, að ganga úr skugga um það! Œo stendurnú ogekkileng- ur ein uppi, — annar, sem með henni ber og byrgðarn- ar! Eg hefi gert það, sem eg gat! Býst hún við, að eg aðvari sig aptur? þá skjátlast henni! Tiu mínútur eru enn eptir! En frú Verden hefi eg alveg gleymtj“ Seinustu orðin sagði hann hálf-hátt, því að honum varð þá litið á, hvar Nikkel kom arkandi, og var nú fremur fasmikil. „Þér látið mig sitja og bíða, — skemmta mór við köttinn!“ kallaði hún, úr fjarska. „Eg sit alein, — alls enginn kemur!“ „Gío var vant við látin, og sama var um mig!u svaraði Windmuller fljótlega. „En þór eruð þolinmæðin 267 eins og eg las honum fyrir! Finnst yður það ekki dá- lítið annað? Hér við bætast öil sönnunargögo mín gegn yður, og er þar þá fyrst að nefna brófiD, fjögur, er þór rituðuð Agostíni, og næst „Annis-kökurnar, er þór send- uð frænku yðar í morgun, og voru svo kjarnmiklar að fimm dúfurnar, sem hún gaf þær, drápust þegar að mór sjálfum ásjáandi!“ „En þá voruð þér nú heimskari, »n ætla hefði mátt“, mælti Windmuller enn fremur, — reyrðuð þá snöruna að hálsínum á sjálfri“yður! Yður skjátlaðist og algjör- lega, þar sem Gío neytti brauðsins eigi sjálf, en notaði það að eins handa dúfunum sínum!1* „En að Annis-kökurnar hafi valdið dauða fuglanna“, mælti Windmuller „það er nú full sannað, með rannsókn- inni, er inaðurinn yðar lét fram fara!u 2 „Hefði eg eigi rekizt hingað af tilviljun — Gío hefir alls eigi kvatt mig hingað — hvernig hefði þá far- ið?“ bætti Windmuller við. „Agostini og skuldir yðar kölluðu ótt að“, hélt Windmuller enn áfram máli sínu. „Samskonar hring, sem hringurinn var, er þér létuð smokka upp á fingur- inn á Vönnu, áttuð þér að vísu eigi kost á, en einhver rað hefðuð þér þó óefað haft, til að verða eigandi Favaro- hallarinnar! En heimekulega fórst yður, er þór senduð Gío ADDis-kökurnar í morgun, þar sem engum gat dul- izt, að þær komu frá yður! Eða*ætluðuð þér ef til vill, að fá Rítu, ti.l að bera ljúgvitDÍ? Ekki hefði það bætt fyrir yður!“ „ADnars væri eg ljóti fábjánÍDn — vissi es eigi,"að eg get neytt yður — léti eg yður hlaupast brott hóðan að eins af hlífð við Gio, þ. e. f því skyni, að losa hana

x

Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn + Þjóðviljinn ungi
https://timarit.is/publication/131

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.