Lögberg - 24.06.1891, Qupperneq 5
LÖGBERG,MIÐVIKUDAGINN>ik24. Jl)NI 1891.
5
JejJ' sje ekki að J>ví f>urfi að vera
svo varið. I>að er sro margt f>jóð-
legt, sem engin uppbjgging er í,
eins og t. d. trú á drauga og alls
konar hindurvitni. I>að getur verið,
að kirkjufjelagið gceti haft þá pýðing
að san.eina menn. En hefur f>að
gert pað? Ef f>að hefur gert meira
að pví að sundra mönnum, f>á gagn-
ar f>að ekkert f>ó að f>að geti sam-
einað. Ræðum. hngði, að vjer mund-
um geta tekið öllum pjóðlegum
f>roska, f>ó að vjer værum ekki lút-
erskir og aðhjlltumst aðrar kirkju-
deildir. — l>ar sem þetta væri um-
ræðuefnið, hefði legið nærri fjrir
kirkjunnar mönnum að sanna, að
lút. íslendingar hjer væru menn
vitrari og betri en aðrir, að f>eir
t. d. ljetu sjer annara um upp-
eldi barna sinna, en peir sem utan
við stæðu; en f.að hefði ekki verið
gert. — Skólastofnun kirkjufjelags-
ins er enn ekkert nema hugmjnd.
Það er tvísjnt, hvort hún verður
til gagns, f>ó að eitthvað verði úr
henni, en hvað sem pví líður, pá
er hugmjndin nokkuð ljett á meta-
skálunum meðan framkvæmdin er
engin. Enn hefur ákafiega lítið ver-
ið gert fjrir stofnunina, og hún
njtur lítillar hjlli meðal fólks vors.
Það er f>ví nokkuð snemmt að vilja
nota hana til að sanna með ágæti
fjelagsins. — Frjálsljndi kirkjufje-
lagsins liggur 1 rann og veru fjrir
utan umtalsefnið, en litlar sannanir
hafa enn komið fram fjrir f>ví, pó
á f>að hafi verið minnzt. Það sann-
ar lítið, þó að síðasti ræðumaður
segði pað væri frjálsljnt, pegar
hann benti ekki á nokkurt at-
riði pvf til sönnunar. — t>ví færi
mjög fjarri, að meira væri af vel
fnenntum mönnum innan kirkjufje-
lagsins en utan; skólagengnu menn-
irnir stæðu t. d. flestir fjrir utan,
og f>að mundi víst ekki vera fjarri
sanni, að f>að væru minna hugsandi
mennirnir, sem í kirkjufjelaginu
stæðu. — Að endingu vildi ræðu-
maður benda á, að verkefnið, sem
fyrir hendi væri, væri það að benda
á, hvað kirkjufjelagið hefur gert.
Sjera Fridrik fíergmann f>akk-
aði síðasta ræðumanni, með f>ví að
honum hefði mælzt kurteislega og
vel. Kvaðst ekki ætla að fara að
forsvara sjera Jón Bjarnason fjrir
f>au fáu orð, sem hann hefði sagt
til að koma þessum umræðum af
stað. Flestir mundu hafa fundið,
að hann hefði hrejft við aðalspurs-
málinu, pví að svo framarlega sem
kristindómurinn hefði yfir höfuð haft
mikla f>/ðing fyrir menning mann-
kynsins, og svo framarlega, sem
hið ev. lút. kirkjufjelag íslendinga
hjeldi fram hreinum og ómenguð-
um kristindómi, ]>á sje líka ástæða
til að halda, að f>að muni liafa
menningar-fjðingu fjrir vort fólk.
Björn Pjetursson spurði, hvert væri
f>að einkenni lút. kirkjunnar, sem
stefndi svo mjög í menningaráttina.
Það einkenni lút. kirkjunnar væri
nákvæmlega f>að sama sem aðalein-
kenni kristindómsins, lotningin fyrir
guði og hans orði, sú kenning, að
ótti drottins sje upphaf vizkunnar.
Jón Ólafsson sagði, að f>að hofði
mikla pjðingu, ef hægt væri að
sjna fram á, að lúterskum mönn-
um væri annara um uppeldi barna
sinna en öðrum mönnum. Slíkt er
ekki ljett. En f>ó sagðist ræðum.
verða að kannast við, að sjer hefði
fundizt kirkjunnar mönnum vera
annara um siðferðis-uppeldi barna
sinna en vantrúuðum mönnum, pó
að hann vitaskuld viðurkenndi, að
mörgum vantrúuðum manni væri
annt um sín börn. Þetta liugði
ræðuin. vera talsvert almennt viður-
kennt. Hann hefði t. d. einu sinni
verið staddur á svipuðum samtals-
fundi eins og pessum í Noregi, og
f>ar kannaðist vantrúarmaður við f>að,
að ef hann ætti að velja um tvö heim-
íli, sem stæðu jafnliátt í menningu
og menntun, en annað væri krist-
iö, hitt vantrúað, f>á mundi hann
heldur kjósa kristna heimilið handa
börnum sínum. I>að væri satt, að
skólagengnir íslendingar hjer vcstra
etæðu jfir höfuð utau kirkjunnar.
En livað gera svo pessir skólagengnu
menn hjer? I>vi fara þeir ekki og
stofna fjelag eins og við til að
halda f>ví fran;, sem f>eir hjggja
að mest muni efla menning pjóð-
flokks vors? t>ví fara f>eir ekki að
brjótast í að stofna skóla? Af öll-
um skólagengnum íslendingum vest-
an hafs, sem utan kirkjufjelagsins
standa, eru f>að að eins 2 menn,
ritstjórar blaðanna, sem á nokkurn
hátt eru að vinna fyrir pjóðflokk
vorn, og hvað mundu f>eir geta, ef
blöð þeirra væru ekki kejpt af Jpeim
mönnum, sem I kirkjufjelaginu
standa? Skólagengnum mönnum ut-
an kirkjufjelagsins ferst pví sannar-
lega ekki að bregða okkur um,
að við gerum lítið og starf okkar
liafi litla pjðingu. Vitaskuld hefur
kirkjufjelagið ekki gert mikið enn
f>á, en pað liefur pó haldið fleirum
saman, en nokkur annar fjelags-
skapur. Fjelög hafa myndazt á van-
trúuðum grundvelli, en J>au hafa
óðara hrunið. — Að undanteknum
bindindisfjelögunum, er kirkjufjelag-
ið eina fjelagið meðal Vestur-ís-
lendinga, sem hefur fast ákveðið
prógramm, leggur línn, sem pað
ætlar ekki að víkja frá. t>ó ekki
væri annað, J>á ætti pað eitt sann-
arlega að hafa nokkra J>jNng fjrir
V estur-íslendinga.
Jón Kjernesteð kannaðist við,
að kirkjufjelagið gæti haft góð á-
hrif, en f>að væri sárt til J>ess að
vita, að J>að hefði ekki getað sam-
einað alla íslendinga; margir stæðu
utnn við öll kirkjufjelög, og svo
hefðu komið upp pessi laungetnu
börn kirkjufjelagsins (Unítaraflokk-
urinn og trúarboð Presbyteríana).
Ræðum. kvaðst unna kristindómn-
um af hreinu hjarta, Kristur væri
rótin og mennirnir blöðin, er sprjttu
á J>eim stofni, sem rynni upp af
peirri rót. Ekkert útlit væri til,
að kirkjufjelagið gæti sameinað menn
og ]>ví gat ræðum. ekki sjeð, að
f>að mundi liafa tilætluð álirif. Hann
viðurkenndi forseta kirkjufjelagsins
sem mikinn mann, en ekki hafði
honum ætíð fundizt Ijósgeislar í
kenningum hans. Það hefur ekki
góð áhrif að segja að allir, sem
utan við standa, sjeu skríll. Það
hefur ekki ljðinn upp að neinu
levti, að kenna konum að liann sie
skríll.
Sjera Jón fíjarnason. Ef J>að
er illt, að kalla menn ,,skríl“, pá
er ekki betra að kalla J>á „laungetna“,
eins og síðasti ræðumaður gerði.
Annars sje kirkjufjelagið ekki sama
sem hann (sjera J. B.), og pað sje
skrítið, að færa til hin og önnur
orð, sem hann hafi átt að segja,
sem sönnun fyrir f>ví að petta kirkju-
fjelag geti enga menningar-pjðing
haft. — Það er alveg satt, að kirkju-
fjelagið hefur sundrað mönnum. Það
liefur sundrað mönnum á J>ann hátt,
að pað hefur orðið tilefni til að mót-
flokkar hafa risið upp. En J>að kem-
ur til af J>ví, að prógrammið er á-
kveðið. Únítarar f>ar á móti hafa
hafa ekkert prógramm; J>eir hæla
sjer af að hafa ekkert prógramm;
heldur eru J>eir, að J>ví er trúar-
játning snertir, eilífur, vellandi graut-
arpottur. Það er almennt viður-
kennt, að kristindómurinn liafi f>Jð-
ing fyrir menning mannkynsins, en
f>egar frá öndverðu hefur hann ekki
að éins sameinað, heldur líka sundr
að. Eins og liann er hið mesta sam-
einingaraíl, eins er hann líka hið
mesta sundrungarafl í heiminum. Það
hefur aldrei verið meiningin meðkrist
indóminn, að hann skyldi ná út
yfir alla menn, án tillits til skoð
ana f>eirra. En f>Jðing kirkjufje-
lagsins í pessu sambandi er pessi:
að fyrir ]>að vex og dafnar fjelags
skapar-hugmyndin meðal íslendinga.
Ræðum. hafði orð sjera Valdemars
Briem fyrir J>ví, að f>etta kirkjufje-
lag hefði vakið meðal íslendinga
meðvitundina um kirkjulegan fje
lagsskap. Og svo hefur kirkjufje
fjelagið haft enn eina f>Jðingu:
Þegar menn koma frá íslandi, veit
enginn, og J>eir opt ekki sjálfir,
hvar f>eir standa, en J>etta breytist
íljótlega, J>egar hingað er komið, I
fyrra vissu menn t. d. ekki grand,
hvar .Tón Ólafsson stóð, nú vita
J>að allir. Það er undarlegt, hvað
menn J>roskast hjer tljótt, alveg
eins og grösin á vorin; menn prosk-
ast annaðlivort upp á við eða niður
á við og J>að cr kirkjufjelaginu að
f>akka. Er ekki gróði I J>ví? Hef-
ur J>að ekki einhverja J>Jðingu? —
Það gerir ekkert til, f>ó að sagt
sje, að við höfum fanatiska trú;
]>að er betra að fanatisku mennirn-
ir kenni fólkinu, en að engir kenni
J>ví. (Niðurl. næst).
LJÓSMYNDARAR.
Eptirmenn Best & Co.
Þeir liafa nú gert Ijósmynda stofur
sínar enn stærri og skrautlegri en
áður og eru reiðubúnir að taka á-
gætustu myndir bæði fljótt og bil-
lega.
Daldwin & Blondal
.207 Sixth Ave., N., Winnipeg.
TZHUEI
Mutual Resepve Fund Life
Association of New York.
hefur fengið sömu viðtökur hjá íslend-
ingum og tíllum öðrum sem því verða
kunnugir. í }>að eru nú gengnir á ann-
að hundrað /slendingar, |>ar á meðal
fjöldi hinna leiðandi rnanna. Fjelagið
selur lífsábyrgðir fyrir að eins það sem
þær kosta. Minna skyldi engir borga,
því þá væri sú ábyrgð ótrygg. Meira
skyidi engir borga, því þá krupa þeir of
dýrt. Fyrir „kostprísu selur þetta fjelag
lífsábyrgðír, og gefur eins góða trygg-
ing og hin elztu, öflugustu og dýrustu
fjelög heimsins.
25 ára $13,76 || 35 ára $14,93 || 45 ára $17,96
30 „ $14,24 || 40 ., $16,17 | 50 „ $21,37
W. II. Paulson í Winnipeg er
Genkral Agent fjelagsins, og geta menn
snúið sjer til hans eptir frekari upplýs
ingum. Þeir sem ekki ná til að tala
við hann, ættu að skrifa honum og
svarar hann því fljótt og greinilega. All-
ar upplýsingar um fjelagið fást líka hjá
A. R. McNichol Mclntyre Bl. Winnipeg
* VAVcAU
Tannlæknir
525 Aðalstrætinu.
Gerir allskenar tannlækningar fyrir
sanngajrna borgun, og svo vel að allir
fara frá honum ánægðir.
M. 0. SMITH.
----SKÓSMIÐUR----
býr til skó og stígvjel eptir Mán
Suðausturhorn Ross og Ellen Str.
hjá HUNTER & Co. Winnipeg.
25.1y^
Postsamningap.
—o—
Innsigluðum tilboðum stýluðum tii
Postmaster General, verður tekið við að
Ottawa til hádegis föstudaginn 14. ágúst
næstk., um flutning á pósti Hennar Ilá-
tignar, og er ætlast til að samningurinn
gildi í 4 ár um hverja af eptirfylgjandi
póstleiðuro frá 1. október næstk. í þess-
ar ferðir á að hafa góða vagna, sem
einn eða fleiri hestar ganga fyrir.
La Broquerie og Winnipeg — i gegn
um Giroux, St. Anne des Chenes, Loret-
to og Prairie Grove, tvisvar á viku, vega-
lengd 43 miiur. Póstur að ieggja frá
Winnipeg og koma til baka næsta dag.
St. Anne des Chenes og Steinbaek
— í gegnum Clear Springs, tvisvar á
viku, vegalengd 11 mílur. Póstur að
leggja frá St. Anne des Chene og koma
til baka sama dag.
Prentaðar leiðbeiningar um þessa
samninga eru til sýnis á ofangreindum
pósthúsum og hjer á skrifstofunni; einn-
ig fást á þessari sluifstofu ejðublöð fyr-
ir tilboðin,
W. W. McLeod.
Post Office Inspector
P O. Inspectors Office. )
Winnipeg, 5. juni 1891, j
búSin er sú stærsta
í borginni; þrjár
búðir í einni. Yörutegundir eru
Dry Goods, Smávara, Skrautvara,
Gólfteppi, yfir 300 tegundir að
velja úr, það lægsta fyrir að eins
25c. fyrir Tapestry, og ef prísinn
er 50c. eða meir, þá eru þau lögð
niður frítt. Karlmannaföt með öllu
þar tilheyrandi, föt með því nýj-
asta og fallegasta sniði í borginni.
Verðið er eins lítið cg nokkurs
staðar í Canada. þeir verzla fyrir
peningá út í hönd að eins og þeir
geta keypt inn á billegustu mörk-
uðum heimsins. — þeirra verzlun
fer sívaxandi. — það að selja mik-
iff fyrir peninga út í hönd og
selja billega er það sem hlýtur að
gera þessa verzlun geysistóra. —
þeir selja fallegt Flanneleth tyrir
7|c. yardið, sem kostar lOc. ann-
ars staðar, 100 stykki af Prints
á 7|c„ vert 12|c. Komið og skoð-
ið okkar kvennsokka á 10c., verð-
ir 25c. Nýfengið 3 kassa af Mill
remnants, hvítum bómullardúkum
og sheetings. hálf þriðja alin á
breidd fyrir 20c., vert í það minnsta
40c.; vjer bjóðum þessi kjörkaup,
það er í smáum stykkjum. Geo.
Craig & Co. bíður og býður yður
að koma það allra fyrsta til að
skoða vörumar, það borgar sig að
kaupa í stóru búðinni hans Craigs.
S4>,00 buxur fyrir $2,00.
Mlieril rnrific
jarnbrautin,
--SÚ---
vinsælasta ^bezta braut
til allra staða
ATTSTUE,
STTZDTTIR,
VESTUE.
Frá Winnipeg fara lestirnar daglega meö
pullwan Palacc svefnvagna,
^krautlegnstn bordstofn-vagna,
j^gæta Sctn-vagna.
Borðstofuvagna línan er bezta brautin
til allra staða austur frá. Hún flytur far-
þegjana gegn um fagurt iandspláz, hvert
sem menn viija, þar eð hún stendur i
samhandi við ýmsar aðrar brautir og gef-
ur manni þannig tækifæri til að sjá stór-
bæina Minneapolis, St. Panl, og Chicago.
Farþegja farangur erflnttur tollrannsókn-
arlaust til allra staða í Austur-Canada,
svo að farþegjarnir komast hjá öllu ó-
maki og þrefi því viðvikjandi.
Fiirkjcf yfir liafid
og ágæt káetupláz eru seld með öllurt
beztu línum.
Ef þjer farið til Montana, Washing-
ton, Oregou eða British Columbia þá
bjóðum vjer yður sjerstaklega að heim-
sækja oss. Vjer getum vafalanst gert
betur fyrir yður en nokkur önnur braut.
Þetta er hin eina ósundurslitna braut til
V estur-W ashington.
Ákjósanlcsasta fyrir fcrda-
íucnn til t aliforniii.
Ef yður vantar upplýsingar viðvíkj
andi fargjaldi o. s. frv., þá snúið yður
til næsta farbrjefa-agents eða
H. SwiNFORD,
Aðalagent N. P. R. Winnipeg
Ciias S. Fee,
Aðalfarbrjefa-agent N. P. R. St. Paul.
H. J. Belch,
farbrjefa-agent 486 Main Str. Winnipeg.
OLE S I M0 hi30 H
mcelir með sínu nýja
SKANDIA HOTEL
710 2MCa.lxx St.
Fœði $ l,oo á dag.
OLE SIMONSON, Ei$and
Jeg sel
SEDRUS-
GrlRDINGrA-STÓLPA
sjerstaklega ódjrt.
Einnig allskonar
TIMBUR.
SJERSTÖK SALA
Á
Amerílcanskri, þurri
livit - fu.ru.
A. H. YAN ETTEN
á liorninu á
Prinsess og Logan strætum,
Winnipeo.
LESID!
Vjer höfum nú opnað okkar njjn
HARDVOHD-BÚD
í Cavalier, N. Dak.
og getum selt yður hvað sem vera
skal harðvöru tilheyrandi.
Vjer höfum miklar byrgðir af
matreiðslu-ofnum (stoves); allt mögu-
legt úr tini: hnífa og gaffla, xirs
o. s. frv.
Vjer höfum einnig allar teg-
undir af járni, stáli, pumpum, gurð-
ufrlm, rekum, spöðum og verkfæa
úr trje, gaddavlr og allar sortir af
vlr í girðingar, nagla, o. s. frv.
Komið og sjáið okkur áður en
pjer kaupið annars staðar, og vjer
skulum fullvissa yður um, að vjer
seljum billega.
CiilisiSwaison
Cavalier, N. Dak.
Magnus Stephanson búðarmaður.
Caiadiai Padlte
jarnbrautin.
Hin
B i 11 e g a s t a
S t y t s t a
B e s t a
Braut til allra staða
A u s t u r
V e s t u r
S u d u r
Fimm til tíu dollars sparaðir með því
að kaupa farbfjef af okkur
Vcstur ad liafi.
Colonists vefnvagnar með öllum lestum
Farbrjef til Evropu
Lægsta fargjald til Ísi.ands
og þaðan hingað.
Viðvíkjandi frekari upplýsingum, kort-
urr., tímatöflum, og farbrjef-
um, skrifl menn
eöa snúi sjer
til
W. M. McLeod,
Farbrjefa agent, 471 Main St„ Winnipeo
Eða til
J. S. Carter,
á C. P. R. járnbrautarstöðvunum.
| Robt. Kerr,
Aðalfarbrjefageai