Lögberg - 10.10.1888, Blaðsíða 2

Lögberg - 10.10.1888, Blaðsíða 2
S öðbn-g. MIDVIKUD. 10. OKT. 1888. ÚTGEFENDUR: Sigtr. Jónasson, Bergvin Jónsson, Árni Friðriksson, Einar Hjörleifsson, Olafur Þórgeirsson, Sigurður J. Jóhannesson. Allar upplýsingar viðvíkjandi verði á auglýsingum í „Lögbergi“ geta menn fengið á skrifstofu blaðsins. Hve nær sem kaupendur Lögbergs skipta um bústað, eru jeir vinsamlegast beðnir, að senda skriflegt skeyti um jað til skrifstofu blaðsins. sem oss býðst, til p>ess að auka veg og völd vorra beztu manna. Vjer samgleðjumst löndum vor- um í Pembina-kjördæmi, að þeim hefur boðizt svo gott tækifæri í petta sinn. Vjer þykjumst f>ess fullvissir, að þeir muni verða fáir, sem skerist úr leik að nota það. Að þvi er vjer bezt vitum, eru f>að engin sjerlega flókin nje f>ýð- ingarmikil- lauds-mál, sem flokkana f>ar greinir á um í þetta sinn, og sern jafnfrarnt koma til úrskurðar á Dakota-pinginu. Landar í kjördæm- inu munu f>ví með góðri samvizku geta litið á þetta mál frá sjónar- miði sinnar eigin pjóðar í p>essu landi. Og frá því sjánarmiði er ólíklegt að nokkrum muni geta blandazt hugur í Jressu efni. Utan á öll brjef, sem útgefendum „Lög- berg3“ eru skrifuð viðríkjandi blaðinu, ætti að skrifa : Thc Lögberg Printing Co. 35 Lombard 8tr., Winnipeg, Man ÍSLENZKT ÞINGMANNSEFNI. Landar vorir í Bandaríkjunum hafa óneitanlega komizt fram úr oss, norðanmönnum, að einu leyti. Einn af Jjeirra flokki er kominn á J>ing- mannaefna-listann til Dakota-J>ings- ins, og að kvöldi J>ess 7. nóv. næst- komandi er líklegt og Vonandi að hann verði orðinn pungmaður. Eiríkur íl. Bergman er J>ing- mannsefnið. Hann hefur, eins og mörgum mun kunnugt, fengizt all- mikið við stjórnmál um síðustu und- anfarin ár. Hann hefur og um nokk- urn tíma setið í countg-stjórn Pem- bina-countys, og hefur verið for- maður hennar síðasta áriö. Annars er hann alf>ekktur að f>ví að vera stakur rausnarbóndi. Hann á stór- bú, og er allra manna gestrisnast- ur heim að sækja. Bergman heyr- ir repOblikanska flokknum til, en af kunnugum mönnum er oss sagt, að allmargir demókratar hafi heitið honum fylgi sínu. Það sýnir vin- sældir mannsins. Honum hefur aldrei farið neitt h'kt, eins og sumum löndum vor- um hættir við, sem annars komast aldrei með tærnar pangað, sem liann hefur hælana. Hann hefur ekki dregið sig út úr fjelagsskap og samvinnu með löndum sínum, f>eg- ar hann fór að fá færi á að vera með hjerlendum mönnum. Bæði í kirkjumálum íslendinga syðra, og öðrum fjelagsmálum J>oirra hefur hann jafnan verið fremstur í flokki; og hann mun jafnan hafa fremur talið sjer J>að til gildis en óvirðingar, J>egar hann hefur átt við hjerlenda menn, að vera íslenzkur maður. £>ví J>ýðingarmeira er J>að fyrir íslend- inga og gleðilegra, að honum skuli vera ætluð J>essí staða fremur öðr- um, sein ef til vill hefðu beldur viljað að pjóðernis síns yrði látið ógetið. Yjer höfum áður bent á f>að í blaði voru, hverja f>ýðingu J>að hafi að íslendiitgar nái völdum hjer í land- inu. Það er hvorki meira nje minna en eitf af voruin lífsspurs- málum. Takist oss J>að ekki, pá getur ekki hjá f>ví farjð, eins og hjer hagar til í iandinu, að hjer- lendir inenn venjast vjð að skoða oss sein lieldur óæðri flokk manna en f>eir eru sjálfir. Það er J>vf skylda vor, að nota fyrsta tækifærið, B Ö G U M Æ LI; Dað virðist svo sem löndnm vor- um sje sjerstaklega gjarnt til að afbaka orð á pann hátt að karl- kenna J>au, þó að pað annars ætti að liggja hverjum íslenzkum manni í augum uppi, að þau sjeu annað- hvort kvennkyns eða hvorugskyns. Þetta lætur stundum mjög skringi- lega í eyrum, og sjaldan sem allra viðfeldnast. Vjer minnumst J>ess til dæmis, hve mikilli furðu oss J>ótti pað sæta, pegar vjer heyrðum Verðandi fyrst karlkenda. Verðandi er, eins og mörgum er kunnugt, nornar-heiti í Eddu, nafn á norn yfirstandandi tímans. Ariö 1882 gáfu 4 íslendingar í Kaupmannahöfn út dálitla bók, og nefndu hana eptir pessari fornu gyðju. Dað mun óhætt mega fullyrða að 00 af hverjum 100 íslendingum karlkenni pessa bók, og beygi nafnið á henni sem væri pað karlkyns orð, segi t. d. að J>etta og petta standi í honum Verðanda, og varaði {>ó J6n Ólafs- son greinilega við J>essu bögumæli í Skuld skömmu eptir að bókin kom út. Lanm menn mikið til að færa O petta á betra veg fyrir mönnum, pá verður pví ekki neitað, að ofur- litlar bætur finnast í pessu máli. Lestur fornrita vorra verður sífellt minni ocr minni manna á meðal. O Það munu ekki vera svo tiltölulega margir núlifandi landar vorir, sízt yngri rnenn, sem hafa lesið t. d. Gylfaginning. Allur porri manna hefur pví að llkindum sjaldan eða aldrei rekið sig á nafnið Verðandi, fyr en J>eir sáu það frainan á pess- ari nýju bók. Að hinu leytinu eru allmörg af karlkyns-orðum íslenzk- um, sem enda á i, og svo hafa menn haldið að Verðandi væri eitt af J>eim, Og svo er bögumælið komið á laggirnar. Vjer J>ekkjum annað bögumæli, sem komið er upp meðal íslend- inga í Vesturheimi, og sem er als- endis óafsakanlegt og hreinasta hneyksli. Ef til vill rekur einstaka mann piinni til þess að einhvern tlma síðastl. vetur eða vor stóð sú fyrirspurn í Heimskringlu; Hvers lcyns er „Lögberg?’•' Ritstjórnin svaraði auðvitað að pað væri hvor- ugs kyns.—Þó að Heimskringla hafi stundum farið nokkuð gálaus- lega með íslenzka tungu, þá má hún pó eiga það, að hún hefur aldrei verið í vafa um, hvers kyns nafnið á blaði voru væri.—Vjer gáfum pessari fyrirspurn lítinn gaum, pegar hún kom út í blaðinu—hugs- uðum eittbyað á pá leið, að spyrj- andinn hefði naumast getað verið með öllu viti. En viti menn—nú líður naumast svo nokkur dagur, að vjer ekki heyrum talað eitthvað um hann IjÖgberg, að þetta og petta standi í lionum lögbergi, og J>ar frain eptir götunum. Einstaka maður gengur enda svo langt að hafa nefnifall orðsins hreint os O beint lögbergur. Þetta bögumælis- hneyksli er orðið svo algengt, að skynsamir menn hafa enga hug- mynd um að neitt sje athugavert við pað, pegar þeir láta pessi ó- sköp út úr sjer. Vjer leyfum os3 að segja að annað eins og petta sje hreint og beint ósæmilegt. Það sýnir það einstakt skeytingarleysi, og pá ein- staka fyrirlitning fyrir máli og sögu pjóðar vorrar. Blaðið Lögberg heit- ir eptir langmerkasta, langfrægasta staðnum, sem til er á öllu íslandi, peim stað, sem nálega öll saga J>jóðar vorrar hefur að vissu leyti snúizt um. Það er sannarlega ekki til of mikils ætlazt, þó farið sje fram á að hver einasti íslending- ur reyni að nefna annað eins nafn óbjagað. Og hjer verður ekki fá- fræðinni um kennt. Það er eng- inn sá Islendingur til með fullu viti, sem í raun og veru heldur að orðið berg sje karlkyns. Hvers vegna segja menn pá J>essa vitleysu? Af hugsunarleysi og hirðu- leysi. En vjer vonutn svo góðs til manna, að peir leiðrjetti petta pað bráðasta, úr því þeim hefur nú ver- ið bent á pað. ÞRÆLA-VERZLUN í AFRÍKU. Eyðilegging sú, sem arabiskir præla-pjófar hafa komið til leiðar í Mið-Afríku á síðustu 5—6 árum, er hræðileg, segir blaðið Neui York Sun. I löndum, par sem Living- stone, Stanley og Cameron fundu mannmarga pjóðflokka, er nú eng- inn lifandi maður til. Flestir af þeim hafa verið teknir höndum eða höggnir niður sem búfje, og leyfarnar af pjóðflokkunum hafa komizt undan inn í önnur hjeröð. Hjeruð pau, sem eydd hafa verið að mönnum, liggja milli 22. og 32. gr. austurlengdar og milli 3. og 12. gr. suðurbreiddar, og eru á stærð nálega 100,000 ferhyrnings- mílur. Meðal J>ess skemmtilegasta, sem Livingstone og Stanley hafa ritað, eru lýsingar peirra á hinu yndis- fagra Manyema-landi, vestur af Tan- ganyika-vatninu, og íbúum pess, sem voru svo ólíkir öðrum mönn- um. Eptir því, sem Gleerup segir nú frá, liafa allir þessir menn horf- ið, að undanteknum hópum af Ma- nyema-þrælum, sem vinna á jörð- um Araba fram með vegi peim, sem kaupmannalestirnar fara. Arabar hafa eytt landið beint vestur frá Tanganyika-vatninu, fram hjá Nyan- gwe. til Efri Senkuru; á 500 mílna breiðu svæði er naumast eptir nokk- ur parlendur maður, sem sagt geti i'gnnnar um þessar voðalegu árásir Það var í vesturhluta pessa hjer- aðs, að bærinn Bene Ki lá; árið 1882 kom lautenant Wissmann þang- að; pá var eitt stræti í bænum, en pað var 10 mílna langt; kofarn- ir voru 20 fet á hæð, og kringum húsin lágu laglegír garðar; karl- mennirnir voru að vinnu sinni á ökrunum bak við húsin; allir íbú- arnir buðu útlendinginn velkominn og hjer um bil 5000 peirra komu til tjalda hans um kveldið. Tveim- ur árum síðar lá leið Wissrnanns aptur um þennan stað. Ekkert var pá eptir af pessum heimilum, par sem menn höfðu „unað svo glaðir við sitt“. Langa strætið var þak- ið háu grasi, og í því var mikið af brunnum stoðum og bleikum hauskúpum. Flokkar Tippu Tibs höfðu farið J>risvar sinnum á sex mánuðum með báli og brandi um J>etta inikla byggðarlag. LMargar konur höfðu verið fluttar burt, allir, sem veitt höfðu viðnám, höfðu ver- ið drepnir, og akrarnir, aldingarð- arnir og banana-\undirnir höfðu ver- ið lagðir í eyði. Arabarnir höfðu og komið með bóluveikina í bygð- arlagið; hungursneyð bættist svo ofan á, og ]>etta reið mönnum þar að fullu. Voldugi pjóðflokkurinn, sem heima átti í Bene Ki, leið und- ir lok, otr að eins örfáir menn höfðu komizt undan suður til Zeppu Zapp, höfðingja, sem sjálfur hafði hrokkið undan árásum Araba og yfirgeíið eignir sinar og óðul. Eptir því, sem J>cir Gleerup og Lenz segja frá, liafa Arabar gert mannlausar einar fimtán þúsund fer- hyrningsmílur af landi, sem bggur fram með Congo-fljótinu milli Nyan- gwe og Stanley-fossanna. Mann- mörgu J>jóðflokkarnir, sein Stanley hitti fyrst, hafa orðið að þrælum, eða hafa pá fækkað til mikilla muna, og reika nú um skógana, langt frá fljótinu. Hjer um bil 2000 fer- hyrnings-mílna stórt sljettlendi vest- ur af aðsetursstað Tippu Tibs við Kasongo hefur algerlega verið syipt íbúum sínum. Nú er ekki lengur neinn arður í því að reyna að ná þrælum á hjer um bil 20 þúsund ferhyrningsmílna svæði vestur af Congo. Einmitt umhverfis sömu stöðvarnar sem Livingstone ljezt á og J>ar sem hjarta hans var grafið, segir Giraud, að Ara'oar hafi ger- samlega eytt landið. Og frá öllum þesáum miðdeplum eyðileggingar- innar má relcja slóðir eyðendanna til præla-markaða og útskipunar- staða; bein vesalinganna, sem lát- izt hafa á leiðinni, vísa mönnum veginn. Það er ómögulegt að hinn mennt- aði heimur poli mikið lengur pessa stórkostlegu glæi>i og manndráp, án þess að gera alvarlegaí ráðstaf- anir til pess að þeiin linni fyrir fullt o<r allt. O VIðRÆðUU gladstones. G. W. Smaliey ritar í Wew Yurk Tribune: Þessi kynslóð á einn mann, sem kann að tala við menn líkt og Macaulay; jeg á við Mr. Gladstone. Það er ómögulegt að tala jafn-frjálslega um frægan mann, sem enn er á lífi, eins og um mann, sem þegar lieyrir veraldarsögunni til. Það er jafn-ómögulegt að gefa í fáum orðum fullkomna lýsingu á því, sem er einkennilegt við Mr. Gladstone, þegar hann á tal við menn. Hættir lians heyra liðnum tíma til, ef það verður sagt, að það heyri nokkrum tíma til, sem er í raun og veru sjerstaklegt fyrir einn einstakan mann. Það að jeg jafna hon- um saman við Macaulay, kemur af því að hann hefur að nokkru leyti sama siðinn eins og Macaulay, þann að tala við sjálfan sig, og þann sið höfðu margir aðrir jafnaldrar Macaulays, sem ekki eru jafn-nafnfrægir eins og hann. Viðræður Gladstones eru árstraumur — líkur Oxus, sem Arnold kveður um: Brimmincj, und bright, nnd kirge • • • Yfir höfuð getur maður sagt að Macaulay liafi lifað sitt líf meðal hóka; Mr. Gladssone liefur lifað sitt líf í störf- um. í vissum skilningi er hann ekki „heimsmaður", en hann er framúrskar- andi snillingur að fást við opinber störf, við ensk störf — enda hefur liann allt sitt líf verið að fást við hin þýðingar- mestu þjóðmál. í viðræðum lians kemur hugur hans í ijós í því gerfi, sem hann hefur fengið af þessari samanliangandi reynslu. Aldrei liefur nokkur maður lif- að, sem hefur verið jafn-vel að sjer í stjórnarsögu sinna tíma, eins og liann; og aldrei hefur nokkur enskur stjórn- málamaður látið sjer annt um jafnmargt utan stjórnfræöinnar — bókmenntir, trúar- brögð og allt annað. Ekkert efni er til, sem hann vill ekki tala um. Hver ein- asti maður, sem hefur kynnzt honum, furðar sig á minni hans. Það er varla hægt að byrja á neinu umræðuefni, sem hann veit ekki ósköpin öll um. Hann hirðir iítið um tiiheyrendur sína, eða liverju líklegt er að þeim muni ]>ykja gaman að. Sjálfum þykir honum gam- an að því, sem hann er að tala um, og honum kemur aldrei til hugar, að öðr- um muni ekki þykja gaman að því lika. Og honum skjátlast alls ekki; lijá honum verður það skemmtilegt, hvað sem það svo er. Menn vita til þess, að hann licfur talað við þann, sem lijá honum sat við miðdagsverð, um útgáfu- rjett að bókum; hann taiaði um þetta efni hjer um bil allan tímann meðau á miðdagsverðinum stóð, og það var lengi verið að borða. Sá, sem hjá hon- um sat, var Ijómandi falleg stúlka, og henni var ekki annara um útgáfurjett að bókum, iieldur en je^ veit ekki hvað. Hún hlustaði á hann allan tím- ann sem frá sjer numin af unaði. Árin 1880-85 voru hættulegt tímabil í sögu Mr. Gladstones; þá virtist svo sem forlög ráðaneytisins væru komin undir því, livort heppnast mundi eða ólieppn- ast með leiðangurinn, sem gerður var út til að frelsa Gordon. Gladstone var staddur í húsi einu á Skotlandi, og al- varlegar frjettir voru alveg nýkomnar frá Súdan. Hver, sem liefði heyrt til hans við miðdagsborðið, mundi hafa sagt, að æðsti ráðherrann liefði aldrei heyrt Súdan nefnt á nafn. Menn voru að tala um, livað sólsetrin voru rauð það sumar, og að vísindamenn liefðu getið þess til að það mundi orsakast af jarðskjálftunum, sem árinu áður höfðu verið á Java. Mr. Gladstone komst ]>á út í jarðskjálfta. Stjórn llollands hat'ði sent rannsóknar-nefnd, 18 mánuðir liöfðu liðið, og engar skýrslur höfðu enn kom- ið frá nefndinni; Mr. Gladstone rjeð sjer ekki af óþolinmæði eptir að ná í þessar skýrslur um Java-jarðskjálftana frá nefnd hollenzku stjórnarinnar. Hann langaði til að fá að vita, livað við liefði borið; liann langaði til að fá samanhangandi herdóms-sliýringu á þess- um umbrotum náttúrunnar; hann lang- aði til að sjá skýrslur yfir liftjón og eignamissi; þessa hefði öllu verið lofað, sagði liann; eklcert af þessu væri enn komið fram. Yissi nokkur, livenær ætla mætti að þetta kæmi, eða livar menn gætu fræðzt um þetta? Stórveldis-áhyggj- urnar lágu svo ljett á þessum risa-herð- um, að í hálfan klukkutíma hafði spurs- málið um jarðskjálftana á Java algert vald yfir huga hans; það, og það eitt kom honum við og mannkyninu yfir höfuð. Á maður nokkurs annars úrkosti en að gefast upp fyrir jafn-sterkum andlegum krajiti, sem hefur þennan undra-þrótt að geta algerlega losað sig við allt, nema það efni, sem liann er að fást við það augnablikið, sem er að líða! Það verður að eins eitt sagt um siíkar viðræður, það er ómögulegt annað en verða töfraður af þeim. Yera má að ýmiskonar sögur berist yður til eyrna um Mr. Gladstone og viðræður hans; þær sögur lýsa ekki all- ar góðum hug, því að helzta fólkið gerir allt, sem það getur, til þess að láta sjer getast illa að honum, og því tekst það, þegar hann er ekki viðstadd- ur. Jeg ætla að geta hjer einnar sögu, sem sýnir aðra lilið á honum. Þegar hann var æðsti ráðherra, setti hann víssan alþekktan mann í visst vandasamt enibætti erlendis, og til þess að innat störf þess embættis vel af hendi þurfti embœttismaðurinn að bera sjerstök kennsl á landið og þjóðina, og vera hvorutveggju persónulega kunnugur; maðurinn, sem í hlut átti, hafði aflað sjer þessa 1 nokkur ár, og haft mikið fyrir þvl. Mr. Gladstone gerði boð eptir erindsroka sínum, og bað hann að finna sig áður en liann legði af stað. Hann kom, og daginn eptir hitti einn kunningi hans hann að máli, og kvaðst samgleðjast honum, þar sem æðsta ráðherranum hefði getizt svo vel að honum. „Mr.. Gladstone segist aldrei hafa hitt nokkr- urn mann, sem hafi vitað jafnmikið um Kákasus-löndin". Erindsrekinn hló við. „Jeg var hjá honum tvo klukkutíma“t sagði hann, „0g jeg lauk aldrei upp munninum11. Ef þjer efist um, að þessij saga sje sönn, þá get jeg sagt yður aðra, sem er alveg eins, að því undan- teknu, að þar átti allt annar maðitr f hlut, og embættið, sem hann hafði feng- ið, var allt annað. En allt fór á sömui

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.