Lögberg - 04.11.1893, Page 2
LOOBEKG, LAUGARDAGINN 4. NÓVEMBER 1S93
S ö 3 b c r g.
benð út aB 148 Princess Str., Winnipeg Man.
f T! t í.ögbtrg Printins; ár Publithins; Co'y.
(Incorporated May 27, lS9o).
Ritstjóri (Editor);
EINAR HJÖRLEIFSSON
fc'JSINESS manager: JOHN A. BLÖNDAL.
AUGLÝSINGAR: Smá-auglýsingar i eitt
s'tipti 26 cts. fyrir 30 orfi eíSa 1 þuml.
dálkslengdar; 1 doll. um mánuBinn. Á staerri
auglýsingum efia augl. um lengri tíma af-
slátlur eptir samningi
BÚSTAD A-SftlPTI kaupenda verfiur afi til
kynna tknjlega og geta um fyrvtrandi bú
staO jafnframt.
UTANÁSKRIPT til AFGREIÐSLUSTOFU
blafisins er:
TlfE LÓCBEHC PRiNTINC & PUBLISH- C0.
P. O. Box 368, Winnipeg, Man.
U TANASKRIFT til RITSTJÓRANS er:
EltlTOR LÖOBERC.
P. O. BOX 368. WINNIPEG MAN.
— LAUG A HDAGINN 4 NÓV. 1893. -
ty Samkvæm tanaslögum er uppsögn
kaupanda á blaði ógild, nema hann sé
skuldlaus, þegar hann segir upp. — Ef
kaupandi, sem er í skuld við blað-
ið flytr vistferlum, án pess að tilkynna
heimilaskiftin, pá ej það fyrir dómstól-
unura álitin sýnileg sönuun fyrir prett-
vísum tilgang*.
ty Eptirleiðis verður hverjum þeim sem
sendir oss peninga fyrir blaðið sent viður
kenning fj’rir borguninni á brjefaspjaldi,
hvort sem borganirnar hafa til vor komið
frá Umboðsmönnum vorum eða áannan
hátt. Ef menn fá ekki slíkar viðurkenn-
ingar eptir hæfilega lángan tíma, óskum
vjer, að þeir geri oss aðvart um það.
— Bandaríkjapeuinga tekr blaðið
fullu verði (af Bandaríkjamönnum),
og frá íslandi eru íslenzkir pen-
ingaseðlar teknir gildir fullu veröi sem
borgun fyrir blaðið. — Sendið borgun í
/*. 0. Honey Ordert, eða peninga í Re
gietered Letter. Sendið oss ekki bankaá
vísanir, sem borgast eiga annarstaðar en
i Winnipeg, nema 25cts aukaborgun fylg
fyrir innköllnn.
Svo framarlega sem kjörskrárnar
hjer í bænum verða ekki endurskoð-
aðar — sem lítil líkindi eru til — fyr
ir aukakosningar f>ær sem von er á
hjer í bænum innan skamms, n,á víst
búast við f>ví, að eitthvað verði bogið
\ ið f>ær kosningar. Kjörskrár þessar
voru S8mdar 1891, skömmu eptir að
almennu kosningarnar fóru fram f>að
ár, og f>ær voru samdar á f>ann liátt,
að farið var eptir tveggja ára gömlum
kjörsktám, pessar gömlu kjörskrár að
mestu leyti skrifaðar upp óbreyttar,
nema hvað fáeiuum nöfnum var bætt
\ið. Svo vitlausar voru pessar kjör-
skrár taldar, og svo miklir örðugleik-
ar voru á að koma nokkru lagi á f>ær,
Hð hvorugur pólitiski flokkuriun gerði
ininnstu tilraun til að láta endurskoða
pær. A pessum skrám eru nær því
10,000 i,öfn. En við kosningarnar
1891, sem voru mjög hart sóttar frá
báðum hliðum, greiddu ekki atkvæði
nema 3,747 kjósendur. Við fylkis-
kosningarnar 1892 greiddu atkvæði
alls í öllum premur Winnipeg-kjör-
dæmunum 4,810 kjósendur. Sjálf-
sagt má pví fullyrða, að á kjörsk.án-
um sjeu 4000 nöfn umfram nöfn at-
kvæðisbærra inanna. Uað er á penn-
an hátt, að peir sem fjármagnið hafa
einkum fá tækifæri til að beita sjer,
koma að atkvæðum dauðra manna og
lö igu brottfluttra. Bíði frjálslyndi
fl ikkuiinn ós'gur við pessar kosning-
ar hjer í bænum — sem hann vonandi
gerir ekki — f.á verður J>að að öllum
lík ndum fyrir kjörskrár pessa bæjar,
sein nú eru taldar verstar og vitlaus-
astar af öllum kjörskrám í Canada.
í Suf urríkjunum pykir svo gott
og parft verk að drepa svertingja án
dóms og laga, að ómögulegt er að fá
mena til að sitja í dómnefnd til að
dæm i pá er slíkt gera. Svo fór að
minnsta kosti í Memphis í Tennessee
hjer u n daginn. Hinir ákærðu voru
J>ar af leiðandi látnir lausir, og lialda
pví að líkindum áfram pessu parfa
starfi sínu jafm-k^'ótt sem nytt tæki-
færi byðst.
Fulltrúadeild congressins I Wash-
ington sampykkti á miðvikudaginn
[>ær breytingar, sem öldungadeildin
hafði gert á lögunum um að stjórnin
skyldi hætta silfurkaupunum.* Al-
mennt hefur verið litið svo á, sem fjár-
málavandræðin í Bandaríkjunum stöf-
uðu fremur af pessum silfurkaupum
en nokkru öðru, svo að eú fara
Bandaríkjamenn vafalaust að búast
við betri tlmum en að undanförnu.
Eptir nyjum Norðurálfufrjettum
að dæma, virðist svo, sem menn sjeu
par hræddari um stríð um pessar
mundir, en menn hafa verið um lang-
an tíma undanfarinn. Víst er talið,
að Rússar og Frakkar hafi gengið í
fullt bandalag til sóknar og varnar.
Frakklar.di hefur lengi staðið stugg-
ur af peirri vináttu, sem um nokkurn
tíma er talinn hafa átt sjer stað milli
Englendinga og t>jóðverja, og ætla
menn, að sú vinátta hafi mjög nert á
Frökkum með að láta verða af algerðu
bandalagi við Rússa. Frakkar geta
ekki fyrirgefið Hjóðverjum pað, að
peir tóku frá peim Elsaz og Lothrin-
gen 1871 og pangað til peir fá pau
fylki aptur, hyggja peir vafalausl stöð-
ugt á hefndir. Eptir pví sem I.und-
úna-blaðinu Tirnes og ymsutn öðrum
brezkum blöðum farast orð, líta Eng-
lendingar á petta bandalag Frakkaog
Rússa sem mikla hættu fyrir vald sitt
á hafinu. Meginlands-pjóðir pessar
hafa mjög aukið herskipastól sinn á
síðustu tveimur árunum, miklu meira
en Englendingar hafa gert, og auk
pess eru raddir farnar að láta til sín
heyra um pað, að allmörgum af skip-
um Breta sje í meira lagi ábótavant.
Er pvl búizt við, að stórfje verði ef
til vill lagt fram á næsta pingi Breta
til að auka og endurbæta herskipa-
stólinn. — En pótt Frakkar eigi um
sárt að binda, og vitanlegt sje, að peir
hyggi á hefndir, pá er pó sagt, að
mest hætta fyrir pjóðafriðinn I Norð-
urálfunni stafi af ítölum, og pótt kyn-
legt megi virðast, pá er pað einkum
fyrir siðferðislega apturför peirrai
pjóðar. Ættjarðarástin virðist mjög
hafa dofnað, og landinu liggur við
gjaldprotum, ekki fyrirfétæktar sakir,
lieldur vegna pess að menn vilja ekki
greiða skatta sína. Deir sem bezt eru
aflögufærir hafa öll hugsanleg undan-
brögð. Eptir pví sem Norðuálfu-
frjettirnar segja, sjer stjórnin pau
neyðarúTæði einna vænlegust til að
vekjapjóðina ef andvaraleysi sínu og
koma inn hjá henni ættjarðarást og
sómatilfinning, að hleypa henni í stríð
við Frakka, sem ítölurn hefur lengi
verið í nöp við, og er pað að sögn
skoðun rnargra manna, að ef veturinn
væri nú að ganga úr garði í stað pess
sem haun er að ganga I garð, pá
mundu ekki margir dagar líða áður
en ítalir hleyptu af fyr3ta skotinu í
pessu stríði, sem vafalaust verður eitt
af hinum stórkostlegustu stríðum
heimsins, ef nokkuð verður úr pví á
annað borð.
£>að átti eitt mál, sem íslending-
ar eru við riðnir, að koma fyrir kvið-
dóm pann er nú er lijer í Winnipeg
til að dæina mál manna — inál pað
er höfðað var gegn Jóni ritstjóra Ól-
afssyni fyrir meiðyrði um sjera Frið-
rik J. Bergmann. Niðurstaðan varð
sú, að pað mál komst aldrei svo langt.
Dómnefndin hin meiri (grand jury),
sem á að staðfesta eða fella úrskurð
lögregludómaranna um að vísa málinu
:il dóms og laga, felldi patin úrskurð,
sem í vor var kveðinn upp í pví máli.
£>að er engin furða pótt íslend-
ingum, sem einkum hafa enn íslenzkt
prentfrelsi í höfðinu, pyki J>essi niður-
staða nokkuð kynleg. Jón Ólafsson
hafði sagt I blaði sfnu, að sjera Frið-
rik J. Bergmann hefði að tilefnislausu
velt sjer yfir mann með illyrðum uppi
yfir opinni líkkistu, sem liann átti að
tala yfir. Ef pað hefði verið satt, pá
hefði pað vitanlega verið mjög
hneykslanlegt og skammarlegt atferli
f augum allra siðaðra manna. Pað
var pví ekkert undarlegt, pótt peim
presti er fyrir Jjeim áburði varð, væri
hugleikið að reka hann af sjer á sem
afdráttarlausastan hátt. Og pað var
ekki heldur óeðlilegt, að fsleuzkur al-
menningur gerði sjer í hugarlund, að
eitthvað mnndi segjast á [>ví í pessu
landi, að breiða út slíkar sögur, svo
framarlega sem pær væru með öllu til-
hæfulausar.
Niðurstaðan hefur nú orðið sú,
að slíkt má gera að ósekju hjer f
landinu, svo framarlega sem málið er
ekki rekið sem einkamál og skaða-
bóta krrffizt af sækjanda. Einn af
peim mönnum, er sátu í kviðdómnum
hinum meiri, Ijet hreinskilnislega f
ljós við mann frá blaði voru, hvað
vakað hefði fyrir sjer og peim fjelög-
um sínum, er hefðu viljað vísa málinu
frá. Hann sagði peir hefðu talið víst,
að ef einkamál hefði verið hafið og
skaðabóta krafizt, pá hefði málið verið
dæmt sækjahda f vil. En pað væri
komin margföld reynsla fyrir pví, að
sakamál, sem hafin væru út af meið-
yrðum, ynnust ekki. Blaðamenn
hefðu verið syknaðir hjer í bænum
fyrir að kalla saklausa menn lygara,
pjófa og segja, að peir ættu að rjettu
heima í betrunaihúsum, og pað væri
pví engin lfkindi til að blaðamaður
yrði dæmdur brotlegur gegn hegn-
ingarlögunum fyrir að breiða út slík-
an ábuið, sem pann er hjer væri um
að ræða. t>ar af leiðandi hefði nefnd-
in komizt að peirri niðurstöðu, að
bezt væri að vísa málinu frá og koma
f veg fyrir að meira pjark yiði um
pað.
Sjálfsagt pykir ymsum af lönd-
um vorum notalegt að komast að raun
um, að frelsið sje svona mikið á pess-
ari r.yju ættjörð peirra. Sízt ætti pað
að sitja á oss blaðamönnunum, að gera
oss rellu út af slíku, pótt pessi úrslit
sjeu eðlilega mest fagnaðarefni fyrir
pann ritstjóra, sem hjer átti í hlut.
Oss virðist líka, að kærandinn og peir
mörgu, sem vitanlega voru hlynntir
hans hlið, megi vel við una. Sjera
Friðrik J. Bergmann hefur gert pað
sem í hans valdi hefur staðið til
að vernda sóma sinn, og synt,
að hann var ekki hræddur við að
eiga að hreinsa sig af pessum áburði
fyrir dómstólunum. Og vitaskuld
hefur pað aðallega fyrir honum vak-
að, að gera almenningi manna pað
skiljanlegt, en ekki hitt að klekkja á
mótstöðumanni sínum og valda hon-
um örðugleika.
Gh icago-brj ef.
v.
Chicago 25. okt. 1893
Ritstjóri Lögbergs
Kæri vin.
Flest stórhjfsi syningarinnar eru
í sunnanverðum og miðjum Jackson
Park. Syðstu syningarhúsin eru fyr-
ir lifandi pening: hesta, nautgripi,
fugla o. s. frv. Þau liús náðu yfir 40
ekrur. En nokkur liluti peirra brann
í sumar. Þar er nú sýndir meðal ann-
ars allmargir frægir veðhlaupahestar.
Þar fyrir norðan og austan eru all-
mörg hús með fram Michiganvatninu.
Stærst er Forrestry-liúsið 2,5 ekrur
að stærð. Þar eru sýndar allskonar
viðartegundir. Við hlið pess er An-
throplogical-húsið nálega jafnstórt.
Þar er s/nt margt, er snertir mann-
fræði, fornfræði og sögu.
Mjög mörg merkileg smihús eru
par umhverfis t. d. Cliff Dwellers-
húsið. Þar eru sýndir bústaðir hinna
fornu klettabúa, sem lifðu í landi
pessu fyrir 1500—2000 árum. Eigi
langt par frá liggja skipih Santa
Maria, Nina og Pinta. Þau eru að
nafni, stærð og allri gerð nákvæm-
lega eins og skij> [>au, sem fluttu
Kólumbus til heiinsálfu pessarar fyrir
400árum. Rjett par hjá er Convent
of La Rabida-húsið. Þar er meðal
annars synt allt, er snertir Kólumbus
og sögu hans. Þar fyrir vestan liggja
tvö stórhysi, annað er Agriculture-
húsið, 13 ekrur. Þar er sj?nt allt, sem
að akuryrkju lftur. Fyrir vesian pað
er Machinery húsið lö ekrur. Þar eru
s/ndar allskonar vjelar: vefstólar,
pappfrsmillur, prentvjelar, smíðisvjel-
ar o. s. frv. Þetta eru stórhysin 5
sunnanverðum Jackson Park.
óll stórhysin í miðjum Jackson
Park liggja umhverfis vatn pað, er
lykur um Wooded Island, Fyrir suð-
urenda pess liggja tvö otórhysi. Þar
er Electricity-húsið, 5,5 ekrur. Þar
eru syndar margar og margbreyttar
vjelar, sem allar eru knúðar áfram
tneð rafurmagni. Þar opnast fyrir
manni heill töfraheimur, sem eigi er
auðið að lysa með orðum. Við suð-
austurhorn pess eru 3 gosbrunnar, all-
ir mjög merkilegir. Tveir peirra eru
kallaðir Electric Fountains. Vatns-
geislarnir stfga hátt I lopt upp. Á pá
slær inargbreyttum litum, sem sf og æ
skiptastá. Þessir gosbrunnar eru hið
dyrðlegasta, sem jeg hef sjeð í peirri
grein. Rjett fyrir vestan Electricity-
húsið er Mines-húsið, 5,6 ekrur. Þar
á steinaríkið heima. Þar eru syndar
fjölmargar tegundir steina og málma
og allt, er námagröpt snert.ir. Fyrir
vestan vatnið eru 3 stórhysi. Syði-t
peirra er Transportation húsið, 14,4
ekrur. Þar eru synd öll flutningsfæri
á sjó og landi, skip og vagnaro. s. frv.
Skammt frá húsi pessn er „John Bull"
syndur. Það er« fyrsti eimvagn f
heimsálfu pessari. Hann var smíðað-
ur á Englandi 1830 af George Step-
henson sjálfum, en kom til Philadel-
pbia f maímánuði 1831. í norður fiá
Transportation-húsinu er Horticul-
ture húsið um ö ekrur. Þar er synd-
ur allskonar jurtagróði fráöllum lönd-
um. Þar fyrir norðan er Woman’s-
húsið nálega 2 ekrur. Þar syna kon-
ur hannyrðir og yms önnur kvenna-
störf. Við norðausturhornið er Fish-
eries-húsið, 2,6 ekrur. Þar eru synd-
ar fjölmargar fiskitegundir dauðar og
lifandi. Þar er og synt allt, er snert-
ir fiskiveiðar og fiskivcrkun. Þaðan
f norður liggur Fine Art húsið nálega
6 ekrur. Þar eru synd alskonar lisia-
verk, úthöggnar myndir, málverk o. s.
frv. Þetta hús er heimili ípróttarinn-
ar. Og eru par fjölmörg dyrmæt
listaverk. Við suðausturijorn vatns-
ins, milli pess og Michiganvatnsins,
liggur Manufactures and LiberaJ
Arts-húsið, 30,5 ekrur. Þetta er lang-
stærsta hús syningarinnar, endaerpað
stærsta hús i hcimi. Það er prisvar
sinnum stærra en Pjeturs kirkjan 5
Rómaborg. Það tekur um 300,000
manns. Eptir endilöngu húsinu ligg-
ur aðalgangur. Hann heitir „Colom-
bia Avenue“, og er 50 fet á breidd.
IIús petta er yfir 200 fet á hæð. í
„Elevator“ fara menn upp í gegnum
>akið á pví, og ganga sfðan eptir
veggjuniim hringin f kringum risið
Þaðan er í björtu veðri bezta útsýni
yfir allan syningarstaðinn og Chicago-
borg. í pessu risavaxna húsi er synd-
ur allskonar iðnaður, hverju nafni sem •
nefnist. Nú eru talin upp stórhysi
pau, sem hafa að geyma synisgripi frá
öllum pjóðum. En auk peirra er
fjöldi af öðrum húsurn, sem einstök
ríki eiga. Þannig lmfa Bandaríkin
sjerstakt hús fyrir sig. Það er kallað
U. S. Goverment hús og er 3,3 ekrur.
En frernur hafa öll einstöku ríkin f
Bandarikjunum reist sjerstök hús
handa sjer.' Stærst pelrra eru liúsiri
hreina Cream Tartar Powder.-Engin amónía; ekkert álún.
Brúkað á milliónum heimila. 40ára á markaðnum.
fyrir Jllinois (2 ekrur) og California.
Sjerstök hús liafa og verið reist á
syningarstaðnum fyrir pe3si lönd:
Canada,Ceylon, Colombia, CostaRica,
East India (Austur-Indlandj, France
(Frakkland), Germany (Þyzkaland),
Great Britain (England), Guatemala,
Haiti, Japan, New South Wales, Nor-
way (Norveg), Spain (Spán), Sweden
(Svfpjóð), Turkey (Tyrkland) og
Venezuela. Flest pessi hús eru í
norðanverðu Jackson Park. Enn pá
eru ótalin nokkur hús í garðinum.
Merkilegast peirra er Administration-
húsið í sunnanverðum miðjum Jack-
son I’ark. í pví húsi, sem er einkar
fagurt og skrautlegt, hafa forstöðu-
nefndir syningarinnar skrifstofur sín-
ar. Fyrir framan aðaldyr pess erstór
standmynd af Kólumbusi. Stærsta
og merkilegasta standmyndiu í Jack-
son Park er Statue of „the Republic“.
Hún er afarstór kvennlíkan, sem á að
tákna pjóðveldið. Hún stendur ná-
lægt Michiganvatninu beint á móti
landtökunni pegar farin er vatnaleið-
in á syningarstaðinn. Undirla^ið,
sem hún hvílir á, er byggt úti i vatni
í garðinum. Sjálf er hún 65 fet á
liæð. í hægri hendi heldur hún á
jarðarhnettinum. Þar situr á ugla
með útpanda vængi. En vinstri hend-
inbekluruppimerki frelsisins. Anægja
yfir pvf að liafa náð takmarki sínu
lysir sjer á svip hennar. Höfuðið,
hilsinn og handleggirnir eru gerðir
úr fílabeini. En hinn hluti myndar-
innar er gylltur, og kostaði sú gyli-
iog $300. Svo stórvaxin er hún, að
armleggir hennar eru 30 fet á lengd.
Og 4 ineðalmenn gætu staðið á lófa
hennar. Á höfðinu ber hún höfuð-
djásn. Þuð er lyst upp með rafur-
magnsljósi. Innan í myndinni er
manngengur stigi. llaun liggur upp
í gegnum hálsinn. Og eru djr efst í
hvirflinum. Þessa leið verður sá mað-
ur að fara, sem kveikir rafurmagns-
Ijósið á höfði hennar. Þessi stand-
mynd er mesta listaverk. Ilöfundur
hennar heitir Daniel C. Frencli.
Dálitlu norðar 1 Jackson Park
liggja tvö skip við land í Michigan-
v itninu. Annað er geipistórt herskip,
„Tllinois“ að nafni. Hitt skipið heitir
„Vikingur11. Hann er byggður eptir
fornmannaskipi, 1000 ára gömlu, sem
írið 1889 fannst f fornmanna baug í
Noregi. Vfkingur er hjersyndur sem
nákvæm eptirmynd af pví skipi, er
forðum flutti Leif Eiríksson að strönd-
utn Vínlands. Vfkingur er 76 fefa
langur og allbreiður eptir lengd. Að
aptan og framan eru piljur, en opinn
er hann f miðjunni. Ilann hefur eift
siglutrje. Attaárar eru á borð. Þeim
er stungið gegnum göt & hliðum hans.
[lann er skaraður skjöldum á báðar
hliðar. Að framan ber hann dreka-
höfuð með gapanda gini, en dreka-
■iporð að aptan. Styrið er hægra
megin. En í skutnum er „hástóll“,
foringjasætið (lyptingin), rifað rúna-
stöfum. Víkingur er ágætlega smíð-
aður. Hann er fullkomin eptirmynd
af skipum fornmanna, og er pess
vegna einkar tnerkilegur synisgripur.
Á Midway Plaisance eru engin
merkileg stórhysi. Þó er par eitt af-
armikið mannvirki. Það ar lijól, seitl
kallað er Ferris hjól. Maðurinn, sem
smíðaði pað, beitir G. W. G. Ferris.
'Og eptir lionum tekur pað nafn sitt.
Það eru eiginlega tvö bjól, sem snú-
ast samhliða um sama öxul. Mill peirra
eru 28^ fet. Og eru pau fest saman
með stöngum úr stáli. Milli hjólanna
eru festir 36 fólksvagnar. Hver peirra
tekur 60 manns. Það gætu pannig
verið 2,160 inenn á hjólinu í einu, ef
allir vagnarnir væru fullir. Öxullinn
er 33 pumlungar að pvermáli, 45 feta
langur og 56 tons að pyngd- Hjólið
sjálft er 264 fet að pvermáli. Allt er
úr stáli bæði öxullinn og hjólið. Og
vegur pað allt til sainans 4,800 tons.
Úr hjóltoppinum er 1 björtu veðri
æjög fagurt útsyni yfir allan syning-
arstaðinn, Chicagoborg og vatnið og
landið umhverlis. Það kostaði $400,-
000 að búa lijól petta til. Á Midway
Plaisance eru að eins aukasyningar
i Side Shows). Sumt er par allmerki-
legt, en margt er par mjög lítils virði.
Þó er par eitt allmerkilegt syningar-
hús. Það er Libbey Glass Works
liúsið. Þar er synt allskonar gler-
smíði. Þar er og synt, að liægt er að
búa til föt úr gleri O. s. frv.
Þinn
Hafsteinn Pjeturason.